Morgunblaðið - 17.03.1992, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.03.1992, Blaðsíða 44
• 4' 44 t Ástkær eiginmaður minn og faðir, TORFI HELGI GÍSLASON, Hafnargötu 74, Keflavík, lést í Landspítalanum þann 15. mars sl. Útförin verður auglýst síðar. Anna Bergþóra Magnúsdóttir, Magnús Trausti Torfason, Gi'sli Torfason. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afí, HALLGRÍMUR THORLACÍUS, Öxnafelli, lést í Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 13. mars. Jarðarförin fer fram frá Grundarkirkju laugardaginn 21. mars kl. 14.00. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992 --—rr, ‘i ■. r •":—t-t- ;■ ^—rr* i:l|r! h.ii—;|>' ;: ;.. r- Krístín Friðriks- dóttir - Minning Fædd 7. október 1901 Dáin 4. mars 1992 Chopin hefur hljómað um húsið mitt í dag. Chopin var uppáhalds- tónskáldið hennar ömmu. Pabbi hringdi í mig í morgun með þær fréttir að amma væri dáin. Hún var búin að þjást frekar mikið undan- fama mánuði og ég er glaður yfir því að hún að hún þarf ekki að þjást meira. Amma var oft búin að segja að hún væri orðin þreytt og reynd- ar skildi hún ekkert í Guði að vera að halda í henni líftórunni svona lengi. En núna varð henni loksins að ósk sinni og bænir hennar og mínar hafa verið heyrðar; hún hefur fengið þá hvíld sem hún þráði. Þó ég hafí vitað, að ég væri að sjá hana í síðasta skipti þegar ég kvaddi hana síðast, þá er samt erf- itt að vita til þess að ég á aldrei eftir að grínast við ömmu aftur, rífast í henni eða stríða henni. Ég fæ tár í augun þegar ég hugsa til þeirra stunda, sem ég átti méð hanni í gegnum öll mín æviár. Amma flutti til okkar þegar ég var átta ára. Það var alltaf gott að koma inn til hennar, spila á spil og hlusta á hana segja frá lífínu í Sesselja Andrésdóttir, Ólafur Andri Thorlacíus, Fjóla Aðalsteinsdóttir, Andri Thorlacfus, Sindrl Thorlacíus. t Eiginkona mín, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Litla-Landi, Vestmannaeyjum, Norðurbrún 1, Reykjavfk, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 16. mars sl. Ögmundur Ólafsson og börn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR LIUA JÓHANNESDÓTTIR, sem lést í St. Fransiskussjúkrahúsinu í Stykkishólmi 11. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 18. mars kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á St. Fransiskussjúkra- húsið í Stykkishólmi eða Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Ingveldur Sigurðardóttir Þór Hróbjartsson. Skúli Sigurðsson, Ólafur Sigurðsson og barnabörn. Systir okkar, t HÓLMFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR frá Húsavík, andaðist 16. þ.m. í Reykjavík. Systkinin. t Maðurinn minn, GUNNAR V. KRISTMANNSSON húsgagnabólstrari, Bugðulæk 14, lést sunnudaginn 15. mars sl. Árdís Sæmundsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda faðir og afi, ÓLAFUR Þ. JÓNSSON, Brekkugötu 14, Hafnarfiröi, andaðist 14. mars sl. Sessetja Zophonfasdóttir, Hafsteinn Ólafsson, Þóra Bragadóttir, Jón Ólafsson, Þórhildur Sigurjónsdóttir, Örn Ólafsson, Ann-Helen Oddberg, Theodór Ólafsson, Hulda Snorradóttir og barnabörn. t Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, HELGA KRISTÍN MÖLLER, kennari og bæjarfulltrúi, Hlíðabyggð 44, Garðabæ, lést sunnudaginn 15. mars. Karl Harrý Sigurðsson, Helena Þuríður Karlsdóttir, Hanna Lillý Karlsdóttir. t SIGURÐUR ÓLI ÓLAFSSON fyrrverandi alþingismaður, Fossheiði 34, Selfossi, andaðist í Ljósheimum 15. mars. Kristfn Guðmundsdóttir, Þorbjörg Sigurðardóttir, Kolbeinn Ingi Kristinsson, Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Hákon Ólafsson. t Ástkær dóttir okkar, sambýliskona, móðir, systir og mágkona, ANNA