Morgunblaðið - 18.02.1992, Qupperneq 44
MORCUNBLADW, ADALSTRÆTJ 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKllllEYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Gjaldþrot Kaupfélags Svalbarðseyrar:
Þrotabúið fær ekki
^hlutdeild í heildar-
eiguum Sambandsins
SAMBAND íslenskra samvinnu-
félaga hefur verið sýknað í
Borgardómi Reykjavíkur af
þeirri kröfu Jóns Laxdals, fyrr-
um sljórnarmanns í Kaupfélagi
Svalbarðseyrar, að viðurkennd-
Spariskírteini á
Verðbréfaþingi:
Avöxtunar-
krafa lækk-
ar í 8,05%
SEÐLABANKINN lækkaði í
gær ávöxtunarkröfu spari-
skírteina á Verðbréfaþingi Is-
lands úr 8,15% í 8,05%. Jafn-
framt lækkaði sölukrafa
jk spariskírteina á þinginu úr
7,95% í 7,85% og er nú ávöxt-
un þeirra á eftirmarkaði lægri
en vextir af nýjum spariskír-
teinum í almennri sölu.
Lækkunina má rekja til þess
að Seðlabankinn hefur selt
meira af spariskírteinum en
hann hefur keypt inn að undan-
fömu enda þótt viðskiptin hafi
verið fremur lítil, að sögn Eiríks
Guðnasonar, aðstoðarseðla-
bankastjóra.
Þessi lækkun kemur í kjölfar
lækkunar á ávöxtunarkröfu
húsbréfa en hún lækkaði í sl.
viku úr 8,3% í 8,2-8,14% vegna
- minnkandi framboðs húsbréfa á
markaðnum.
Ávöxtunarkrafa spariskír-
teina á Verðbréfaþingi íslands
var 7,1% í byrjun sl. árs en fór
síðan hækkandi og náði hámarki
21. maí þegar hún varð 8,65%
eftir hækkun á vöxtum spari-
skírteina í frumsölu. Frá þeim
tíma hefur krafan smám saman
farið lækkandi og lækkaði hún
síðast úr 8,25% í 8,15% 7. jan-
úar sl.
ur verði réttur þrotabús kaupfé-
lagsins til 1,1% af heildareign
allra sameigenda í Sambandinu
og að fjárhæð sem samsvari
þeirri eign verði dregin undir
skipti í þrotabúi kaupfélagsins.
Jón Laxdal hélt því fram að
gjaldþrot Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar hafi engu breytt um eignar-
aðild þess að SÍS og verðmikil eign-
araðild kaupfélagsins að Samband-
inu eigi eins og aðrar eignir að
renna til þrotabúsins enda feli úr-
skurður um gjaldþrot ekki í sér
neitt afsal eða framsal eignarrétt-
inda þrotabús.
Sambandið krafðist sýknu af
þessum kröfum. Því var haldið
fram að félagsmaður í kaupfélagi,
sem hverfur úr félaginu, eigi ein-
ungis kröfu á innistæðu sinni í
stofnsjóði en ekki neina kröfu á
hendur félaginu um hlutdeild í
hreinni eign þess og dánarbú eða
þrotabú félagsmanns eigi ekki
meiri rétt en hann sjálfur.
í niðurstöðum borgardómara er
vitnað til laga um samvinnufélög.
Hvorki þar né í samþykktum Sam-
bandsins séu ákvæði um rétt félaga
eða félagsmanna til að krefjast
hluta af eða hlutdeildar í eignum
samvinnufélagsins eða samvinnu-
sambandsins eins og stefnandi
geri.
Sjá nánar frétt á bls. 18.
J
Örn KE landaði 750 tonnum af loðnu í Reykjavík í gær.
Morgunblaðið/KGA
Ágæt loðnuveiði:
300 þúsund tonna markinu náð
RÚMLEGA 300 þúsund tonn af
loðnu höfðu veiðst í gærmorg-
un af tæplega 700 þúsund tonna
kvóta sem gæti komið í hlut
Islendinga á vertíðinni. Skipin
eru á tveimur veiðisvæðum við
suðurströndina, það er við
Reykjanes og á Hvalbakssvæð-
inu. Loðna berst nú á flestar
eða allar hafnir landsins þar
sem loðna er brædd eða fryst.
í gærmorgun höfðu veiðst 245
þúsund tonn frá áramótum,
samvæmt upplýsingum frá Félagi
íslenskra fiskimjölsframleiðenda.
Það bætist við 56 þúsund tonn
sem veiddust í haust. Töluverð
veiði var um helgina og dreifðist
hún á flestar hafnir landsins. í
gærmorgun fékk Félag íslenskra
fiskimjölsframleiðenda til dæmis
upplýsingar um landanir sex skipa
á Siglufirði.
Sigurður RE 4 var að ljúka við
að landa fullfermi á Siglufirði, eða
tæplega 1.400 tonnum, eftir
hádgið í gær þegar Morgunblaðið
hafði samband við skipveija.
Loðnuna hafði Sigurður fengið við
Reykjanes í fímm köstum á tólf
tímum. Vel hefur gengið í þessum
mánuði og hefur Sigurður veitt
alls 10.400 tonn frá áramótum.
Og þeir ætluðu af stað aftur um
leið og búið væri að landa úr skip-
inu. Vel lá á mönnum um borð í
Sigurði, nema hvað þeir kvörtuðu
undan því að of lítið væri borgað
fyrir loðnuna. Verðið væri undir
4.000 krónum fyrir tonnið, eða
svipað verð í krónutölu og fékkst
fyrir 3-4 árum.
