Morgunblaðið - 17.03.1992, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.03.1992, Qupperneq 20
20 huihlfi M tíSiiIAJíii4'íjtííf&ffi. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992 „Bílgreinaskóli“ Athugasemdir við undirbúning að framkvæmd ákvarðanatöku í menntunarmálum bílgreina Fyrri hluti eftir Þórarin B. Gunnarsson Okkur sem að fræðslumálum bíl- greinanna störfum, hafa ítrekað undanfarið borist lausafregnir, um að sá vettvangur sem við margir hverjir höfum í áratugi starfað að, sé nú á leið inn í nýtt og áður óþekkt tímabil, tímabil einkavæðingar skóla á iðnfræðslustigi ef svo fer sem bfliðnafélögin og Bflgreinasam- bandið vilja. Svo er að sjá sem hvorki okk'ur né þeirri skólastofnun sem við flestir störfum við, Iðnskól- ann í Reykjavík, sé ætlað að hafa nein áhrif né yfirsýn yfir það sem gerist né heldur það sem um er rætt. Með þessu móti er framtíðin gerð vægast sagt óljós, en okkur er sýnilega ekki ætlað að fjalla um hana heldur. Fréttir berast helst sem sögusagnir eða sem smápistlar í fjölmiðlum og æðsti yfirmaður okkar og menntamála í landinu — ráðherra, lætur enn sem komið er, ekki svo lítið að svara skriflegri fyrirspurn okkar kennaranna. Fregnir hafa að vísu borist frá fundi ráðherrans með skólameistara okk- ar þar sem gefin voru svör við sumu því sem máli skiptir en fjarri er að öllum spurningum sé svarað né heldur þykir okkur mikið til um þann svarsmáta sem felst í því að láta sögur „berast“. Ástæður óánægju - óljós skólastefna Breytingarnar sem nú liggja í loftinu eru til komnar vegna þess áhuga sem sveina og meistarafélög- in í þessum greinum hafa nú á fræðslumálum, en hafa ekki fengið að eigin sögn þau viðbrögð sem vænst var frá menntakerfmu fyrr en þá helst nú, er þau að því er „heyrst" hefur, tóku að beita gulrót- araðferðinni við yfirvöld mennta- mála og tillögur þeirra höfðu feng- ið peningalykt. Slíkt þykir á tímum niðurskurðar til menntamála aug- ljós kostur. Ekki þykir þó einsýnt hvort sú skólaskipan sem þessi fé- lög boða leiði til spamaðar fyrir ríkið og víst er að sérgreinaskóli er ekki í anda þeirrar skólastefnu sem boðar framhaldsskóla með fáum inngönguleiðum, breiðri al- mennri grunnþekkingu og síðar sérhæfmgu hverrar starfsgreinar eða menntabrautar ofaná. Svo virðist sem hér hafi sérhæf- ingin ein átt hugann allan ef marka má það sem sést hefur skrifað um skólann' og af honum hefur „spurst", þar sem grunnurinn fær mjög litla umfjöllun en sérhæfíngin því meiri. Samband við kennara rofið Sýnt þykir nú að Bílgreinaskóli, í einhverri mynd, verði settur á laggirnar vegna ásóknar atvinnu- lífsins en án þess að við kennararn- ir höfum svo mikið sem fengið að fylgjast með, hvað þá að leggja eitt- hvað til málanna. Við höfum sumir hveijir starfað með þessum sömu félögum atvinnulífsins að fræðslu- málum bflgreinanna, samið með þeim tillögum um mál sem horfa þóttu til framfara, skrifað námskrár sem sumar hveijar hafa að vísu legið síðan og liggi enn, á borði ráðuneytisins ósamþykktar. Tillög- ur til breytinga sem ætlaðar voru til framfara í menntun greinanna hafa sem sé oft á tíðum ekki orðið að veruleika vegna tregðu ráðu- neytis og t.d. eldri námskrár verið látnar gilda áfram þótt aðrar nýrri, unnar af fræðslunefndum í sam- vinnu skóla og atvinnulífs hafi legið tilbúnar. Sumir kennarar þessara greina hafa verið virkir á skipulagssviði kennslumála sinna greina. Aðrir hafa sumir starfað með Endur- menntunarnefnd bílgreina (sveina- og meistarasamtökum) að endur- menntun sveina í sínum greinum. Slík sérgreind kennsla er oft á tíð- um langt frá daglegu starfssviði þeirra við grunn- og fagkennslu iðnnáms og tími til að viðhalda sér- kunnáttu til endurmenntunar iðnað- armanna er sorglega lítill í iðn- fræðslunni. Endurmenntun iðnað- armanna er ástunduð, eins og nú er, sem hreint aukastarf og endur- menntun kennaranna, þegar hún fæst, nýtist því illa í nuverandi kerfi eins og dæmin sanna. Þá hafa kenn- arar unnið ötullega (og oft launa- laus) aukastörf að framgangi sinna deilda innan skóla og með því hafa þeir orðið þessum greinum og menntunarmálum þeirri vel að liði. Nú bregður svo við að iðnkennar- ar eru ekki svo mikið sem virtir viðlits,' störf þeirra gerð eins lítil- sigld og kostur er og ekki minnst á hvað vel hefur verið gert. Er jafn- vel að sjá sem síðustu samantektar- menn um fræðslumál bílgreinanna og hugmyndafræðingar um bíl- greinaskóla hafa ekki komið