Morgunblaðið - 09.05.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAI 1992
Morgunblaðið/Ingvar
Bíll í veg fyrir bifhjól
Samkomulag á Alþingi um þingmeðferð EES-samningsins:
Umræða um samning-
inn hefjist 10. ágúst
Fallið frá hugmyndum um sérnefnd þingsins
SAMKOMULAG tókst í gær á milli stjórnar og stjórnarandstöðu á
Alþingi um þingmeðferð samningsins um evrópskt efnahagssvæði.
Samkomuiag varð um að EES-samningurinn og fyigimál verði Iögð
fyrir nú á vorþingi sem ljúki 19. maí en umræða um hann hefjist 10.
ágúst þegar reglulegt Alþingi komi saman. Jafnframt er stefnt að
þinghléi í síðari hluta septembermánaðar. Ríkisstjórnin fellur frá
áformum um sérnefnd á vegum þingsins en samningurinn ásamt fylgi-
skjölum og fylgisamningum verður þegar tekinn til meðferðar í utan-
ríkismálanefnd. Stefnt er að því að flest lagafrumvörp vegna samnings-
ins fái afgreiðslu fyrir lok september og að málsmeðferðinni allri
verði lokið í nóvember.
Frumvörp að nýjum lögum og
meiriháttar breytingum á gildandi
lögum vegna aðildarinnar að EES
verði hins vegar flutt sérstaklega.
Lögfesta þarf frumvarp nú á
vorþingi til að flýta samkomudegi
Alþingis fram f ágúst en jafnframt
er samkomulag um að stefnuræða
forsætisráðherra og framlagning
fjárlagafrumvarps verði á hefð-
bundnum tfma, þ.e. f október.
Umferðarslys varð á mótum Kleppsvegar og Dalbrautar um klukk-
an 15 f gærdag. Á gatnamótunum var bifreið ekið í veg fyrir bif-
hjól með þeim afleiðingum að ökumaður hjólsins kastaðist af þvf
og slasaðist töluvert en þó ekki alvarlega. Ökumaður hjólsins var
fluttur á slysadeild.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði f samtali við Morgunblaðið
að stjómarflokkamir hefðu teygt
sig mjög langt í samkomulagsátt.
„Ástæðan er sú að við viljum allt
Miðlunartillag'a samþykkt
í 97 félögnm en felld í 9
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara var samþykkt í 97 verkalýðsfélög-
um með 50.944 atkvæðisbærum félagsmönnum en felld í níu félögum
með 1.314 atkvæðisbærum félagsmönnum. I fimm verkalýðsfélögum
með tæplega eitt þúsund félagsmenn var tillagan samþykkt þó fleiri
greiddu atkvæði á móti henni en með vegna þess að þátttaka í atkvæða-
greiðslunni var undir 35%. Hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
var búið að telja í 25 félögum í gær og var tillagan felld í einu félagi.
Niðurstöður voru í gær kunnar
í 106 félögum og félagadeildum í
Alþýðusambandi íslands. 52.258
höfðu atkvæðsrétt og 9.830
greiddu atkvæði eða 18,8%. Já
sögðu 6.520 eða 66,3% og nei 3.025
eða 30,8%. Auðir og ógildir seðlar
voru 285 eða 2,9%. í 51 félagi var
þátttaka yfír 35% en undir 20% f
28 félögum.
í frétt frá ríkissáttasemjara seg-
ir að í öllum stærstu félögunum þar
sem þátttaka var minni en 20%
hafi miðlunartillagan verið sam-
þykkt af meirihluta þeirra sem
greiddu atkvæði. Vinnuveitendur
samþykktu tillögurnar mót-
atkvæðalaust nema miðlunartillögu
varðandi lslenska álverið.
Niðurstöður lágu fyrir f 25 félög-
um og félagadeildum BSRB í gær
þar sem 2.503 atkvæðisbærir
félagar voru. 1.207 höfðu greitt
atkvæði eða tæpur helmingur og
já sögðu 835 eða 69,2% og nei 308
eða 25,5%. Auðir og ógildir seðlar
voru 64 eða 5,3%. Tillagan var felid
í einu félagi með 27 félagsmönnum
en samþykkt í hinum.
Atkvæði féllu sem hér segir í
nokkrum stærstu félögunum: Hjá
Sókn greiddu 444 atkvæði eða
14,9% félagskvenna. 308 sögðu já
en 129 sögðu nei. Hjá verkakvenna-
félaginu Framsókn greiddu 218
atkvæði eða 9,8% félagskvenna.
