Morgunblaðið - 18.02.1992, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 18.02.1992, Qupperneq 43
Framsóknarmenn á fundaferð íiogi íiAuíiaai ,«i auoAíiuiaiíM aiaAjawuoapM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992 43 Þungi í orðum og ásakanir í garð ríkisstj órnarinnar Selfossi. ÞAÐ FÉLLU þung orð í garð ríkisstjórnarinnar á fundi þingmanna Framsóknarflokksins, þeirra Halldórs Ásgrímssonar, Guðna Ágústss- onar og Jóns Helgasonar, á Hvolsvelli fyrir skömmu. Þeir hvöttu fólk til að rísa gegn aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Einn þeirra, Guðni, kvað svo sterkt að orði að um þær breytingar sem af þeim leiddu gæti komið til borgarastyrjaldar í landinu þar sem barist yrði til síðasta manns. „Vinnumarkaðurinn hefur líf stjórnarinnar í hendi sér,“ sagði Halldór og lýsti þeirri skoðun sinni að til tíðinda gæti dregið um páska. Hann sagði ríkisstjómina þurfa að lagfæra aðgerðir sínar eftir óskum verkalýðshreyfingarinnar. Það þyrfti að vera þungi í upp- reisn fólks gegn aðgerðunum. „Eg held að fólkið í landinu geti ráðið miklu ef það beitir valdi sínu. Ég tel fulla ástæðu til að beita því núna og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að ná fram breytingum,“ sagði Halldór. Að öðm leyti réðist hann harka- lega á aðgerðir ríkisstjómarinnar sem hann sagði illa undirbúnar. Hann sagði flokk sinn hafa vitað um vandann við fjárlagagerðina. „Við vissum að draga þyrfti úr út- gjöldum og að hækka þyrfti skatta,“ sagði Halldór, en kvaðst ósáttur við hvernig það væri gert. Hann réðst harkalega á aðgerðir í heilbrigðismálum og sagði heil- brigðisráðherra og starfsfólk hans ekki hafa heildarsýn yfir það á hveijum þetta lenti. Lengri tíma hefði þurft. Guðna Ágústssyni varð tíðrætt um vaxtamál og gagnrýndi ríkis- stjórnina harkalega fyrir fram- göngu í þeim málum. Hann vitnaði til orða háskólarektors um að til valda væra komnir menn til þess að færa til eignir í þjóðfélaginu. Guðni gagnrýndi og harkalega áform um sölu Búnaðarbankans. „Menn hafa á Alþingi í vetur verið að takast á um hættulegustu stefnu sem sett hefur verið í gang í þessu samfélagi og á eftir að valda miklu meiri röskun en menn gera sér grein fyrir,“ sagði Guðni. „Menn þurfa að reyna að veijast Jiví sem er í bígerð í stjómarráði Islands." Jón Helgason kvaðst óttast að Byggðastofnun bæri ekki sitt barr eftir gagnrýni og árásir forsætis- ráðherra á hana, eins og hann orð- aði það. Hann fór gagnrýnisorðum um framgöngu utanríkisráðuneytis- ins varðandi GATT-viðræðumar og sagði þingmenn hafa fengið lítið að vita. í umræðum kom fram gagnrýni á mikinn kostnað í bankakerfinu. „Það er hlaðið undir þetta apparat og það era ótrúlega margir sem lifa á þessu,“ sagði Bergur Pálsson bóndi í Hólmahjáleigu. Guðni sagði vaxtamun ekki meiri í íslenskum bönkum en væri í nágrannalöndun- um. Tíminn fékk sinn skerf af gagn- rýni og fannst mönnum hann heldur lítilsigldur, nema ef vera kynni ein síða sem sýndi fáklætt kvenfólk. Halldór sagði nauðsyn á því að nýtt dagblað kæmi á markaðinn sem veitti DV og Morgunblaðinu Sauðárkrókur: „Nú verða talaðar tung- ur á heimavistinni“ Sauðárkróki. EINAR Steinsson, framkvæmda- stjóri Áningar, ferðaþjónustu hf., færði íbúum heimavistar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki að gjöf lita- sjónvarp og gervihnattadisk, sem komið hefur verið fyrir í húsi heimavistarinnar, fimmtudaginn 6. febrúar. Síðastliðið sumar var hið fjóra sem Áning hf. rekúr sumarhótel í húsnæði heimavistar Fjölbrauta- skólans og hefur það verið árviss atburður að íbúum vistarinnar hefur verið aflient einhver gjöf, oftast eitthvað sem nýtist bæði nemendum á vetrum og einnig gestum hótels- ins á sumrin. Jón Fr. Hjartarson, skólameist- ari, veitti gjöfínni viðtöku fyrir hönd skólans og þakkaði þessa góðu gjöf og aðrar þær sem skólanum hefðu verið færðar á undanförnum árum.