Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
y
Færri og stærri
sveitarfélög
Hitaveita Suðurnesja er gott
dæmi um samstarfsverk-
efni sveitarfélaga sem mynda
eitt og sama þjónustusvæðið.
Sjö sveitarfélög standa að þessu
þjónustufyrirtæki, sem dreifir
hita og orku um Suðumes.
Reynslan af því er um sitt hvað
stefnuvísandi fyrir vaxandi
samstarf nágrannasveitarfé-
laga víðs vegar um landið.
Trúlegt er að vel heppnað
samstarf nágrannasveitarfé-
laga um ýmiss konar sam-
starfsverkefni, svo sem skóla-
hald, brunavamir, hitaveitur og
aðra nauðsynlega þjónustu,
leiði í sumum tilfellum sjálf-
krafa til sammna slíkra sam-
starfssveitarfélaga áður en
langir tímar líða. Reyndar á
hugmyndin um verulega fækk-
un og stækkun sveitarfélaga í
landinu, sem nú em um tvö
hundmð talsins, vaxandi fylgi
að fagna. Stærri og sterkari
sveitarfélög em betur í stakk
búin til sinna kröfum sam-
tímans um hvers konar þjón-
ustu við fólk en þau minni og
fámennari. Hvaða kröfur er til
dæmis hægt að gera til sveitar-
félaga með eitt eða fáein hundr-
uð íbúa? Hin stærri sveitarfé-
lögin em og líklegri til að stöðva
eða draga verulega úr byggða-
röskun í landinu, sem einkennt
hefur síðustu áratugina.
Á síðastliðnu ári skilaði
nefnd, er skoðað hefur skipt-
ingu landsins í sveitarfélög,
áfangaskýrslu, sem vakið hefur
mikla athygli. Þar eru viðraðar
þijár hugsanlegar leiðir að sam-
einingu sveitarfélaga. Sú er
skemmst gengur gerir ekki ráð
fyrir annarri hvatningu til sam-
einingar sveitarfélaga en felst
í gildandi sveitarstjórnarlögum.
Samkvæmt þeim skal lág-
marksíbúatala sveitarfélags
vera 50 manns. Fari íbúatala
neðar ber sveitarfélagi að sam-
einast nágrannasveitarfélagi.
Talið er að sveitarfélögum
fækki um 30 til 40 á fáum
ámm, þótt ekki verði lengra
gengið.
Millileiðin, sem viðruð var,
gerir ráð fyrir fækkun sveitar-
félaga úr 200 í 60 til 70 og að
lágmarksíbúatala sveitarfélags
verði 400 manns. Sú hugmynd-
in sem mesta umræðu hefur
fengið felur í sér sameiningu
sveitarfélaga innan heilla hér-
aða, það er að öll sveitarfélög
innan sama þjónustúsvæðis,
skuli sameinast í eitt. Sam-
kvæmt henni fækkar sveitarfé-
lögum í 25 til 28. Almenna regl-
an yrði þá sú að sveitarfélög
hefðu að minnsta kosti 1.000
íbúa, en fáeinar undantekning-
ar verði veittar með hliðsjón af
sérstökum aðstæðum.
Hreppaskipan, sem enn ræð-
ur mörkum sveitarfélaga víðast
hvar hér á landi, rekur að dijúg-
um hluta rætur til fyrstu alda
byggðar í landinu og er nánast
geimegld í vitund þorra lands-
manna. Hugmyndir um fækkun
og stækkun sveitarfélaga, til
samræmis við aðrar samfélags-
breytingar á tuttugustu öldinni,
eiga því víða undir högg að
sækja. Þeim vex þó smám sam-
an fylgi. Þannig lýsti fulltrúa-
ráðsfundur Sambands íslenzkra
sveitarfélaga, sem haldinn var
síðla liðins árs, stuðningi við
slíka þróun.
