Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992
31
Strákar brjóta klaka í moldar- Morgunbiaðið/R. Schmidt
barði með spýtum. Skólalóðin iðaði af lífi þegar sólin skein í fyrsta sinn.
MANNLIF
Sólarkomunni fagnað
Bílddælingar sáu fyrst til sólar á
þessu ári hinn 1. febrúar. í
tæpa þrjá mánuði samfleytt sjá íbú-
ar kauptúnsins ekki til sólar. En
þegar loksins birtir til breytist
mannlífið svo um munar.
Eftir langa og dimma skamm-
degisdaga tekur veturinn á sig nýja
mynd. Sólin lýsir allt upp, ekki bara
húsin og fjöllin, heldur sálartetrið
í hveiju mannsbarni. Þeir sem búa
við sólarleysi í langan tíma skilja
sælutilfinninguna þegar fyrst sést
til sólar á ný. Litla kauptúnið undir
háa fjallinu geislar þegar sólargeisl-
amir birtast.
í góða veðrinu um daginn, þegar
fréttaritari Morgunblaðsins var á
ferð um götur staðarins, mátti sjá
börn og fullorðna fagna sólarkom-
unni. Við látum myndirnar tala sínu
máli.
- R. Schmidt.
Morgunblaðið/Ólafur Bernðdusson
María, Eva Dögg og Sveinbjörn við „hvalrekann".
Sjndur
„Hvalreki“ á Skagaströnd
eim var mikið niðri fyrir, Mar-
íu, Sveinbirni og Evu Dögg,
þegar þau komu til fréttaritara og
tilkynntu honum að þau hefðu fund-
ið höfrung eða háhyrning rekinn í
fjörunni fyrir neðan Rækjuvinnsl-
una.
Nýlega höfðu verið fréttamyndir
í sjónvarpinu af stórhveli sem rak
á fjöru á Suðurlandinu og þótti
krökkunum sem hér væri að
minnsta kosti um sambærilegan
fund að ræða ef ekki merkilegri.
Þegar fréttaritari mætti á staðinn
með börnunum virtist hvalurinn
hafa minnkað allmikið því í stað
þess að finna háhyrning var í fjör-
unni dauð hnísa. Þó að börnunum
fyndist fundurinn stórmerkilegur
varð fréttaritara fljótlega ljóst að
hér var ekki um þá stórfrétt að
ræða sem hann hafi upphaflega
haldið.
Til að fullnægja öllu réttlæti og
til að halda í „samböndin" sem ölL-
um fréttariturum eru svo mikilvæg
er hér birt mynd af krökkunum við
hvalinn sem þau fundu. - Ó.B.
SAtON FORMULA
VUAMIN
HAWONÍ
SUPEH HRIHRErl
SUPEBMCDMSTUUA
: SUPÍÍHAARnECtMEIIAT
i SUPER HAABH6RSTEU
' •'l'PtT SIST*UT«IBft*l
'UPER-RESTAlífUO
'Á • u p t r, h Á r. «t
-ví tuasE
Kraftaverkanæringin
sem er ekki skoluð úr
Áskriftarsíminn er 69 11 22
MASTER ♦
VELASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
PULLMASTER
- rökréttur kostur.
VÖKVAVINDUR
PULLMASTER eru afkastamiklar vökvavindur
meö jöfnum vinduhraöa í báðar áttir. Knúnar
vökvadrifnum gírmótor. Sjálfvirkar
diskabremsur og öryggisbremsa. Innbyggö
vökvakæling gegn ofhitun viö mikiö álag. Allir
snúningsfletir aflokaöir og vinna í olíubaði.
Kúlu- og keflalegur á öllum snúningsflötum
tryggja langa og áfallalausa notkun með
lágmarks bilanatíðni. Varahluta- og
viðgerðarþjónusta.
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar.
Hagstætt verö - góð greiðslukior.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, simar: (91) 622900 og 622901 - Næg bílastæði
ELFA-háfar
16 geröir — 8 litir, kopar og stál
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
NAMSKEID
FYRIR BÖRN
9 ÁRA OG ELDRI
Körfugerð 3. mars-7. apríl,
þriðjudaga kl. 10.00-12.00 f.h. - kr. 7.000,-
Myndvefnaður 7. mars-11. apríl,
laugardaga kl. 10.00-12.00 f.h. - kr. 7.000,-
Útskurður 4. mars-8. apríl,
miðvikudaga kl. 16.00-18.00 - kr. 7.000,-
Prjón 3. mars-7. apríl,
þriðjudaga kl. 16.00-18.00 -'kr. 9.000,-
Leðursmíði 5. mars-9. apríl,
fimmtudaga kl. 16.00-18.00 - kr. 9.000,-
NAMSKEIÐ
FYRIR FULLORDNA
Bútasaumur 3. mars-7. apríl,
þriðjudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Prjóntækni 12. mars-9. apríl,
fimmtudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Fatasaumur, sumarfatnaðurb. mars-30. apríl,
fimmtudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 10.000,-
Útskurður 12. mars-30. apríl,
fimmtudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Tóvinna 4. mars-8. apríi,
miðvikudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Litaðar körfur 16. mars-6. apríl,
mánudaga kl. 20.00-23.00 - kr. 5.000,-
Skrifstofa skóians er opin mánud.-fimmtud.
kl. 16.00-18.00 og föstudaga kl. 9.00-11.00.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans í
síma 17800.
í
!
í
3
í
á
A
i
. J