Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
Lífeyrissjóður með slagsíðu
eftir Þórð Jónsson
Árið 1991 gaf Lífeyrissjóður sjó-
manna út myndskreyttan bækling,
„Lífeyrissjóður sjómanna. Hagnýt-
ar upplýsingar fyrir sjóðsfélaga og
aðstandendur þeirra“. í þessu riti
má lesa meðal annars, að árið 1990
greiddu rúmlega 7.000 manns í
sjóðinn, iðgjöldin það ár voru um
1.100 milljónir króna. Í árslok 1990
var hrein eign sjóðsins til greiðslu
lífeyris um 10.500 milljónir króna.
Þetta ár keypti sjóðurinn skuldabréf
fyrir um 1.770 miljónir kr., þ.a. af
Húsnæðisstofnun fyrir 1.030 millj-
ónir og húsbréf fyrir 100 milljónir.
Eins og sjá má er hér um ugg-
vænlegar tölur að ræða, um það
bil fjórða hver króna sem greidd
var í iðgjöld fór tii greiðslu lífeyris.
Aðeins þrír fjórðu iðgjaldanna urðu
eftir til vörslu og umönnunar sjóð-
stjórnar. í reikningum Lífeyris-
sjóðsins kemur að vaxtatekjur
sjóðsins voru 675 milljónir kr. og
verðbætur um 700 milljónir, sam-
tals 1.375 milljónir í viðbót við ið-
gjöld og er það huggun harmi gegn.
Samt hlýtur það að vera mikið
áhyggjuefni þegar greiða þarf um
273 milljónir í lífeyrissjóðsgreiðslur
af ekki nema tæplega 2.500 milljón
króna tekjum sjóðsins.
Þessi hörmulega staða lífeyris-
sjóðs sjómanna hefur að vonum
valdið sjóðsstjórn miklum áhyggj-
um. Þess vegna hefur nú verið lagt
fram stjórnarfrumvarp á Alþingi,
mál nr. 489 á þingskjali nr. 754;
Frumvarp til laga um breytingu á
lögum nr. 49/1974, um Lífeyrissjóð
sjómanna, sbr. lög nr. 10/1978, nr.
15/1980, nr. 48/1981 og nr.
78/1985. Þetta ríkisstjórnarfrum-
varp miðar auðvitað að því að bæta
stöðu Lífeyrissjóðsins gagnvart
bótaþegum enda ekki vanþörf á
þegar bótaþegarnir, sjóðseigend-
urnir, eru famir að rífa til sín nærri
níundu hveija krónu af árstekjun-
um. Enda segir orðrétt í athuga-
semdum. með frumvarpinu:
„Frumvarp þetta til breytinga á
lögum um Lífeyrissjóð sjómanna er
samið að tilhlutan stjórnar sjóðsins.
Þær breytingar sem hér eru lagðar
til eru af ýmsu tagi, þær snerta
bótarétt sjóðsfélaga, rekstur sjóðs-
ins, með hvaða hætti heimilt er að
ávaxta fé sjóðsins, varxtaútreikn-
ing vegna vangoldinna iðgjalda og
fleiri atriði sem nánar verður vikið
að í athugasemdum um einstaka
greinar.
Samkvæmt tryggingafræðilegri
úttekt sem gerð var á Lífeyrissjóði
sjómanna miðað við stöðu í árslok
1989 er mikill haili á sjóðnum. Um
nokkurt skeið hefur sjóðsstjórn leit-
að leiða til úrbóta. Þær breytingar
sem lagðar eru til á bótarétti sjóðfé-
laga miða aðallega að því að draga
úr útgjöldum sjóðsins. Þetta á við
um breytingu á ákvæði um örorku-
lífeyri, en á honum hefur orðið gíf-
urlega aukning á síðustu árum, svo
og barnalífeyri til örorkulífeyris-
þega. Hins vegar ,er gerð tillaga
um breytingu á rétti sambýlis-
kvenna sjóðsfélaga til makalífeyris,
sem miðar að því að auka þann
rétt sem fyrir hendi er samkvææmt
núgildandi lögum. Þar er þó ekki
um mikla útgjaldaaukningu að
ræða fyrir sjóðinn."
Þarna kemur greinilega fram
umhyggja sjóðsstjórnar fyrir hinum
illa stadda lífeyrissjóði sem ekki á
nema um 10.500 milljónir í hreinni
eign til greiðslu lífeyris á árslok
1990. Og þrátt fyrir þessa hörmu-
legu stöðu er lagt til að auka rétt
til makalífeyris nokkuð, en „þar er
þó ekki um mikla útgjaldaaukningu
fyrir sjóðinn að ræða“. Fyrr hefði
nú aldeilis mátt fyrr vera.
Stjórn þessa bágstadda lífeyris-
sjóðs skipa sex menn tilnefndir af
Farmanna- og fiskimannasambandi
íslands, Félagi íslenskra botnvörpu-
skipaeigenda, Landssambandi ísl.
Grindavík:
Grindavík.
