Morgunblaðið - 19.02.1992, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
21
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Skuldasúpa og
sparnaður
Ráðdeild og sparnaður virðist
ekki eiga upp á pallborðið
hjá íslendingum, ef marka má
þróunina í fjármálum opinberra
aðila og einstaklinga. Sparnaður
einstaklinga og heimila, gróði
atvinnufyrirtækja og tekjuaf-
gangur opinberra aðila er afl-
gjafi athafna, framkvæmda og
nýsköpunar. Lántökur geta ekki
komið þar í staðinn nema að
takmörkuðu leyti og því aðeins,
að lánsfé sé notað til arðbærra
verka.
Athyglin undanfarin misseri
hefur fyrst og fremst beinzt að
gengdarlausri skuldasöfnun op-
inberra aðila erlendis, enda nem-
ur hún ríflega helmingi af árs-
framleiðslu þjóðarinnar. En und-
anfarin áratug hefur einnig sig-
ið mjög á ógæfuhliðina hjá ein-
staklingum og heimilum. Er svo
komið, að skuldir heimilanna eru
mun meiri en sparifé þeirra.
Þau þáttaskil urðu á síðasta
ári, samkvæmt útreikningum
Sigurðar B. Stefánssonar, fram-
kvæmdastjóra Verðbréfamark-
aðar íslandsbanka, að sparnaður
heimilanna minnkaði um 1% að
raunvirði á mann. Það hefur
ekki gerzt í fullan áratug, eða
frá árinu 1982, að sparnaðurinn
hafi minnkað. Samkvæmt tölum
Sigurðar nam heildarsparnaður
heimilanna, annar en í fasteign-
um og lífeyrissjóðum, sem ekki
eru til ráðstöfunar, alls um 153
milljörðum króna á síðasta ári,
en heildarskuldirnar um 208
milljörðum króna. Sparifé heim-
ilanna á mann nam um 600
þúsund krónum í árslok 1991,
en heildarskuldimar um 850
þúsund krónum á mann. I upp-
hafi níunda áratugarins nam
spariféð 212 þúsund krónum en
skuldimar 176 þúsundum.
Spamaður hvers einstaklings
nam því 36 þúsund krónum
umfram skuldir, en áratug síðar
hafði dæmið snúist við. Sérhver
einstaklingur var kominn 250
þúsund krónur í mínus, miðað
við verðlag í janúarmánuði sl.
Þetta eru uggvænlegar tölur
og þær sýna, að Islendingar lifa
um efni fram. Það gengur ekki
til lengdar, að landsmenn íjár-
magni neyzluna með lántökum,
enda em miklar skuldir ein
helzta ástæðan fyrir því, að jafnt
heimili sem fyrirtæki eru að
kikna undan vaxtabyrðinni.
Skuldsetningin er svo mikil, að
hún hlýtur að auka hættuna á
greiðsluerfiðleikum einstaklinga
og fyrirtækja, leiða jafnvel til
gjaldþrota, í þeim mikla sam-
drætti sem er í efnahagslífinu —
fimmta árið í röð. Gífurleg eftir-
spurn eftir lánsfé heldur uppi
háum vöxtum og þyngir því
byrðarnar, auk þess sem skortur
á lánsfé og hár fjármagskostn-
aður hamlar því, að atvinnufyr-
irtækin ráðist í ný verkefni og
framkvæmdir. Það er forsenda
þess, að unnt sé að auka atvinnu
í landinu. Aðilar vinnumarkað-
arins eru því á réttri leið, þegar
þeir leggja höfuðáherzlu á að
ná vöxtum niður. Mikill sam-
dráttur þjóðartekna gefur ekk-
ert færi á kauphækkunum, en
lækkun vaxta getur að nokkru
létt byrðar heimila og fyrir-
tækja. Tölurnar hér að framan
um skuldsetningu þjóðarinnar
sýna það. Eina raunverulega
leiðin til að bæta ástandið til
frambúðar er aukinn sparnaður
landsmanna, minnkun _ hvers
kyns neyzlu og óhófs, en íslend-
ingar einbeiti sér að því í staðinn
að greiða sem mest niður af
skuldunum.
