Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 47
íífc
47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
HLAUP
Alltaf jafn gaman
í Grýlupottahlaupinu
Fyrsta Grýlupottahlaupið í ár fór fram
7. mars. Þetta hlaup er árviss viðburð-
ur á Selfossi og hefur verið það í rúm 20
ár. Hlaupið er fyrir börn og unglinga og
er vegalengdin rúmir 800 metrar. Hlaupið
er kennt við örnefni sem eru við hlaupaleið-
ina.
Mjög góð þátttaka er alla jafna í hlaup-
inu. Reglur hlaupsins eru þær að hlaupin
eru sex hlaup á tímabilinu mars—apríl.
Fjögur bestu hlaup hvers þátttakanda eru
talin með til úrslita. Ennfremur er veitt
viðurkenning fyrir þátttöku í fjórum hlaup-
um. Hlaupararnir leggja af stað með tíu
sekúndna millibili og hlaupa saman tveir
og tveir.
Þátttakendur í hveiju hlaupi eru
100-200, allt eftir því hvemig viðrar. For-
eldrar og skyldmenni barnanna sem hlaupa
eru þátttakendur, ýmist með því að skokka
með þeim eða með því að fylgjast með og
hvetja ungviðið. „Ég skal segja þér það
að þegar kemur fram í febrúar þá er ég
farin að hlakka til Grýlupottahlaupsins,"
sagði ein amman sem fylgst hefur með
hlaupinu frá upphafi, fyrst með börnum
sínum en núna með barnabörnunum. „Og
það er alltaf jafn gaman,“ bætti hún við.
Þegar litið er yfir þátttökuskrár hlaups-
ins kemur í ljós að afreksmenn Selfoss í
öllum greinum hafa margir hveijir stigið
sín fyrstu spor á keppnisbrautinni í hlaup-
inu.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Komið í mark í Grýlupottahlaupinu.
Útsending í fullum gangi hjá Verkó-Aust.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
LJOSVAKINN
Utvarp
Verkó-Aust
Það er að verða árviss viðburður
í hinni svokölluðu opnu viku
hjá Verkmenntaskóla Austurlands
að starfrækt sé útvarpsstöð í
nokkra daga. Að þessu sinni stóðu
útsendingar Verkó-Aust eins og
stöðin nefndist í 4 daga.
Mikið er hlustað á þessar út-
sendingar hér innan íjallahrings-
ins enda töluvert af efninu stað-
bundið. . Ágúgt
5 vikna
• MÁLANÁMSKEIÐ
ENSKA:
A. F. fólk íferðaþjónustu.
B. Fyrir ferðamenn.
ÍTALSKA: Fyrir byrjendur.
SPÆNSKA:
Lifandi tunga A. Fyrir byrjendur.
B. Fyrir lengra komna.
Námskeiðin hefjast mánudaginn 23. mars.
Innritun alla virka daga frá kl. 14:00-17.00 og laugardag
kl. 10:00-14:00 í skólanum og í síma 91-685824.
Hola - lifandi tunga, málaskóli, Ármúla 36, sími 91-685824.
Höfum til sölu
notaðar
vinnuvélur:
Case 580G 4x4 '86, '87
MF 50HX 4x4 ’88
JCB 3D-4 Turbo ’88
JCB 818 ’87
Cat 225 ’80
JCB Load-AII 530-120
og 525-67
Globusn
Véladeild
Lágmúla 5, sími 681555, 985-31722
*
A þriðjudögum og föstudögum í inars verða meistarakokkar
Holiday Inn hjá Sigurði Ragnarssyni á Bylgjunni kl. 12:30 og leiða
hlustendur í gegnum uppskrift dagsins. Fylgist með á Bylgjunni.
I DA(»: Vsuíatif Rosinberg
150 g ilskiii' á maiin. (>0 g spaglictii a iiiaiin. 60 g ra'kjiii' á inaim
hósa: (lyrir 8-10 iiiaiiiisi. 2 li«-ii <-gg maiarolía. 1 «•! i'ilik sjóðandi iii'ill
50 g lihiólaiikui' (gra'iiii lilóóm). 50 g sti'iiisi lja (lia'ói hnil og slilkarl
Þunnt skorin ýsa sett á smurðan disk eða ofnskúffu,penslað með smjöri ,
kryddað með salti og pipar og sett inní ofn eða salamander ( glóð í ofninum).
Spaghetti eða ravioli sett á disk ásamt rækjum, ýsan og sósan sett yfir.
Sósan
Eggin, blaðlaukurinn og steinseljan sett í blandara og maukað, sjóðandi heitu
edikinu hellt ótí og matarolíunni þar á eftir þar til sósan fer að þykkna.
Kryddað með salti og pipar
Geymið uppskriftina og hluslið á meistarakokkana í þættinum "Rokk og
rólegheit" eflir hádegi í dag. Hringið með spurningar og spjall um rétt dagsins
við kokkana. Síminn er 67 11 11.
Heþpnum hlustendum er boðið í mat á Setrinu, Holiday Inn.
JIÉTTUR DAGSINS
FRA MEISTARAKOKKUM
HOLIDAY INN