Morgunblaðið - 29.03.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
c
Alda Ingibergsdóttir
með einsöngstónleika
ALDA Ingibergsdóttir sópran-
söngkona heldur tónleika í
Hafnarborg í Hafnarfirði,
mánudagskvöldið 30. mars nk.
kl. 20.30. Á efnisskránni eru
m.a. sönglög og aríur eftir
Purcell, Mozart, Bellini, Verdi,
Bizet, Puccini, Richard Strauss
og Þórarinn Jónsson.
Alda hóf söngnám við Söngskól-
ann í Reykjavík haustið 1985 og
lauk þaðan VIII stigs prófi i söng
sl. vor. Eru þessir tónleikar liður
í burtfaraprófi hennar frá Söng-
skólanum nú í vor. Aðalkennari
hennar við skólann er Dóra Reynd-
al, en jafnframt hefur hún_ sótt
söngnámskeið hjá E. Ratti á Ítalíu
og prof. Oren Brown, bæði hér
heima og erlendis.
Alda er félagi í Kór íslensku
óperunnar og söng einsöng með
kórnum í konsertuppfærslu á Porgi
Alda Ingibergsdóttir
og Bess eftir Gershwin með Sin-
fóníuhljómsveit íslands nú í vetur.
Þá söng hún einnig hlutverk Fyrsta
anda í uppfærslu íslensku óper-
unnar á Töfraflautu Mozarts fyrr
í vetur.
Þessa dagana er hún þátttak-
andi í Otello eftir Verdi á fjölum
íslesnku óperunnaru og nemenda-
óperu Söngskólans Orfeus í undir-
heimum eftir J. Offenbach. Þá
hefur hún komið fram sem ein-
söngvari bæði í útvarpi og sjón-
varpi.
Ólafur Vignir Albertsson hefur
lengst af unnið með henni sem
píanóleikari og verður hún með-
leikari hennar á tónleikunum.
VIÐ
RÝMUM TIL
Nú œtlum við að rýma aðeins til á lagernum okkar fyrir vorið.
Við bjóðum ryksugur frá AEG og brauðristar frá tefal
á verði sem kemur þœgilega á óvart.
Dœmi:
AEG ryksuga
Vampyr 408
Dregur inn snúru,
með stillanlegum sogkrafti,
fylgihlutageymsla.
Verð áður 14.933 kr.
Tilboð: 11.995 kr. stgr.
TEFAL brauðrist
8748 tekur 3 sneiðar.
Verð áður 3.507 kr.
Tilboð: 1.995 kr. stgr.
Einnig bjóðum við vandaða franska leirvöru
frá EMILE HENRY á 25% afslœtti svo ogpotta ogpönnur frá tefal
Umboðsmenn um allt land.
BRÆÐURNIR
OKMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
Bestu kjör,
verðtrygging og
25% í
skattafslátt
Grunnur er
verðtryggður miðað við
lánskjaravísitölu og leggst
verðtryggingin við
innstæðu og vexti
mánaðarlega. Auk hárra
vaxta veitir Grunnur rétt
til ríflegs skattafsláttar
sem nemur fjórðungi
þeirrar fjárhæðar sem
spöruð er á ári.
Grunnur að
eigin húsnæði
Grunnur er kjörinn fyrir
þá sem hyggja á
húsnæðiskaup eða
húsbyggingar í náinni
framtíð. Leggja þarf
reglulega inn á Grunn
a.m.k. ársfjórðungslega.
Sparnaðartíminn er
bundinn í 3 - 10 ár, en
getur lengstur orðið 15
ár. Á sparnaðartímanum
ávinnur reikningseigand-
inn sér rétt til láns sem
getur numið allt að
fjórföldum höfuðstólnum.
Grunnur er
góður
lífeyrissjóður
Grunnur er fyrirtaks
kostur fyrir þá sem vilja
koma sér upp góðum
varasjóði eða verð-
tryggðum lífeyrissjóði
með reglubundnum
sparnaði.
Til að njóta
skattafsláttar
fyrir 1.
ársf jórðung þarf
að leggja inn
fyrir lok mars.
ÆLandsbanki
ísiands
Banki allra landsmanna