Skuldasöfnun þjóðarinnar er-
lendis er svo kapituli út af fyrir
sig. Friðrik Sophusson, íjár-
málaráðherra, skrifaði grein í
Morgunblaðið í gær og þar kem-
ur fram, að erlendar skuldir
hafi verið um 200 þúsund millj-
ónir um síðustu áramót. Það
nemur um 3 milljónum króna á
hveija ijögurra manna fjöl-
skyldu eða sem svarar algengum
árstekjum hjóna. Fjármálaráð-
herra bendir á, að afborganir
og vextir af þessari skuldasúpu
erlendis nemi 25 þúsund milljón-
um á ári eða um 400 þúsund
krónum á fjölskyldu. Þetta er
engin smáræðis byrði að bera
fyrir atvinnulífið og heimilin,
sem eru skuldum vafin fyrir.
Ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks hefur ákveðið
að stöðva þessa öfugþróun og
það er ekki seinna vænna. Nið-
urskurðurinn á ríkisútgjöldum,
sem ákveðinn var í fjárlögum,
og á opinbemm lántökum, sem
ákveðinn var í lánsfjárlögum,
var orðinn óumflýjanlegur.
Hann hefur samt mætt harðri
gagnrýni stjóranrandstöðu og
hagsmunahópa. En vandinn er
orðinn svo mikill, að hann verð-
ur ekki leystur með aukum
sköttum eða erlendum lántök-
um. Skuldsetning heimila, at-
vinnulífs og opinberra aðila er
svo mikil að ekki er á bætandi.
Það á svo eftir að koma í ljós,
hvort þessi niðurskurður skilar
sér í raunverulegum sparnaði í
ríkisrekstrinum.
GYÐINGAR SAKA ISLENSKAN RIKISBORG ARA UM STRIÐSGLÆPI
Bréf Simon Wiesen-
thal-stofnunarinnar
til Davíðs Oddssonar
HÉR fer á eftir bréf það sem Sim-
on Wiesenthal-stofnunin í Jerúsal-
em hefur komið á framfæri við
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og varðar meinta stríðsglæpi Eð-
valds Hinrikssonar:
Yðar ágæti, Davíð Oddsson for-
sætisráðherra.
Kæri Oddsson forsætisráðherra,
Verið velkomnir til Israels. Von
okkar er sú að heimsókn yðar, sem
er hin fyrsta sem forsætisráðherra
íslands, tekst á hendur til lands gyð-
inga, reynist ekki einungis söguleg
heldur verði hún einnig til að þróa
og styrkja tengsl þjóðanna tveggja.
Þótt heimsókn yðar sé án nokkurs
vafa fagnaðarefni bæði á Islandi og
í ísrael verð ég að benda á mál sem
veldur gyðingum um heim allan
þungum áhyggjum. Ég er að vísa til
þess að á íslandi býr Evald Mikson,
sem nú er þekktur sem Edwald Hin-
riksson og er kunnur stríðsglæpa-
maður nasista er framdi grimmdar-
verk á gyðingum og öðrum íbúum
Eistlands á árum síðari heimsstyij-
aldarinnar.
Mikson var aðstoðárlögreglustjóri
stjómmálalögreglunnar í Tallin -
Haiju Prefecture og er sakaður um
að hafa í þessu embætti ekki einung-
is gefið út handtökuskipanir á hend-
ur gyðingum heldur einnig að hafa
myrt þá. Á meðal fómarlamba hans
var hin 14 ára gamla Ruth Rubin
sem hann nauðgaði áður en hann
myrti hana. Mikson vann einnig að
yfírheyrslum fyrir Gestapo í fanga-
búðunum í Tartu og var einn þeirra
sem vann að því að skipuleggja starf-
semi þjóðemishreyfíngarinnar
Omakaitse í Vonnu. Á báðum þessum
stöðum er hann sakaður um að hafa
tekið virkan þátt í ofsóknum og
morðum á óbreyttum borguram.
