Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992 17 sækja þó gestagangur væri mikill, því hús þeirra var í þjóðbraut og Bakkabýlin miðstöð sveitarinnar. Þar var verslun og sláturhús Sam- vinnufélags Dalahrepps. Ungmenn- afélagshúsið rétt hjá og allir fundir og mannamót haldnir í samkomu- húsi ungmennafélagsins. Það voru því margir sem þáðu veitingar og gistingu hjá þeim hjónum. Bæði voru mjög félagslynd og naut félagsstarfsemi sveitarinnar krafta þeirra á því sviði. í fyrsta sjónleiknum, sem ég sá, léku þau bæði og það var ekki í seinasta skipt- ið, sem þau voru á fjölunum í þágu góðs málefnis. Bæði voru bindindis- fólk og studdu ungmennafélags- starfsemina, sem þarna var, af heil- um huga. Ég á von á því að eftirlif- andi sveitungar minnist þeirra hjóna með hlýju og þakklæti. Er suður kom störfuðu þau hjén mikið með stúkufólki í Hafnarfirði og voru þar bæði virkir þátttakendur og vinsæl, enda mjög félagslynd og áhugasöm eins og áður er sagt. Ég held að stúkufólkið í Hafnarfirði eigi góðar minningar frá samverustund- um með Elínu og Lárusi, í leik og starfi hjá stúkunni. Árið 1954 fór Lárus að starfa hjá Pósthúsinu í Hafnarfirði og vann þar í 24 ár, lengst af við bréfberastörf, en síðustu árin við störf innanhúss. Láus byggði ásamt Guðmundi syni sínum myndarlegt íbúðarhús á Hringbraut 19 í Hafnarfirði og bjuggu þau hjónin þar til ársins 1986, er Elín varð að dvelja á sjúkra- húsum vegna veikinda er leiddu hana til dauða. Hún lést í febrúar 1987. Lárus var þá kominn til barna sinna og dvaldi í skjóli þeirra þar til hann fór á Sólvang síðla árs 1990 og var þar til hinstu stundar. Lárus var rétt meðalmaður á hæð, þrekinn um herðar og brjóst. Eflaust hefur barningur undir ár og annað erfiði sjósóknar, á unglingsá- rum og framan af ævi, sett svip sinn á hann og stælt. Hann var óvenju- lega frískur maður, léttur á sér og kappsamur við allt sem hann tók sér fyrir hendur og ekki ánægður fyrr en að verki var lokið. Hann var glað- lyndur og hjálpsamur, vinur vina sinna, en vildi ekki viljandi gera á hlut nokkurs manns. Lárus og Elín áttu þijú börn. Þau eru Guðmundur húsasmiður, giftur Unni Einarsdóttur hjúkrunarfræð- ingi, Ásta Guðríður, gift Eyjólfi Ein- arssyni skipasmið og Guðrún, gift Jóhannesi Jónssyni skipasmið. Lárus var áhugamaður um ljós- myndagerð og tók margar góðar myndir. Hann hafði einnig mikinn áhuga á örnefnasöfnun frá æsku- stöðvunum fyrir vestan og safnaði jafnframt frásögnum um menn og atvinnuhætti þar vestra. Hann fór hvað eftir annað vestur í Arnarfjörð á sumrum til að taka myndir af öllu mögulegu, sem bar örnefni, ásamt bæjum og öðru úr sveitinni. Jafn- framt byrjaði hann að skrá örnefni, ásamt sögnum, sem tengdust ein- staka stöðum. Það voru síðustu for- vöð að ná til manna, sem þekktu og mundu eftir örnefnum og sögnum þaðan sem höfðu gengið frá manni til manns. Örnefnasöfnun Lárusar og myndir sem hann tók í sambandi við þau eru ómetanleg. Hann lærði á ritvél á efri árum og festi á blað, það sem hann vissi um einstaka býli í sveit- inni ásamt fjöllum og víkum og setti með viðeigandi myndir, sem margar eru ómetanlegar vegna þess að þær eru af föllnum klettadröngum, göml- um húsum og fleiru sem ekki er leng- ur til. Bókband lærði Lárus á gamals aldri og batt snyrtilega inn söfnin sín og fleiri bækur. Það var gaman að spjalla við Lánis um örnefnin að vestan og skoða myndir þaðan. Hann var óþreytandi að miðla mér, er þess- ar línur skrifar, og gefa bæði mynd- ir og afrit af því sem hann var bú- inn að rita og safna. Fram undir það síðasta fylgdist hann með af áhuga á gangi mála vestur í Arnarfirði, ekki síst fréttum af aflabrögðum og sjósókn. Nú er komið að ferðalokum. Við hjónin þökkum af heilum hug sam- fylgdina. Við sendum börnum hans og fjölskyldum þeirra samúðarkveðj- ur og óskum þeim alls góðs. Megi ljúfmennið Lárus Jón hvíla í friði. í dag kveðjum við ástkæran afa okkar, Lárus Jón Guðmundsson. Við