154 sögðu já en 62 sögðu nei. Hjá
Dagsbrún greiddu 564 atkvæði eða
15,9% 316 sögðu já en 242 sögðu
nei. Hjá Einingu á Akureyri greiddu
524 atkvæði eða 14,6%. 337 sögðu
já en 180 sögðu nei. Hjá Verkalýðs-
og sjómannafélagi Keflavíkur
greiddu 484 atkvæði eða 20,1%.
385 sögðu já en 97 sögðu nei.
Þau félög sem felldu tillöguna
voru Verslunarmannafélag V-Hún-
vetninga, Verkalýðsfélag Norðfirð-
inga, Verkalýðs- og sjómannafélag
Stöðvarfjarðar, Verkalýðsfélagið
Afturelding á Hellissandi, Verka-
lýðsfélagið Stjaman á Grundar-
firði, Verkalýðsfélag A-Húnvetn-
inga, Verkalýðsfélagið Súgandi á
Suðureyri og Bifreiðastjórafélagið
Sleipnir f Reykjavík.
til vinna að sæmilegur starfsandi
verði um þetta mikla mál og þá
fínnst okkur varða meiru að ná
saman um það en að halda okkur
við einstök atriði," sagði hann.
Páll Pétursson, þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins, sagð-
ist vera mjög ánægður með þessa
niðurstöðu og sagðist meta mikils
að stjómarflokkamir skyldu hafa
komið til móts við sjónarmið stjóm-
arandstöðunnar f flestum atriðum.
„Við lögðum höfuðáherslu á að
EES-samningurinn færi til utanrík-
ismálanefndar og að fallið yrði frá
hugmynd um sémefnd," sagði
hann.
í samkomulaginu er gert ráð
fyrir að tvíhliða samningur um
sjávarútvegsmál verði tekinn til
meðferðar í utanríkismálanefnd.
Önnur fylgifrumvörp EES-samn-
ingsins verði tekin til umfjöllunar
í fastanefndum þingsins jafnskjótt
og þau verða tilbúin. Fastanefndir
fjalli um þessi mál samfellt í sumar
samkvæmt tímaáætlun er formenn
þeirra geri.
Einnig var samið um að Alþingi
leggi til tvo sérfróða starfsmenn á
meðan málið er til meðferðar í
þinginu, er verði þingnefndum og
eftir atvikum þingflokkum til að-
stoðar og ráðuneytis ásamt sér-
fræðingum utanrfkisráðuneytisins
og annarra ráðuneyta.
Samkvæmt samkomulaginu mun
hver ráðherra flytja í einu frum-
varpi tillögur um smærri breytingar
á gildandi lögum á sfnu málasviði.
-----»-•-»"♦---
Ekki frekari
vaxtalækk-
anir hjá
bönkunum
ENGAR tilkynningar höfðu bor-
ist til Seðlabanka íslands í gær
um breytingar á vöxtum banka
og sparisjóða 11. maí en þá er
næsti vaxtabreytingadagur.
Bankamir lækkuðu útlánsvexti
um mánaðamótin f kjölfar þess að
ríkissáttasemjari lagði fram miðl-
unartillögu og ríkissjóður lækkaði
vexti á spariskírteinum og vfxlum.
Landsbankinn er með hæstu út-
lánsvextina og eru þeir hálfu til
einu prósentustigi hærri en útláns-
vextir hjá öðrum. Forvextir vfxla
em 12,5% samanborðið við 11,55%
f íslandsbanka sem er lægstur og
11,75% í Búnaðarbanka og spari-
sjóðunum. Vextir á óverðtryggðum
skuldabréfum í algengasta útláns-
flokki eru 13,25% í Landsbanka,
11,85% hjá íslandsbanka, 12,5% hjá
Búnaðabanka og 12,25% hjá spari-
sjóðunum. Algengustu vextir af
verðtryggðum skuldabréfum eru
9,65% f Landsbanka, 8,75% í ís-
landsbanka, 9,25% í Búnaðarbanka
og 9% hjá sparisjóðunum.
Selfoss:
Ræktunarstarf æskunn-
ar á vegnm Yrkju hafið
35 grunnskólar taka þátt í gróður-
setningarátaki sjóðsins
Selfossi.
FYRSTU plönturnar sem keyptar eru fyrir framlag úr Yrkjusjóði
voru gróðursettar á Selfossi í gær að viðstöddum forseta íslands,
frú Vigdísi Finnbogadóttur. Grunnskólinn á Selfossi fékk fyrstur
skóla úthlutað úr sjóðnum en alls munu 35 skólar fá úthlutað til
plöntukaupa.