Undanfarið ár hafa fjölmiðlar í
Eistlandi ítarlega greint frá dvöl
Miksons í Reykjavík. Hún felur í sér
alvarlegan flekk á orði því sem «.f
íslandi fer, sem er eitt áf elstu lýð-
ræðisríkjum heims. Hvemig má það
vera að slíkur maður fái hæli í landi
yðar?
í mörg ár hefur Simon Wiesenthal-
stofnunin lagt á sig umtalsvert erfíði
til að afla upplýsinga um flótta
hundruða granaðra stríðsglæpa-
manna nasista til vestrænna lýðræð-
isríkja. Á síðustu fímm áram hafa
stjórnvöld í þremur ríkjum — Kanada
(1987), Ástralíu (1989) og Bretlandi
(1991) sett sérstök lög til að greiða
fyrir að unnt sé að lögsækja stríðs-
glæpamenn nasista er sest hafa að
í löndum þessum. Þótt stjórnvöld {
ríkjum þessum hafí í fyrstu verið
treg til að beita sér fyrir þessum
breytingum komust þau að þeirri
niðurstöðu, eftir að fram hafði farið
rannsókn á glæpum þeim sem framd-
ir voru, að ekki væri unnt að neita
fórnarlömbum nasista um að réttlæt-
ið næði fram að ganga þó svo töf
hefði orðið þar á. Við hvetjum yður
til að gera það sem naúðsynlegt er
til að tryggja að ísland veiti skó-
sveini Hitlers, Ewald Mikson, ekki
lengur hæli. Við biðjum yður einnig
að rannsaka hvort fleiri stríðsglæpa-
menn nasista hafí komið til heima-
lands yðar og hvort einhverjir þeirra
búi þar enn.
yon okkar er sú að heimsókn yðar
til ísraels verði ánægjuleg og að hún
megi verða til þess að þér gerið yður
ljóst hversu mikilvægt það er að
glæpamönnum þeim er stóðu fyrir
Helförinni verði gert að svara til
saka. Kærar kveðjur.
Yðar einlægur,
Efraim Zuroff
forstöðumaður.
í plaggi sem Simon Wiesenthal-
stofnunin hefur dreift til fjölmiðla
og dagsett er 17. febrúar segir:
Evald Mikson (nú Edwald Hinriks-
son)
fæddur:12. júlí 1911 í Tartu í Eist-
landi.
* Var einn þeirra er skipulagði starf-
semi Omakaitse í Vonnu, myrti
óbreytta borgara og tók virkan þátt
í handtökum og ofsóknum.
* Starfaði við yfírheyrslur fyrir
Gestapo í Tartu-fangabúðunum,
framkvæmdi aftökur í skurði er ætl-
aður var til að tefja framrás skrið-
dreka nærri búðunum.
* Var aðstoðarlögreglustjóri stjórn-
málalögreglunnar í Tallin -Haiju
Prefecture, gaf út handtökutilskipan-
ir á hendur gyðingum og stjómaði
fjöldamorðum á gyðingum í Tallin.
Á meðal þeirra sem Mikson tók hönd-
um voru: Salomon Katz (handtekinn
26. september, skotinn 4. október
1941), Michael Gelb, Inna Gelb, Jenni
Katsev, Rachel og Simon Rubinsten,
Alexander Rubin (barinn til bana af
Mikson í Aðalfangelsi Tallin), Ruth
Rubin (sem Mikson nauðgaði og
myrti).
í plagginu er ennfremur greint frá
heimilisfangi og símanúmeri Eðvalds
Hinrikssonar.
Blaðagrein auð-
veldaði okkur
að loka hrmgnum
- segir forstöðumaður Simon Wies-
enthal-stofnunarinnar 1 Jerúsalem
Eðvald Hinriksson á heimili sínu í Hafnarfirði í gær.