systurnar eigum margar ljúfar minn- ingar tengdar Lárusi afa og Elínu ömmu, en hún lést fyrir fimm árum. Alltaf var sérstakt að koma til þeirra á Hringbraut 19, þau voru svo létt í lund og ung í anda. Þau gáfu sér tíma til að segja okkur sögur og oft tók afi upp myndasafn- ið sitt með kirkjumyndunum og kort- unum til að sýna okkur og höfðum við mjög gaman af því. Á meðan við skoðuðum myndirnar fór amma fram í eldhús og hitaði súkkulaði og gaf okkur ásamt pönnukökunum og kleinunum sem hún bakaði af snilld. Aldrei munum við gleyma því þegar við vorum litlar stelpur, hve oft afi sendi okkur út í Bryndís- arsjoppu til að kaupa appelsín og „þrettán krónu súkkulaði" eins og hann kallaði Síríus suðusúkklaði og við köllum enn í dag. Oft lagði afi sig eftir matinn og kom þá stundum fyrir að hann lagði dagblaðið Tímann yfir andlitið svo hann gæti sofið betur, fannst okkur þetta mjög sniðugt. Afí og amma störfuðu af miklum krafti í stúkunni Daníelsher nr. og eru ógleymanlegar þær ferðir er við fórum með þeim og vinum þeirra á bindindismótin í Galtalækjarskógi og fylgdi því jafnan mikil tilhlökkun. Afí var póstur í Hafnarfirði um árabil, gaman var að fylgjast með honum þegar hann bar út póstinn, hann setti svip á bæinn í póstbún- ingnum með gulllituðu hnöppunum, húfuna og stóru töskurnar tvær, við vorum inikið hreyknar að eiga Lalla póst fyrir afa. Eftir að amma lést bjó afi hjá móður okkar og föður að Þrasta- hrauni 6, í þijú og hálft ár, og nutu þau öll þeirra samvista. Síðastliðið ár dvaldi hann á Sólvangi. í heim- sóknum okkar til hans með börnin okkar, sá hann alltaf til þess að þau fengju konfektmola í nesti. Við erum þakklátar fyrir að börn- in okkar fengu eins og við að kynn- ast ömmu og afa á Hringbraut, vilj- um við þakka fyrir allar þær stund- ir er við áttum með þeim og trúum því að þau hafi sameinast á ný. Guð blessi minningu þeirra. Svandís og Fríða Eyjólfsdætur. Við getum þagguð niður í þeim flestum Sendum í póstkröfu! Gott verð — Gæðaþjónusta ÍSETNING Á STAÐNUM Verslið hjá fagmannínum. Bílavörubú&in JFJÖÐRII Skeifunni 2, SímÍ 81 29 44 m ÍSLENSK VERSLUN Stofnfundur Flutningakauparáðs ÍSLENSK VERSLUN (Bílgreinasambandið, Félag íslenskra stórkaupmanna og Kaup- mannasamtök íslands) efnir til fundar um stofnun íslensks Flutningakauparáðs. Fund- urinn verður haldinn þriðjudaginn 18. febrúar kl. 16.00 í Húsi verslunarinnar á 6. hæð í fundrasal ÍSLENSKRAR VERSLUNAR. Flutningakauparáð eru starfandi í öllum löndum Evrópu og reyndar víða um heim. Þessi ráð starfa að sameiginlegum hagsmunum flutningakaupenda og eru í raun eins- konar neytendafélög þeirra sem þurfa að eiga mikil viðskipti við flutningsaðila. Meðal mála sem Flutningakauparáðið mun láta sig varða eru: Sjóflutningar, landflutn- ingar, loftflutningar, hafnarmál, þ.m.t. flughafnir, póst- og fjarskipaflutningar, vöru- flæði, -stjómun og -hagræðing. Dagskrá: 1. Ávarp: Birgir R. Jónsson, formaður ÍSLENSKRAR VERSLUNAR. 2. Samþykktir Flutningakauparáðs kynntar og bornar undir atkvæði. 3. Stjórnarkjör. 4. Ákvörðun árgjalda. 5. Onnur mál. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum ÍSLENSKRAR VERSLUNAR. íslensk verslun hvetur félagsmenn sína til að mæta á fundinn og taka þátt í stofnun félagsins. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í sima: 678910, 687811 og 681550. Glitnir hf. ,kt. 511185-0259 Ármúla 7, Reykjavík Skuldabréfaútboð 1. flokkur 1992 Heildarfjárhæð kr. 280.000.000.- Utgáfudagur 15. janúar 1992 Fyrsti söludagur 12. febrúar 1992 Flokkur Gjalddagi Upphæð l.fl.A 1992 15.08.1995 70.000.000 l.fl.B 1992 15.11.1995 70.000.000 l.fl.C 1992 15.03.1996 70.000.000 l.fl.D 1992 15.06.1996 70.000.000 Skuldabréfin eru verðtryggð skv. lánskjaravísitölu. Grunnvísitala er 3196 Ávöxtun yfir hækktm lánskjaravísitölu nú 9,7% Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Stefán Thoroddsen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.