Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 29
I V; 'lviJC-M k| í. l;./.n .W.Hiii *'-.IÍIl(ílSrÍV*Un (llrl/ ..V/’ ílliiíil/
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
29
Morgunblaðið/Keli
EIGENDASKIPTI — Nýir eigendur Plast- og álglugga í
Eldshöfða eru Ómar Örn Þorbjörnsson og Axel Oddsson.
Iðnaður
Eigendaskipti á
Plast- og álgluggum
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
fyrirtækinu Plast og álgluggar.
Nýir eigendur eru Axel Oddsson
og Ómar Örn Þorbjörnsson.
í Plast- og álgluggum sem hefur
verið starfrækt í um 10 ár eru fram-
leiddir garðskálar, hurðir og
gluggar, allt úr áli og plasti. Einnig
eru framleiddir þakgluggar og
hurðir í smábáta. Fyrirtækið er í
um 130 fm húsnæði við Eldshöfða
16 og eru starfsmenn 3 talsins.
Sjónarhorn
Ovandaðar upplýsingar
af gosdrykkjamarkaðnum
eftir Leópold Sveinsson
Nýlega mátti sjá í viðskiptablaði
Morgunblaðsins frétt þar sem vitn-
að var í „nýlega markaðskönnun
Vífilfells" um markaðshlutdeild á
gosdrykkjamarkaðnum. Þar kemur
fram að Vífílfell hf. hafí 73% hlut-
deild, Hf. Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson 16%, Gosan 7% og Sól
4%. Heldur hljómar þetta sem fölsk
tónlist í eyrum þeirra sem til mark-
aðarins þekkja. Ef þetta eru niður-
stöður aðkeyptrar könnunar hlut-
lausra aðila, þá ráðlegg ég mark-
aðsmönnum Vífílfells að fá að kíkja
ofan í forskrift „könnunarinnar“
áður en þeir greiða reikninginn.
Ekki tel ég ástæðu til að upp-
fræða Vífílfellsmenn nákvæmlega
um markaðshlutdeild gosdrykkja-
framleiðenda á þessum vettvangi.
Ég vil þó benda þeim á að gott er
að renna augum yfír lista Ftjálsrar
verslunar frá S haust um 100
stærstu fyrirtækin á íslandi. Þar
kemur frarr) að velta Vífílfells hf.
var liðlega 2.300 milljónir en um
1.000 hjá hjá Ölgerðinni. Inni í velt-
utölu Vífílfells er væntanlega einnig
sala á hliðartegundum fyrirtækis-
ins, s.s. snakki og súkkulaði. Ef
hinir markaðslegu yfírburðir Vífíl-
fells eru eins og „könnunin“ gefur
til kynna, hvers vegna er það þá
ekki sjáanlegt á veltutölunum?
í sömu „könnun“ koma einnig
fram annarlegar tölur um hlutdeild
kóladrykkja. „Könnun" Vífilfells
leiðir nefnilega í ljós að RC-cola
hafi einungis 3,5% hlutdeild á kóla-
markaði. Þetta er alveg með ein-
dæmum! Einhvem veginn læðist að
manni sá hrunur að „könnun“ þessi
sé unnin með vinnubrögðum sem
skaðað geti ímynd virðulega fyrir-
tækja á borð við Vífilfell.
Almennt er talið að gosdrykkja-
markaðurinn sé ríflega 30 milljónir
lítra. Margir vilja halda því fram
að kólamarkaðurinn sé um 70% af
heildarmarkaði. Að þeim forsendum
gefnum þá gæti verið að markaðs-
menn Vífílfells séu að vinna með
tölur frá árinu 1989, sem var fyrsta
heila árið sem RC-cola var á ís-
landsmarkaði. Þeim og öðrum til
upplýsingar þá meira en tvöfaldað-
ist salan árið 1990 og fékk Ölgerð-
in söluverðlaun RC-cola Inter-
national eins og fram hefur komið
í fjölmiðlum. Sömu sögu er að segjjj..
um árið 1991, salan meira en tvö-
faldaðist og teljum við hjá Ölgerð-
inni að RC-cola sé nú orðinn þriðji
mest seldi gosdrykkurinn á íslandi
— á eftir appelsíni og kóki.
RC-cola gefur skapað sér örugg-
an sess á markaðnum sem nk. „fjöl-
skyldukóla", bragðgott og á hag-
stæðu verði. Salan fer að verulegu
leyti fram í stórmörkuðum og mat-
vöruverslunum. Kannski kann það
að slá ryki í augu Vífilfellsmanna
og hafa áhrif á reiknisskekkju
þeirra, að skv. sömu frétt þá selja
þeir einungis 18% af vörum sínum
í stórmörkuðum þrátt fyrir ótrúlega
mikið hillupláss í mörgum þeirra.
Höfundur er markaðsstjóri Hf.
Olgerðarinnar Egils Skallagríms-
sonar.