Morgunblaðið/Sverrir
EFRAIM Zuroff, forstöðumaður
Simon Wiesenthal-stofnunarinnar
í Jerúsalem, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann hefði
vitað um nokkurt skeið um fortíð
Evalds Miksons (Eðvalds Hinriks-
sonar) í Eistlandi en talið að hann
væri látinn, uns honum hefði ver-
ið bent á viðtal við Mikson í eist-
Saklaus af öllum
þessum ásökunum
- segir Eðvald Hinriksson í samtali við Morgunblaðið
EÐVALD Hinriksson segir í samtali við Morgunblaðið að ásakanir
Wiesenthal-stofnunarinnar séu ósannar og hann sé saklaus af þeim
öllum. Segist hann vilja fá skýringar á hverjir stæðu á bak við ásakanir
á hann um stríðsglæpi. „Ég vil verja mig og Island er réttarríki. Ég
er íslenskur ríkisborgari og á rétt á að verja mig. Gyðingar eiga eng-
an rétt til að krefjast þess að ég verði framseldur til láta mig ganga
í gegnum réttorhöld í Israel. Hvaða menn eru þetto? Ég vil fá að vita
hvað þarna liggur að baki,“ segir Eðvald.
Eðvald segir að þetta sé í þriðja
sinn sem hann sé látinn sæta ásök-
unum af þessu tagi. I réttarhöldum
í Svíþjóð í stríðslok hafi hann verið
borinn þeim sökum að hafa átt þátt
í stríðsglæpum en verið hreinsaður
af ákærunum. Árið 1961 hafi hann
sætt ofsóknum vegna skrifa Þjóðvilj-
ans um að hann hefði tekið þátt í
stríðsglæpum nasista en nú komi
þessar ásakanir frá gyðingum. Hann
segir aðspurður um skýringar að
hann búi yfír miklum upplýsingum
um atburði í Eistlandi og valdarán
kommúnista og einhveijir menn ótt-
ist hann þess vegna.
Þegar þær ásakanir sem koma
fram í bréfí Wiesenthal- stofnunar-
innar eru bornar undir Eðvald neitar
hann þeim öllum. Hann kveðst aldr-
ei hafa starfað í útrýmingarbúðum
í Tartú, aldrei gefið út fyrirskipanir
um handtöku gyðinga eða staðið að
fjöldamorðum á gyðingum í Tallin.
Davíð Oddsson forsætisráðherra:
Afskaplega þungbærar ásak-
anir koma fram í bréfinu
Óheppilegt hvernig málið bar að
„ÞEGAR ég fékk þetto bréf strax eftir að ég kom hingað sagði ég
einungis að ég hefði kosið að fá það áður en ég fór til ísraels. Að
öðru leyti sagði ég að málið yrði skoðað þegar ég kæmi heim. Ég hef
ekki svarað öðru enda finnst mér ekki passandi að fjalla um málið í
opinberri heimsókn minni hér,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra
um viðbrögð hans við ásökunum Simon Wiesenthal-stofnunarinnar á
hendur Eðvald Hinrikssyni.
Davíð sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að í bréfínu kæmu
fram „afskaplega þungbærar ásak-
anir“ og hann hefði engin tök á að
fjalla um þær þar sem hann væri
nú staddur. Sagðist hann reikna með
að ræða það fyrst við dómsmálaráð-
herra hvaða meðferð málið ætti að
fá þegar hann kæmi heim frá ísrael.
