Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992 9 Allir, sem glöddu mig á 90 ára afmœli mínu með gjöfum, símskeytum og samtölum oggerðu mér daginn ógleymanlegan, færi ég alúöar- þakkir fyrir þann hlýjug. Bestu kveðjur til ykkar allra. Thorberg Páll Jónasson, Dalbraut 20. Hugaðu aö sparnaöinum þegar þú gerir innkaupin. Þjónustu- miöstöö ríkisverðbréfa er líka í Kringlunni Hringdu eða komdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og fáðu nánari upplýsingar um áskrift að sparískírteinum ríkissjóðs. Þjónustumiðstöðin er fyrir fólkið í landinu. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, 2. hæö, sími 91- 626040 og Kringlunni, sími 91- 689797 Meira en þú geturímyndað þér! Lántökur úr gjaldþrota sjóði Lánasjóður íslenzkra námsmanna er kominn í þrot. Núverandi ríkisstjórn er að gera það sem gera þarf. Annað væri óðs manns æði. Námsmenn telja sig hafa hag af því að taka lán hjá sjóðn- um jafnvel þótt þeir þurfi ekki á því að halda. Þetta segir í rit- stjórnargrein DV. Mikileftir- spurn Rifstjómargrein DV sem birtist í fyrradag, nefndist „Námslánin“ og fer hún hér á eftir: „Lánasjóður íslenskra námsmanna er í brenni- deplinum. Hann hefur lent imdir hnífnum eins og fleira, þegar ríkis- stjómin er að gera ör- væntingarfulla tilraun til að stemma stigu við út- gjöldum ríkissjóðs. Lána- sjóðurinn fékk tæþa þijá miiyarða króna á síðasta ári, sem var tæpum millj- arði meira en fjárlög gerðu ráð fyrir. Em þá ekki meðtalin þau lán sem sjóðurinn tekur til viðbótar og á þessu ári fara um tveir milljarðar af ráðstöfunarfé Lána- sjóðsins til þess eins að borga afborganir og vexti af gömlum lánum. Á sama tíma eykst eftir- spura cftir lánum úr sjóðnum frá sístækkandi hópi námsmanna. + Ur böndum Nú hefur verið samið fmmvarp um breytingar á lögum Lánasjóðsins með hertum reglum rnn lánveitingar og sýnist sitt hveijum um það frum- varp. Námsmenn hafa mótmælt kröftuglega og héldu fjöbnennan fund í Háskólabíói þar sem full- trúum stjómmálaflokka var boðið tál. Sérkenni- legast við þennan fund vom ræður fyrrverandi ráðherra, þeirra Stein- gríms Hermanssonar og Svavars Gestssonar, sem báðir hafa reyndar staðið fyrir margvísl egum skerðingum á Lánasjóðn- um en hafa þó látið þau mál fljóta sofandi að feigðarósi. Vandamál Lánasjóðs íslenskra námsmamia verða rakin til þeirrar einföldu stað- reyndar að stjórnmála- memi og ráðherrar síð- ustu tveggja áratuga hafa vanrækt þá skyldu sina að liorfast i augu við þann veruleika, að láns- kerfið og sjóðurimi hefur farið algjörlega úr bönd- unum. Þrautalendingin hefur jafnan verið sú að veita sjóðsstjómimii heimild til lántöku og þær lántökur em nú að sliga sjóðinn til gjald- þrots. > Oðsmanns æði Það getur verið gott og blessað að jánka því að námsmenn eigi rétt á Iánum til mennta. En þá er annaðhvort að vera sjálfum sér samkvæmur og veija þeim Ijármun- um sem til þarf til þeirr- ar námsaðstoðar á fjár- lögum, ellegar að ganga þannig frá endurgeiðsl- um að lánin skili sér og sjóðurinn standi undir sér. Það hefur ekki verið gert. Sjóðurinn er kom- inn í þrot og núvcrandi ríkisstjóm er að gera það sem gera þarf. Hún er að herða reglumar um lánveitingamar. Það er óðs manns æði að halda að sér höndum enda leið- ir það til þess eins að það verður enginn lánasjóður til eftir nokkur ár. Pen- ingamir verða uppumir. Ómarktæk mótmæli Námsmenn munu að sjálfsögðu mótmæla eins og kröfugerðarhópa er siður. Stjómarandstiiðan mun skella allri skuid á ríkisstjóm eins og stjóm- arandstöðu er siður. Sú umræða og þau mótmæli em ekki marktæk nema að því leyti að námsmenn geta gert kröfu um að taka þátt í endurskoðun og gera sínar tillögur um breytingar. Allir vilja lán Aðalatriði þessa máls er að námsmenn telja sér hag í því að taka lán hjá Lánasjóðnum. Jafnvel þeir, sem ella þurfa ekki á því að halda. Kjör lána- anna em með þeim hætti að námsmcnn sækjast allir eftir þeim og gildir þá einu hveijar efna- hagsaðstæður eða heim- ilsástæður em. Auðvitað ætti kerfið að vera þann- ig að iánin væm valkost- ur og námsmenn tækju þau því aðeins að nám væri þeim ókleift ella. f dag taka allir lán. Sú fáránlega regla hefur og verið i gildi að námsmenn era beinlínis lattir til að afla sér tekna. Námsfólk sér engan hag í því að skapa sér tekjur og sækir þess í stað um námslán. Með þessum hætti er bókstaflcga öllu námsfólki stýrt inn í Lánasjóðinn og engin vafi er á því að lánveit- ingar era langtum meiri en nauðsyn krefur af þessum sökum.“ RABBFUNDUR í VÍB-STOFUNNI Verður bylting í viðskiptum með hlutabréf á íslandi? A morgun, fimmtudaginn 20. febrúar, verður Eiríkur Guðnason, formaður stjórnar Verðbréfaþings íslands, í VTB-stofunni og ræðir við gesti um breytingar á reglum Verðbréfaþingsins. I hverju felast breytingarnar? Mun skráning hlutabréfa á þinginu hafa mikla þýðingu fyrir venjulega hluthafa? Hvert er gildi aukinna upplýsinga um verð og umfang viðskipta? Hver er hvatinn fyrir fýrirtæki að fá bréf sín skráð á þinginu? Fá þau öll skráningu? Fundurinn hefst kl. 17:15 og er öllum opinn. Verið velkomin! Ármúla 13a, 1. hæö.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.