Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
Vextir spariskír-
teina lækka í 7,5%
Lánsfjárþörf ríkissjóðs helmingi
minni en á síðasta ári
Góð aðsókn að Þjóðleikhúsinu
Morgunblaðið/Sverrir
I gær hófst sala aðgöngumiða á þijár sýningar Þjóð-
leikhússins í marsmánuði. Að sögn Stefáns Baldurs-
sonar Þjóðleikhússtjóra, hófst sala miða á átta leiksýn-
ingar á „Emil í Kattholti" og var uppselt á fimm
þeirra um miðjan dag í gær. Níu sýningar hafa verið
ákveðnar á „Kæru Jelenu" og var uppselt á fjórar
þeirrá í gær. Ellefu sýningar eru ákveðnar á „Ég
heiti ísbjörg, ég er ljón“ og var uppselt á fimm í
gær. Uppselt hefur verið á þessar sýningar í febrúar.
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að lækka vexti spariskírteina ríkis-
sjóðs um 0,4%, úr 7,9% í 7,5%, Vaxtalækkunin tekur gildi í dag.
Fyrirgreiðsla Seðlabanka við ríkissjóð var um miðjan mánuðinn
2,8 milljarðar kr. en var á sama tíma í fyrra 8,3 milljarðar.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra tilkynnti ákvörðunina á Al-
þingi í gær og sagði að hún væri
tekin í ljósi markaðsaðstæðna og
stöðu lánamarkaðarins og í trausti
þess að henni fylgi lækkun hjá
bönkum og verðbréfafyrirtækjum.
Hann sagði að þessi lækkun ætti
jafnframt að gefa tilefni til enn
frekari lækkunar nafnvaxta á
næstunni.
Friðrik sagði að talið væri að á
árinu 1991 hefði hrein lánsfjárþörf
opinberra aðila orðið um það bil
40 milljarðar króna í stað 24,4
milljarða samkvæmt lánsfjáráætl-
un. Áætluð lánsþörf opinberra að-
ila á þessu ári sé innan við 20
milljarðar kr., eða um helmingi
minni en á síðasta ári.
„Hvað raunvexti varðar er ljóst
að áhrif þessara umskipta í láns-
fjárþörf hins opinbera eru þegar
farin að koma fram á lánamark-
aði. Þannig hefur verulega dregið
úr eftirspurn eftir húsbréfum, bæði
vegna fasteignaviðskipta og ný-
bygginga. Fyrirgreiðsla Seðla-
banka vegna ríkissjóðs er nú um
miðjan febrúar um 2,8 milljarðar,
en nam um 8,3 milljörðum á síð-
asta ári. Þá hefur lausafjárstaða
viðskiptabankanna verið að batna
og er lausafjárhlutfall nú 13,1%
samanborið við tæp 10% á sama
tíma í fyrra,“ sagði Friðrik.
Guðmundur J. Guðmundsson:
Verkalýðshreyfingin verður
að snúast gegn atvinnuleysinu
Ránið við Dalbraut:
Grunaðir í
gæsluvarðhald
SAKADÓMUR Reykjavíkur hef-
ur kveðið upp gæsluvarðhaldsúr-
skurð yfir þremur ungum mönn-
um sem grunaðir eru um að hafa
framið rán í söluturni við Dal-
braut í Reykjavík síðastliðið
sunnudagskvöld.
Mennimir vom handteknir sama
kvöld, grunaðir um ránið, og að
hafa stolið bíl sem þeir notuðu við
það.
Þeim hefur nú verið gert að sæta
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar
málsins allt til næsta föstudags.
Ekki fékkst upplýst hjá RLR í gær-
kvöldi hvort mennirnir hefðu geng-
ist við brotinu eða hvort ránsfeng-
urinn, um 30 þúsund krónur, væri
kominn í leitimar.
