Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992 32 t Elskuleg móðir mín, HRAFNHILDUR ÞORBERGSDÓTTIR, lést í Landspítalanum föstudaginn 14. febrúar. Hörður Garðarsson. t Bróðir okkar, ÓLAFUR DAÐI ÓLAFSSON, lést í Landspítalanum 15. febrúar sl. Systkinin. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJÖRTUR EYJÓLFSSON, Neðstaleiti 8, andaðist í Landspítalanum 16. febrúar. Þórey Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, FANNEY MAGNÚSDÓTTIR, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, andaðist 16. febrúar. Steinunn Ósk Magnúsdóttir, Björn Ásgeirsson, Jóna Magnúsdóttir, Gunnar Asbjörnsson, Þórunn Magnúsdóttir, Guðmundur Guðbjarnarson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBJARTUR JÓNSSON frá Efri-Húsumj Önundarfirði, nú Hlif, Isafirði, sem lést í Sjúkrahúsi Isafjarðar þann 10. febrúar, verður jarðsung- inn frá ísafjarðarkapellu miðvikudaginn 19. febrúar kl. 14.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag íslands. Petrina Ásgeirsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir okkar, BJARGEY PÁLSDÓTTIR CHRISTENSEN, lést á elliheimilinu Grund 14. febrúar. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 25. febrú- ar kl. 15.00. Árni Pálsson, Inga Pálsdóttir Sólnes, Páll Kr. Pálsson, Sigríður Pálsdóttir. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, ÓSK SIGURÐARDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. febrúar kl. 13.30 Sigurður Böðvarsson, Salgerður Marteinsdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINN RÓSINKRANS JÓNSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. febrúar kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Hjartavernd eða Gigtarfélag fslands. Þorgerður Sveinsdóttir, Helga Sveinsdóttir, Valdimar Guðnason, Jón R. Sveinsson, Guðrún Óskarsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, Guðmundur Helgi Guðmundsson og barnabörn. Soffía M. Sigurðar dóttír - Minning Fædd 28. nóvember 1912 Dáin 11. febrúar 1992 Elsku amma okkar, Soffía Mag- dal Sigurðardóttir lést í Borgarspít- alanum 11. febrúar sl. Okkur lang- ar að minnast hennar með fáeinum orðum. Amma fæddist 28. nóvem- ber 1912 á ísafirði. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sigurður Þorsteins- son og Gróa Þórðardóttir. Þau bjuggu lengst af í Steinabæ á Bráð- ræðisholti í Reykjavík. Amma var §órða í röð ellefu systkina. Þessi eru látin: Einar, Guðmundur, Sigurlaug, Jón og Guðrún. Eftir lifa: Margrét, Emma, Aðalbjörg, Þorsteinn og Gunnar. Amma kynntist afa okkar Guðjóni G. Símonarsyni haustið 1932, og gengu þau í hjónaband 29. sept- ember 1934. Þau eignuðust þijú böm: Gróu Sigríði, Baldur Viðar og Sigurð. Barnabörnin eru níu og bamabarnabörnin níu. Nú þegar amma er látin, koma fram í hugann ýmsar minningar. Við sem þekktum ömmu vei, vitum að hún hefði ekki viljað að um hana yrði skrifuð einhver lofræða, því hún var ekki fyrir það að bera til- finningar sínar á torg, eða að láta bera á sér, og enn síður að kvarta yfir hlutunum. Við systumar mun- um vel orðin hennar ömmu: „Þolin- mæðin þrautir vinnur allar.“ Amma var glæsileg kona, og það sópaði að henni hvar sem hún fór. Ósjálfrátt tók fólk eftir henni þar sem hún var, því hún var alltaf svo vel til höfð, og hafði svo þykkt og fallegt silfurhvítt hár. Þegar hattur- inn var svo kominn á sinn stað, þá fyrst var amma tilbúin, að henni fannst. Það var alltaf sérstök reisn yfir henni. Amma var ákveðin kona, og hafði sínar skoðanir á hlutunum. Hún var hrein og bein í samskiptum sínum við aðra. Hún var þessi „trausti klettur í hafinu“ sem við gátum alltaf reitt okkur á, enda bar hún hag fjölskyldu sinnar ofar öllu. Amma var mikil húsmóðir. Það var ekki í kot vísað, að koma til hennar og afa. Við systumar höfum umgengist þau mikið í gegnum tíð- ina. Oft vorum við hálfgerðir heima- gangar þar. Þegar við vomm að vinna í físki í Bæjarútgerðinni hér áður fyrr, þá löbbuðum við oft í hádeginu til ömmu og afa til að fá okkur matarbita. Amma var ekki ánægð nema fólk gerði matnum hennar og kök- unum góð skil, og sagði þá gjam- an: „Viltu ekki fá þér aðeins meira, elskan mín, þú hefur bara gott af því.