Morgunblaðið - 09.05.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
9
BUXNADRAGTI
TISKUVERSLUN
TISKUVERSLUN, KRINGLUNNI 8-12, SÍMI 33300
FULL BÚÐ AF
NÝJUM
VÖRUM
Tækifæris-
pólitískir fim-
leikar
Alþýdublaðið segir í
forystugrein:
„Það er liins vegar at-
hyglisvert hvað stjórn-
málaflokkarnir aðhafast
í þessum efnum. Á sama
tíma og formaður Al-
þýðuflokksins undirrit-
aði þennan umfangs-
mesta samning um milli-
ríkjaviðskipti í sögunni,
sátu fulltrúar Framsókn-
arflokksins á sínum
fyrsta málefnalega fundi
um EES. Að sjálfsögðu
án þess að komast að
niðurstöðu.
Það vekur auðvitað
furðu þegar Framsókn-
arflokkurinn fer fyrst af
stað með alvöru umræðu
um EES-málið þegar
samningurinn hefur ver-
ið undirritaður. Sérstak-
lega í ljósi þess að flokk-
urinn átti aðild að síðustu
ríkisstjórn, hinni sömu
og undirbjó EES-samn-
ingana að staerstum
hluta. Jafnaðarmenn áttu
ágæta samvinnu við
framsóknarmenn og ai-
þýðubandalagsmenn um
EES-málið í tíð síðustu
ríkissljórnar, ef undan
er skilinn kvennalista-
armur Alþýðubandalags-
ins, þjóðemiseinangi'-
unarsinninn Hjörleifur
Guttormsson.
Það má því glöggt
greina tækifærispólitík
hjá þessum sömu flokk-
um sem nú sitja með sárt
ennið í stjórnarandstöðu.
Nú er þetta mál, sem
flokkarnir unnu sameig-
inlega að, farið að grafa
undan sjálfstæði lands og
þjóðar i þeirra augum.
Allt sem viðkemur EES
er orðið svo iiættulegt
að stjórnarandstaðan
þorir ekki að ræða málið
í sérstakri þingnefnd, né
yfir höfuð að leggja það
fram til málefnalegrar
umræðu á Alþingi. Með
öðmm orðum ætlar
stjórnarandstaðan, sem
aldrei getur tekið afstöðu
MMDUBL/íDID
FRAMSOKNARMENN
SITJA HJÁ
Það voru merk tímamót í sögu íslensku þjóðarinnar um síðustu helgi e
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra undirritaði samninginn un
Evrópska efnahagssvæðið í Portúgal fyrir íslands hönd. Tímamót scr
NATO, EFTA, EES
„Það voru tímamót í sögu íslenzku þjóð-
arinnar um síðustu helgi er Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra undirrit-
aði samninginn um Evrópska efnahags-
svæðið í Portúgal fyrir íslands hönd.
Tímamót sem þegar fram í sækir verða
talin jafn merk og aðildin að NATO 1949,
innganga í EFTA 1970 og sigurinn í
þorskastríðunum 1973-1976.“ Þannig er
að orði komist í leiðara Alþýðublaðsins
síðastliðinn fimmtudag.
í mikilvægum málum, að
standa í vegi fyrir því að
þeir flokkar sem hafa
skýra stefnu í EES-mál-
inu geti stuðlað að vand-
aðri og ítarlegri umfjöll-
un...“
Dæmisagan
um EFTA
Enn segir Alþýðublað-
ið:
„Það vill svo til að að-
dragandinn og samning-
urinn um EES á sér hlið-
stæðu í íslenzkri stjórn-
málasögu. Þegar aðild
íslands að EFTA var
undirbúin og síðar sam-
þykkt af Alþingi á árun-
um 1968 og 1969 voru
söinu flokkar og nú í
stjóm og stjómarand-
stöðu. Þá vom einnig
notuð sömu rökin og í
dag með og móti frekari
samskipt um og samvinnu
við nágrannalöndin í
Evrópu. Þegar Alþýðu-
bandalagið og Fram-
sóknarflokkurin mynd-
uðu síðan afturhalds-
stjóm sína á ámnum
1971 til 1974 var ekki
minnst á úrsögn úr
EFTA heldur gengið
lengra og undirritaður
fríverzlunarsamningur
við EB, sem að mörgu
leyti gekk lengra i átt til
frjálsræðis og opnunar
hagkerfisins heldur en
EFTA-aðildin.
Reyndar hafði Alþýðu-
flokkurinn veg og vanda
af undirbúningi þessa
viðamikla samnings und-
ir forystu Gylfa Þ. Gísla-
sonar, þáverandi við-
skiptaráðherra. Umræð-
uraar um EFTA urðu
mjög harðar á köflum.
En fljótlega kom í ljós
að Framsóknarflokkur-
inn var klofinn í afstöðu
sinni, rétt eins og nú
varðandi EES. Á þeim
bæ fæst aldrei nein nið-
urstaða. En núverandi
þingmenn Framsóknar-
flokksins ættu að hafa í
huga ræðu fyrirrennara
síns, Jóns Skaftasonar,
er hann flutti á Alþingi
1969, þegar lokaumræð-
an um EES fer fram í
vor og í sumar. Jón
Skaftason sagði hrein-
skilnislega að hann væri
sannfærður um ágæti
þess að Islendingar
tengdust EFTA varan-
legum böndum, en hann
væri hins vegar á móti
rikisstjóminni og treysti
henni ekki fyrir fram-
kvæmd málsins. Það væri
miklu heiðarlegm fyrir
Steingrím Hermannsson
og félaga að segja það
beint að þeir styðji ekki
EES-samninginn á þeirri
forsendu að þeir séu í
stjómarandstöðu og séu
á móti öllum góðum mál-
um sem frá ríkisstjórn
inni koma“.
„Þjóðernis-
einangrun-
arsinnar“
r
Lokaorð leiðara Al-
þýðublaðsins em þessi:
„Niðurstaða Fram-
sóknarflokksins í at-
kvæðagreiðslunni um
EFTA-aðildina árið 1969
varð sú að þingflokkur-
inn sat hjá til þess að
breiða yfir klofninginn
og stefnuleysi flokksins.
Allt bendir til þess að
sama sagan endurtaki sig
nú þegar taka þarf af-
stöðu til EES-samnings-
ins á Alþingi.
Halldór Ásgrímsson
varaformaður Fram-
sóknarflokksins er ósam-
mála formanni sínum og
hefur lýst því yfir að
hann telji þessa samn-
inga samræmast íslenzk-
um hagsmunum og muni
stuðla að aukinni hag-
sæld i framtíðinni. Hall-
dór er framsýnn maður
og vill ekki lenda í hópi
þeirra sem nefndir verða
þjóðemiseinangmnar-
sinnar af komandi kyn-
slóðum sem eiga eftir að
njóta góðs af EES-samn-
ingnum í framtíðimii."
hoMusta og heilbrigt líferni verður umfjöllun
í sérblaði sem fylgir Morgunblaðinu 21. maí.
Fjalfað verður um ýmsar hliðar á útiveru,
s.s. hestamennsku, golf, veiði, gönguferðir,
sund og aðra almenna heilsu- og líkamsrækt
og hugað að kostnaði, undirbúningi og
öðru tilheyrandi.
Þeir, sem áhuga hafa á að auglýsa i
þessu blaði, hafi samband við
auglýsíngadeild í síma 69 11 11.
Síðustu forvöð til að panta auglýsingu i þetta
blað er kl. 11 mánudaginn 18. mai.