Morgunblaðið - 17.03.1992, Síða 45

Morgunblaðið - 17.03.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992 45 Hún notaði strætisvagnana fram eftir öllum aldri og neitaði alltaf að kaupa „þessa gamalmennamiða í strætó“. En þótt hún kæmist ekki ferða sinna eins mikið hin síðari ár þá var lífsgleðin áfram til staðar alveg undir það síðasta og glettnin var sjaldan langt undan. Þá er margt sem ber að þakka fyrir og að hafa átt slíka ömmu, sem sýndi mér að þrátt fyrir erfíðleika er hægt að trúa á Guð, hlæja hlátri gleðinnar og finna að hamingjan í lífínu er Guðsgjöf. Amma var sönn- un þess að lífsgleðin er fyrir öllu. Við öll sem áttum hana til að tala við erum þakklát, því hún hefur kennt okkur svo mikið, sem við munum njóta það sem eftir er ævinnar. Ömmu þakka ég fyrir allt sem hún hefur gefið mér, ég veit að hún mun alltaf vera með mér. Arni. Drottinn vakir, Drottinn vakir, daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir brégðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga og nætur yfír þér. Þegar ævirððull rennur rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi himins til þin aftur ber Drottinn elskar, - Drottinn vakir, daga og nætur yfir þér. Eg þakka elsku ömmu fyrir allar góðu stundirnar. Hrafnhildur. Nú þegar elsku amma mín er dáin langar mig að skrifa fáeinar línur um hana. Hún hefur loksins hlotið friðinn sem ég veit að hún þráði og er komin til Guðs, til afa og barnanna sinna þriggja sem hún missti fyrir mörgum árum. Nú koma í huga minn allar minningarnar um hana. Stundimar sem við áttum saman, þegar við drukkum kaffi með kringlum. Það var svo gott að fá kaffi hjá henni ömmu. Við sögðum hvor annarri frá ýmsum skemmti- legum og sorglegum atvikum. Hún amma var oft svo fyndin, stundum gat hún hlegið langa lengi að sjálfri sér og vitleysunni í okkur systkin- unum. Alltaf fór ég niður í herbergi til ömmu ef eitthvað var að. Hún hafði alltaf tíma til að hugga mig og hressa. En það sem ég mun allt- af muna við ömmu var bjarta skap- ið hennar og orðatiltækin sem vöktu hlátur og gleði. Ég þakka ömmu fyrir allar góðu stundirnar. Ég veit að henni líður vel þar sem hún er núna. Hulda Rós. Mig langar til að kveðja ömmu mína, sem bjó hjá okkur svo lengi sem ég man eftir mér. Amma var alltaf heima þegar ég þurfti á henni að halda, og hún átti líka alltaf gott til að gefa okkur systkinunum. — Við amma áttum góðar stundir saman sem ég mun ávallt muna. Ég þakka henni fýrir allt sem hún gerði fyrir mig. Guð blessi hana. Kristín. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGILEIF GÍSLADÓTTIR, lést 5. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL GUNNAR KARLSSON, Baðsvöllum 13, Grindavík, lést 6. mars sl. Jarðarförin hefur farlð fram. Þökkum auðsýnda samúð. Eyrún Árnadóttir, Ásta Karlsdóttir, Jens Christian Lauritsen, Edda Karlsdóttir, Finnbogi Björnsson, Ásrún Karlsdóttir, Kristján Árni Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur sambýlismaður minn, sonur minn, faðir okkar og bróðir, VALGEIR HÖRÐUR GUÐMUNDSSON frá Akureyri, Hafnarbraut 23, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 17. mars kl. 13.30. Linda Dröfn Jóhannesdóttir, Sigurbjörg Ormsdöttir, Egill Þór Valgeirsson, Ari Valgeirsson og systkini hins látna. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SIGURJÓNSSON, Austurbrún 37A, Reykjavík, sem andaðist 9. mars sl., verður jarðsunginn frá Áskirkju í dag, þriðjudaginn 17. mars, kl. 15.00. Vilborg Jónsdóttir, Jón Kristján Sigurðsson, Árdis Sigurjónsdóttir, Sigurjón Sigurðsson, Steinþóra Sigurðardóttir, Svanur Kristinsson og barnabörn. t Eiginmaður mjnn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR G. HALLDÓRSSON fyrrv. skrifstofustjóri, Tjarnargötu 10c, lést á öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10B, 15. mars. Guðrún Halldórsson, Hildur Ólafsdóttir, Pétur M. Gestsson, Guðrún Ólafsdóttir, Björn Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, BIRNIR BJARNASON dýralæknir, er látinn. Edda Flygenring, Sigrún Birna Birnisdóttir, Garðar Ágúst Birnisson, Hildur Björg Birnisdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN FRIÐRIKSDÓTTIR, Vaðlaseli 4, Reykjavfk, andaðist í Landspítalanum 4. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram f kyrrþey. Kærar þakkir eru færðar starfsfólki Landspítalans á deildum 3-G og 13-D fyrir góða umönnun. Þorgerður Rósa Sigurðardóttir, Hákon Magnússon, Erling Jón Sigurðsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Arnþór Sigurðsson, Amdís Árnadóttir, barnabörn g barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir og stjúpfaðir, ÁSGEIR EINARSSON, Hátúni 8, andaðist 12. þessa mánaðar í Borgarspítalanum. Útför fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. mars kl. 13.30. Halldóra S. S. Jónsdóttir, börn og stjúpbörn. 1 Móðir okkar og tengdamóðir, [■ SIGURRÓS GÍSLADÓTTIR, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að vilja hinnar látnu. Halldór Jónatansson, Bergljót Jónatansdóttir, Guðrún Dagbjartsdóttir, Jón Sigurðsson, Sigríður Jónatansdóttir, Þórður Þ. Þorbjarnarson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar og bróður, ÞORVALDAR GUÐMUNDSSONAR, fsafirði. Þóra Þorvaldsdóttir, Guðmundur Þorvaldsson, Rannveig Þorvaldsdóttir, Ingunn Þorvaldsdóttir, Hulda G. Mogensen og fjölskyldur. t Hjartkærar þakkir fyrir samúð og kveðjur við andlát og útför föð- ur okkar, JENS AÐALSTEINSSONAR frá Hólmavík. Högni Jensson, Alda Jensdóttir, Guðrún Jensdóttir, Halldór Steingrímsson, Jóhanna Jensdóttir og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU KRISTÍNAR ÓLAFSDÓTTUR, Lækjarbakka, Mýrdal. Þórólfur Gíslason, Ragnhildur Gísladóttir, Guðbergur Sigurðsson, Fjóla Gísladóttir, Birgir Hinriksson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför PÉTURS NIKULÁSSONAR, Borg, Vopnafirði. Fyrir hönd ættingja, Björg M. Sveinsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, LÁRUSAR GUÐMUNDSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Víðinesi. Fyrir hönd systkina, Gunnar Guðmundsson, Hvassalefti 46. t Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúð við andlát og útför HREFNU STEFÁNSDÓTTUR, Hringbraut SO. Sérstakar þakkir til starfsfólks elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Valdimar Bjarnason og vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.