Það ‘er einkum tvennt sem
að er stefnt með stærri og færri
sveitarfélögum:
í fyrsta lagi að ná fram hag-
ræðingu í fjárfestingu og þjón-
ustu, sem sveitarfélögum er
ætlað að sinna. Fjárhagsstaða
sumra sveitarfélaga, einkum
minni þéttbýlissveitarfélaga,
sýnir, að þetta skiptir verulegu
máli. Þróun í þessa átt er og
beinlínis forsenda fyrir frekari
verkefnaflutningi frá ríki til
sveitarfélaga.
í annan stað að styrkja sam-
keppnisstöðu landsbyggðarinn-
ar á sviði þjónustuþátta, sem
miklu ráða um búsetuval fólks,
með og ásamt afkomumögu-
leikum. Náið samstarf eða sam-
eining sveitarfélaga innan sama
þjónustusvæðis og sterkir
byggðakjarnar þjóna þessu
markmiði. Að öllu óbreyttu
heldur fólksstreymið frá lands-
byggðinni til höfuðborgarsvæð-
isins áfram, eins og verið hefur
næstliðna áratugi.
Við erum fámenn þjóð í stóru
landi. Yfirbyggingin í samfé-
laginu er þegar ærin, miðað við
fjárhagsgetu þjóðarinnar. Ef
varðveita á byggð í landinu öllu,
eins o g hugur þorra fólks stend-
ur til, er fækkun og stækkun
sveitarfélaga hagkvæmari og
hentugri leið en nýtt stjórnsýsl-
ustig, það er aumt, með tilheyr-
andi kerfi og kostnaði. Með
þessum hætti má auka og efla
sjálfsstjórn byggðanna. En höf-
uðmáli skiptir, að markmið
verði sett og vinnulag ákveðið
í fullu samráði viðkomenda,
ríkisvalds og sveitarfélaga.
Vífilsfells.
Sjö unglingar og fjórir fullorðnir
lentu í hrakningum á Sandfelli
við Vífilsfell á sunnudagsmorgun
eftir að hafa gist þar í tjöldum
^ um nóttina.
Sandskeið
Leið fólksins á ffaiM
Vífilsfell* /
' i
Arnarsetur
^lorgunblaðið/lngvar Guðmundsson.
Hópi Bandaríkjamanna bjargað af Sandfelli
Björgunarsveitarmenn koma
með tvo Bandaríkjamannanna að
björgunarsveitarbílum við rætur
Fjarskiptasamband skipti sköpum
- segir Ingi Þór Þorgrímsson varaformaður Flugbjörgunarsveitarinnar
80-90 björgunarsveitarmenn úr 11 björgunarsveitum á höfuðborgar-
svæðinu tóku þátt í björgun 7 unglinga og 4 fullorðinna af Sandfelli
við Vífilsfell í aftakaveðri snemma á sunnudagsmorguninn. Fólkið er
búsett á Keflavíkurvelli og hafði farið þaðan í býtið á laugardags-
morguninn ásamt öðrum hópi barna og fullorðinna. Sá hópur gisti í
skátaskálanum Arnarsetri við rætur Vífilsfells um nóttina. Ingi Þór
Þorgrímsson, varaformaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík,
segir að við björgunina hafi skipt sköpum að fjarskiptasamband hafi
verið við hópinn. Fólkið gekkst undir lækniskoðun þegar komið var
af fjallinu en ekki var talin ástæða til að færa neinn á slysadeild.
Páll Bergþórsson, veðurstofusljóri, sagði í samtali við Morgunblaðið
að búið hefði verið að vara rækilega við vondu veðri á þessum slóðum
frá þvi á fimmtudag.
