Morgunblaðið - 19.02.1992, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÖTTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
!:
OLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI
»f
Torlímand-
inn“ með
þijú gull
NORÐMENN hafa haft mikla
yfirburði í skíðagöngugreinun-
um á Vetrarólympíuleikunum í
Frakklandi og fóru létt með að
sigra í 4 x 10 km göngu í gær.
Svo létt að sigurvegarinn f 15
km göngu s.l. laugardag, Björn
Dahlie, sem gekk síðasta
sprettinn, sneri sér við á síð-
ustu metrunum, veifaði norska
fánanum og bakkaði í mark.
„Tortímandinn11 eins og banda-
ríska sjónvarpsstöðin OBS kall-
ar Vegard Ulang, var fIjótastur
allra og fékk þriðju gullverð-
laun sín á leikunum.
Þetta var í fyrsta sinn síðan
1968, sem Norðmenn sigra í
þessari grein og „gull-vangur“ eins
og Norðmenn kalla Ulang, varð
fyrstur landa sinna til að vinna til
þriggja gullverðlauna í göngu á
sömu leikum. Hann var kátur með
endasprett Dahlies. „Þetta var eitt-
hvað nýtt,“ sagði Ulang, en við
Faissal Cherradi frá Morokkó, sem
kom klukkutíma á eftir honum í
mark í 10 km göngunni, sagði Norð-
maðurinn: „Farðu varlega — og
vonandi sjáumst við á næstu leikum
í Lillehammer 1994.“
Teije Langli hóf keppnina fyrir
‘Norðmenn og skilaði sér 0.7 sek. á
eftir Svíanum. „þetta var stórkost-
legt og aðstæður voru frábærar,“
sagði gullhafinn, sem valdi röng
skíði fyrir 10 km gönguna og hætti
við að taka þátt í 15 km göngu —.
taldi sig ekki eiga neina möguleika.
Þá var komið að þætti Ulvangs
og hann „sprengdi“ mótheijana.
„Eg held að hraðinn hafi verið of
mikill fyrir hann,“ sagði Norðmað-
urinn um Svíann Christer Majback.
„Þegar menn - þreytast er eins og
ALBERTVILLE92
■ OLAF Zinke frá Þýskalandi
sigraði með minnsta mögulega mun
í 1.000 metra skautahlaupi, var
einu sekúndubroti á undanKim
Yoon-man frá Suður-Kóreu.
■ ZINKE hefur ekki áður sigrað
á stórmóti.
■ KIM er fyrsti verðlaunahafi
Suður-Kóreu á Vetrarólympíu-
leikum.
. ■ YUKINORI Miyabe frá Japan
fryggði sér bronsið með sama mun,
var sekúndubroti á undan Hollend-
ingnum Gerard van Velde.
■ ERIC Heiden frá Bandaríkj-
unum, sem sigraði í öllum fimm
hlaupagreinunum á skautum á ÓL
1980, er í Frakklandi sem frétta-
maður. Öll ólympíumetin eru fallin,
fyrst og fremst vegna bættra að-
stæðna. „Ég hejd að ég eigi samt
ennþá staðarmetin á Bislett í Ósló
— en það er aðeins vegna þess að
þar er ekki lengur skautað."
■ BANDARÍKJAMÖNNUM
þykir göngukeppni ámóta spenn-
andi og að horfa á málningu þoma.
Því var Vegard Ulang líkt við
Schwarzenegger og kallaður „tor-
tímandinn" til að reyna að vekja
áhuga á göngunni.
■ VEGARD Ulang er líkt við
Árnold Schwarzenegger þessa
jdagana. Eftir að þriðja gullið var í
Jhöfn sagði hann: „Amie, hvar ertu?
Ég hræðist þig ekki og vil ná í þig!“
það verði sprenging."
Gífurleg keppni var um þriðja
sætið. Svíar vom í fimmta sæti
fyrir síðasta sprett, en Torgny Mo-
gren gaf allt, sem hann átti og var
í þriðja sætinu, þar til á síðasta
metranum, þegar Finninn Isometsa
skaust fram fyrir og var hálfri skíð-
alengd á undan í mark eða tveimur
sekúndubrotum.
„Það var óvænt að fá verðlaun,"
sagði Finninn Kirvesniemi, en eigin-
kona hans, Maija-Liisa, sem sigraði
í þremur greinum í Sarajevo 1984,
kemur frekar með verðlaun heim.
„Hún verður ánægð, því henni hef-
ur gengið allt í óhag hér.“
Deborah Compagnoni á fullri ferð í brautinni.
Reuter
Tileinka lækni
mínum gullið
sagði Compagnoni sem sigraði með yfirburðum í risasvigi kvenna
DEBORAH Compagnoni gerði
daginn í gær ógleymanlegan
fyrir ítali er hún varð ólympíu-
meistari í risasvigi kvenna, að-
eins tveimur klukkstundum
áður en landi hennar, Alberto
Tomba, fagnað sigri í stórsvigi
karla. Tvöfaldur sigur fyrir ítal-
íu í alpagreinum í gær og þrenn
guilverðlaun í höfn þar sem
Josef Polig varð ólympíumeist-
ari í alpatvíkeppni karla í síð-
ustu viku.
