Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992 Noregur Irar deila um fóstureyðingar Dublin. Reuter. FJÓRTÁN ára írskri stúlku, sem varð þunguð eftir að besti vinur föður hennar nauðgaði henni, hefur verið bannað að eyða fóstrinu. Fóstureyðingar eru bannaðar í stjórnarskrá írlands og hefur nú hæstiréttur landsins fellt úrskurð þess efnis að stúlk- an, sem hefur hótað að fremja sjálfsmorð, megi ekki fara til Bretlands í fóstureyðingu, líkt og um fjögur þúsund írskar konur gera á hverju ári. Þessi ákvörðun er nú orðin að miklu pólitísku hitamáli á írlandi og í gær bauð Albert Reynolds ný- skipaður forsætisráðherra, full- trúum stjórnarandstöðunnar til viðræðna um fóstureyðingar- löggjöftna. Dagblaðið Irísh Ti- mes fordæmdi úrskurðinn í harðorðri forystugrein og spurði: „Við hvað eigum við nú að bera okkur saman? Rúmeníu Sjásjeskú? íran klerkanna? Als- ír? Það er margt líkt.“ Sósíalisminn ekki dauður? París. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrrum Sovét- forseti, sagði í grein sem hann ritáði í franska dag- blaðið Libér- ation í gær að sósíalisminn væri ekki dauður þrátt fyrir skipbrot Sov- étríkjanna. Hann sagði það al- ræðisfyrirkomulag sem Stalín kom á hafa afmyndað sósíalis- mann og að það væri það skipu- lag sem nú væri grafið og gleymt. „Guði sé lof,“ bætti Gorbatsjov við. Hugsjónir sósíal- ismans væru þó enn lifandi og sagði hann að sér virtist sem að í austri og vestri væru menn að halda t' átt til nýrrar siðmenn- ingar sem ætti margt skylt með þeim hugsjónum. Lestarferðir til Pétursborgar Helsinki. Reuter. FINNSK lestaryfirvöld skýrðu í gær frá því að þau hygðust taka upp daglegar ferðir frá Helsinki til Pétursborgar í Rússlandi í lok maí. Allt frá því að lestarsam- göngur hófust milli landanna árið 1870 hafa einungis rúss- neskar lestir fengið að fara á milli landanna. Verður þetta því í fyrsta skipti í sögunni.^em ftnnsk farþegalest fer til Rúss- lands. Fyrirburum var drekkt Bonn. Reuter. ÞÝSKA tímaritið Der Spiegel skýrði frá því um helgina að fyrirburum, sem fæddust á stærstu fæðingardeild fyrrum Austur-Þýskalands, var drekkt í vatnsfotu. Hefur blaðið eftir ljósmóður, sem starfaði á fæð- ingardeildinni í Erfurt á sjöunda áratugnum, að öll böm sem vógu undir 1.000 grömm er þau fæddust hafí verið drepin á þennan hátt. Hún kom aftur til starfa á deildinni árið 1982 og komst þá að því að ekkert hafði breyst í þessum efnum. Ljós- móðirinn sagðist hafa lagt fram harðorð mótmæli og hefði þessu þá verið hætt. 160fmíbúð ó Akranesi með 40 fm bílskúr er til sölu eða leigu. Skipti ó hús- næði ó Stór-Reykjavíkursvæðinu koma til greina. Upplýsingar í síma 93-12343 fró og með fimmtudeginum. Reuter James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Andrei Kozyrev, rússneskur starfsbróðir hans, á blaðamannafundi í gær. Bandaríkin og Rússland: Samstarf í varnarmálum Moskvu. Reuter. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjun- um og Rússlandi hafa ákveðið að skiptast á upplýsingum um geimvarnatækni og ætla að huga að sameiginlegu kerfi, sem varað getur við eldflaugaá- rás. Var frá þessu skýrt í gær að loknum tveggja daga við- ræðum utanríkisráðherra ríkj- anna. James Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og Andrei Kozyrev, utanríkisráðherra Rúss- lands, voru einnig sammála um að flýta viðræðum um frekari nið- urskurð langdrægra kjarnorku- vopna en ekkert var þó ákveðið um hve langt yrði í því gengið. Baker sagði, að verið væri þó að tala um meiri fækkun en kveðið væri á um í START-samningun- um en samkvæmt þeim skulu Bandaríkjamenn fækka kjarna- oddum sínum úr 12.000 í 9.000 og Sovétstjórnin eða Rússlands- stjórn úr 11.000 í 7.000. Baker sagði einnig, að sam- þykkt hefði verið að ræða um sameiginlega miðstöð og kerfí til að vara við eldflaugaárás en Bor- ís Jeltsín Rússlandsforseti kom með þá tillögu nýlega. Hvetja til veiða um- fram kvóta Osló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Mor^unblaðsins. SJÖMENN, sem veiða við Noregs- strendur, telja sig hafa borið skertan hlut frá borði við kvóta- úthlutun þessa árs og hafa hótað að grípa til ólöglegra aðgerða í mótmælaskyni. Hafa Samtök strandveiðimanna (Kystfiskar- laget) hvatt félaga sína til að veiða allt að 28,4% umfram þann kvóta sem þeim var úthlutað í fyrra. Samtökin taka þó fram að markmið umframveiðanna yrði vera pólitískur þrýstingur en ekki hagnaðarvon. Sjómenn strandveiðiflotans eru þeirrar skoðunar að ekki hafi verið gætt réttlætis varðandi kvótaúthlut- unina og að aukning kvóta togara- flotans hafi verið meiri en eðlilegt megi telja. Á sama tíma og sjaldan hefur sést jafn mikill fískur við strendur Noregs