Ingi Þór sagði að tveir hópar snemma á laugardagsmorguninn.
barna- og unglingaskáta af Kefla- Um hádegi hefði yngri hópurinn
víkurflugvelli í fylgd nokkurra full- orðið eftir í skátaskálanum Amar-
orðinna hefðu lagt upp í ferðina setri við rætur Vífilsfells en 7 ungl-
ingar og 4 fullorðnir hefðu haldið á
Sandfell við Vífilsfell þar sem slegið
var upp tjöldum í ágætisveðri um
kvöldið. Þegar tók að daga gerði
aftur á móti aftakaveður með þeim
afleiðingum að tjöldin fuku upp á
rifnuðu. Var þá brugðið á það ráð
að biðja um aðstoð í gegnum Til-
kynningarskylduna. Hún gerði
svæðisstjórn björgunarsveita á
höfðuborgarevæðinu viðvart og um
það bil 30 mínútum seinna voru
fyrstu björgunarsveitarbílarnir á leið
út úr bænum.
Um kl. 11.28 komu leitarmenn á
staðinn þar sem hópurinn hafði búið
um sig í vari. Fólkið var fært í hlý
föt og haldið niður af fjallinu þar
sem læknir skoðaði fólkið. Tveir úr
hópnum voru nokkuð kaldir en ekki
var taiin ástæða til þess að fara með
þá á slysadeild. Rétt fyrir kl. 13 var
lagt af stað með hópinn heim á leið.
Aðspurður sagði Ingi Þór að búnað-
ur fólksins hefði verið viðunandi
miðað við venjulegar .aðstæður en
veðrið hefði verið slíkt að öllum bún-
aði hefði verið hætt. Ingi Þór sagði
að skipt hefði sköpum að beðið hefði
verið um aðstoð í tíma og fjarskipta-
samband hefði verið við hópinn
þannig að hægt hefði verið að ganga
svo að segja beint að fólkinu á fjall-
inu. Um ástæðuna fyrir því að svo
margir leitarmenn hefðu verið kall-
aðir út sagði hann að.í aðgerð sem
þessari, þar sem börn væru með í
för, væri tíminn afgerandi þáttur og
ekki vert að taka neina áhættu. Ef
björgunin hefði dregist eitthvað fram
á daginn hefði getað farið ver.
Páll Bergþórsson, veðurstofu-
stjóri, sagði að í þriggja daga spá á
fímmtudag hefði komið fram að von
væri á slæmu veðri á þessum slóð-
um, hvassri suðaustanátt og slyddu
eða rigningu. Haldið hefði verið
áfram að spá slæmu veðri um helg-
ina. Hann sagði að þessi atburðir
og aðrir að undanförnu sýndu að
íslensk veðrátta kæmi fólki sem ekki
þekkti vel til landins sífellt á óvart.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar vegiia Hvalfjaröarganga:
Jarðgöng á Kiðafells-
leið ódýrasti kosturinn
Vegur austan Akrafjalls mun hagkvæmari en vestan
VEGAGERÐ ríkisins hefur gert nýjar kostnaðaráætlanir fyrir þær veg-
tengingar sem koma til greina í tengslum við fyrirhuguð jarðgöng und-
ir Hvalfjörð. Niðurstaða Vegagerðarinnar er að tveir kostir séu hag-
kvæmastir. Annars vegar jarðgöng á Kiðafellsleið og vegur austan og
norðan Akrafjalls og hins vegar göng á Hnausaskersleið þar sem gang-
amunna er snúið í austur, vegur til Borgarness liggi austan Akrafjalls
en sérstakur vegur yrði lagður til Akraness. í fyrra tilvikinu yrði heildar-
kostnaður vegna ganga og vegagerðar 4.369 millj. kr. en 4.987 millj. kr.
í hinu síðara. Vegagerðin kemst að þeirri niðurstöðu að stytting leiðar-
innar til Borgarness yfir Grunnafjörð -sé ekki hagkvæm eða tímabær.
usaskersleið, leggja veg til Borgarness
austan Akrafjalls með tengingu við
Undirbúningsfélagið Spölur hf. sem
vinnur að athugunum vegna jarða-
ganganna hefur ákveðið að Hnausa-
skersleið verði fyrir valinu. Heildar-
kostnaður við sjálf jarðgöngin er áætl-
aður 4.277 millj. kr. á Hnausaskers-
leið en 4.090 millj. kr. á Kiðafellsleið.