„Nú verða talaðar tungur á heimavistinni," sagði skólameistari og sagðist vænta þess að með því að nýta sér ótextað myndefni ýmiss konar gætu nemendur aukið færni og skilning á erlendum málum og væri slíkt af hinu góða, en hins vegar tilkynnti hann einnig að sett- ar yrðu reglur varðandi notkun á tækinu þannig að nemendur mis- notuðu það ekki og sóuðu tíma sem betur væri nýttur til náms eða hvíld- ar. Nemendur heimavistarinnar tóku undir þakkir skólameistara með dynjandi lófataki. - BB. mótvægi. Skoðanamyndun yrði minni og einfaldari ef litlu blöðin hyrfu. Hann gagnrýndi Morgunblaðið sérstaklega, sagði það einlitt og það tæki sér of mikið vald, ætlaði sér til dæmis að koma á auðlinda- skatti. Annar ritstjóri blaðsins hefði boðað borgarastyijöld vegna þessa, þar sem barist yrði til síðasta manns. „Ég er hræddur við svona öfgar,“ sagði Halldór. Á fundinum var niðurskurður í skólamálum gagnrýndur en auk þess benti einn fundarmanna, Her- mann Guðmundsson, á nauðsyn þess að leggja nýjar áherslur í skól- akerfmu sem miðuðust að því að bæta fræðsluna sem þar færi fram. Gera þyrfti meiri kröfur til þekking- ar á Islandi, staðháttum og mann- lífí. Fundinn á Hvolsvelli sóttu 42, þar af tvær konur, önnur úr ná- grenninu, hin af höfuðborgarsvæð- inu. Sig. Jóns. Fjórðung'ssjúkrahúsið í Neskaupstað: Verksljórar gefa endur- hæfíngartæki Eskifirði. SJÚKRASJÓÐUR Verkstjóra- sambands Islands gaf nýlega tæki til endurhæfingarstöðvar Fjórðungssjúkrahússins á Nes- kaupstað. Tækið heitir Endolas- er 476 og er notað gegn bólgum í vöðvafestum. Gjöfin er til minn- ingar um Guðjón Marteinsson sem var formaður Verksljórafé- lags Austurlands í mörg ár. Meðferð gegn bólgum í vöðva- festingum á að styttast verulega með notkun tækisins. Það hefur einnig verið notað með góðum ár- angri í sárameðferð, til dæmis við fótasár. Sjúkrasjóðurinn gaf samskonar tæki til Sjúkrahússins í Vestmanna- eyjum til að minnast Óskars M. Gíslasonar formanns Verkstjórafé- lags Vestmananeyja til margra ára. Sjúkrasjóðurinn hefur áður gefið tæki til sjúkrastofnana í Reykjavík, á Akureyri og í Stykkishólmi. Benedikt -----»......... Seltjarnarnes- kirkja: Námskeið Morgunblaðið/tíjörn tíjörnsson Einar Steinsson, framkvæmdasfjóri Áningar, t.v. afhenti Jóni Fr. Iljartarsyni, skólameistara, gjafabréf vegna gervihnattamótbikara. um hjóna- bandið og fjölskyld- una NÁMSKEIÐ verður haldið um þjónabandið og fjölskylduna í Sehjarnarneskirkju fimmtudags- og föstudagskvöldin 20.-21. febrúar kl. 20.00-23.00 bæði kvöldin. Leiðbeinandi verður Eivind Frö- en, sem er kunnur norskur fyrirles- ari og predikari. í þetta sinn verður kona hans, MargaretæKern, með í förinni en þau hafa unnið námsefn- ið í sameiningu. Skráning fer fram í Seltjarnar- neskirkju og hjá fjölskyldufræðsl- unni og er þátttökugjald 1.500 kr. _____________ Frá tónleikum Tríós Reykjavíkur. Morgunbiaðið/Siih Listaviðburðir á Húsavflc Húsavík. TRÍÓ Reykjavíkur skipað Guðnýju Guðmundsdóttur, Gunnari Kvaran og Halldóri Haraldssyni, og sópransöngkonan Margrét Bóasdóttir efndu til fjölsóttra tónleika í sal Safnahússins á Húsavík laugardag- inn 8. febrúar við góðar undirtektir. Það er ekki oft sem svo saman valið listafólk heimsækir Húsavík svo þetta má kallast sérstakur list- viðburður að fá að heyra flutt norð- ur á Húsavík, tónverk sem aðeins færustu listamenn flytja og af snilld en það vora Þijú andlit í látbragðs- leik eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Sjö rómönskur op. 127 eftir Dmitri Sjostakovitsj og Pianotrio í Es-dúr op.100 eftir Franz Schubert. Á sama tíma og Húsvíkingar hlustuðu á aðkomna listamenn horfðu Akureyringar á sýningu Leikfélags Húsavíkur á sjónleiknum Gaukshreiðrið, sem búið er að sýna 9 sinnum og ávallt fýrir fullu húsi. Um kvöldið voru svo á Hótel Húsa- vík blús og djasstónleikar Djass- þings, söngsveitin NA 12 skemmti með söng og síðast hófst fjölmenn- ur dansleikur þar sem hljómsveitin Mannkom lék og þar með lauk góðum dögum á Húsavík sem Hót- elið og Ferðaskrifstofa Húsavíkur, Leikfélag Húsavík, Djassþing og^- Stórsveit Húsavíkur stóðu fyrir. - Fréttaritari. Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson Eggert Brekkan yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (til hægri á myndinni) tekur við tækinu úr hendi Óskars Þórarinsson- ar formanns Verkstjórafélags Austurlands. VANNÞIN FJÖLSKYLDA? Heiidarvinningsupphæðin var: 125.672.784 kr. Röðin : 111-212-111-2XX1 13 réttir: 29 raöir á 1.170.050 - kr. 12 réttir: 981raöirá 11 réttir: 13.402 raöirá 10 réttir: 100.736 raöir á 21.770 - kr. 1.680-kr. 470 - kr. Þar sem oft myndast biöraöir viö Lottókassana á laugardögum eru viöskiptavinir beönir um aö sækja vinninga fyrir þann tíma. Vinningaútborgun getur hafist á þriöjudags- mognum ef engar tafir eru á útreikningum frá Svíþjóö. —týrtr þig og þina fjölskyldu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.