Morgunblaðið - 17.03.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.03.1992, Blaðsíða 24
2i MORqUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992 1 ! ! ‘ ■» ''J.-li U‘..li i • •-■I-.-L'l...!.,; .> .. MorgunDiaoio/övemr Frá fundi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu með forsætisráðherra uin ný viðhorf í utanríkismálum. Fundur Varðbergs og SVS um ný viðhorf í utanríkismálum: Umsókn um EB-aðild ekki á dagskrá rí kisstj órnarinnar - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að ef Evrópska efnahagssvæð- ið verði að veruleika eigi það eftir að færa Islendingum stórkostlega búbót. Þannig fái Islendingar hagstæðari aðgang en áður að 380 millj- ón mánna markaði þar sem 40% heimsverzlunar eigi sé stað. Samningur- inn verði einnig grundvöllur samskipta íslendinga við EB og skuld- bindi bandalagið gagnvart þeim á mikilvægum sviðum. Þetta kom fram í ræðu Davíðs um ný viðhorf í utanríkismálum á hádegisverðarfundi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu sem haldinn var að Hótel Sögu síðastliðinn laugardag. Óvissa í Austur-Evrópu í ræðu forsætisráðherra var meðal annars vikið að hruni Sovétríkjanna, lokum Kalda stríðsins og öðrum stór- viðburðum sem orðið hafa á alþjóða- vettvangi á síðustu misserum. Sagði hann að þessir atburðir boðuðu þó ekki verklok fyrir þá sem hefðu stað- ið vörð um hugsjónir vestræns lýð- ræðis síðustu áratugi og að enn ætti eftir að sjá fyrir endann á þróun mála. „Því miður er ástæða til að óttast öngþveiti og átök í sumum nýfjrálsu ríkjanna og á milli þeirra. Það er afleiðing áratuga óstjómar og eldri vandamála sem kommúnist- ar ýmist virtu að vettugi eða reyndu að leysa með kúgun og valdi sem gerði illt verra. í stað Sovétríkjanna fyrrverandi eru komin til sögu tólf sjálfstæð ríki. Sum eiga kjarnavopn, öll eiga þau við hrikalega efnahags- lega og pólitíska örðugleika að striða," sagði Davíð. Forsætisráðherra sagði og að Vesturlandabúar þyrftu ekki, í nán- ustu framtíð að minnsta kosti, að óttast að álíka hernaðarógn og sú, sem stóð að Vestur-Evrópu á tímum Kalda stríðsins, yrði endurvakin. Til þess virtist Rússland of veikt jafnvel þótt einræðisöfl næðu þar yfirhönd- inni. Þá benti margt til að hugmynd- ir um að stofna samveldi fyrrum lýð- velda Sovétríkjanna myndu renna út í sandinn og væri hætta á átökum á milli þeirra enn fyrir hendi. Ekki væri heldur unnt að útiloka aftur- hvarf til einræðis í sumum nýfrjálsu ríkjanna og væri Rússland þar ekki undan skilið. Af þessum sökum skipti miklu að Vesturlandabúar styddu með ráðum og dáð við bakið á lýð- ræðisöflunum í Austur-Evrópu og fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna. Oryggishagsmunir íslands í ræðu forsætisráðherra var lögð á það áherzla að nú, eftir breyting- arnar í Austur-Evrópu, þyrftu íslend- ingar að skilgreina hveijir væru var- anlegir öryggishagsmunir þeirra óháð breyttum aðstæðum í framtíð- inni. Mikilvægt væri til dæmis að tryggja varnir siglingaleiðanna á Norður-Atlantshafi þótt líklega væri hægt að tryggja slíkt með minni við- búnaði en áður. Nú þegar væri hægt að sjá merki um minnkandi viðbúnað Framkvæmdasjóður: Lætur af störfum framkvæmdastjóra BREYTINGAR, sem gerðar voru á lögum um Framkvæmdasjóð Islands í janúarmánuði síðast- Iiðnum, fólu m.a. í sér að Lána- sýslu ríkisins var falin umsjá og rekstur Framkvæmdasjóðs og lét stjórn sjóðsins þá jafnframt af störfum. Samfara þessum breytingum hefir framkværndastjóri sjóðsins Guðmundur B. Ólafsson, ákveðið að láta af störfum. Hefir hann starf- að hjá Framkvæmdabanka, Seðla- banka, Framkvæmdastofnun