Davíð sagðist líta svo á að það
væri þessi umrædda stofnun sem
bæri ábyrgð á bréfínu og að það
hafí verið afhent við þetta tækifæri,
en ekki stjómvöld í Israel. „Þeir hafa
ekki, hvorki forsætisráðherrann, for-
setinn né utanríkisráðherrann, rætt
þetta mál við mig. Forseti þingsins
gerði það að vlsu en mér var gefíð
það til kynna að hann væri ekki að
ræða þetta við mig sem forseti þings-
ins, þó það bæri þannig að, heldur
fremur sem einstaklingur sem lifði
af hörmungar í Litháen," sagði Dav-
íð. Dov Shilansky þingforseti lýsti
þeirri skoðun sinni að rétt væri að
mál Eðvalds færi fyrir íslenska dóm-
stóla en bætti því við að ef íslending-
ar treystu sér ekki til að rétta í
málinu mætti gera það í ísrael. Að-
spurður að því hvort hann teldi koma
til greina að rétta í málinu í ísrael
sagðist Davíð ekki vilja svara neinu
um það nú.
Um áhrif þessa máls á opinbera
heimsókn hans til ísraels sagði Dav-
íð að honum hefði ekki fundist það
heppilegt hvernig það bar að. „Það
hefði vel verið hægt að koma þessu
til skila til mín eða íslenskra stjóm-
valda með öðrum hætti en í þessari
opinberu heimsókn. Mér fannst það
heldur óviðkunnanlegt,“ sagði hann.
Um það hvort hann liti svo á að blett-
úr hefði fallið á ísraelsheimsóknina
sagði Davíð: „Nei, ég vil ekki segja
það því ég tel að opinber yfirvöld
hafí ekki verið að fjalla um þetta
mál. Það má þó segja að það brá
svona skugga fyrir fyrst þegar ég
fékk þetta bréf í hendur nýkominn
á hótelið eftir langt flug.“
„Ég tók ekki þátt í neinum fjölda-
morðum á gyðingum í Tallin," segir
hann og bendir á að hann hafi verið
yfírheyrður vegna samskonar ásak-
ana í Svíþjóð en verið hreinsaður af
öllum ákæram. „Ég hafði engin völd
til að fyrirskipa slíkar aftökur,“ seg-
ir hann. Hann kveðst eingöngu hafa
starfað fyrir föðurland sitt, um skeið
sem lífvörður forsetans, og í stjórn-
málalögreglu landsins en Þjóðveijar
hafí handtekið sig nokkram mánuð-
um eftir að þeir hernámu Eistland.
„Það var Roland Lepik,“ segir
Eðvald þegar ásökun Wiesenthal-
stofnunarinnar um að hann hafí
starfað fyrir Gestapo í útrýmingar-
búðum í Tartu er borin undir hann.
Lepik var yfirmaður í stjómmálalög-
reglunni. „Ég var ekki í neinu sam-
bandi við þessa menn,“ segir hann.
Hann segist alltaf hafa barist
gegn kommúnistum og oft þurft að
handtaka útsendara og njósnara
kommúnista og nasista í föðurlandi
sínu samkvæmt fyrirskipun forset-
ans en hann hafi aldrei starfað með
Þjóðveijum.
„Ég dæmdi ekki gyðinga. Eist-
nesk yfirvöld voru aldrei á móti gyð-
ingum. Þau voru meira á móti Þjóð-
verjum,“ segir hann. Hins vegar seg-
ir hann að líka hafi verið gyðingar
í hópi þeirra sem aðstoðuðu rúss-
neskar neðanjarðarhreyfingar.
„Yfírmaður minn var gyðingur og
margir vinir mínir voru gyðingar,“
segir hann en kveðst ekki þekkja
það fólk sem talið er upp í bréfí
Wiesenthal-stofnunarinnar og sögð
eru hafa verið fórnarlömb hans.
Segir hann að þetta fólk hafí líklega
verið í fangabúðum áður en Þjóðveij-
ar gerðu innrás í landið og verið
handtekið fyrir að hafa brotið eitt-
hvað af sér.
„Ég barðist á móti Eyðingarflokk-
inum í Tallin, ég barðist á móti þjóð-
veijum og á móti kommúnistum. Svo
ætla þeir að dæma mig fyrir þetta
fólk. Það er skrítið,“ segir Eðvald.