Það tók Deborhu Compagnoni
aðeins 81 sekúndu að gleyma
minningunum frá því á ólympíuleik-
unum fyrir fjórum árum er hún
meiddist á síðustu stundu og gat
ekki tekið þátt í leikunum. En ít-
alska stúlkan gleymir ekki lækni
sínum, sem gerði henni kleift að
komast á toppinn eftir erfið meiðsli.
„Ég vil tileinka lækni mínum verð-
launin,“ sagði Compagonini sem er
21 árs og býr í Bormio á Ítalíu.
„Verðlaunin eru einnig tileinkuð því
fólki sem er á sjúkrahúsi og er að
horfa á mig núna.“ Hún hefur tví-
vegis gengist undir uppskurð vegna
hnémeðsla, sem hélt henni frá
keppni árið 1990.
Compagnoni, sem hafði rásnúmer
16, keyrði brautina frábærlega og
„stal“ sigrinum af frönsku stúlkunni
Carole Merle, sem hafði besta tíma
þeirra sem voru í fyrsta ráshópi.
Hún náði 1,41 sek. betri tíma en
Merle, sem beið í markinu eftur
Compagnoni kæmi niður. „Mig
dreymdi það í nótt að nafnið mitt
væri efst á tímatöflunni,“ sagði ít-
alski ólympíumeistarinn.
Fyrir þetta keppnistímbil áttu fáir
von á því að Compagnoni yrði önnur
ítalskra kvenna til að vinna gullverð-
laun á ólympíuleikum. „Ég trúði því
ekki einu sinni sjálf að þetta gæti
gerst. Ég hef verið svo óheppin síð-
ustu ár, en var alltaf ákveðin í að
keppa aftur. Æfði þegar ég mögu-
lega gat og trúði því að geta orðið
í fremstu röð,“ sagði Compagnoni,
sem varð heimsmeistari unglinga í
stórsvigi 1987, þá 17 ára. Hún æfði
með Alberto Tomba í þijár vikur í
sumar. „Það er ekki þar með sagt
að ég hafi lært allt af honum.
Kannski hefur hann gefið mér liðs-
styrk, en það var ég sem sigraði
þessa keppni.“
Carole Merle var vonsvikin með
silfurverðlaunin og sagði að
Compagnoni hafi keyrt efri hluta
brautarinnar hreint ótrúlega vel.
„Það var ekki auðvelt fyrir mig að
vinna gullverðlaun hér í Frakklandi."
Katja Seizinger, sem er aðeins 19
ára, varð þriðja og hlaut þar með
fyrstu verðlaun Þjóðveija í alpa-
greinum á leikunum. Hún var aðeins
0,01 sek. á undan ólympíumeistar-
anum í alpatvíkeppni, Petru Kron-
berger, sem varð fjórða.
Carlos Carol Merle frá Frakklandi virti Deboru Compagnoni frá ítalfu
ekki viðlits í fyrradag þegar Compagnoni brosti til hennar og reyndi
að heilsa hinni árangursríku skíðakonu. Merle hefur haslað sér völl með-
al bestu skíðakvenna heims en Compagnoni er rétt að bytja. Hún var
með rásnúmerið 16 í risasvigskeppni kvenna á Ólympíuleikunum í gær
en Merle var auðvitað í hópi 15 bestu með startnúmerið 4. Merle stóð
sig feikivel og virtist örugg um gullverðlaunin fyrst að Petra Kronber-
ger frá Austurríkí, sem var númer 15, hreppti þau ekki. En þá kom að
Compagnoni. Hún skaut Merle ref fyrir rass og hún komst ekki hjá að
taka í hendina á Compagnoni í gær.
HANDKNATTLEIKUR
Morten Stig „njósnar
um íslendinga
U
jjjjeftir að hafa leikið 190 lands-
leik, leikið þrisvar í Ólympíu-
keppni og sjö heimsmeistarakeppn-
um, er Morten Stig Christensen
kominn aftur í sviðsljósið með
danska landsliðinu. Nú sem aðstoð-
armaður Andreas Dahl-Nielsen,
landsliðaþjálfara.
„Ég vona að ég geti veitt Andre-
as Dahl aðstoð í B-keppninni í
Austurríki,“ sagði Morten Stig, sem
er yfirmaður íþróttadeildar TV 2-
sjónvarpstöðvarinnar i Danmörku.
„Morten Stig mun fyrst og fremst
aðstoða mig við að kortleggja leiki
íslendinga og Norðmanna, sem við
komum til með að mæta í milliriðli.
Þar sem hann hefur þjálfað og leik-
ið með Stavangre í Noregi þekkir
hann vel til landsliðamanna Nor-
egs,“ sagði Andreas Dahl-Nielsen.
Danir töpuðu fyrir Svíum og
unnu þá, 29:27, um síðustu helgi.