“ Eitt enn verðum við að nefna í sambandi við ömmu, það er hlátur- inn hennar, sem alltaf var svo stutt í. Hún hafði svo smitandi hlátur, að maður gat ekki annað en hlegið með. Oft fengum við algjört hlát- urskast, og hlógum þá þangað til tárin runnu niður kinnarnar. Amma og afi höfðu mikið yndi af ferðalögum, bæði innanlands og utan. Þau gátu þó ekki veitt sér mörg ferðalög fyrr en á efri ámm. Árið 1978 fóru þau saman, ásamt annarri okkar systranna og dóttur hennar, í sína fyrstu sólarlandaferð til Portoroz í Júgóslavíu. Sú ferð er ógleymanleg. Eftir þetta fóru amma og afí saman í ferðalög á hveiju ári, þar til heilsu ömmu tók að hraka. Alls urðu ferðimar þeirra tíu. í einni af þessum ferðum, létu þau gamlan draum ömmu rætast, og fóru til Rómar. Sú ferð varð ömmu hugstæðust allra. Elsku ömmu okkar þökkum við allar samvemstundirnar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveija, vininn sinn látna, er sefur hér sinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi,. hans dýrðarhnoss þú hljótá skalt. (V. Briem) Elsku afí, mamma, Baldur, Siggi og aðrir aðstandendur. Til ykkar sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Minningin um ömmu mun lifa í hjörtum okkar. Soffía og Lína. Það er svo skrítið þetta líf. Mað- ur fæðist til að deyja og þó svo að maður fái heila mannsævi til að deila með þeim sem manni þykir vænt um finnst manni aldrei sá tími koma sem maður er tilbúinn til að kveðja. Þannig líður okkur núna þegar við sitjum hér saman og skrif- um þessa minningargrein. Hún amma var búin að lifa góðu og hamingjusömu lífí. Hún eignaðist þrjú heilbrigð börn og var alla tíð í mjög góðu og hamingjusömu hjónabandi. Okkar fyrstu minningar um heimili ömmu og afa eru þær hvað það var alltaf opið og hlýtt. Það var alltaf tekið vel á móti öllum sem þangað komu og alltaf þurftu allir að fá að drekka og borða eitthvað í eldhúsinu hennar ömmu, að því loknu lét hún sér ekki muna um að leika sér við okkur og gefa okk- ur allan þann tíma sem við þurftum. Þar af leiðandi lærðum við mjög ung að aldri að taka strætó til ömmu og afa og þangað sóttum við mikið. Það er svo gott hvað sumir geta verið sjálfum sér nógir. Hún amma sagði okkur einu sinni að sér hefði aldrei leiðst allan þann tíma sem afí var á sjónum, samt var hún heima allan daginn. Svona getur jákvæður hugsunarháttur létt manni lífíð og það að fá að kynn- ast þannig hugsandi manneskju, gefur manni svo mikið að þ.ví fá engin orð lýst. Hún studdi mann svo oft þegar maður kom og sagði henni hvað maður var og ætlaði að gera. Það voru aldrei neinar prédik- anir yfír því, heldur fékk maður alltaf jákvæð viðbrögð og góðan stuðning það var manni svo mikils virði að það létti allt ef eitthvað erfítt þurfti að gera. Alveg lýsir það ömmu og afa þegar við komum með unga systur okkar sem var þeim alveg óskyld inná heimili. Þau tóku henni alltaf eins og einu af sínu barnabarni og vill hún því þakka þeim fyrir allar þær góðu stundir sem þau hafa átt saman. Núna seinni árin hefur amma oft á tíðum verið mjög lasin og því mikið reynt á afa og alltaf var hann henni svo þolinmóður og góður. Fólk sér á þannig stundum hvað það er mikilvægt að hafa einhvern svo tryggan og umhyggjusaman eins og afi hefur verið að það væri óskandi að allir væru svo heppnir í lífínu. Hún lagði allt sitt traust á hans herðar og því brást hann ekki. Við viljum með þessum orðum þakka elsku ömmu okkar fyrir allar okkar yndislegu stundir. Ævibraut vor endar senn, er vér hljótum sjá, Allir Drottins munu menn mætast heima þá. Ef ei dauðinn undan fer, ástkær Frelsarinn. Kemur senn og burt oss ber, beint í himininn. Ó, er okkar vinir, allir mætast þar, Ganga á geislafógrum grundum eilífðar. Lofa Guð og Lambið, lífið sem oss gaf, sorgin dvín, sólin skín. Sjá Guðs náðarhaf. Margir, er vér unnum heitt, undan fóru heim, Hafa strið til lykta leitt, ljúft vér fógnum þeim. Þar er sérhvert þerrað af þeirra sorgartár. Arf á himnum Guð þeim gaf, gleðjast allar brár. (Sigríður Halldórsdóttir Hörpustrengir söngbók Fíladelfíukirkju) Elsku afi, það er ekki auðvelt að kveðja eftir 58 ára samveru. Guð veri með þér. Soffía Dóra, Gísli, Jón Bjarmi og Eybjörg Helga. *—í Minningarkort Bandalags íslenskra skáta Sírni: 91-23190 ^ jJj Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. t Móðir okkar og fósturmóðir, VILBORG KOLBEINSDÓTTIR, Ljósafossi, Grímsnesi, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 16. febrúar. Unnur Gréta Úlfsdóttir, Nanna Úlfsdóttir, Áslaug Herdfs Úlfsdóttir, Geirlaug Halla Mears, Edda Úlfsdóttir, Sverrir Úlfsson, Kolbrún Úlfsdóttir, Magnús Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.