Hann kveðst alltaf hafa barist á
móti kommúnustum og skrifaði ævi-
sögum sína til að varpa ljósi á þá
sögu og segist telja að hún hafi
opnað augu margra. „Island er eitt
mesta frelsisland í heimi og islenska
ríkisstjómin hefur viðurkennt sjálf-
stæði Eistlands. Þessu gleyma Rúss-
ar aldrei. Það eru margir rússavinir
í Eistlandi en þar búa 600 þúsund
Rússar. Ég hef skrifað um hvað
kommúnistar gerðu af sér í Eist-
landi. Margir era hræddir og kannski
við mig. Þeir sem voru í samvinnu
við KGB gleyma engu og nú er það
að koma upp.
Mín barátta var erfíð en ég tre-
ysti íslensku réttarríki og júridísku
réttlæti. Ég skrifaði í ævisögu mína
að ég vildi fá að deyja í moldu þess-
arar sögueyju," segir hann.
„Eichmann lét drepa sex milljónir
gyðinga. Nú er ég ásakaður um að
hafa drepið sex manns og þeir vilja
draga mig fyrir dómstóla vegna
þess. Heimurinn er skrítinn en ég
get svarað þessu öllu. Ég hef safnað
öllum gögnum og get varið mig. Ég
hef viljað opna augu fólks fyrir því
sem hefur gerst og ég ætla að gera
meira af því. Ég er orðinn gamall
en sannleikurinn þarf að koma í Ijós.
Það sem er núna að gerast er að
einhveijir menn eru að reyna að
bjarga sér. Eistneskir kommúnistar
gleyma mér ekki.
Barátta mín hefur verið erfíð en
ég er íslenskur ríkisborgari og ég
treysti á íslenska réttarríkið. Bjarni
Benediktsson sagði mér að það kæmi
aldrei til þess að rússnesk dómsmál
geti náð til íslendinga og ég vona
að Davíð, sem er lögfræðingur, láti
réttlætið ráða.
Þetta er erfítt, ég á svo marga
vini en ég er ekki hræddur við þessa
menn,“ sagði Eðvald að lokum.
nesku blaði sem birtist fyrr í vet-
ur. Zuroff segist hafa veigamikil
sönnunargögn undir höndum um
stríðsglæpi Miksons og hafi ágrip
af þeim fylgt bréfi til Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra, sem
Yngva Yngvasyni sendiherra var
afhent í fyrradag.
Zuroff segir að í bréfínu til forsæt-
isráðherra sé ekki reynt að sanna
ásakanirnar á hendur Eðvald. Bréf-
inu hafi hins vegar fylgt ágrip af
þeim sönnunargögnum sem Wies-
ent.hal-miðstöðin hafí undir höndum.
„Ég er ekki reiðubúinn að ræða þær
upplýsingar við fjölmiðla að svo
stöddu," sagði Zuroff. Hann var
spurður hvort hann áliti að þau gögn
væru nægar sannanir fyrir þeim
ásökunum sem fram era bornar í
bréfínu. „Við teljum að þær upplýs-
ingar séu nægilegar sannanir til að
hafín verði rannsókn á þessu máli.
Venjulega er best að stjómvöld
standi fyrir slíkum rannsóknum.“
Áttu þá við stjórnvöld á íslandi eða
í Eistlandi? „I þessu tilfelli verðum
við að byija á íslensku ríkisstjóm-
inni því Mikson býr á íslandi." Zu-
roff sagði að sannanimar sem hann
hefði undir höndum væra mjög al-
varlegar og hlytu að vera áhyggju-
efni fyrir Islendinga vegna þess að
Mikson hefði búið á íslandi í friði
og spekt áratugum saman.