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson formaður verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, segir að verkalýðshreyfingin verði að snúast gegn
vaxandi atvinnuleysi, sem sé að gera vart við sig. Undanfarnar
vikur hafi það aukist verulega og megi búst við að 400 Dagsbrúnar-
menn verði skráðir atvinnulausir eftir mánuð, en 200 eru nú á
skrá. Könnun Þjóðhagsstofnunar á atvinnuástandi og horfum í
janúar sýnir að atvinnurekendur á landinu öllu vildu fækka starfs-
mönnum um 430, sem er 0,5% af heildarvinnuafli í þeim atvinnu-
greinum sem könnunin náði til. Fram kemur að fækkun starfs-
manna er talin æskileg í öllum atvinnugreinum nema sjúkarhús-
rekstri og þjónustustarfsemi.
starfsmenn og sér í lagi eldra fólk.
Fólk sem komið er yfir sextugt og
þess bíði oft ekki annað en atvinnu-
leysið. Og Guðmundur spyr hvað
gera eigi þegar 12 til 14 þúsund
skólanemar komi út á atvinnu-
markaðinn í vor.
Sjá nánar á bls. 16.
Gjaldþrot Veraldar:
Guðmundur segir, að ekki sé um
tímabundið eða staðbundið at-
vinnuleysi að ræða. Dregið hafi
úr eftirvinnu, sem er verulegur
hluti tekna Dagsbrúnarmanna og
að ekki sé hægt að ná fram þeirri
fjárhæð í þeim viðræðum um kjara-
samninga sem staðið hafa yfir.
Forgangskrafan sé að vextir verði
lækkaðir nú þegar, það sé öflug-
asta leiðin til að örva atvinnulífið.
Mikilvægt sé að ríkisstjórnin taki
jákvætt í tillögur sem aðilar vinnu-
markaðarins muni leggjá fram um
eða eftir helgina.
Um 1.400 manns eru atvinnu-
lausir á höfuðborgarsvæðinu og
hefur þeim fjölgað um 200 manns
fyrstu tíu dagana í febrúar. „Þetta
eru óhugnanlegar tölur,“ sagði
Guðmundur. „Það hefur einkennt
Reykjavíkursvæðið að undanfömu
að byggingarframkvæmdir hafa
dottið niður og því er spáð að nýtt
skrifstofuhúsnæði verði ekki byggt
hér fyrir aldamót, nema þá sér-
hannað.“
Einkennandi fyrir atvinnuleysið
nú sé að fyrirtækin losa sig við
Lausafé bókfært á
90 milljónir en
seldist á 2 milljónir
Ýmislegt þarf útskýringa við, segir bústjóri
BÚSTJÓRI þrotabús ferðaskrif-
stofunnar Veraldar, Brynjólfur
Kjartansson hrl., segir að ýmis-
legt í rekstri fyrirtækisins þurfi
mikilla útskýringa við. Meðal
Karl Steinar Guðnason alþingismaður:
Ottast um framtíð 6-7 00
starfsmaima Aðalverktaka
Segir heimskulega ákvörðun Sameinaðra verktaka upphafið að öllu saman
KARL Steinar Guðnason, þingmaður Alþýðuflokksins í Reykjanes-
kjördæmi kveðst hafa ríka ástæðu til að óttast um atvinnuöryggi
600 til 700 starfsmanna íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflug-
velli, þar sem hann viti til þess að ákvörðunum í Brussel um fram-
kvæmdir fyrir varnarliðið hafi verið frestað í kjölfar þeirrar
umræðu sem hófst hér á landi, „við þá heimskulegu og siðlausu
ákvörðun Sameinaðra verktaka í síðasta mánuði að greiða 900
miiyónir króna út til „eigenda sinna“,“ eins og Karl Steinar orð-
aði það í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi.
„Það sem mér finnst hvað sorg-
legast í þessum efnum, er að þessi
heimskulega ákvörðun Samein-
aðra verktaka er upphafið að
þessu öllu saman, en Sameinaðir
verktakar er auðvitað allt annað
fyrirtæki en íslenskir aðalverk-
takar. Umræðan hér í kjölfarið
og sérstaklega ummæli ákveðinna
ráðherra út og suður um Islenska
aðalverktaka, og að það beri að
uppræta þetta fyrirtæki og koma
á því sem þessir ráðherrar hafa
kallað frelsi til útboða við hernað-
aryfirvöld, hefur geit það að verk-
um að samningaviðræður í Bruss-
el um verkefni eru nánast komnar
í strand,“ sagði Karl Steinar.
