Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 18
' ‘ MORGUNfilAÐlÐ I’RIÐJUÖAGUlí'l'g. FEBÍíOÁR,:1992 f 18 Keflavíkurflugvöllur: Farþegavél lenti á einum hreyfli Farþegaflugvél American Airlines flugfélagsins, af gerðinni Boeing 757, nauðlenti með 175 farþega á Keflavíkurflugvelli kl. 14.05 á sunnudag. Ferðinni var heitið frá Manchester til Chicago en stöðva þurfti annan hreyfil vélarinnar vegna olíuleka. Almanna- varnakerfi ríkisins var sett í viðbragðsstöðu vegna slæmra lending- askilyrða en lendingin tókst vel. Guðmundur Óli Ólafsson, yfir- flugumferðarstjóri, sagði að flug- stjórinn hefði upphaflega ætlað að nauðlenda í Skotlandi. Honum snerist hins vegar hugur þegar olíuleki varð þess valdandi að drepa þurfti á öðrum hreyflinum. Vitneskja um lendinguna barst flugvallaryfírvöldum á Keflavíkur- flugvelli um kl. 13.30 en flugvélin lenti rúmum hálftíma seinna. Flugvélin er af gerðinni Boeing 767 ogtekur 290 farþega. Farþeg- arnir voru þó einungis 175 að þessu sinni og þurftu þeir að haf- ast við í Leifsstöð meðan beðið var eftir annarri flugvél. Sú vél lagði upp um kl. 21.30 á sunnudags- kvöldið. Gert var við Boeingvélina hér á landi og fór hún í loftið kl. 8 í gærmorgun. Guðmundur Óli sagði að yfír- leitt gætu flugvélar af þessu tagi flogið örugglega þó stöðva þyrfti annan hreyfílinn. Lendingarskil- yrði hefði hins vegar verið svo slæm að talið hefði verið rétt að virkja Almannavamarkerfið. Suð- austan 50 hnúta veður var þegar flugvélin lenti. Islendingar eiga ekki Boeing 767 farþegavél. Hins vegar eru Boeing 757 og 737 farþegavélar I eigu Flugleiða. Baldur Bragasön, yfirflugvirki hjá Flugleiðum, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri ástæða til að hafa áhyggjur af því þó stöðva þyrfti annan hreyfil þessara véla. „Það er engin spurning. Þær geta flogið út um allan heim á öðrum hreyfli,“ sagði hann. Starfsmaður Úrvals-Útsýnar sýnir viðskiptavini nýja bæklinginn. ^ Morgunblaðið/KGA Skrifstofa Samvinnuferða/Landsýnar var sér- staklega skreytt í tilefni dagsins. Fjölsóttar ferðakynningar Stærstu ferðaskrifstofur lands- anir sínar á sunnudaginn. Þrátt fólks skrifstofur beggja fyrirtækj- ins, Samvinnuferðir/Landsýn og fyrir óhagstætt veður, rok og anna, kynntu sér úrval ferða og Úrval-Útsýn, kynntu sumaráætl- rigningu, heimsótti mikill fjöldi fengu litprentaða bæklinga. Fjármálaráðherra um hugsanlegan samruna Aðalverktaka og Hagvirkis: Einokun Aðalverktaka verði aflétt ef fyrirtækin sameinast Kannað hvort eigendur Aðalverktaka taki eignir fyrirtækisins til sín „ÉG sé ekkert athugavert við að kannaður verði hugsanlegur samruni Hagvirkis og íslenskra aðalverktaka, fremur en annar samruni. Verði af þessu finnst mér hins vegar einhlítt að aflétta verði einokunaraðstöðu íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflug- velli og það er spurning hvort ríkið á ekki að taka til sín hluta af eignum fyrirtækisins," sagði Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, um viðræður forsvars- manna Hagvirkis og Aðalverk- taka um sameiningu fyrirtækj- anna. Stefán Friðfinnsson, for- stjóri Aðalverktaka, sagði í gær að hann vildi á þessu stigi ekki tjá sig um hugsanlegan samruna. Fjármálaráðherra sagði að sér skildist að hugsanleg sameining fyr- irtækjanna