Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 26

Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 26
6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1992 Kona sýknuð af að vera völd að eldsvoða HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað konu á Akureyri af að vera völd að eldsvoða í íbúðarhúsi við Hafnarstræti 86a í nóvember árið 1990. Konan hafði einnig verið sýknuð í héraði. Málsatvik eru þau að sunnu- dagsmorguninn 25. nóvember árið 1990 kom upp eldur á miðhæð hússins við Hafnarstræti þar sem umrædd kona bjó ásamt eigin- manni sínum. Var konan úrskurð- uð í gæsluvarðhald grunuð um að hafa valdið eldsvoða á þann hátt að leggja þvott á eldavél og sett straum á allar íjórar hellur elda- vélarinnar, þannig að eldur hlaust af. Þá var konunni einnig gefið að sök að hafa með eldsvoðanum gert tilraun til vátryggingarsvika og að fyrir henni hafi vakað að Kennari ekki skólastjóri Doktor Kristján Kristjánsson var sagður skólastjóri Háskólans á Akureyri í frétt í blaðinu á laugar- dag. Það er^kki rétt, Haraldur Bessason er rektor Háskólans á Akureyri, en dr. Kristján er kenn- ari við skólann. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum um leið og þau eru leiðrétt. fá tryggingabætur fyrir brunatjón, en hún hafði keypt Ijölskyldu- tryggingu á föstudegi, tveimur dögum fyrir brunann. Konan játaði fyrir lögreglu að hafa verið völd að brunanum, en dró þá játningu til baka degi síð- ar. Játningin var ekki lögð til grundvallar í málinu. Lögreglu- maður sem yfirheyrði konuna bar fyrir dómi að framburður hennar var ekki trúverðugur. í dómi sem kveðinn var upp í síðustu viku segir að margt bendi til þess að ákærða hafi valdið elds- voðanum, en rannsókn málsins hefði þó ekki leitt til þess, að loku væru fyrir það skotið að aðrir kunni að eiga hlut að íkveikjunni. Með hliðsjón af því og gegn neitun ákærðu þótti því ekki komin full sönnun um sök hennar. Málið dæmdu hæstaréttardóm- aramir Guðrún Erlendsdóttir, Gunnar M. Guðmundsson, Harald- ur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein. Vetjandi kon- unnar í Hæstarétti var Guðjón Styrkársson, en í héraði Arnar Sigfússon. Freyr Ófeigsson kvað upp dóminn í héraði. Baðar sig í sviðsljósinu SPIKFEITUR selur svamlaði um í sjónum og lagðist upp á ís í fjör- unni við Torfunesbryggju í gærdag. Virtist hann kunna vel við sig í sviðsljósinu. Gigtarfélagið á Akureyri: Erindi um iðjuþjálfun flutt á fundi GIGTARFÉLAGIÐ á Akureyri heldur fund í kvöld, þriðjudags- kvöld á Hótel KEA og hefst hann kl. 20.30. Á fundinum heldur Frosti Jó- hannsson framkvæmdastjóri Nor- ræna gigtarársins á íslandi erindi og segir frá því sem gera á hér á landi í tilefni þess. Þá halda þau Ingvar Teitsson sérfræðingur í gigt- arlækningum og Ólöf Leifsdóttir iðjuþjálfi erindi um iðjuþjálfun. Ingibjörg Sveinsdóttir, gigtar- sjúklingur á Akureyri hyggst ganga 1.992 kílómetra á þessu ári í tilefni gigtarársins og til að vekja athygli á málefnum gigtarsjúkra. Hún hef- ur nú lagt af baki 275 kílómetra og hefur mikinn hug á að heyra í þeim sem þessum málum tengjast. „Ég hef mikinn áhuga á að fá fólk til að ganga með mér, eða að ganga fyrir þá sem ekki geta það sjálfir og vil því endilega biðja fólk að hafa samband við mig,“ sagði Ingi- björg en hún á heima í Stekkjar- gerði 1 á Akureyri. Tvö skip fyrir Malavímenn Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig meö blómum, gjöfum og árnaðar- óskum á nírœðisafmœli mínu. Guð blessi ykkur öll. Sigurbjörg Pétursdóttir, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Félagasamtök, stofnanir o.fl. Við Lauga í Reykjadal, S-Þing., er til sölu einbýlishús með bílskúr, um 140 fm. Sundlaug 10-3,8 fm. 1.600 fm lóð. Stutt í ýmsa þjónustu. Upplýsingar gefur Eignakjör, Hafnarstræti 108, ftkureyri, sími 96-26441. Folda hf., Akureyri, auglýsir breytingar á símanúmerum frá og með mánudeginum 17. febrúar 1992: Folda hf., Gleráreyrum, Akureyri. Bréfasími: (96) 2 72 95. Beinir símar: - Heildsala 2 14 91 — 2 14 96 - Skrifstofa 2 19 01 — 2 19 02 — 2 19 00 - Fatadeild: - Smávörulager (Hekluhús)... 