Morgunblaðið - 19.02.1992, Síða 37

Morgunblaðið - 19.02.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992 37 lií m Háskóli i skugga skeróingar Opinn fundur Bandalags háskólamanna fimmtudaginn 20. febrúar kl. 13.00 í Norræna húsinu. Dagskrá: Setningarávarp-. Ragnheiður Haraldsdóttir, varaformaður BHM Framsðguerindi: Heimir Pálsson, formaður BHM Þórólfur Þórlindsson, prófessor Pallborösumræður: Þátttakendur auk framsögumanna: Sveinbjörn Björnsson, rektor Háskóla íslands Haraldur Bessason, rektor Háskólans á Akureyri Guðbrandur Steinþórsson, rektor Tækniskóla íslands Þórir Ólafsson, rektor Kennaraháskóla íslands Stjórnandi: Margrét S. Bjömsdóttir, endurmenntunarstjóri H Fundi lýkur um kl. 15.30. BANDALAG HÁSKÓLAMANNA Otölusettar tekjur Frá Karli Guðmundssyni: Töluverð umfjöllun hefur verið hvað heilbrigðiskerfið er dýrt og hefur það verið upplýst af ráðherra að heilbrigðiskerfi okkar sé það dý- rasta sem til er í heiminum í dag. Eggert Jónsson læknir sagði orð- rétt í grein sem birtist á bls. 20 í Morgunblaðinu fimmtudaginn 13. febrúar 1992: „Það er ýmislegt fleira undarlegt í þessum rekstri. Sjúkra- samlagið var stofnað til að tryggja fátæklingum læknisþjónustu, en nú tryggir það læknum fyrst og fremst greiðslur. Læknar láta sjúklinga skrifa upp á eyðublöð, sem eru nokk- urs konar ávísanaeyðublöð fyrir læknana, en þau eru ónúmeruð. Þó kveða landslög á um að bæði reikn- ingar og ávísanir eigi að vera númer- "uð.“ Þessi ummæli voru síðan borin undir Kristján Guðjónsson, deildar- stjóra sjúkratryggingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins, og er haft eftir honum á bls. 7 í Morgun- blaðinu 15. febrúar 1992 að hann taki þessi ummæli Eggerts ekki al- varlega. Líklega sem rök fyrir því að taka þessi ummæli ekki alvarlega segir hann að þetta kerfi hafi gefist allsæmilega og í raun sé ekki margt út á það að setja. Þó endar greinin á að haft er eftir Kristjáni: „Eg tek hins vegar undir þau ummæli Eg- gerts að læknum beri samkvæmt lögum um bókhald að númera eyðu- blöðin.“ Tryggingastofnun ríkisins skyldar lækna til að nota umrædd eyðublöð og því fínnst mér skrítið að Tryggingastofnun ríkisins tölusetji þessi umræddu eyðublöð ekki fyrir- fram rétt eins og sams konar eyðu- blöð sem sama stofnun útvegar tannlæknum. Ég fletti upp í bókhaldinu mínu afritum af 7 reikningum vegna tann- læknaþjónustu og þar kom skýrt fram að þeir reikningar voru fyrir- fram tölusettir. Númerin voru 539570, 611830, 706526, 706639, 706675, 706711 og 706739. Ef tannlæknar þyrftu sjálfír að tölu- setja þessa reikninga þá yrðu talna- raðimar eðlilega mun lægri og margir þeirra myndu nota sömu númerin. Því vöknuðu hjá mér marg- ar spurningar og tel ég óhætt að varpa sumum þeirra fram án þes að það hafi áhrif á heilsufarið: Hvemig ætlar Tryggingastofnun ríkisins að koma í veg fyrir misnotk- un ótölusettra reikninga sinna? Hve- nær veit Tryggingastofnun ríkisins að hún fái öll reikningseyðublöðin sín til baka frá læknum öðram en tannlæknum? Hvað er það sem hvet- ur lækna til þess að geyma