Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 53

Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 53
 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992 Sólarkaffi ísfirðinga Frá Unni Konráðsdóttur: ÉG ER ísfirðingur og stolt af. Við eigum með okkur félag, ísfírðinga- félagið í Reykjavík. Árlega blótum við sólina, sem ekki sést á Ísafírði í 2-3 mánuði ár hvert. Það veit eng- inn, nema sá er reynt hefur á sjálfum sér, hvað það er að sjá aldrei til sólar í svartasta skammdeginu. Ef heiðskírt er skín hún á fjalla- toppana 25. janúar. Þá lyftist brún- iná hverjum einasta bæjarbúa. Jafn- vel geðverstu nöldurskjóður draga munnvikin upp á við. En stundum er blindhríð dögum, jafnvel vikum saman og komið langt fram í febr- úar þegar rofar til og sést til sólar. Þegar sólin skín á gluggann bakar maður pönnukökur og býður í sólar- kaffi. Árlega í 47 ár hefur ísfirðingafé- lagið í Reykjavík haldið sitt Sólar- kaffi hér í bæ — og aldrei fallið úr ár. Nú höfum við sprengt utan af okkur öll hús höfuðborgarinnar, nema eitt, Hótel ísland. Þar var sól- arkaffi 17. janúar sl. Fullsnemma að okkur fannst en plássið var ekki falt viku seinna. Þetta var, eins og alltaf áður, indæl hátíð. Dagskráin var hreint frábær, með einni undantekningu þó. Hermikrák- an Jóhannes Kristjánsson leyfði sér að koma algerlega óundirbúinn til að skemmta 800 Isfirðingum. Hann sletti í okkur gömlum lummum í gervi Steingríms Hermannssonar. Iskaldar móttökur gerðu hann svo óstyrkan að hann leit íjórum sinnum á úrið áður en hann forðaði sér út. Eg vona að hann hafi verið hýru- dreginn. Ekki lét Þorgerður Ingólfsdóttir sig muna um að kenna Hamrahlíð- arkómum bæði lag og ljóð við „þjóð- söng“ okkar ísfirðinga, í faðmi fjalla blárra. Slæm mistök voru þó að láta hana ekki vita að fæstir eldri Isfirð- ingar kunna hið ágæta lag Jónasar Tómassonar eldri. Við syngjum allt- af undir lagi R. Bay (Nú skotöld er og skálma), og gátum því ekki tekið undir. Hinn blindi Friðrik Guðni Þórleifsson og dóttir hans Hjálmfríð- ur vom ógleymanleg. Hápunktur kvöldsins var þó er formaður félags- ins, Einar G. Einarsson, upplýsti að sama dag hefði félagið keypt Sóltún, hús Guðmundar frá Mosdal, sem orlofshús fyrir brottflutta ísfirðinga. ísfirðingafélagið í Reykjavík er menningarfélag. Á síðasta aðalfundi voru stofnaðir þrír minningarsjóðir um látna duglega félaga. Þessir sjóð- ir munu árlega veita verðlaun í þrem skólum á Isafirði, nemendum til hvatningar. Einnig gaf félagið minn- ingargjöf um látinn félaga til Bræðratungu, sem er vistheimili þroskaheftra. Sólarkaffi okkar ísfirðinga er ólíkt flestum árshátíðum. Veiting- arnar em ekki dýrindis kvöldverður og vín, heldur kaffi og ijómapönnu- kökur. Þátttakendur em á aldrinum 20-90 ára. Þetta fólk kemur saman til að sýna sig og sjá aðra, hitta vini, ættingja og kunningja eða bara ísfirðinga. Rabba saman, rifja upp gamlar endurminningar, sjá börn og bamabörn vinanna, tala saman, hlæja saman, jafnvel gráta saman yfir horfnum vinum. Meðalaldur er líklega 50-60 ár. Við dagskrárlok tók hljómsveitin VELVAKANDI NATTKJOLL HEIMASAUMAÐUR skósíður, rósrauður bómullarnáttkjóll á níu ára telpu glataðist fyrir um það bil mánuði. Hann var í Miklagarðsplastpoka ásamt sokkabuxum og .svörtu stígvéli. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 657610. ULLARSJAL STÓRT þunnt ullarsjal tapaðist milli jóla og nýárs. Sjalið er rautt, blátt, grænt og svart. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 98-34647. LYKLAVESKI FUNDIST hefur vínrautt leður- lyklaveski með fimm lyklum. Á því er lítið renniláshólf með miða í. Upplýsingar í síma 27735 frá kl. 8 til 16. LEÐURJAKKI SVARTUR leðuijakki tapaðist í miðbænum aðfaranótt laugar- dags 29. febrúar. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 41654. Vinningstölur laugardaginn 170 6.204 UPPHÆÐÁHVERN VWNINGSHAFA 7.582.609 100.295 8.141 520 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 12.995.019 kr. við. Hávaðinn varð svo yfírþyrmandi að útilokað var að talast við í saln- um. Gamla fólkið greip um eyrun og signdi sig. Hélt að komin væri loftárás. Síðan tíndist það út eitt af öðru, sáróánægt, því að það vissi af henni Dísu, honum Svenna og fleirum sem það langaði til að hitta. En höfuðið var að klofna af hávaðan- um, það flúði, sumt kemur aldrei aftur. Eru danshljómsveitir á íslandi að skemmta sjálfum sér og kemur fólk- ið í salnum, sem þó borgar brúsann, þeim ekkert við? Eftirfarandi eru tvær spurningar sem _ég spyr fyrir hönd 800 óánægðra ísfirðinga, og krefst svars. 1. Hótel ísland. Þið leigið okkur hús og hljómsveit. Hvers vegna sjáið þið ekki um að leigutakinn sé ánægður? Þetta kvöld var alltaf ver- ið að kvarta yfir hávaðanum, árangurslaust. Hvers vegna? 2. Hljómsveitin Upplyfting. Fyrir hvem spilið þið? Ykkur eða okkur sem borgum? Af hveiju má fólk ekki tala saman án þess að þurfa að öskra? Er enginn metnaður hjá ykkur í þá átt að viðskiptavinirnir séu ánægðir? Stjórn ísfírðingafélagsins í Reykjavík. Þið hafið þegar leigt Hótel ísland 22. janúar 1993. í öllum bænum sjáið til að þessi ófögnuður endurtaki sig ekki. Sparið ykkur hljómsveit sem ekki kann sitt fag — hreinlega rekur fólk á dyr. Megum við ísfirðingar þá frekar biðja um Magga á Heklunni eða Villa Valla, menn sem alltaf hafa sýnt að þeir em fagmenn. UNNUR KONRÁÐSDÓTTIR Eskihlíð 6, Reykjavík Það er alveg hreint ótrúlega mikið til núna af fallegum borðstofum í mörgum gerðum og stærðum. | Svona 40 tegundir eða svo. I i I I I i I Meran 5J borðstofuborð + stólar, kr. 140.910. Viður: Hnota old germen. Denlux borðstofuborð + stólar, kr. 122.100. Skenkur kr. 38.880.- Skápurkr. 62.880.- Viður: Svart/Mahogni Lugano-21 borðstofuborð + stólar, kr. 93.060,- Viður: Tin eik. Verið velkomin í stærstu húsgagnaverslun landsins. Husgagnahöllin r uprýsingab sImsvabi91 -681511 iukkuiIna991002 BLLDSHOFÐA 20 -112 REYKJAVIK - SIMI91-681199

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.