2 18 05 - Prjónasalur 2 18 08 - Vefdeild 2 18 06 Verksmiðjuverslun Geymið þessa auglýsingu. 1 11 67 verða smíðuð í Slippstöðinni SLIPPSTÖÐIN mun smíða tvö lít.il skip fyrir Malavímenn í Afríku og verður hið fyrra, sem er rannsóknarskip, afhent í lok september á þessu ári, en hið síðara, fiskiskip, í mars á næsta ári. Stjórn Slipp- stöðvarinnar ákvað að skipin yrðu smíðuð hjá stöðinni, en nokkuð hefur dregist að gengið yrði frá samningum um þau og tilboð voru miðuð við að þau yrðu smíðuð yfir daufasta tímann að vetrinum. Hólmsteinn Hólmsteinsson for- maður stjórnar Slippstöðvarinnar sagði að mál þetta hefði lengi verið í deiglunni, en dregist hefði að svar kæmi frá Malaví. Búið væri að ganga endanlega frá samningum um smíði skipanna og hefði stjórn Slippstöðvarinnar ákveðið á fundi á sunnudag að skipin yrðu smíðuð hjá Slippstöðinní. Upphaflega var tilboð stöðvar- innar miðað við að skipin tvö yrðu smíðuð að vetrinum þegar minnst er að gera, en Malavímenn verið mun lengur en búist var við að taka ákvörðun. „Þetta átti að vera vetr- arverkefni til að brúa daufasta tímabilið í þessum iðnaði,“ sagði Hólmsteinn. Húsavík: Nýr hótelstjóri Húsavík. NÝR hótelstjóri, Benedikta Steingrímsdóttir, tók við rekstri Hótel Húsavíkur nú um síðustu mánaðamót. Benedikta hef- ur búið undanfar- in ár á Hvolsvelli. Hún hefur fengist við bæði fésýslu og stjómunarstörf og unnið meðal annars hjá Flug- leiðum. Eiginmaður Benediktu er Ein- Steingrímsdóttir ar Grétar Magn- ússon kennari og eiga þau tvo drengi á skólaaldri svo að fjölskyld- an flytur ekki til Húsavíkur fyrr en að skóla loknum á komandi vori. - Fréttaritari. Bytjað verður af krafti á smíði fyrra skipsins, sem er rannsóknar- skip, í apríl og verður það afhent í lok september. Sagði Hólmsteinn að vissulega væri verra fyrir Slipp- stöðina að smíði þess kæmi að hluta inn yfir sumarið. Síðara skipið, lítið fiskiskip, verður afhent í lok mars á næsta ári. Verð beggja skipanna er um 110 milljónir króna og sagði Hólmsteinn að ljóst væri að ekki yrði um hagnað að ræða vegna skipasmíðanna. „Þegar við gerðum okkar tilboð var miðað við vetrar- verkefni og menn teygja sig ansi langt niður þegar verkefni á þeim tíma eru annars vegar.“ Skipin verða flutt í pörtum til Malaví og þeim ekið að Malavívatni þar sem þau verða sett saman, en fyrirhugað er að nota skipin til rannsókna og veiða á umræddu vatni. Þó svo þetta verkefni komi nú til verður engin breyting á varðandi fyrri uppsagnir og aðgerðir hjá Slippstöðinni, en uppsagnir iðnaðar- manna taka flestar gildi um næstu mánaðamót eftir að þær voru fram- lengdar um einn mánuð vegna góðr- ar verkefnastöðu. „Þetta verkefni eitt og sér dugir ekki til að við getum haldið öllum mannskapnum, meira þarf að koma til,“ sagði Hólmsteinn, en hann sagði að óvissa væri með verkefni í vor, menn vissu ekki hversu mikil þau yrðu. „ Þetta er fyrsta vorið eftir að kvótaárinu var breytt og menn vita því ekkert um hvort skip skila sér til viðgerða og viðhalds á þeim tíma. Það hafa verið léleg aflabrögð það sem af er ári og ef framhald verður á er óvíst að útgerðarmenn komi með skip inn í vor,“ sagði Hólmsteinn. Tjón vegna foks á Kvíabekk Talsvert tjón varð á Kvíabekk í Ólafsfirði aðfaranótt sl. laugardags þegar hluti af þaki og veggjum fauk af gripahúsum á bænum. All margir hestar voru í húsunum og sakaði þá ekki, en tjón bóndans, Andrésar Kristinssonar, er tilfinnanlegt. Á myndinni má sjá þær skemmdir sem urðu á gripahúsunum í hvassviðrinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.