BÁRA KRISTJÁNSDÓTTIR, frá Reyðarfirði, sem lést í París 7. mars, verður jarð- sungin frá Reyðarfjarðarkirkju 17. mars kl. 14. Alfheiður Hjaltadóttir, Kristján Kristjánsson, Pascal Ssossá, Kristján Óli Ssossé, Aðalheiður Erla Kristjánsdóttir, Björgvin Ingvason, Margrét Rósa Kristjánsdóttir, Gfsli Jónsson, Kolbrún Kristjánsdóttir, Þórður Geir Jónasson, Lára Valdís Kristjánsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN JÓNSSON, Ártúni 7, Selfossi, andaðist í Borgarspítalanum 15. mars. Gerður Guðjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGMUNDUR GUÐBJARNASON, Geithömrum 14, sem andaðist þriðjudaginn 10. mars sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 18. mars kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Gigtarfélag íslands. Kristfn Jóna Þórhallsdóttir, Einar M. Sigmundsson, Vilborg Valdimarsdóttir, Guðrún Ó. Sigmundsdóttir, Helgi M. Hreiðarsson, Sigríður Sigmundsdóttir, Pétur Hraunfjörð Karlsson, Sigmundur Sigmundsson, Unnur M. Gunnarsdóttir, Smári Sigmundsson, Rebekka Stefánsdóttir og barnabörn. gamla daga. Amma var alltaf vinur minn. Hún hafði ótal margar sögur að segja. Þó hún segði mér margar skemmtilegar sögur eru mér minn- isstæðastar sögumar sem lýstu lífí hennar í gamla daga. Hún sagði mér frá erfíðleikum í æsku og frá því þegar hún missti þtjú elstu börn- in sín, sem öll dóu úr berklum. Hún lýsti jafnvel síðustu stundunum með Érlu og Amþóri. Þá var ég það ungur að ég skildi ekki hvað amma hlýtur að hafa átt mjög erfítt í þá daga og að geta sagt mér frá þess- um atburðum sýnir hversu sterk kona amma var. Hún sagði mér að pabbi hefði verið með berkla líka, en hún sagðist hafa ákveðið að það bam skyldi ekki deyja og hennar ákvörðun varð ekki haggað. Svo sagði hún mér margar sögur frá stríðsárunum, einnig frá því þegar afí var veikur og dó, og margt ann- að. Amma kunni að segja frá og alltaf sagði hún frá sínum erfiðustu stundum með áherslu á að það var Guðs vilji, að lífið var eins og það var. Ég veit að það sem hjálpaði ömmu í gegnum sína erfíðu ævi var trúin á Guð ásamt hennar káta og lífsglaða skapferli. Hún sagði mér að mamma hennar hefði stundum skammast sín fyrir sig, því hún var alltaf tilbúin með brandara eða smellin tilsvör og hló alltaf mikið. Amma var stundum svo fyndin að ég grét af hlátri. Orðatiltæki, hegð- un og skemmtilegar sögur um sig sjálfa og annað fólk gerðu hana að fyrsta flokks brandarakerlingu. Ég gleymi því aldrei þegar Hákon bróð- ir sagði eitthvað sem ömmu þótti ekki við hæfí, hífði hún pislið upp um sig og sparkaði í afturendann á honum. Það var mikið hlegið að þessum tiltektum hennar, sem og mörgum öðrum spaugilegum atvik- um. Svo flutti amma til Rósu dóttur sinnar, sem bjó rétt hjá okkur. Ég saknaði hennar og heimsótti hana oft. Svo þegar ég varð eldri þá kom fyrir að það leið tími á milli heim- sókna. En ég fann fljótt fyrir þvf, ef ég lét líða meira en tvær vikur á milli heimsókna, þá var ekki gott í efni. Ef það gerðist var amma grautfúl út í mig og þusaði um að hún væri nú ekki mikil væntum- þykjan hjá sonarsyninum. Eftir það passaði ég mig á að íáta ekki meira en tvær vikur líða á milli heim- sókna. Núna er ég búinn að búa erlendis í nokkur ár og í hvert skipti sem ég kom heim var alltaf gott að heimsækja ömmu og rabba við hana um lífíð og tilveruna. Henni dapraðist sjónin fyrir nokkrum árum og það var erfítt fyrir svona hressa og sjálfstæða konu að vera upp á aðra komin með sínar ferðir. Sérfræóingar í blómaskreytingum viö öll tækifæri œblómaverkstæói INNAfe Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaóastrætis simi 19090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.