væri nú til skoðunar í stjóm Aðalverktaka. „Verði af sam- einingunni eru Aðalverktakar komnir inn á almennan verktaka- markað og þá þykir mér einhlítt, að ríkið aflétti einokun þeirra á framkvæmdum á Keflavíkurvelli," sagði hann. „Þá finnst mér einnig' álitamál, hvort ríkið, sem og aðrir eigendur Aðalverktaka, ætti ekki að taka til sín hluta af eignum fyrir- tækisins, fasteignum eða lausafé. Séu eignir langt umfram það sem fyrirtækið þarf á að halda í rekstri sínum þá kemur þetta vissulega til álita." Jóhann Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis, sagði í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu á sunnudag, að áður en af sameiningu fyrirtækj- anna gæti orðið þyrfti fyrst að fá niðurstöðu í ágreiningsefnum Hag- virkis og ríkisins. „Aðalatriðið er að fyrirtækið greiði þau gjöld sem það skuldar ríkissjóði og ég vona að lausn fáist á þeim málum á næstunni," sagði fjármálaráðherra. „Söluskattsmál Hagvirkis gegn ríkinu er til með- ferðar hjá Hæstarétti og ég mun ekki taka fram fyrir hendurnar á dómstólum í því. Önnur mál, sem óleyst eru, varða framkvæmdir Hagvirkis á vegum ríkisins, í Helgu- vík og í Leifsstöð." Stórtjón í bruna véla- verkstæðis Þorbjarnar f' njm r■ 1 r Grindavlk. Mikið tjón varð í bruna á véla- verkstæði Þorbjarnar hf. í Grindavík sl. laugardag. Tilkynnt var um eldinn um tvö- leytið á laugardag og var slökkviliði Grindavíkur gert viðvart. Útkallið byijaði ekki björgulega hjá slökkvi- liðinu því hásing brotnaði undan aðaldælubíl þess þegar honum var bakkað út af slökkvistöðinni. Þegar á vettvang kom tókst síðan ekki að ná í vatn með góðu móti og því var brugðið á það ráð að óska eftir að- stoð Brunavarna Suðurnesja og af Keflavíkurflugvelli. Eldurinn kviknaði í kaffistofunni og að sögn Jóns Emils Halldórssonar sem var við vinnu á verkstæðinu gaus mikill reykur upp frá kaffístof- unni og hann hafi við annan mann Borgardómur Reykjavíkur: SÍS sýknað af kröfu Jóns Laxdals BORGARDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað SÍS af þeirri kröfu Jóns Laxdals, bónda og fyrrum stjórnarmanns í Kaupfélagi Sval- barðseyrar, að viðurkenndur verði réttur þrotabús kaupfélagsins til 1,1% af heildareign allra sameigenda í SÍS og fjárhæð sem sam- svari þeirri eign verði dregin undir skipti á þrotabúi kaupfélagsins. Fyrir hönd Jóns Laxdals hafði því verið haldið fram að gjaldþrot Kaupfélags Svalbarðseyrar hafí engu breytt dm eignaraðild þess að SÍS og verðmikil' eignaraðild kaupfélagsins að Sambandinu eigi eins og aðrar eignir að renna til þrotabúsins enda feli úrskurður um gjaldþrot ekki í sér neitt afsal eða framsal eignarréttinda þrotabús. Meðal annars var vísað til eignar- réttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Fyrir hönd SÍS var krafíst sýknu af þessum kröfum. Meðal annars var byggt á því að samkvæmt lög- um um samvinnufélög, sem gildi um samvinnusambönd eftir því sem við geti átt, skuli vera ákvæði um sjóðsstofnanir og lántökuheimildir í samþykktum félaga. Tilgangur með myndun sjóða sé bæði sá að afla félögunum veltufjár og að tryggja skuldbindingar þeirra. Inn- eign í stofnsjóði sé séreign hvers félagsmanns en varasjóður sé óskiptanlegur sameignarsjóður. Réttur félagsmanna til að fá stofnsjóðseign greidda sé mjög