Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 11

Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 11
u, MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992 Tvímenningur Bridshátíðar; Zia og Rodwell urðu langefstir Brids Arnór Ragnarsson Loksins tókst Pakistananum Zia Mahmood að vinna tvímenn- ingskeppni Bridshátíðar. Að þessu sinni spilaði hann gegn Eric Rodwell Bandaríkjamanni sem unnið hefir til flestra brids- verðlauna sem hægt er að vinna til og hann var m.a. í sigurliði Bandaríkjanna sem vann Bermúdaskálina 1981 en þá var hann aðeins 23 ára gamail. Það er að bera i bakkafullan lækinn að kynna Zia Mahmood. Hann hefir komið hingað árum saman Heimsmeistararnir Þorlákur Jónssn og Guðmundur Páll Arnarson voru í toppbaráttunni allt mótið og enduðu í öðru sæti. á Bridshátíð og hefir t.d. þríveg- is unnið sveitakeppnina á Brids- hátið. Það er oft tekið svo til orða í tvímenningskeppnum að það sé nauðsynlegt að vera með rétta tímasetningar í toppbaráttunni og á það vel við um þetta mót. Zia og Eric byijuðu mótið mjög illa og voru í neðstu sætunum ásamt Guð- laugi R. Jóhannssyni og Erni Arn- þórssyni sem byijuðu mjög illa meðan hin íslenzku heimsmeist- arapörin röðuðu sér í efstu sætin. Þá var auðséð strax í upphafi að Danirnir voru ekki komnir til að vera í neðstu sætunum. Lítum á stöðuna eftir 17 umferð- ir: JensAuken-DennisKoch 192 JónBaldursson-AðalsteinnJörgensen 180 Neil Silverman - Larry Cohen 174 Valur Siprðsson - Guðmundur Sveinsson 121 Guðm.PállAmarson-ÞorlákurJónsson 115 Símon Símonarson - ísak Öm Sigurðsson 112 Hjördis Eyþórsdóttir - Ásmundur Pálsson 111 Steen Möller—Lars Blakset 110 Þegar hér var komið voru Zia og Eric Rodwell með 5 stig yfir meðalskor 1 22. sæti. Fimm um- ferðum síðar voru þeir félagar komnir í baráttuna þá með .92 stig og að loknum 35 umferðum voru þeir komnir í toppbaráttuna eins og sjá má á eftirfarandi stöðu: Guðm. Páll Amarson-ÞorlákurJónsson 312 Steen Möller—Lars Blakset 245 JensAuken-DennisKoch 241 Pétur Ö. Guðjónsson - Grettir Frímannsson 233 Neil Silverman - Larry Cohen 212 ZiaMahmood-EricRodwell 197 Hrólfur Hjaltason - Sigurður Vilhjálmsson 166 RaymondBrock-JohnPottage 163 Næstu umferðir voru Guðmundi Páli og Þorláki erfiðar á meðan Zia og Rodwell skoruðu 20—30 stig í hverri setu, og þegar upp var staðið höfðu þeir fengið 402 stig yfir meðalskor og var meðalskorin um ,12 stig að meðaltali í síðustu 40 umferðunum. Guðmundur Páll Amarson og Þorlákur Jónsson voru í toppbarátt- unni allan tímann og héldu uppi heiðri landans með því að ná öðru sætinu. Danirnir urðu í þriðja og fjórða sæti og norðanmennirnir Pétur Guðjónsson og Grettir Frí- mannsson hirtu fimmtu verðlaunin örugglega. Það er reyndar engin nýlunda að Norðlendingar standi sig vel í okkar stærri tvímennings- keppnum. Landsliðsmennirnir Jón Baldurs- son og Aðalsteinn Jörgensen urðu í 15. sæti og Guðlaugur R. Jó- hannsson og Orn Amþórsson urðu í því 18. eftir afar slæma byijun. Bridshátíðar er i mjög föstum skorðum nú orðið og er allt skipu- lag til fyrirmyndar undir öruggri stjórn mótsstjórans, Elínar Bjama- dóttur. Að þessu sinni voru notaðar klukkur til að stjóma tímasetning- um. Það verður að segjast að klukkurnar eru nokkuð háværar og verður að ráða bót á því fyrir næsta mót. Reykingabann var í spilasal fyrir áhorfendur en ekki spilara. Keppnisstjóri var Agnar Jörgensson og honum til aðstoðar var Kristján Hauksson sem einnig sá um útreikninga. Sigurvegararnir Zia Ma- hmood og Eric Rodwell spila gegn Herði Pálssyni og Þráni Sigurðssyni, elzta spilara keppninnar. Minni myndin: Sigurveg- ararnir sigurreifir í móts- lok. Lokastaðan: ZiaMahmood-EricRodwell 402 Guðm.PállAmarson-ÞorlákurJónsson 316 Steen Möller—Lars Blakset 314 JensAuken-DennisKoch 297 Pétur Ö. Guðjónsson - Grettir Frímannsson 279 NeilSilverman-LarryCohen 258 RaymondBrock-JohnPottage 198 Sævar Þorbjömsson - Karl Sigurhjartarson 158 IngeKeithHansen-IbLundby 148 SímonSímonarson-ísakÖmSigurðsson 140 JónÞorvarðarson-FriðjónÞórhallsson 137 Júlíus Siguijónsson - JónasP. Erlingsson 128 Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, setti mótið. Hann lék á als oddi og fór á kostum. Skipulag TIL LEIGU í HEKLUHÚSINU LAGI EÐA í MINNI EININGUM Laugavegur 170-172 þriðja hæð 973 m2 glæsilegt útsýni. Nýbygging súlulaus. [7— V [7— Laugavegur 172 önnur hæð 140 m2. Laugavegur 170 önnur hæð 400 m2 skrifstofuhúsnæði. 1 1 i 1 , , , r IHH llh ri H HIH H H HIH h H rlH 1- HHI n H H Hl H H HHI H H M Hlrl .*ir 1 1 H, :K LA HE m —j— —fri——fr'". . Ife^n-r-jkr—-fr , í iðraratsfiram lKT" n |jí IraEaSSiasg :i"T”= [iiirm 1 mttttl [JTTTÍTt njtttti UJ o o o Laugavegur 170 götuhæð 115 m2 verslunarhúsnæði. Upplýsingar gefur Sigurður Gunnarsson í síma 695500. ffl HEKLA LAUGAVEGl 174 SÍMI695500 j !! D irm U II U U U1 fmmmnfammamcmyn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.