inn á verknámsdeildir skóla svo árum skiptir. Þar hefur nefnilega þrátt fyrir allt víða miðað allvel á veg þótt ýmislegt mætti þar betur fara. Aðdragandi hugmyndar um Bílgreinaskóla Fyrir allnokkrum árum lét Bíl- greinasambandið og sveinafélögin í bíliðnum vinna skýrslu sem bar að mig minnir nafnið „Þróun menntunar í bílgreinum". Sú skýrsla var um ýmislegt ágætt plagg en var ekki um þróun mennt- unar, heldur innihélt skýrslan hug- myndir að gjörbreyttu skóla- og námsskipulagi. Skýrslan var unnin án þess að til grundvallar lægi nein kerfísbundin könnun né rannsókn á þörf slíkrar breytingar né heldur rannsókn á þeirri menntun sem fyrir var en efni hennar var auk þess talið falla illa að lögum um iðnfræðslu. Skólamenn áttu því ekki auðvelt með að sjá hver betr- umbót yrði að þessu skipulagi. Sáu margir fyrir sér kollsteypu sem all- sendis óvíst væri hvort samræma mætti iðnfræðslulögum, né yrði til verulegrar bóta. Það sem þessi skýrsla hins vegar gerði var að ýta undir umræðu um nánari þátttöku atvinnulífsins í menntun þessara greina og var það að sjálfsögðu jákvætt en beindist því miður ekki í þá átt að styðjá við þá skólastarfsemi sem fyrir var. Hins vegar efldist starf Endur- menntunarnefndar bílgreinanna. I árslok 1989 unnu tveir valin- kunnir frammámenn um menntun bifvélavirkja, hugmyndir um hvem- ig tengja mætti hugmyndir áður- nefndrar skýrslu við menntakerfið. Hugtakið „bílgreinaskóli" fékk á sig skýrari mynd en bílamanna á með- al látin verka sem einskonar (þó óskilgreind) allsheijarlausn á öllum þeim „vanda“ sem þessar greinar « HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - sími 17800 Námskeið í mars og apríl Tóvinna 18. mars-29. apríl, miðvikudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,- Baldýring 21. mars-2. maí, laugardaga kl. 9.30-12.30 - kr. 8.000,- Knipl 24. mars-19. maí, þriðjudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 10.000,- Skráning á vornámskeið er hafin Námskeið í prjóntækni, tauþrykki, körfu- gerð, leðursmíði, jurtalitun, útskurði o.fl. Skrifstofa skólans verður opin mánud.-fimmtud. kl. 16.00-18.00 og föstud. kl. 9.00-11.00. Skráning fer f ram á skrifstofu skótans í síma 17800. ‘S s A A A i .. . /; í 'WÆi!h'í - , /■ iíí'- :,, k/V'W* •; ’ ; ■ Hraðnámstækni fyrir börn Lífleg og skemmtileg enskunámskeið fyrir börn. Tónlist, leikir og ýmis uppátæki í hverjum tímaT & -c\e' /-INjvf' vi \ \ i' 10004 Nánari upplýsingar ísíma MÁLASKÓLINN MÍMIR - í EIGU STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS Þórarinn B. Gunnarsson „Er jafnvel að sjá sem síðustu samantektar- menn um fræðslumál bílgreinanna og hug- myndafræðingar um bílgreinaskóla hafi ekki komið inn á verknáms- deildir sem þessum greinum tilheyra svo árum skiptir.“ auðheyranlega áttu nú að vera í, hvað varðaði verkkunnáttu og fag- menntun álmennt og lengi vel látið liggja milli hluta hvort hugtakið ætti við innan núverandi iðn- fræðsluskólakerfis, við hlið þess, eða kæmi í stað þess. í seinni hluta þessara athuga- semda verður fjallað um þær hug- myndir sem verið hafa uppi um menntun þessara greina, „aðstöðu“ þá sem ríkisvaldið hefur lagt sínum stofnunum til svo þær geti gegnt skyldum sínum. Undirbúning bfl- greina að stofnun einkaskóla, laun- ung við framkvæmd ákvarðanatöku og þá lítilsvirðingu sem skóla og kennaraliði er í þessu máli sýnd. Höfundur er iðnfræðslukentmri við Iðnskólann íReykjavík. ------» ♦ ♦ Pennavinir Leif Lanke Ryttaregranden 1 226-39 Sverige Áhugamál hans eru diskó, dýr. 33 ÁRA GAMALL enskur, einstæð- ur maður viil eignast íslenska pennavini. Áhugamál hans eru nátt- úruskoðun, karate, útivera og bréfaskriftir og hann starfar sjálf- stætt sem fyrirlesari í skólum. Heimilisfang hans er: Mr. John Wilson 45 Richmond house Avenham Lane Preston PRI 3xN Lancashire England 17 ÁRA hollenskur strákur óskar eftir íslenskum pennavinum. Hann hefur áhuga á skák og hjólreiða- keppni. Heimilisfang hans er: Luc Verhees Stationsstraat 126 6181 A.L. EIs 100 (L) Ilolland 33 ÁRA GÖMUL, gift áströlsk kona óskar eftir íslenskum pennavini. Hún elskar náttúruna, dýr, sérstak- lega hesta. Heimilisfang hennar er: Ingrid Huitinga Baljuvv 1 1625 BA Hoorn Holland 17 ÁRA GÖMUL japönsk stúlka vill eignast Islenska pennavini. Áhugamál hennar eru píanóleikur og tónlist. Heimilisfang hennar er: Mari Nakamura 55 Kutsuo Yukuhashi-shi Fukuoka 824 Japan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.