tak- markaður og því aðeins að viðkom- andi hafi greitt skuldir og skuld- bindingar við félagið að fullu. Fé- lagsmaður í kaupfélagi, sem hverf- ur úr félaginu, eigi því einungis kröfu á innistæðu sinni í stofnsjóði en ekki neina kröfu á hendur félag- inu um hlutdeild í hreinni eign þess og dánarbú eða þrotabú félags- manns eigi ekki meiri rétt en hann sjájfur. í niðurstöðum Auðar Þorbergs- dóttur borgardómara, sem byggðar voru á lögum um samvinnufélög, sem eftir því sem við getur átt eigi við um samvinnusambönd, og sam- þykktum SÍS, er meðal annars rak- ið að í samvinnufélögum skuli vera a.m.k. stofnsjóður og varasjóður. Inneign félagsmanns í stofnsjóði sé séreign hans en varasjóður sé óskiptanlegur sameignarsjóður sem félagsmenn í samvinnufélagi fái aldrei útborgað fé úr. Um meðferð sameignarsjóða við félagsslit segir svo í niðurstöðunum: „Við félagsslit skal innistæðufé í óskiptanlegum sameignarsjóðum að loknum öllum skuldbindingum sem á félagsheild- inni hvfla ávaxtað undir umsjón hlutaðeigandi sveitarstjórnar uns samvinnufélag eða samvinnufélög með sama markmiði taka til starfa á félagssvæðinu. Fær það félag eða þau félög umráð sjóðseignarinnar." Þá er rakið hvað samþykktir SÍS segi um það hvernig fara skuli við slit á Sambandinu. Samkvæmt þeim skuli koma eignum í verð og að greiddum skuldum og skuldbinding- um skuli eign sambandsins að und- anskildum óskiptanlegum sameign- arsjóðum skipt á milli sambandsfé- laga í hlutfalli við tekjuafgang sem þau hafi frá byijun fengið úthlutað frá Sambandinu. „Hvorki er í lögunum um sam- vinnufélög né í samþykktum Sam- bands íslenskra samvinnufélaga ákvæði um rétt félaga eða félags- manna til úrgöngu til þess að krefj- ast hluta af eða hlutdeildar í eignum samvinnufélagsins eða samvinnu- sambandsins eins og stefnandi ger- ir. Ber því að sýkna stefnda af kröf- um stefnanda í máli þessu,“ segir í lok dómsins. Hvor aðilanna var látinn bera sinn kostnað við rekstur málsins. hlaupið til að ná í handslökkvitæki. Þegar þeir komu að aftur var reykur- inn orðinn það mikill að ekki var hægt að komast að. Fyrstu viðbrögð þeirra voru að koma gaskútum út af verkstæðinu en þeir voru inni á því. Að sögn Eiríks Tómassonar, eins forráðamanna fyrirtækisins, er ljóst að mikið tjón hefur orðið í brunan- um. Fimm rafmagnslyftarar voru í geymslu við verkstæðið og skemmd- ust þeir allir lítilshátta og vörubif- reið sem var á verkstæðinu skemmd- ist mikið auk verkstæðismuna og annarra innréttinga. Timburklædd kaffistofa sem var fyrir ofan verk- stæðið er ónýt. Vinnslusalur slapp að öllu leyti. Eldsupptök eru ókunn. FÓ ----» ------ Athugasemd fráÓlafi Arnarsyni Vegna ummæla sinna í frétt í Morgunblaðinu á sunnudag um að menntamálaráðuneytið hafi ekki nálgast leiðir til niðurskurðar með sama hætti og heilbrigðisráðuneytið og að ráðuneytið hafi ekki viljað að svo stöddu neyða ákveðinni nið- urskurðarleið upp á skólana vill Ólaf- ur Arnarson, aðstoðarmaður mennt- amálaráðherra, koma þeirri árétt- ingu á framfæri að niðurskurður ráðuneytisins sé tfmabundinn spam- aðaraðgerð vegna erfiðs efnahags; ástands en ekki kerfisbreyfting. í heilbrigðisráðuneytinu sé hins vegar verið að ráðast í ákveðna kerfís- breytingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.