Allt að 1,5 milljarða kr.
kostnaðarmunur
Vegagerðin hefur kannað marga
kosti vegna vegakerfa í tengslum við
jarðgöng á Hnausaskers- og Kiðaflls-
leið. Odýrasti kosturinn er að mati
vegagerðarinnar jarðgöng á Kiðafells-
leið og vegur til Akraness austan og
norðan Akrafjalls og til Borgarness
austan Akrafjalls og um Melasveit.
Vegalengdin á milli Reykjavíkur og
Akraness yrði þá 58,84 km. og leiðin
Reykjavík-Borgames 70,01 km.
Kostnaður vegna vegagerðar er áætl-
aður 279 millj. kr. og afkastavextir
miðaðvið 30 ára afskriftatíma 15,2%.
Sá Kostur að leggja göngln á Hna-
Grundartanga og veg sunnan Akra-
fjalls til Akraness er Vegagerðin
kemst að þeirri niðurstöðu að heildar-
kostnaður vegna vegagerðar og jarð-
ganga ef Kiðafellsleið verður fyrir
valinu verði 4.369 millj. kr. einnig
talinn hagkvæmur. í því tilfelli er tal-
ið hagkvæmast að snúa gangamunn-
anum til austurs. Heildarkostnaður
við þennan kost er áætlaður 4.987
millj. kr. og þar af yrði kostnaður
vegna vegagerðar 707 millj. Vega-
lengdin Reykjavík-Akranes yrði 51,5
km. og Reykjavík-Borgarnes 71,2 km.
Afkastavextir yrðu 14,4%.
Þriðji kosturinn er jarðgöng á Hna-
usaskersleið og vegur sunnan og vest-
an Akrafjalls og um Akranesveg.
Heildarkostnaður yrði þá 5.064 millj.
kr. þar af 787 millj. vegna vegagerð-
ar. Leiðin Reykjavík-Akranes yrði þá
48,77 km. og Reykjavík-Borgarnes
79,32 km.
Vegagerðin kannaði einnig hag-
kvæmni þess að leggja tengiveg yfir
Grunnafjörð á leiðinni til Borgarness
og komst að þeirri niðurstöðu að sú
tenging virtist ekki vera hagkvæm
enn sem komið er. Er þá gengið út
frá að jarðgöng liggi um Hnausaskers-
leið og að vegur til Borgarness verði
lagður sunnan og vestan Akraness.
Heildarkostnaður er áætlaður 5.813
millj. kr. og þar af 1.536 millj. vegna
vegagerðar. Vegalengdin á milli
Reykjavíkur og Borgarnes styttist
hins vegar í 72,14 km. verði lagður
tengivegur yfir Grunnafjörð.
Verði jarðgöngunum valinn staður
á Kiðafellsleið og lagður vegur frá
göngunum til Akraness sunnan Akra-
fjalls auk tengivegar austan Akra-
fjalls til Borgarness yrði heildarkostn-
aðurinn 4.783 millj. kr. Þar af næmi
kostnaður vegna vegar til -Akraness
456 millj. kr.
Vegagerðin lagði einnig mat á
kostnað við lágmarksendurbætur á
núverandi vegi fyrir Hvalfjörð ef ekk-
ert verður af jarðgangaframkvæmd-
um. Er þá reiknað með smíði nýrra
brúa á Laxá í Kjós og Botnsá ásamt
lágmarksendurbótum. Heildarkostn-
aður er áætlaður 228 millj. kr.
1.388 bílar um göngin á dag
í skýrslu sinni, sem kynnt hefur
verið fyrir forsvarsmönnum Spalar hf.
