Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1992
19
Ásdís, fyrsta Fokker 50 vél Flugleiða komin til landsins:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Um 3.000 manns tóku á móti Asdísi, fyrstu Fokker 50 flugvél Flugleiða er hún lenti á Akureyrarflugvelli á laugardag.
Ekki fjárfesting í líðandi
stund heldur í framtíðinni
Heildarverð
vélar er 870
milljónir
NÝ Fokker 50 skrúfuþota kost-
ar með varahlutum og auka-
búnaði um 870 milljónir króna.
Flugleiðir munu leigja þrjár
slíkar vélar til 10 ára og eina
til 5 ára og hafa þá kauprétt á
fyrirfram ákveðnu verði. Fok-
ker 50, sem er af nýrri kynslóð
skrúfuþota leysir af hólmi F-27
vélar félagsins.
Fokker 50 minnir um margt á
F-27 vélarnar í útliti, en allur
búnaður og innri gerð er allt önn-
ur, auk þess sem Fokker 50 flytur
fjórðungi fleiri farþega en F-27.
Farþegar njóta „þotuþæginda“
um borð, farþegarými er rúmgott
og gott pláss er í lokuðum farang:
urshólfum fyrir handfarangur. í
vélinni er gott loftræsti- og hita-
kerfi og fullbúið eldhús. Þá er
Fokker 50 hljóðlátari en aðrar
skrúfuvélar og í farþegarými er
hávaði minni en í mörgum þotum.
Þegar er farið að fljúga Ásdísi,
fyrstu Fokker 50 vélinni á áætlun-
arleiðum Flugleiða innanlands.
Onnur vélin lendir á Egilsstöðum
29. febrúar, sú þriðja á ísafirði
25. apríl og sú fjórða og síðasta
lendir í Vestmannaeyjum 9. maí.
- seg-ir Sigurður Helgason forstjóri
„NÝJU Fokker 50 skrúfuþoturnar sem koma til landsins i vetur
og vor eru afbragðs gripir. Flugleiðir völdu þessar vélar þótt þær
væru nokkuð dýrari en aðrar sem til greina komu, því félagið
taldi fullljóst að þessar vélar hentuðu best íslenskum aðstæðum
og gerðu fært að veita besta þjónustu," sagði Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða í ræðu sem hann hélt er fyrsta af fjóruin nýjum
Fokker 50 vélum Flugleiða lenti á Akureyrarflugvelli á laugar-
dag, en vélinni var flogið beint frá Amsterdam. Um þrjú þúsund
manns voru saman komin á Akureyrarflugvelli á laugardaginn
Kristrún Eymundsdóttir, eigin-
kona Halldórs Blöndal samgöngu-
ráðherra, gaf hinni nýju vél nafnið
Ásdís við athöfnina á flugvellinum
á Akureyri. Hörður Sigurgestsson
stjórnarformaður Flugleiða af-
henti vélina formlega og þakkaði
Sigurður Helgason forstjóri stjórn
félagsins fyrir hönd starfsmanna
þess það traust sem hún sýdi með
ijárfestingu í nýjum flugflota til
innanlandsflugs. „Stærra skref
hefur ekki verið stigið í flugsam-
göngum innanlands frá því að
Flugfélag íslands keyptu fyrstu
Fokker Friendship F27 vélarnar
fyrir 27 ánim,“ sagði Sigurður.
Þá þakkaði hann einnig íbúum
landsbyggðarinnar, sem tugþús-
undum saman væru dyggir við-
skiptavinir innanlandsflugs Flug-
leiða á ári hveiju, en með tilkomu
nýju vélann'a væri félaginu betur
fært að þjóna þeim en nokkru sinni
áður. Á hveiju ári eru farþegar í
innanlandsflugi um 240-260 þús-
und til og frá 10 áætlunarstöðum
og þótt umsvif félagsins væru
meiri í millilandafluginu mætti
með réttu segja að hjarta þess slái
í innanlandsfluginu. ísland væri
heimamarkaður Flugleiða.
„Það má segja að oft hafi verið
heppilegri stund til stórra fjárfest-
inga en einmitt nú. En Fokker 50
er ekki fjárfesting í líðandi stund.