eru margir sjómenn í þeirri stöðu að vera búnir að veiða allann þann kvóta sem þeir fengu úthlutað. Stjórn Samtaka strandveiðimanna telur Oddrunn Pettersen sjávarút- vegsráðherra hafa svikið loforð um að kvótunum yrði úthlutað á réttlát- ari hátt-. Rannsókn mútumálanna í Japaii: Fyrrverandi forsætis- ráðherra á að bera vitni Tókýó. Reuter. Stjórnarflokkurinn í Japan, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, hefur orðið við kröfu stjórnarandstöðunnar um að Zenko Suzuki, fyrrver- andi forsætisráðherra, beri vitni við yfirheyrslur á þinginu vegna mútumáls sem hefur valdið stjórninni miklum erfiðleikum. Annar fyrrverandi ráðherra, Jun Shiozaki, á einnig að bera vitni við yfírheyslumar. Hann og Suzuki eru báðir grunaðir um að hafa þegið mútur af japanska byggingarfýrir- tækinu Kyowa. Japanskir fjölmiðlar segja að Suzuki hafí þegið allt að 110 milljónir jena (49,5 milljónir ÍSK) af fyrirtækinu. Suzuki hefur hins vegar sagt að hann hafí fengið 10 milljónir jena en skilað þeim. Náinn samstarfsmaður Kiichi Mi- yazawa forsætisráðherra, Fumio Abe, var í gær ákærður fyrir að hafa þegið 10 milljóna jena (4,5 milljóna ISK) mútur af fyrirtækinu. Fyrr í mánuðinum hafði hann verið ákærður fyrir að hafa krafist og Upplausnarástand í Zaire: Tugir féllu er her- menn hófu skothríð Kinshasa. Reuter. ÞRETTÁN óbreyttir borgarar í það minnsta féllu er hermenn í Zaire hófu skothríð á fólk sem safnast hafði saman til að mótmæla stefnu stjórnarinnar á sunnudag. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar segja tölu fallinna vera mun hærri eða allt að 42. Kitenge Yezu upplýsingamálaráðherra sagði hermennina hafa skotið á fólkið eftir að hópar ungmenna hefðu gengið til liðs við mótmælendurna og byijað að kasta steinum á þær hersveitir sem fylgdust með mótmæl- unum. Sakaði hann presta innan kaþólsku kirkjunnar um að bera ábyrgð á blóðbaðmu. Kveikjan að mótmælunum var sú ákvörðun stjómvalda í síðasta mánuði að hætta við ráðstefnu um framtíð þjóðarinnar. Var sú skýring gefín af Nguza Karl-i-Bond innan- ríkisráðherra að viðræðurnar ýttu undir ættbálkaágreining í landinu. Vestrænir stjómarerindrekar telja hins vegar ástæðuna vera að stjóm- arandstæðingar hefðu verið komnir í meirihluta á ráðstefnunni. Yfírvöld i höfuðborginni Kins- hasa bönnuðu á laugardag mót- mælagöngu þá sem boðað hafði verið til en að loknum sunnudags- messum streymdi fólk út úr kirkjum og gekk um götur borgarinnar, syngjandi sálma og veifandi bibl- íum. Frémst gengu ungir prestar innan kaþólsku kirkjunnar og leið- togar stjórnarandstöðunnar. Vestræn ríki hafa mörg hver for- dæmt blóðsúthellingarnar á sunnu- dag harðlega og gengu sendiherrar Bandaríkjanna, Frakklands og Belgíu á fund Mobutu Sese Seko, forseta Zaire, á mánudag. Ástandið í Zaire hefur verið ógn- vænlegt síðustu mánuði og er ríkið talið vera á barmi stjórnleysis. í september gengu hermenn, sem ekki höfðu fengið greidd laun í lang- an tíma, berserksgang um götur Kinshasa og voru um 15.000 er- lendir ríkisborgarar fluttir í burtu í kjölfar þess af frönskum og belg- ískum hersveitum. Efnahagslíf Za- ire hefur ekki enn náð sér eftir uppþot hermannanna og hefur verð- bólga síðustu þijá mánuði verið 23.000% á ársgrundvelli. þegið 80 milljónir jena (36 milljónir ISK) af fyrirtækinu. Stjórnarandstaðan hefur krafíst þess að 22 menn beri vitni við yfir- heyrslur þingsins, þeirra á meðal Abe og Goro Moriguchi, fyrrverandi varaforseti Tokyo Sagawa Kyubin, fyrirtækis sem hefur einnig verið sakað um að hafa mútað stjórnmála- mönnum. Ágreiningur er enn innan stjómarflokksins um hvort stefna eigi mönnunum fyrir þingið. Stjórnarandstaðan hefur í tvær vikur neitað að taka þátt í umræðum um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar- innar vegna þessara mála en í gær, þegar stjórnarflokkurinn varð við kröfum hennar að ýmsu leyti, ákvað hún að greiða fyrir afgreiðslu þess. Reuter. Castro fordæmir Bandaríkjastjórn Fidel Castro, forseti Kúbu, sakaði í gær bandarísk stjórnvöld um að nota stefnu sína í innflytjendamálum til að grafa undan stöðugleika á Kúbu. Castro sagði í ræðu, sem hann flutti við útför eins af þrem- ur lögreglumönnum sem voru skotnir til bana er þeir reyndu að stöðva flótta tveggja Kúbana frá eyjunni, að Bandaríkjastjóm sendi heim flóttamenn frá Haiti en fagnaði komu „glæpamanna og morðingja" sem flýðu frá Kúbu. Hann sagði mennina tvo sem skutu lögregluþjón- ana einnig hafa gert sig margsinnis seka um nauðganir og að þeim hefði eflaust verið tekið opnum örmum, hefði þeim tekist að flýja til Bandaríkjanna. Á myndinni má sjá Castro við útförina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.