En hvers vegna era þessar ásak-
anir bomar fram núna? „Skýringin
er sú að fyrir skömmu var mér bent
á grein í eistnesku blaði sem birtist
fyrr í vetur. Við vissum ekki að
Mikson væri á lífí og byggi í ná-
grenni Reykjavíkur.“ Þannig að þú
vissir um mál Mikson fyrir þann
tíma? „Já, ég vissi um manninn og
það sem hann hafði gert. Greinin í
eistneska blaðinu um að hann væri
enn á lífí auðveldaði okkur að loka
hringnum ef svo má að orði kom-
ast.“ Zuroff sagði að haft yrði sam-
band við eistnesk stjórnvöld á næst-
unrti vegna þessa máls. Vonaðist
hann til að fá tækifæri til að ræða
við fulltrúa íslenskra stjómvalda á
næstu dögum. Zuroff sagði enn-
fremur að Peter G. Naschitz, ræðis-
maður íslands í ísrael, hefði neitað
að afhenda Davíð Oddssyni bréfið.
Þá hefði hann snúið sér til ísraelska
utanríkisráðuneytisins sem fallist
hefði á að koma því til skila og einn-
ig hefði hann afhent Yngva Yngva-
syni sendiherra það.
Vinnubrögð Wiesenthal-
stofnunarinnar undarleg
- segir Elan Steinberg, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri World Jewish Congress
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttantara Morgunblaðsins.
ELAN STEINBERG, aðstoðarframkvæmdastjóri Gyðingasamtakanna
World Jcwish Congress, sagði í gær að sér þætti undarlegt hvemig
Simon Wiesenthal-stofnunin, stóð að því að leggja fram ásakanir um
að Eðvald Hinriksson hafi verið stríðsglæpamaður í röðum nasista í
heimsstyrjöldinni síðari.
Steinberg sagðist ekki þekkja til
máls Eðvalds, en var hinsvegar
þeirrar hyggju að nær hefði verið
að afhenda íslenskum yfirvöldum
gögn um málið, annaðhvort á ís-
landi eða í íslensku sendiráði erlend-
is. „Það verður að teljast undarlegt
að Wiesenthal-stofnunin skuli sæta
lagi þegar forsætisráðherra íslands
er í Israel," sagði Steinberg þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
höfuðstöðvum World Jewish Congr-
ess í New York í gærkvöldi.
Hann sagðist fátt geta sagt um
mál Eðvalds en efaðist um að ásak-
anirnar væru úr lausu lofti gripnar:
„Það hlýtur eithvað að renna stoðum
undir þetta því að stofnunin mundi
ekki búa svona nokkuð til.“
Steinberg sagði að Wiesenthal-
stofnunin nyti virðingar og ekki
mætti virða ásakanir, sem þaðan
kæmu, að vettugi. Því þyrfti að
kanna þau gögn, sem lögð hefðu
verið fram, og komast að því hvort
farið hefði verið mannavillt.
Davíð Oddsson lagði í gær blómsveig að minnismerki um þá sex millj-
ónir Gyðinga sem létu lífið í seinni heimstyijöldinni. Forsætisráðherra
ber á höfði bænahúfu Gyðinga.