og Framkvæmdasjóði í 38 ár, en þar áður 3 ár hjá Alþjóðabankanum í Washington. Guðmundur B. Ólafs- son lætur af störfum um næstu- mánaðamót. Guðmundur B. Ólafsson. „Haftalaus milliríkjaviðskipti auka hagvöxt og bæta lífskjör," sagði forsætisráðherra m.a. í ræðu sinni. í vamarstöðinni á Keflavíkurflugvelli og væri ekki unnt að útiloka frekari samdrátt þar vegna breyttra að- stæðna á meginlandinu, miklu minni hernaðarumsvifa í nágrenni Islands og þrýstings í Bandaríkjunum um enn frekari niðurskurð til landvarna. Aukið öryggismálahlutverk EB Davíð sagði að endalok Kalda stríðsins og skiptingar Evrópu hefðu hert á samrunaþróuninni í Evrópu- bandalaginu í átt til aukinnar sam- vinnu ríkja innan þess í utanríkis- og öryggismálum. Væri það skiljan- legt þar sem hin nýju öryggisvanda- mál Evrópu væru allt annars eðlis en í Kalda stríðinu og við þeim yrði ekki brugðist nema í samvinnu milli- .ríkjastofnana í álfunni. Af þeim hefði Evrópubandalagið mesta og fjöl- breyttasta getu til að fást við ný og breytt vandamál sem væru af félags- legum, efnahagslegum og þjóðemis- legum toga spunnin. Auk þess væri þungamiðja Evrópu að færast austur á bóginn frá Atlantshafi. Slíkt gæti dregið úr vægi Atlantshafsbanda- lagsins og tengslanna yfir hafið en aukið áhrif Evrópubandalagsins í öryggismálum. Þetta gæti leitt til þess að ákvarðanir á vettvangi NATÓ verði í auknum mæli niður- staða samráðs í Vestur-Evrópusam- bandinu (VES) og milli þess annars vegar og Bandaríkjamanna hins veg- ar. Þær Evrópuþjóðir sem stæðu utan VES ættu hins vegar á hættu að áhrif þeirra minnkuðu og væru ís- lendingar þeirra á meðal. ísland og NATÓ Forsætisráðherra fjallaði um framtíð Atlantshafsbandalagsins og sagði að það væri mikilvægasti vettvangur Islendinga til að hafa áhrif á öryggis- hagsmuni sína á meginlandinu. Lik- legt væri að mikilvægi bandalagsins minnkaði ef Bandaríkjamenn fylgdu fordæmi Kanadamanna og kveddu heri sína á brott frá Evrópu. Sagði Davíð að íslendingar þyrftu að fylgj- ast grannt með stöðu bandalagsins , og beina sjónum sínum að Vestur-Evrópusambandinu. Þeim þremur Evrópuríkjum NATÓ sem stæðu utan EB, íslendingum, Norðmönnum og Tyrkjum, hefði á leiðtogafundi EB í Maastricht í desember síðastliðnum, verið boðin aukaaðild að VES. Hefðu íslenzk stjómvöld tekið jákvætt í það tilboð fyrir sitt leyti. „Það sem mælir með aukaaðiký að VES er að hún eflir þátttöku íslands og hagsmunagæzlu í NATÓ. Annars vegar kemur aukaaðild í veg fyrir að við verðum að velja milli tveggja meginstoða NATÓ, það er EB-ríkjanna og Norður-Ameríku, eða hafa minna vægi að öðrum kosti. Við viljum hvor- ugt. Hvernig svo sem tengsl okkar skipast við Evrópu viljum við áfram eiga náin samskipti og samvinnu við Bandaríkin í öryggismálum. Þau eru voldugasta Atlantshafsveldið auk þess sem engin þjóð hefur reynst Islendingum jafn vel og Bandaríkja- menn,“ sagði Davíð. Mikilvægi utanríkisviðskipta og EES Forsætisráðherra gat þess hve hlutur utanríkisviðskipta hefði stækkað mikið í íslenzku þjóðarbúi á undan- fömum áratugum og hve lífskjör hefðu batnað mikið á sama tíma. Það sýndi hve íslendingar væm háðir umheiminum og væri til marks um að haftalaus milliríkjaviðskipti og hin aukna verkaskipting og hagkvæmni, sem af þeim leiddi, yki hagvöxt og bætti lífskjör. Með samranaþróuninni í Evrópu væri stuðlað að því, að slík verkaskipting yrði aukin innan álf- unnar og lífskjör þar með bætt. Með tilliti til þess að mikill meirihluti ut- anríkisviðskipta íslendinga væri við Evrópu þyrftu íslendingar að taka þátt í samranaþróuninni þar