Vegagerð ríkisins telur að vegur frá Kiðafellsgöngum austan Akrafjalls
og til Akraness um Akranesveg sé ódýrasti kosturinn verði jarðgöng
lögð undir Hvalfjörð. Heildarkostnaður yrði 4.369 millj. kr. (nr.l á korti).
Ef jarðgöng verða lögð á Hnausaskersleið telur Vegagerðin hagkvæmast
að umferð fari ausLan Akrafjalls og að gangamunnanum verði snúið til
austurs. Heildarkostnaður yrði 4.987 millj. kr. (nr. 2). Sá kostur að vegur
til Borgarness liggi vestan Akrafjalls og um Akranesveg cr hins vegar
talinn óhagkvæmari. Heildarkostnaður yrði 5.064 millj. kr. (nr. 3).
og þingmönnum Vesturlandskjör-
dæmis, er bent á að þótt tenging yfir
Grunnafjörð virðist ekki vera hag-
kvæm í dag, kunni hún að verða það
síðar, ef umferð heldur áfram að vaxa.
í útreikningunum er reiknað með
malbiksslitlagi á vegunum sem til
greina koma og eru endapunktar veg-
kerfanna við Bakkaveg á Kjalarnesi,
við Melasveitarveg nálægt Fiskilæk,
við hlið að Grundatanga og í miðbæ
Akraness.
í umferðarspá sem lögð er til grun-
vallar við samanburðinn er gert ráð
fyrir að ríflega 40% umferðar.um
væntanleg jarðgöng sé til og frá Akra-
nesi. Alls fari 1.706 bílar um Hval-
fjörð á degi hveijum og þar af fari
1.388 um jarðgöngin.
Gylfi Þórðarson, stjórnarformaður
Spalar hf. sagði í samtali við Morg-
unblaðið að niðurstöður Vegagerðar-
innar kæmu ekki á óvart. Benti hann
á að Vegagerðin gerði sína útreikn-
inga út frá eigin formúlum um arð-
semi sem miðaðist við hagsmuni vega-
gerðar en önnur hagkvæmnissjónarm-
ið réðu ferðinni við gerð ganganna.
Þá gerði Vegagerðin ekki ráð fyrir
neinum breytingum á umferðarþunga
eftir því hvaða leið yrði fyrir valinu.
Sagði Gylfi að félagið myndi vinna
áfram að undirbúningi fyrir jarðgöng
á Hnausaskersleið þrátt fyrir þessa
skýrslu Vegagerðarinnar.
Skýrsla Hagfræðistofnunar um sainanburð á heilbrígðisútgjöldum:
Utgjöld aukist meira
hér en annars staðar
ÚTGJÖLD íslendinga til heilbrigðismála hafa vaxið meira hérlendis en
hjá flestum öðrum þjóðum og farið úr því að vera fremur lág upp í það
að vera með þeim_ hæstu innan OECD. Þá eru útgjöld hins opinbera til
heilbrigðismáia á íslandi með því mesta sem gerist. I hlutfalli við verga
landsframleiðslu eru opinber útgjöld til þessa málaflokks þau önnur
hæstu, næst á eftir útgjöldum Svía. Þetta eru helstu niðurstöður skýrslu
sem Hagfræðistofnun Háskóla íslands hefur gert fyrir heilbrigðisráðun-
eytið og Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra kynnti í gær.
Heildarútgjöld til heilbrigðismála
hafa í flestum þeirra landa sem at-
hugun Hagfræðistofnunar náði til,
vaxið nokkuð á síðustu árum og ára-
tug. „Útgjöld íslendinga til heilbrigð-
ismála hafa þó vaxið umfram það sem
gerist meðal flestra viðmiðunarþjóða
og á síðastlinum áratug hafa útgjöld-
in hérlendis farið úr því að vera frem-
ur lág í samanburði við aðrar þjóðir
OECD, upp í að vera með þeim hæstu,
og er sama hvaða viðmiðun er notuð.