Þeir leika gegn S-Kóreumönnum
um næstu helgi og sfðustu lands-
leikir þeirra fyrir B-keppnina verða
gegn Júgóslövum í byijun febrúar.
KNATTSPYRNA
Ipswich vill
til Islands
Forráðamenn enska 2. deildar-
liðsins Ipswich Town hafa
skrifað Knattspyrnusambandi ís-
lands og lýst yfir áhuga á að koma
til landsins í sumar og spila hér
þijá leiki. KSÍ hefur sent öllum fé-
lögum í 1. deild afrit af bréfi enska
liðsins.
Framkvæmdastjóri Ipswich er
John Lyall, sem lengi var stjóri
West Ham, en tók við stjórninni á
Portmand Road 1990. Lið Ipswich
er nú í öðru sæti 2. deildar í Eng-
landi og virðist sigla hraðbyri upp
í 1. deild á ný. Hann vill spila á
íslandi dagana 29. júlí til 2. ágúst.
URSLIT
OLíFrakklandi
4 x 10 km boðganga karla: ^
SSR stendur fyrir Samband sjálfstæðra
ríkja (áður Sovétríkin).
1. Noregur.....................1:39:26.0
(Tetje Langli/Vegard Ulvang/ Kristen
Skjeldal/Bjom Daehlie)
2. Ítalía.......................1:40:52.7
(Giuseppe Pulie/Marco Albarello/ Gi-
orgio Vanzetta/Silvio Fauner)
3. Finnland.....................1:41:22.9
(Mika Kuusisto/Harri Kirvesniemi/ Jari
Rasanen/Jari Isometsa)
4. Svíþjóð......................1:41:23.1
5.SSR...........................1:43:03.6
Risasvig kvenna
Brautariengd 1.510 m, fallhæð 621 m, 45
hlið.
Mín.
1. Deborah Compagnoni (ftalíu)....1:21.22
2. Carole Merle (Frakkiandi)......1:22.63
3. Katja Seizinger (Þýskalandi)...1:23.19
4. Petra Kronberger (Austurríki)..1:23.20
5. Ulrike Maier (Austurríki)......1:23.35
6. Kerrin Lee-Gartner (Kanada)....1:23.76
7. Michaela Gerg (Þýskalandi).....1:23.77
8. Eva Twardokens (Bandar.).......1:24.19
Stórsvig karla
47 hlið í hvorri umferð, fallhæð 384 m.
Mín.
1. Alberto Tomba (Ítalíu).........2:06.98
1:04.57/1:02.41
2. Marc Girardelli (Lúxemborg)...2:07.30
(1:04.70/1:02.60)
3. Kjetil Andre Aamodt (Noregi)...2:07.82
(1:04.81/1:03.01)
4. Paul Accola (Sviss)............2:08.02
(1:04.88/1:03.14)
5. Ole Christian Furuseth (Noregi).. 2:08.16
(1:05.63/1:02.53)
6. GuentherMader(Austurríki)......2:08.80
(1:05.42/1:03.38)
7. Rainer Salzgeber (Austurríki)..2:08.83
(1:05.72/1:03.11)
8. Fredrik Nyberg (Sviþjóð).......2:09.00
(1:06.09/1:02.91)
9. Hubert Strolz (Austurríki).....2:09.45
(1:06.75/1:02.70)
9. Josef Polig (Ítalíu).......2:09.45
(1:06.17/1:03.28)
44. Örnólfur Valdimarsson.........2:25.02
(1:13.88/1:11.14)
■Kristinn Björnsson féll í fyrri umferð.
1.000 m skautahlaup karla
Mfn.
1. Olaf Zinke (Þýskalandi)........1:14.85
2. Kim Yoon-Man (Suður-Kóreu).....1:14.86
3. Yukinori Miyabe (Japan)........1:14.92
4. Gerard Van Velde (Hollandi)....1:14.93
5. Peter Adeberg (Þýskalandi....) 1:15.04
Norræn tvíkeppni
Skíðastökk af 90 m palli og 3 x 10 km
ganga:
Stig/Klst.
1. Japan..................645.1/1:23:36.5
(Reiichi Mikata, Takanori Kono, Kenji
Ogiwara)
2. Noregur................569.9/1:18:46.9
(Knut Apeland, Fred Lundberg, Trond
Elden)
3. Austurríki.............615.6/1:22:49.6
(Klaus Ofner, Stefan Kreiner, Klaus
Sulzenbacher)
fshokkí
Keppni um 9. til 12. sæti:
Italía - Noregur......................3:5
Lucio Topatigh, Giuseppe Foglietta, John
Vecchiarelli - Marius Rath' 2, Ole Dahlstrom
2, Geir Hoff.
Átta liða úrslit:
Kanada - Þýskaland...............(3:3) 3:2
Jpe Juneau, Brad Schlegel, Kevin Dahl -
Jörgen Rumrich, Dieter Hegen, Emst
Koepf.
■Staðan var 3:3 eftir framlengingu, en
Kanada vann 3:2 í vítakeppni.
Bandaríkin - Frakkland................3:1
Fl’l rYifiÍÍITlÍ 1MIII