Karl Steinar sagði að sam-
kvæmt hans upplýsingum hefði
samningum um mjög stór verk-
efni fyrir íslenska aðalverktaka
nánast verið lokið í Brussel, þegar
fregnir af ummælum ráðamanna
hér heima fóru að berast til Belg-
íu, ásamt þýddum greinum úr
Morgunblaðinu og DV, sem hefði
haft það í för með sér að Mann-
virkjasjóður NATO hefði frestað
frekari viðræðum um fram-
kvæmdir á íslandi.
„Fulltrúi einnar þjóðarinnar,
sem aðild á að Mannvirkjasjóðn-
um sagði að hann færi ekki að
eyða skattpeningum þjóðar sinn-
ar, í þetta fyrirtæki, sem stæði
fyrir svona skattahneyksli," sagði
þingmaðurinn.
Aðspurður hvort hann byggi
yfir vitneskju um að Mannvirkja-
sjóður NATO hefði þegar ákveðið
að hætta við fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á Keflavíkurflugvelli
sagði Karl Steinar: „Þær eru stopp
núna og ég óttast að þær frestist
í nokkra mánuði og ef menn halda
áfram að velta sér upp úr fyrir-
tækinu héma, þá verði hætt við
þetta. Væntanlega verður það þá
svo, að þeir sem náð hafa fram
frelsi til þess að rótast í lögmáli
frumskóganna á verktakamark-
aði, þurfa ekkert á því frelsi að
halda, því það verður ekkert héma
til að bjóða í. En eftir munu standa
á milli 600 og 700 starfsmenn
íslenskra aðalverktaka atvinnu-
lausir, í viðbót við þau hundruð
sem nú þegar standa atvinnulaus-
ir á Suðurnesjum. Hvað varðar
ummæli þeirra ráðherra sem ég
vitnaði hér til áðan, vil ég bara
óska þeim góðs svefns, en sam-
viska þeirra hlýtur að verða slæm
þegar og ef þeir þurfa að horfast
í augu við að hafa með ógætileg-
um ummælum sínum gert 700
manns atvinnulausa."
annars hafi samkvæmt reikn-
ingsskilum * fyrirtækisins
lausafé þess verið metið á um
90 milljónir króna en aðeins
hafi reynst unnt að selja það
fyrir um 2 milljónir króna. Inn-
köllunarfrestur þrotabúsins
stendur út marsmánuð og fyrsti
skiptafundur verður haldinn í
apríl. Að sögn bústjórans verð-
ur ekki aðhafst formlega í mál-
inu fyrr en að lokinni umfjöllun
á skiptafundi.
Meðal annarra eigna er Hótel
Höfði við Skipholt 27, sem í bók-
haldi er talið 142 milljón króna
virði. Hótelið verður selt á 3. og
síðasta nauðungaruppboði á næst-
unni, að sögn Brynjólfs Kjartans-
sonar.
Að því er fram kom í samtali
Morgunblaðsins við Brynjólf tók
félagið til starfa í september 1989
og var tap á rekstrinum það ár
34,5 milljónir króna, samkvæmt
reikningum fyrirtækisins. Árið
1990 var tapið 28,5 milljónir króna
en í lok þess árs var bókfært eig-
ið fé fyrirtækisins 57,5 milljónir
króna.
í milliuppgjöri fyrir fyrstu 10
mánuði 1991 kemur fram að tap
félagsins hafi verið 36,5 milljónir
króna og þar af hafí tap á fjár-
magnslið numið 13,9 milljónum
króna.
í samtali við Morgunblaðið í
september síðastliðnum kom fram
hjá fyrrverandi framkvæmda-
stjóra ferðaskrifstofunnar að
fyrstu átta mánuði ársins hefði
hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrirtækisins numið 15,2 milljón-
um króna.