Sérstaklega er þessi þróun áberandi
ef litið er á tímabilið frá 1985. Sé
tekið tillit til hlufalls eldri borgara
af heildarmannfjölda hér og í við-
miðunarlöndunum, þ.e. ef heilbrigðis-
útgjöld eru aldursvegin, er þessi þró-
un enn greinilegri," segir í skýrslu
Hagfræðistofnunar.
Bandaríkjamenn og Þjóðveijar eru
einu þjóðirnar í viðmiðunarhóp Hag-
fræðistofnunar sem veija hærri fjár-
hæðum en íslendingar til heilbrigðis-
mála, samkvæmt útreikningum stofn-
unarinnar. Þá eru heilbrigðisútgjöld
hérlendis, í hlutfalli af vergri lands-
framleiðslu, þau fimmtu hæstu í aðild-
arlöndum OECD árið 1990 en ísland
var í sautjánda sæti í þessum saman-
burði áratug fyrr.
Athugun Hagfræðistofnunar á
tölum um opinber útgjöld vegna heil-
brigðismála sýnir að útgjöld hins
opinbera til heilbrigðismála á íslandi
eru með því mesta sem gerist. í hlut-
falli við verga landsframleiðslu eru
opinber útgjöld til þessa málaflokks
þau önnur hæstu, næst á eftir útgjöld-
um Svía. Þá er á það bent í þessu
sambandi hve stór hluti heildarút-
gjalda hins opinbera hérlendis rennur
til heilbrigðismála, hlutfallslega mun
meira en almennt gengur og gerist.
„Vöxtur í heilbrigðisútgjöldum hins
opinbera er mun meiri hérlendis en
vöxtur í heildarútgjöldum, svo og
vaxa útgjöld hins opinbera mun meir
hérlendis á tímabilinu en í viðmiðun-
arlöndunum. Útskýringar á þessari
þróun liggja ekki á lausu, en ástæða
væri til að athuga hvort fyrirkomulag
greiðslukerfis gæti átt þar hlut að
máli,“ segir í skýrslunni.
Auk þess að athuga heildarútgjöld
og útgjöld hins opinbera til heilbrigð-
ismála er í skýrslunni skoðaður fjöldi
starfsmanna í heilbrigðisstéttum og
farið yfir ýmsar tölur um framleiðslu-
þáttanotkun sjúkrahúsa.
í skýrslunni er ekki gerð tilraun
til að meta gæði heilbrigðisþjón-
ustunnar á íslandi, en sagt að óneit-
anlega virðist hún vera nokkuð fjárf-
rek, sérstaklega þegar litið sé á út-
gjöld opinberra aðila, í samanburði
við þau lönd sem skoðuð eru í úttekt-
inni. Vakin er athygli á ákveðnu ós-
amræmi á milli fjölda starfsmanna í
heilbrigðisstéttum annars vegar og
upplýsinga um afköst og nýtingu á
sjúkrastofnunum hins vegar. „íslend-
ingar virðast liggja mun lengur á
sjúkrahúsum en aðrir, en samt lítur
út fyrir að mannafli á sjúkrahúsum
sé minni hér en í nágrannalöndunum,
að læknum undanskildum.... Þar sem
mannaflanotkun er ekki meiri hlýtur
svarið að liggja í fjármagnsnotkun
og/eða skipulagningu heilbrigðisþjón-
ustunnar," segir Hagfræðistofnun og
bendir á að þær tölur sem fyrir liggi
um þjónustu sjúkrastofnana hérlendis
styðji þá tilgátu.
Húsfriðunarnefnd ríkisins:
Varðveita verður
aðaleinkenni Iðnó
Húsfriðunarnefnd ríkisins hefur samþykkt ályktun vegna Iðnó,
hús Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík, þar sem segir að húsið
sé friðað vegna listræns og menningarsögulegs gildis. Við endur-
bætur verði að gæta þess að aðaleinkennin verði varðveitt og
jafnvel að horfin prýði og einkenni verði endurheimt. Jafnframt
sé nauðsynlegt að húsið geti framvegis sem hingað til verið lyfti-
stöng í menningarlífi borgarinnar.
