Morgunblaðið - 19.02.1992, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) **
Varastu að gera ráð fyrir ein-
hveiju sem gefnu í starfi þínu
í dag. Láttu ekki koma þér í
opna skjöldu; þú getur komið
í veg fyrir það.
Naut
(20. apríl - 20. maí) It^
Það ætti að ganga undan þér
í dag því að frumkvæði þitt og
kraftur eru með ólíkindum
núna. Gættu þess að láta þér
ekki sjást fyrir mikilvægt smá-
atriði og týndu ekki verðmæt-
um hlut.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Taktu þátt í íþróttum og ann-
arri líkamsmennt og vertu með
báða fætur á jörðinni í ástar-
sambandi þínu. Það væri óráð-
legt að taka fjárhagslega
áhættu núna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það væru mistök hjá þér að
koma verkefnunum yfir á aðra
eins og nú stendur á. Treystu
fyrst og fremst á eigið frum-
kvæði því að það getur brugð-
ist að aðrir standi við sinn hlut.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt í erfíðleikum í vinnunni
í dag vegna dagdrauma og
hugarreiks. Reyndu ekki að
sneiða hjá mikilvægum verk-
efnum. Þú átt miklum vinsæld-
um að fagna núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) a*
Þú hefur allt á þurru í vinn-
unni um þessar mundir. Afköst
þín færa þér auknar tekjur.
V°g
(23. sept. - 22. október)
Hyggðu að menntunarmálum í
dag. Þú ættir ef til vill að ráð-
færa þig við sérfræðing. Sumar
af hugmyndum þínum nýtast
ekki vegna óhagkvæmni
þeirra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú heyrir alls konar kjaftasög-
ur í dag og flestar þeirra eru
ósannar. Þú vinnur að því að
tryggja langtíma-fjárhagsör-
yggi Þ>tt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) &
Þú ferð á vinafund með maka
þínum og þið skemmtið ykkur
konunglega. Fjármálin krefjast
athygli þinnar og aðgæslu
núna. Varaðu þig á tækifæris-
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert utan við þig og sefur
hreinlega á verðinum á köflum.
Ef þú tekur þig saman í andlit-
inu geturðu enn komið miklu
í verk í dag.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Sumar af upplýsingunum sem
þér berast núna eru vilíandi.
Gakktu úr skugga um að þú
hafir allar staðreyndir málsins
í höndunum áður en þú tekur
ákvörðun.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú skalt hvorki taka að láni
né lána peninga núna. Þú nýtur
þess að bjóða til þín góðum
gestum. Ferðaáætlanir þínar
ganga upp.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
BS ReVNOI A&ÚERA FVND/NN
T/L fit> VEKJA AOPAuM stUlk-
SG STAKK GULR0TUM I EVRUN
A OG SMUK&I KACTÖFLU-
5TÖPPO VFIR ALLT/\NDL/TIP /
A MEf£ y—7------- ■
JfAI PAVT5
TOMMI OG JENNI
tomah. hi/ae> en.
LJOSKA
FERDINAND
—- civ/iá k=sSi is
OlVIMrVyLlx
Sæll, Kalli... Magga er hér, hún er Hún er öll
hvað er títt? sofnuð í einum af stólun- uppstrekkt.
um okkar.
Upptrekkt.
Hvort heldur er.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sigurvegarar tvímennings
Bridshátíðar, Zia Mahmood og
Eric Rodwell, fóru illa af stað
og voru meðal neðstu manna
fyrri hluta móts. Þeir mættu
Þorláki Jónssyni og Guðmundi
P. Amarsyni um miðbik móts
og voru þá greinilega komnir á
fulla ferð.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ K7
¥ 10954
♦ 54
♦ DG1092
Vestur Austur
♦ ÁG853 ♦ 964
¥7632 ¥ G8
♦ 107 ♦ ÁK93
♦ Á3 ♦ 7654
Suður
♦ D102
¥ÁKD
♦ DG862
♦ K8
Vestur Norður Austur Suður
Þorl. Zia Guðm. Rodwell
— Pass Pass 1 grand
Pass Pass Pass
Utspil: Spaðafimma.
Frá bæjardyrum Rodwells leit
út fyrir að blindur væri inn-
komulaus og því væri tilgangs-
lítið að treysta á lauflitinn. Eftir
að hafa fengið fyrsta slaginn á
spaðatíu, tók hann því AKD í
hjarta og spilaði litlu laufi frá
kónginum. Þorlákur dúkkaði,
svo Rodwell gat tekið slag á
hjartatíu. Síðan spilaði hann sig
út á laufi.
Þorlákur neyddist þá til að
taka spaðaás og spila meiri
spaða. Rodwell átti slaginn
heima og spilaði tíguldrottningu.
Guðmundur drap á kóng og spil-
aði litlum tígli, en Rodwell stakk
upp gosa og fékk 8 slagi.
Það gaf 37 stig af 46 að vinna
tvö grönd. Sem kemur svolítið á
óvart, því sömu 8 slagirnir skila
sér þó svo að sagnhafi fari beint
af augum í laufíð, spili kóngnum
fyrst. Vestur getur aldrei haldið
sambandið í spaða opnu, svo
vömin fær aðeins þrjá slagi á
tígul auk svörtu ásanna.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Genf í Sviss í
síðasta mánuði kom þessi staða
upp í viðureign ísraelska stór-
meistarans Lev Psakliis (2.605),
sem hafði hvítt og átti leik, og
Chiong (2.350), Filippseyjum.
21. Bxf5! - Hxf5 (21. - exf5,
22. De6+ - Hh7, 23. Hxf5 var
ennþá verra). 22. Hxf5 — gxf5,
23. De6+ - Kf8, 24. Dxf5+ -
Bf6, 25. Bxf6 - Df7, 26. Hfl -
Rxf6, 27. Dxf6 - Dxf6, 28.
Hxf6+ og með tveimur peðum
meira í hróksendatafli vann Psak-
his auðveldlega. Hann var lang-
stigahæsti þátttakandinn á mót-
inu í Bern, en hlaut þó aðeins 5'/2
v. af 9 mögulegum. Jafnir og efst-
ir urðu Cvitan, Króatíu, Sher,
Rússlandi, Wojtkiewicz, Póllandi,
Shabalov, Lettlandi og Gallagher,
Englandi með 6 v. Átta stórmeist-
arar voru á meðal þátttakenda.
Nú stendur yfír í Bem í Sviss
stórt opið skákmót þar sem rúm-
lega 30 stórmeistarar taka þátt,
þ. á m. undirritaður.