með einum eða öðrum hætti, ekki ein- göngu vegna viðskiptahagsmuna, heldur einnig með hagsmuni á sviði menningar, menntunar og tækni í huga. Að þessu væri stefnt með þátt- töku íslands í samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið. „Við lítum svo á að EES-samningurinn sé frá- genginn til undirritunar af okkar hálfu og viljum ekki trúa því að tæknileg atriði eigi eftir að standa í vegi fyrir því að hann verði staðfest- ur. Með samningnum munu Islend- ingar fá hagstæðari aðgang en áður að 380 milljóna manna markaði. A honum eiga 40% af heimsverzluninni sér stað og þar eru öll okkar helztu viðskiptalönd að Bandaríkjunum frá- töldum." Davíð sagði að aðalatriðið væri þó það, að með staðfestingu EES-samningsins yrði EB skuld- bundið íslendingum á mikilvægum sviðum. Samningurinn yrði grand- völlur samskipta íslendinga við EB og tryggði þannig veigamikla hags- muni þeirra í Evrópu. Þetta væri þeim mun þýðingarmeira þar sem Islendingum stæði ekki til boða að taka þátt í fríverzlunarsvæði því sem verið væri að koma á fót í Norður-Ameríku og Bandaríkjastjórn virtist vera treg til þess að gera tvíhliða fríverzlunarsamning við íslendinga vegna ákveðinna grandvallaratriða í viðskiptastefnu Bandaríkjanna. Norrænt samstarf í ræðu Davíðs var vikið að nor- rænu samstarfi og framtíð þess. Sagði hann að allar líkur væra á því að það myndi, innan fárra ára, taka aukið mið af EB enda væru Finnar, Norðmenn og Svíar á leið inn í það. Þrátt fyrir að norrænir ráðherrafund- ir myndu veita íslendingum mikilvæg aðgang að málefnum bandalagsins, án aðildar að því, mætti gera ráð fyrir að aðrir Norðurlandabúar yrðu að taka meira tillit til skuldbindinga sinna og hagsmuna innan EB en norræns samstarfs þegar það rækist á. EB-umsókn ekki á dagskrá Forsætisráðherra sagði að aðild að EB hefði vafalaust hliðar sem myndu auðvelda hagsmunagæzlu Is- lendinga á meginlandinu. Hins vegar mætti ekki flana að neinu vegna mikillar óvissu sem fæli í sér meiri áhættu fyrir Islendinga en aðrar hlið- ar á hugsanlegri EB-aðild. Óvissa þessi lyti að yfirráðum yfir fiskistofn- um, sem væri eina stóra auðlind Is- lendinga, og yfirráðum yfír veiðum og vinnslu. Af þessum ástæðum væri umsókn um aðild að EB ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. KjM. Árás á danskennara í Breiðholti: Tveir piltanna höfðu sig mest í frammi LÖGREGLAN hefur upplýst málsatvik þegar ráðist var á danskennara við Drafnarfell í Breiðholti á föstudagskvöld og hann sleginn með þeim afleiðingum að taug í hendi hans skaddaðist. Tveir 15 ára piltar hafa játað að hafa haft sig í frammi og batt annar þeirra úlnliðsól um hnúa sér og sló manninn þannig í hendina. Að sögn lögreglunnar voru nokkr- ir tugir unglinga saman komnir við verslanamiðstöðina í Eddu- og Drafnarfelli þetta föstudagskvöld eins og jafnan um helgar. Fyrr um daginn hafði kviknað í söluturni þar sem unglingarnir eru vanir að safn- ast saman og leita skjóls. Einnig hefur þeim verið leyft að standa af sér veður í anddyri lög- reglustöðvarinnar, sem þama er til húsa. Þar vora hins vegar allir vakt- hafandi lögreglumenn önnum kafnir við að sinna útköllum þegar þetta var og stöðin læst. Að því er fram kom við rannsókn lögreglunnar segja unglingarnir að þetta hafi verið ástæðan fyrir því að þeir reyndu að komast inn í dansskólann en þegar þeim var vísað frá þar sem þeir trufl- uðu starfsemina þar brugðust nokkr- ir úr hópnum með þvi að ráðast á danskennarann og höfðu tveir sig mest í frammi. Málið er talið upplýst með játningum þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.