Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Leitaðu nýrra leiða til að bæta
starfsskilyrði þín. Þér er óhætt
að færa út kvíamar og taka
að þér ný verkefni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú vinnur að því að gera nýja
áætlun með maka þínum. Nýtt
tækifæri skýtur upp kollinum.
Þú skrifar undir samning og
ferð í ferðalag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júni) 5»
Þér býðst nýtt fjárfestingar-
tækifæri og í dag rekur óvenju-
legt tilboð á fjörurnar hjá þér.
Notaðu innsæi þitt og sköpun-
arhæfileika til að þoka þér fram
á veginn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >“$S
Þú ferð í útivistarferð með
maka þínum á óþekktan og
spennandi stað. Bamið þitt
þiggur athygli þína með þökk-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur áhuga á að fá þér
heimilistölvu og breytir skipu-
laginu heima fyrir tii að fá
aðstöðu þar sem þú getur ann-
ast ýmiss konar heimavinnu.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) &£
Þú færð margar góðar hug-
myndir í dag og byrjar á skap-
andi verkefni. Hugðarefni sem
örva þig andlega höfða til þín
núna. Kvöldið kemur þér
skemmtilega á óvart.
Vog
(23. sept.
22. október)
Þú kaupir dýrt heimilistæki.
Einhver í fjölskyldunni kemur
þér heldur betur á óvart. Lestu
bréf sem þér hafa borist frá
pennavinum og svaraðu þeim
sem fyrst.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Hugsun þín er með allra skýr-
asta móti í dag og innsæi þitt
blómstrar. Þú tekst nokkuð
skyndilega á hendur að fara í
ferðalag.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú rekst á eitthvað hnýsilegt á
útsölu eða flóamarkaði. Einka-
viðræður sem þú tekur þátt í
gefa góða raun fyrir þig fjár-
hagslega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vinur þinn færir þér óvæntar
fréttir í dag. Þú kannt að
ákveða að innritast í félags-
skap. Þér er trúað fyrir leynd-
armáii. í kvöld býðst þér að
taka þátt í óvenjulegri skemmt-
un.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) £/t5>
Þú byijar á rannsóknarverkefni
sem tengist starfi þínu. Þér
berst óvænt viðskiptatilboð
núna. Það sem sagt er við þig
persónulega ætti að vera trún-
aðarmál.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Tam
Ferðalag sem þú tekst á hend-
ur núna leiðir tíl nýrra vináttu-
tengsla. Þú færð góða leiðbein-
ingu í flármálum í dag. í kvöld
tekur þú þátt í einhverjum
menningarviðburði.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dægradvöl. Spdr af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
-tV-
' •• 0<s suo FÖKOA* \/te>
ÖLL /Í£> VATNSeÓLtHU.\
1 *** ÖG f>AG.'AEPT/&
\FÖeO/H V/O'A8EITP'A- t
4/tla^tvnp..._____
. Ö(S SVO FOBUM V/£3
ÖLL C/S F/NNU/M NOKKt
SKUG&SÆL —
AF STAÐ NÚ
EG HEFALOFE/
HAFT AHK.L4
HJAFPVt TUNp.
□
II
o
GRETTIR
TOMMi OG JENNI
LJÓSKA
SMÁFÓLK
5EE HOU MV HANPS 5HAKE,
CI4ARLE5? IT'S BECAU5E
OF ALLTHE PRE55URE...
É
MV PARENT5 THINK I
5H0ULP 6ET PERFECT 6RAPE5
IN EVERVTHIN6 EVERV PAV í
Sérðu hvernig hendurnar á mér
skjálfa, Kalli? Það er vegna alls
þessa álags ...
Foreldrum mínum finnst að ég ætti
að fá fullkomnar einkunnir í öllu á
hverjum degi!
Og ég er svo Gefðu henni smá-
þreytt. köku þegar hún
vaknar.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Nú til dags spila nánast allir
dobl á hindrunarsögnum til út-
tektar. Svo hefur ekki alltaf
verið, og þegar Maurice Harri-
son-Gray vakti á 3 spöðum í
spili dagsins, þá var vestri full
alvara þegar hann doblaði.
Suður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ Á65
¥D96
♦ ÁK72
+ Á83
Norður
♦ K9
VÁG10832
♦ 105
+ G74
Austur
♦ G
V75
♦ G9843
+ D10962
Suður
♦ D1087432
¥K4
♦ D6
♦ K5
Vestur Norður Austur Suður
— — — 3 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
Útspil: Tígulás.
Eftir að hafa tekið tvo slagi
á tígul skipti vestur yfir í laufás
og meira lauf.
Hið alsjáandi auga lesandans
sér að spilið vinnst með því að
spila spaða á kóng. En Harri-
son-Gray hafði auðvitað enga
hugmynd um hvorum megin
spaðagosinn lá. Miðað við doblið
var meira að segja líklegra að
vestur hefði byijað með ÁGx í
trompinu. En þótt Gray hefði
ekki beinan aðgang að spilum
mótheijanna, fann hann leið til
að upplýsa spaðagosann.
Fyrsta verkið var að stinga
upp laufgosa til að láta líta út
fyrir að hann hefði byijað með
Kxx. Næst tók Gray hjartakóng,
eins og hann væri að „afblokk-
era“ með einspili. Og spilaði síð-
an trompi.
Vestur féll kylliflatur fyrir
þessari blekkingu; rauk upp með
spaðaás og spilaði laufi. Hver
getur láð honum það?
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á hinu árlega Hastingsmóti um
áramótin kom þetta endatafl upp
í áskorendaflokki í viðureign
enska alþjóðameistarans Peter
Wells (2.465), sem hafði hvítt og
átti leik, og stórmeistarans Mihai
Suba (2.520), sem fluttist fyrir-
nokkrum árum frá Rúmeníu til
Englands.
36. Re6+! - fxe6, 37. Hc8
(Svartur verður nú a.m.k. hróki
undir. Hann gæti því gefíst upp
strax, en freistaði fyrst gæfunnar
í tímahrakinu:) 37. — e5, 38.
Hxd8 — exd4, 39. Hxa8 — d3,
40. d8=D — d2, 41. Dg5+ og
Suba gaf.
Annað árið í röð urðu mjög
óvænt úrslit í áskorendaflokknum.
í fyrra vann rússneski stórmeist-
arinn Aleksei Súetin sig upp í
efsta flokk þar sem hann vermdi
nú botnsætið. Litt þekktur enskur
alþjóðameistari, Colin Crouch,
sigraði að þessu sinni með 7 'h v.
af 9 mögulegum. Næstir komu
enski stórmeistarinn Kosten og
alþjóðameistararnir Hebden og
Sadler, Englandi, og Ilya
Gurevich, Bandaríkjunum með 7
v. Heimamaðurinn Stuart Con-
quest frá Hastings, sem teflir á
Reykjavíkurskákmótinu í mars
varð á meðal 10 skákmanna sem
hlutu 6‘A v.