Þessar nýju vélar eru Ijárfesting í
framtíðinni og til marks um að
Flugleiðir hafa sterka trú á fram-
tíð öflugrar byggðar um landið
allt,“ sagði Sigurður. „Með þessurn
vélum eflum við samgöngur milli
höfuðborgarinnar og landsbyggð-
ar. Með þeim eflum við einnig
ferðaþjónustu sem er vaxandi at-
vinnuvegur á landsbyggðinni. Ég
veit að þessar nýju flugvélar verða
bæði Flugleiðum og byggðalögum
sem fyrirtækið þjónar til blessun-
ar.“
Við mótttökuathöfnina á Akur-
eyrarflugvelli fluttu einnig ávörp
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra og Pétur Einarsson flugmál-
astjóri. Þá var gestum boðið að
skoða vélina og er talið að um
3.000 manns hafi þegið boðið. Að
lokinni opinberri mótttöku á Akur-
eyri var vélinni flogið til Reykjavík-
ur þar sem fram fór athöfn fyrir
starfsfólk í innanlandsflugi félags-
ins og voru þar um 500 manns.
Þar afhenti Sigurður Helgason for-
stjóri Aðalsteini Dalmann Októs-
syni elsta starfsmanni Flugleiða
vélina til starfrækslu, en Aðal-
steinn hefur starfað hjá félaginu
frá árinu 1958.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Kristrún Eymundsdóttir, eigin-
kona Halldórs Blöndal sam-
gönguráðherra, gefur Ásdísi
nafn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Áhöfn Ásdísar, fyrstu Fokker 50 vélar Flugleiða fagnað við kom-
una til Akureyrar. Flugstjórar voru þeir Gísli_ Þorsteinsson og
Sigurður Elli Guðnason, en flugfreyjur voru Áslaug Pálsdóttir
og Björg Valdimarsdóttir.
Alveg hreinasti draumur
- segir Signrður Eili Guðnason flugstjóri um Fokker 50 vélarnar
„VÉLIN reyndist frábærlega á heimfluginu og allir voru alsælir.
Flugið tók um fjóra og hálfan tíma og það gekk í alla staði mjög
vel,“ sagði Sigurður Elli Guðnason, en hann og Gísli Þorsteinsson
flugstjórar hjá Flugleiðum flugu hinni nýju Fokker 50 flugvél Flug-
leiða, Ásdísi heim frá Amsterdam í Hollandi til Akureyrar og það-
an til Reykjavíkur á laugardag. Flugfreyjur í ferðinni voru Áslaug
Pálsdóttir og Björg Valdimarsdóttir.
Sigurður Elli sagði að mesti
munurinn á milli gömlu og nýju
Fokkervélanna fælist í tækjabún-
aði, en Fokker 50 er búin mjög
fullkomnum flugleiðsögu- og ijar-
skiptatækjum. „Fyrir flugmenn
eru þessar vélar á allan máta mun
þægilegri en þær gömlu, þó svo
að þær hafi verið góðar þá eru
þessar alveg hreinasti draumur og
ákaflega gaman að fljúga þeim,“
sagði Sigurður Elli. „Vinnuaðstaða
fiugfreyja er allt önnur, því í nýju
vélunum er fullkomið eldhús og
þá er vélin einnig mun rýmri og
bjartari en Fokker 27 auk þess að
vera mun hljóðlátári þannig að vel
á að fara um farþegana."
Flugvélin verður notuð á öllum
innanlandsleiðum Flugleiða, en fé-
lagið hyggst einnig nota nýju vél-
arnar til áætlunarflugs til Græn-
lands og Færeyja og milli Færeyja
•og Glasgow auk sérstakra verk-
efna í millilandaflugi. Sigurður
Elli sagði að þessar vélar næðu
um 10% meiri hraða en eldri Fok-.
ker véiarnar og skilaði það sér
einkum á lengri leiðum. Mestu
munaði þó um þær eyða 32%
minna eldsneyti á hvert sæti en
eldri innanlandsflugvélar félags-
ins, sem einkum væri tilkomin
vegna þróunar við gerð hreyfla.
Tveir þjálfunarflugstjórar frá
Fokker verksmiðjunum í Hollandi,
þeir Bill Heynes og Jens Peter
Knudsen, verða hér í mánuð og
munu annast þjálfun áhafna.