afrit af þessum ótölusettu reikningseyðu- blöðum í stað þess að henda þeim beint í raslið að útfyllingu lokinni og losna þannig við að greiða skatta af þessum tekjum? Og svo er það rúsínan í pylsuend- anum. Hvemig geta skattstjórar fylgst með því að læknar greiði skatta af þessum ótölusettu tekjum? Ég veit ekki betur en að skattstjór- inn hafi nýverið farið á stúfana og athugað hvort reikningseyðublöð rekstraraðila hafi verið eins frágeng- in og lög gera ráð fyrir, þ.e. fyrir- fram tölusett og með fyrirfram áprentuðum haus. Getur verið að skattstjórar hafi gleymt að heim- sæka lækna og Tryggingastofnun ríkisins? Og hvað með Ríkisendur- skoðun? Er Ríkisendurskoðun sam- mála Kristjáni um að þetta sé í all- sæmilegu horfi? KARL GUÐMUNDSSON Hjallavegi 32 Reykjavík Höldum uppi vel- ferðarkerfinu Frá Eggert E. Laxdal í Morgunblaðinu sunnudaginn 26. janúar síðastliðinn, bls. 6. er grein sem heitir „Greiðslur vegna vistunar á öldranarstofnunum samræmdar" og fjallar um kostnað við dvöl fólks á öldrunarstofnunum. Þessi kostnað- ur hefur hingað til verið greiddur af Tryggingastofnun ríkisins, en nú á vistfólk að greiða þetta úr eigin vasa. Ekki er þess getið, hvort mun- ur er gerður á launatekjum eða íjár- magnstekjum, en gera verður ráð fyrir því, að einnig sé reiknað með fjármagnstekjum. Margir aldraðir á stofnunum eiga íbúðarhúsnæði sem þeir leigja út og eitthvert sparifé í bönkum, sem þeir hefur safnað sér í gegnum áratugi og hefur á vöxtum í bönkum, til þess að hafa úr einhveiju að spila í ellinni, en nú ætlar ríkið að ávaxta þessar eignir fyrir sig. Þetta er ekk- ert nema fjárnám á hendur þessa fólks. Þeir sem hafa 76.550,- kr. í tekj- ur verða að greiða 70.000,- kr. á mánuði og þá era eftir 6.350,- kr. Þetta gerir tæplega milljón krónur á ári. Dágóð uphæð, sem ríkið ætlar sér að hafa af öldruðum, en á með- an, er þeim sem búa sjálfstætt, ætl- aðar um 50.000,- kr. á mánuði, til þess að lifa af. Þessu þarf að breyta. Fólk á sjúkra- og öldranarstofnunum á að fá vistun þar endurgjaldslaust, eins og verið hefur hingað til. Fyrir þessu þarf að beijast með fjöldasam- tökum. Það vantar þrettán milljarða í rík- iskassann, sem mun gera um 50.000,- kr. á hvert mannsbarn í landinu. Mér finnst að þjóðin ætti öll að sameinast um að greiða þetta í ríkissjóð með fijálsum framlögum. íslendingar hafa oft séð það svart- ara í gegnum aldirnar og lifað af. 50.000,- kr. á mann og kannski mun meira frá auðmönnum, ætti ekki að sliga neinn. Sjálfur er ég reiðubúinn að leggja þetta fram, fyrstur manna, þótt ég hafi bara litlar tekjur, en að sjálfsögðu með því skilyrði, að fólk á sjúkrastofnunum fái að dvelja þar endurgjaldslaust, eins og verið hefur, og að lyfjaverð verði fært niður á svipað stig og það var. Fólk- ið í landinu ræður við þetta ef það vill. Sýnum þegnskap í þessu máli og látum öll ríflega í púkkið. Höldum uppi velferðarkerfinu, sem er hagur hvers og eins í landinu. Vilji er allt sem þarf. EGGERT E. LAXDAL Frumskógum 14 Hveragerði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.