Vegagerð ríkisins um Hvalfjarðargöng:
Kiðafellsleið og vegur austan
Akrafjalls ódýrasti kosturúin
Miðum áfram að Hnausaskerðsleið, segir stj ómarformaður Spalar
VEGAGERÐ ríkisins hefur gert
kostnaðaráætlanir og arðsemis-
útreikninga vegna vegtenginga
við jarðgöng undir Hvalfjörð og
kemst að þeirri niðurstöðu að
jarðgöng á Kiðafellsleið og vegnr
til Borgarness austan Akrafjalls
og um Melasveit sé ódýrasti kost-
urinn. Ef Hnausaskersleið verð-
ur hins vegar fyrir valinu, eins
og undirbúningsfélagið Spölur
hf. hefur ákveðið, er hagkvæm-
ast að vegur til Borgarness liggi
sunnan og austan Akrafjalls auk
þess sem vegur verði lagður frá
göngum sunnan Akrafjalls til
Akraness og að gangamunninn
snúi til austurs.
Verksmiðjustæði á Keil-
isnesi rannsakað í sumar
UNDIRBÚNINGUR vegna nýs álvers á Keilisnesi gengur samkvæmt
áætlun. Umhverfis- og jarðvegsrannsóknir á verksmiðjulóðinni eru
j^rirhugaðar í sumar en enn er óvíst hve umfangsmiklar þær verða,
samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Þegar framkvæmdum við bygg-
ingu álvers á Keilisnesi var frestað
um óákveðinn tíma í nóvember
síðastliðnum tilkynntu Atlantsál-
fyrirtækin þijú, Álumax, Gránges
og Hoogovens, að undirbúnings-
vinnu og rannsóknum vegna verk-
efnisins yrði haldið áfram. Var Iðn-
tæknistofnun falið að afla tilboða
og gera tillögur urn framkvæmd
umhverfisrannsókna sem eru nauð-
synlegar vegna starfsleyfis fyrir-
hugaðs álvers. Þessari forvinnu
stofnunarinnar er lokið og að sögn
Guðjóns Jónssonar deildarstjóra
umhverfis- og efnatæknideildar
Iðntæknistofnunar er búizt við að
umhverfishópur Atlantsáls muni
ákveða á næstu vikum hversu stór
hluti verkefnisins verður unnin í
sumar og að áherzla verði lögð á
rannsóknir á gróðri, lofti, sjó og
fjöru á svæðinu. Heildarfjárveiting
til verkefnisins nemur rúmlega
fimmtíu milljónum króna en iíklega
verður aðeins hluti hennar notaður
í ár.
Þá eru jarðvegsrannsóknir á
verksmiðjustæðinu sjálfu fyrirhug-
aðar í sumar en framkvæmdir
vegna þeirra hafa enn ekki verið
boðnar út.
Heildarkostnaður við jarðgöng á
Kiðafellsleið og við hagkvæmustu
vegtengingar við göngin er áætlað-
ur 4.369 millj. kr. Vegalengdin á
milli Reykjavíkur og Akraness yrði
þá 58.8 km. og 70 km. á milli
Reykjavíkur og Borgamess.
Heildarkostnaður við jarðgöng á
Hnausaskersleið og hagkvæmustu
vegtengingar er áætlaður 4.987
millj. kr. Vegalengdin til Akraness
yrði 51.5 km. og 71,2 km. til Borg-
arness. Vegagerðin kemst að þeirri
niðurstöðu að vegur frá göngunum
vestan Akrafjalls til Borgarness sé
mun óhagkvæmari kostur. Þá kom-
ast sérfræðingar Vegagerðarinnar
að þeirri niðurstöðu að tenging yfir
Grunnaíjörð á leiðinni frá Akranesi
til Borgarness virðist ekki vera hag-
kvæm enn sem komið er.
Niðurstöður vegagerðarinnar eru
settar fram í skýrslu sem hefur
verið kynnt forsvarsmönnum Spalar
hf. og þingmönnum Vesturlands-
kjördæmis. Gylfi Þórðarson stjóm-
arformaður Spalar sagði í samtali
við Morgunblaðið að þessar niður-
stöður kæmu ekki á óvart. Þær
miðuðust við hagsmuni vegagerðar-
innar vegna vegtenginga en fælu
ekki í sér mat á hagkvæmustu kost-
unum við gerð jarðganganna
sjálfra. Sagði hann að Spölur myndi
áfram miða sína undirbúningsvinnu
við að göngunum verði valinn stað-
ur á Hnausaskersleið.
Sjá einnig á miðopnu.
--------------
Bridshátíð:
Zia Mahmood
signrvegari
SVEIT Zia Mahmood sigraði í
sveitakeppni á Bridshátíð flug-
leiða sem lauk í gærkvöldi með
188 stig. ICL Denmark varð í
öðru sæti með 187 stig og Sigurð-
ur Sverrisson í þriðja sæti með
183 stig.
Zia Mahmood og Eric Rodwell
sigruðu í tvímenningskeppni á mót-
inu um helgina en Guðmundur Páll
Amarson og Þorlákur Jónsson urðu
í öðm sæti. Alls tóku 64 sveitir þátt
í keppninni í gær og er það fjölmenn-
asta bridsmót sem haldið hefur verið
hérlendis. í sveit Sigurðar voru auk
hans Sverrir Hermannsson, Magnús
Ólafsson, Björn Eysteinsson, Karl
Sigurhjartarson og Svavar Baldurs-
son.
Sjá bridsþátt á bls. 11.