Fjölmiðlun
Skífan með eigið útvarp
ÚTSENDINGAR hófust á útvarpi í verslunum Skífunnar nú fyrr í
vikunni. Að sögn Halldórs Bachmann, markaðsstjóra Skífunnar, er
um tveggja tíma efni að ræða sem inniheldur m.a. fréttir úr hverri
deild fyrirtækisins, tilkynningar um tilboð, tónlist, fréttir af væntan-
legum myndböndum og kvikmyndum í Regnboganum og fréttir af
tónlistarmönnum sem eru í samvinnu við Skífuna.
„Það að fyrirtæki sé með eigin
útvarpsefni er nýjung á íslandi en
hins vegar hefur það lengi tíðkast
víða erlendis. T.d. útvarpa margir
stórmarkaðir og stærri hljómplötu-
verslanir í Bandaríkjunum og Bret-
landi eigin efni á verslunartíma,“
segir Halldór.
Ásgeir Tómasson, sem lengi hef-
ur fengist við dagskrárgerð, sér um
að útbúa efnið. Þættinum verður
útvarpað þrisvar á dag til að byija
með í verslunum Skífunnar sem eru
á Eiðistorgi, Kringlunni og tvær á
Laugavegi. Reglulega mun Ásgeir
gera nýja þætti sem taka við af
hinum eldri. „Svona innanhús út-
varpsefni hefur verið vinsælt er-
lendis og ætti því einnig að geta
gengið hérlendis. Þetta er tilraun
og við verðum að sjá til með hver
árangurinn verður. Ef þetta gefst
vel þá höldum við að sjálfsögðu
áfram og reynum að bæta og auka
efnið,“ segir Halldór.
Nýtt númskeió
Stjórntæki
fyrírtækju
Nýtir fyrirtækið þitt sér viðurkenndar stjórnunaraðferðir og algengustu stjórn-
tæki? Flest stærri fyrirtæki ó íslandi nota þessi stjórntæki með ógætum ór-
' angri. Ljóst er að eigendur og stjórnendur meðalstórra og minni fyrirtækjo
geta lært af slíkum vinnuaðferðum. Nlarkmið með beitingu ókveðinna stjórn-
tækja er fyrst og fremst að efla samkeppnisstyrk fyrirtækisins. Fyrirtæki verða
að sýna hagnað til langs tíma og tryggja þannig nægjonlega arðsemi eigin fjór
og sífellda yfirburði -yfir helstu samkeppnisaðila.
Stjórntækin eru:
Stefnumarkandi áætlanagerð/markmiðasetning.
Fjárhagsáætlanir.
Stjórnunaruppiýsingar og lykiltölur.
Gæðastjórnun.
Tímastjórnun og fundaskipulagning.
Frammistöðumat starfsmanna.
Starfslýsingar, verklýsingar, handbækur og fyrirmæli.
Markaðsmál og vörustjórnun.
Markmið með rekstri fyrirtækja.
Á námskeiðinu er farið yfir helstu þætti stjórntækja
og samhengi þeirra.
Leiðbeinandi verrður Thomas Möller, forstöðumaður
rekstrardeildar Eimskips.
Tími og staður: 24. og 25. febrúar frá kl. 13.00 til
17.00 báða dagana. Námskeiðið er haldið í húsakynnum
Stjórnunarfélagsins, Ánanaustum 15.
Einnig geta fyrirtæki fengið námskeiðið til sín.
Verð kr. 11.500,— 15% afsláttur fyrir félagsmenn.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást í síma 621066.
i -
Stjörnunarfélag islðnds
Ánanaustum 15,
sími 621066
Margur er knár
þótt hann sé smár
•45 PostScript letur
• Mac tengi (Local Talk)
og tvö PC tengi (Centronics
og RS 232C)
• Samhliða vinnsla að
PC/MAC (SIO)
• Sjálfvirk aðlögun að
PostScript/HP PCL (ESP)
• 2MB RAM stækkanlegt í 6 MB
Hraöi og kraftur
8 síður á mínútu
• 45 PostScript letur
• Mac tengi (Local Talk)
og tvö PC tengi (Centronics
og RS 232C)
• Samhliöa vinnsla aö
PC/MAC (SIO)
• Sjálfvirk aðlögun að
PostScript/HP PCL(ESP)
• 2MB RAM stækkanlegt í 8 MB
Meiri upplausn,
skarpara letur
• 600x600 punkta upplausn
• 8 síður á mínútu
• 45 PostScript letur
• Mac tengi (Local Talk)
og tvö PC tengi (Centronics
og RS 232C)
• Samhliða vinnsla að
PC/MAC (SIO)
• Sjálfvirk aðlögun að
PostScript/HP PCL (ESP)
• 6MB RAM stækkanlegt í 8 MB
SKIPHOLT117 -105 REYKJAVÍK SÍMI: 91- 627333 • FAX: 91- 628622
aco ..
Traust og örugg þjónusta í 15 ár SS,