Forsætisráðherra ræddi við ráðamenn 1
*
Israel og fulltrúa Palestínunianna:
Þýðingarmikið að
fá að kynnast beint
viðhorfum manna
- segir Davíð Oddsson forsætisráðherra
„FERÐIN er búin að vera mjög áhrifarík. Það var afskaplega fróðlegt
og þýðingarmikið að fá að kynnast beint viðliorfum allra þeirra manna
sem ég hef hitt í dag,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í samtoli
við Morgunblaðið seint í gærkvöldi en hann er í opinberri heimsókn í
ísrael. í gær átti hann fundi með helstu ráðamönnum Ísraelsríkis, með-
al annars Yitzhak Shamir forsætisráðherra. Hann hitti einnig borgar-
stjórann í Betlehem sem jafnframt á sæti í samninganefnd Palestínu-
manna í friðarviðræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Davíð sagðist hafa átt tæplega
klukkustundar fund með Shamir og
helstu ráðgjöfum hans í forsætisráðu-
neytinu í gær og síðan borðað hádeg-
isverð með honum. Síðan hafi hann
átt þriggja kortera fund með David
Levi utanríkisráðherra. Þá hafi tekið
við heimsókn í þjóðþingið, Knesset,
þar sem Dov Shilansky, þingforseti,
ávarpaði hann. Forsætisráðherra
heimsótti borgarstjórann í Betlehem,
Elias Freij, sem er í samninganefnd
Palestínumanna og segist Davíð hafa
átt góðar viðræður við hann. Þá átti
hann klukkutíma viðræður við Chaim
Herzog forseta ísraels og sat kvöld-
verðarboð ríkisstjórnarinnar,
Aðspurður um hvað helst hefði
verið rætt á fundunum með ráða-
mönnum í Israel sagði Davíð: „Við
Shamir fórum við stöðu mála í friðar-
viðræðunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs, afstöðu ísraelsmanna, áhyggjur
okkar um að atburðir á borð við þá
sem hafa verið að gerast undanfarna
daga geti dregið dilk á eftir sér og
heyrði skýringar ísraelsmanna á
þeim. Við ræddum þetta reyndar
einnig við utanríkisráðherrann. Síðan
ræddum við aðeins sameiginlegan
áhuga okkar á að það kláruðust
samningar um fijálsa verslun milli
EFTA-ríkjanna og Ísraelsríkis.
Elias Freij gerði okkur grein fyrir
sjónarmiðum Palestínumanna varð-
andi friðai-samningana. Hann vildi
leggja mikið upp úr viðræðunum en
hélt því jafnframt fram að þar ættu
ísraelsmenn næsta leik. Þeir gætu
ekki bæði beðið um frið á svæðinu
og viljað halda í herteknu svæðin.
Hann sagði að það færi ekki saman,
menn myndu ekki leysa þetta fyrir
meðalgöngu byssukjaftsins, heldur
með samningaviðræðum. Það væri
afskaplega áríðandi að ísraelsmenn
sýndu jákvæðan viija sinn í þeim efn-
um.“
Davíð sagði að atburðir síðustu
daga gerðu málin flókari, þegar hann
var spurður hvernig honum virtist
áhrif þeirra lýsa sér. „En að sumu
leyti ýta þeir undir það að menn haldi
sig við friðarviðræðurnar. Að öðrum
kosti er ekkert eftir nema þessi leikur
áframhaldandi. Þjóðirnar átta sig á
því að þær ná engum árangri í sam-
keppni við aðrar þjóðir ef þær þurfa
að veija jafn stórkostlegum fjárinun-
um í hernaðarbrölt og uppbyggingu
eins og þær hafa þurft að gera vegna
þessa ástands," sagði Davíð.
„Ferðin er búin að vera mjög áhri-
farík. Það var afskaplega fróðlegt og
þýðingarmikið að fá að kynnast beint
viðhorfum allra þeirra manna sem ég.
hef hitt í dag. Ég hef það á tilfinning-
unni að margir á Vesturlöndum, með-
al annars heima, hafi sérstakar hug-
myndir um ástandið hér, hugmyndir
sem ekki eru í samræmi við raunveru-
leikann. Það var einnig mikil stemmn-
‘ing að fara í Fæðingarkirkjuna í
Betlehem í fylgd með borgarstjóran-
um. Þó að maður færi inn í borgina
undir vernd tuga alvopnaðra her-
manna var það engu að síður mikil-
vægt, maður fann fyrir friðnum sem
fyllti hugann við að vera kominn á
fæðingarstað Frelsarans," sagði Dav-
íð.
Forsætisráðherra mun árdegis í
dag hitta borgarstjóra Jerúsalem.
Hann heimsækir Islandsstræti sem
Ásgeir Ásgeirsson forseti gaf nafn á
sínum tíma. Síðan mun hann skoða
aðstæður sem innflytjendum era bún-
ar og svo og Ormat-verksmiðjurnar.
Loks heldur hann kveðjuhóf í Hotel
King David í Jerúsalem í kvöld. Heim-
sókninni lýkur snemma í fyrramálið
og Davíð flýgur þá áleiðis til London.