Leitað var álits Húsfriðunar-
nefndar vegna hugsanlegra sölu
hússins og breytinga á því. Fram
kemur í ályktuninni, að Iðnó var
friðað af menntamálaráðherra
samkvæmt tillögu Húsfriðunar-
nefndar vorið 1991 og nær friðun-
in til ytra borðs hússins og innra
skipulags þess. Er húsið þar með
í flokki þeirra húsa í landinu, er
hafa slíkt listrænt og menningar-
sögulegt gildi að ástæða þykir til
að lögfesta varðveislu um alla
framtíð.
Síðan segir, „Iðnó er meðal
glæsilegustu timburhúsa í
Reykjavík frá síðustu öld. Það var
byggt á þeim tíma, er Reykjavík
var að taka við hlutverki höfuð-
staðar landsins og vísir að borgar-
menningu skaut rótum í bæjar-
samfélaginu. Það er eitt þeirra
stórhýsa sem þá tóku við af lá-
greistum húsum og er góður vitn-
isburður um húsagerðarlist ís-
lenskra iðnaðarmanna."
Fijáls verðlagning olíu:
Ekkert sem bendir til að
þetta þýði verðlækkun
- segir Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs
KRISTINN Björnsson, forstjóri Skeljungs, segist ekki sjá neitt sem
bendi til þess að ákvörðun Verðlagsráðs um að fella úr gildi hámarks-
verðlagningu á olíuvörum þýði verðlækkun til neytenda á næstunni.
„Þegar fram í sækir gæti þetta hins vegar þýtt einhverja meiri sam-
keppni milli félaganna, en verðið á hverjuin tíma mun alltaf endur-
spegla heimsmarkaðsverðið, og ég held ekki að þessi samkeppni verði
fyrr en komið er fullkomið frelsi í verðlagningu og verðákvörðunum
til handa olíufélögunum," sagði hann í samtali við Morgunblaðið.
Kristinn sagði að þó Verðlagsráð
ætli frá og með 1. apríl næstkom-
andi að hætta að skipta sér af verð-
lagningu olíufélaganna, breytti það
ekki því að lögin um flutningsjöfnun
frá 1985 væru enn í gildi. „Sam-
kvæmt þeim eiga félögin að vera
með sama verð á olíuvörum til sömu
nota til sömu aðila um land allt, og
því megum við til dæmis ekki bjóða
stórum aðila annað verð á gasolíu
heldur en litlum. Það nýja lagafrum-
varp sem ætlunin er að leggja fram
á að breyta þessu, og þetta hlýtur
að vera liður í því að undirbúa fram-
lagningu þess,“ sagði Kristinn
Björnsson.
Hörður Helgason, aðstoðarfor-
stjóri Olíuverslunar Islands hf, sagði
að ákvörðun Verðlagsráðs væri
vissulega spor í áttina, en hann gerði
ekki ráð fyrir neinum stórvægilegum
breytingum á verðlagningu fyrr en
olíuviðskipti væru gefin alfarið fijáls.
„Nú eru 70% af bensínverðinu beinir
skattar til ríkisins, þannig að svigr-
úm til verðsamkeppni er afskaplega
lítið, og í gasolíuviðskliptum eru
menn neyddir til að vera með sama
verð um land allt. Þannig fæ ég
ekki séð neina stóra breytingu 1.
apríl, og ég geri ekki ráð fyrir að
kaupendur verði þessa varir,“ sagði
hann.
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins hf., sagði að reynslan yrði
leiða í ljós hvort frjáls verðlagning
myndi breyta einhveiju þegar fram
í sækir, en hann ætti þó ekki von á
að þetta breytti miklu til að byija
með.