Gróðursetningin á Selfossi fór
fram í sérstökum lundi á útivist-
arsvæði bæjarins þar sem nem-
endur Sólvallaskóla og Sandvík-
urskóla munu gróðursetja þær
átta þúsund plöntur sem koma f
hlut skólanna en það eru tíu plönt-
ur á hvem nemanda.
Forsetinn, sem gróðursetti
fyrstu plöntumar með dyggri að-
stoð nemenda, sagði að vel færi
á því að kalla þetta svæði Æsku-
skóg.
1 tilefni af 60 ára afmæli for-
seta íslands, frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, stóð bókaútgáfan Ið-
unn, að fmmkvæði forstjórans,
Jóns Karlssonar, að útgáfu af-
mælisrits og stofnun sjóðs æsk-
unnar til ræktunar landsins,
Yrkju. Vinna við undirbúning og
útgáfu ritsins var gefin en ágóði
af sölunni hefur runnið til sjóðs-
ins.
Stjómarformaður Yrkju, Matt-
hías Johannessen, hóf athöfnina
og ávarpaði viðstadda. Hann
þakkaði öllum sem staðið hefðu
að þessu átaki og sagði að forseti
íslands hefði óskað eftir því að
fjármunum sjóðsins yrði varið til
ræktunar „og er ekki síst ástæða
til að þakka þann hug sem forseti
vor sýnir landinu og æskunni með
þessari ákvörðun sinni og fagnað-
arefni að við getum hlúð að um-
hverfí okkar með þeim hætti sem
fyrir er lagt í skipulagsskrá
Yrkju." Hann benti á að í fyrstu
grein Yrkju væri tekið fram að
þetta væri „sjóður æskunnar til
ræktunar landsins". Og hluta af
tekjum sjóðsins yrði árlega varið
í þessum tilgangi samkvæmt nán-
ari ákvörðun sjóðsstjómar.
Síðan sagði formaður Yrkju:
„Með hliðsjón af þessu hefur
stjóm sjóðsins nú ákveðið að hefja
ræktunarstarfið. Valdir hafa verið
úr þeir grannskólar sem áhuga
hafa á þátttöku og standast þær
kröfur sem gerðar hafa verið. Sfð-
ar munu fleiri grunnskólar að
sjálfsögðu bætast f hópinn og hug-
sjón listaskáldsins vaxa af græn-
um fíngrum íslenskrar æsku, Fag-
' ' ' '
Forsetinn ásamt áhugasömum ræktunarmönnum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
ur er dalur og fyllist skógi.
Draumsýn okkar er loftkastalar
sem við hyggjumst byggja á jörðu
niðri. Við ætlum að rækta þetta
land okkar með hugarfari þeirra
sem trúðu okkur fyrir draumum
sínum.
Hugsjónamenn fyrri tfða sögðu
að hamingja mannsins ylti á því
að hann lifði f sátt við umhverfi
sitt og þá fyrst gæti hann lifað í
sátt við sjálfan sig. Yrkja á að
ýta undir að þessi draumsýn verði
að veraleika. Við þurfum að hlú
að jörðinni, láta hana njóta sáð-
mannsins sem býr í hvers manns
bijósti; verma hana sólmjúkum
höndum sem era úr sama efni og
hún sjálf. Maður er moldu samur,
segir í Sólarljóðum. Vitneskjan
um það kallar okkur hingað á
þessari stundu, hún er f senn afl-
vaki og leiðarljós. Hér hefjum við
ræktunarstarfið og í fylgd skóla-
æskunnar verður land okkar betra
og hlýrra. Og vonandi vistgott
umhverfi um alla framtíð. Hvert
tré sem laufgast, hver sproti sem
brosir mót vori verður þannig
hugsun okkar í verki. Af henni
mun skógurinn vaxa og hún mun
gera umhverfi okkar vinalegra og
fara þjóðlegan metnað okkar nýrri
og örvandi eftirvæntingu.“
Að ávarpinu loknu þakkaði Óli
Þ. Guðbjartsson skólastjóri fyrir
hönd heimamanna.
Umsjón Yrkju er í höndum
Skógræktarfélags íslands og er
framkvæmd gróðursetningarinn-
ar f ár með þeim hætti að allir
skólarnir verða heimsóttir og
umsjónarmönnum leiðbeint um
tilhögun verksins, eins og segir í
fréttatilkynningu félagsins en
framkvæmdastjóri átaksins er
Brynjólfur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélagsins.
Viðstaddir þessa fyrstu gróður-
setningu voru meðal annars for-
ystumenn bæjarstjómar Selfoss
kennarar og skógræktarmenn|
auk æskufólksins sem lauk verk-
inu með tilsögn umsjónarmanna
sinna. Veður var bjart á Selfossi
á meðan gróðursett var, sólfar en