SÝNING á verkum 13 lista-
manna var opnuð 1. maí, hátíð-
isdegi verkalýðsins, í nýjum
húsakynnum bæjarstjórnar á
Víkurbraut 62. Verkin eru öll í
eigu Listasafns ASÍ og er sýn-
ingin í tengslum við M-hátíð á
Suðurnesjum,
Jón Gunnar Stefánsson opnaði
sýninguna og lýsti því yfir að nýtt
húsnæði sem mun hýsa bæjar-
skrifstofur, bæjastjórnarfundi og
bókasafn, væri formlega tekið í
notkun með þessari sýningu. Hann
gat þess að sýningin væri tilkomin
vegna velvildar Olafs Jónssonar
forstöðumanns Listasafns ASÍ og
ætti hann þakkir skildar. Alls eru
39 verk eftir 13 listamenn á sýn-
ingunni og á hver listamaður 3
myndir. Jón færði þakkir til
útvegsmanna, Vinnuveitendasam-
bandi islands, Alþýðusambandi ís-
lands og Sjómannasambandi ís-
lands. Því miður veit ég ekki hverj-
ir eru stjórnarmenn núna en rekst-
urinn er hjá Tryggingastofnun Rík-
isins, Laugavegi 114. Þar geta
sjóðsfélagar fengið ársreikninga líf-
eyrissjóðsins.
Þar sem hér er um ríkisstjórnar-
frumvarp að ræða má gera ráð fyr-
ir að það komi fljótlega til af-
greiðslu, enda skammur tími til
stefnu. Þá má fastlega gera ráð
fyrir að umræður verði litlar um
þetta frumvarp, ef nokkrar, því síð-
ustu þingdaga eru annir slíkar að
ekki er tími til umræðna. Það er
því næsta víst að þetta frumvarp
verður að lögum án þess að nokkur
taki eftir því.
Nú sitja á Alþingi miklir sjó-
mannsvinir, þeir Árni Johnsen og
Guðmundur Hallvarðsson, og um
tíma í vetur var þar Guðjón A.
Kristjánsson. Allir þessir menn eru
stjórnarþingmenn, Guðjón að vísu
stjómarvaraþingmaður en hann
ætlar sér mikinn frama á stjórnmál-
asviðinu og mun því heilshugar
styðja frumvarpið. Líklegt er að
Guðmundur Hallvarðsson styðji
frumvarpið svo og Árni Johnsen ef
hann hefur tíma til að greiða at-
kvæði. Guðmundur Hallvarðsson er
frammámaður í samtökum sjó-
manna og hann á sæti í heilbrigðis-
og trygginganefnd þingsins og hon-
um er vafalaust ljós þörfin á að
skerða bótaréttinn til Lífeyrissjóðs
sjómanna. Þá er ekki síður ljós þörf
ríkissjóðs á að selja lífeyrissjóðnum
ríkisverðbréf, en kaupgeta lífeyris-
sjóðsins mun aukast við skertar
bótagreiðslur. Það gæti aftur á
móti vafist fyrir hinum almenna
sjóðsfélaga í Lífeyrissjóði sjómanna
hveija nauðsyn ber til að skerða
bótaréttinn. I ársreikningi lífeyris-
sjóðsins fyrir árið 1990, kafla um
sjóðsstreymi það ár, stendur að inn-
greiðslur hafi verið samtals 2430
milljónir, útgreiðslur 347 milljónir.
Annars staðar í reikningnum stend-
ur að hrein eign í árslok 1990 til
greiðslu lífeyris hafi verið 10.092
milljónir króna. í formála sama
plaggs stendur meðal annars:
„Samkvæmt úttekt tryggingafræð-
ings sjóðsins á áunnum lífeyrisrétt-
indum sjóðsfélaga námu skuldbind-
ingar lífeyrissjóðsins .. .milljónum
króna r ársloka 1990. Hrein eign
sjóðsins til greiðslu lífeyris dugir í
árslok til að standa undir þessum
skuldbindingum." (í stað upphæðar
er eyða.)
Og í athugasemdum við fram-
komið frumvarp stendur m.a.:
„Samkvæmt tryggingafræðilegri
úttekt sem gerð var á Lífeyrissjóði
sjómanna miðað við stöðu í árslok
1989 er mikill halli á sjóðnum. Um
menntamálaráðherra, Ólafs G.
Einarssonar, sem var viðstaddur
opnunina, fyrir að helga Suður-
nesjum M-hátíðahöld þéssa árs því
það ýti undir listviðburði í kjölfar-
ið.
Jón ræddi síðan um forsögu
þess að bæjarsjóður flytti starf-
semi sína í nýtt hús. 10 ár munu
vera liðin síðan fyrst var rætt um
nauðsyn þess að breyta um hús-
næði en varð ekki að veruleika
fyrr en nú. 13. maí næstkomandi
er fyrirhugað að halda fyrsta fund
bæjarstjórnar í nýju Kúsnæði og
síðan munu skrifstofur verða flutt-
ar seinna í mánuðinum. Síðsumars
er fyrirhugað að húsnæði bóka-
safnsins verði tilbúið. Jón bauð
síðan fjölmörgum gestum að njóta
sýningarinnar ásamt því að þiggja
veitingar í boði Grindavíkurbæjar.
Þórður Jónsson
„Það gæti aftur á móti
vafist fyrir hinum al-
menna sjóðsfélaga í Líf-
eyrissjóði sjómanna
hverja nauðsyn ber til
að skerða bótaréttinn.“
nokkurt skeið hefur sjóðsstjórn leit-
að leiða til úrbóta.“ Hvar er þessi
mikli halli?
Það er svo sem ekki von til að
almennur sjóðsfélagi komi auga á
hann, enda skiptir það ekki máli.
Þeir hafa ekkert um þetta að segja,
þetta er einfaldlega ekki þeirra sjóð-
ur nema að litlu leyti. Forystumenn
sjómanna, Guðmundur Hallvarðs-
son og Guðjón A. Kristjánsson,
gætu kannski leitað skýringa og
veitt félagsmönnum í Sjómannafé-
Iagi Reykjavíkur og Sjómannasam-
bandi íslands ef þeir vildu. En bóta-
skerðingin verður orðin að lögum
áður en skýringar fást, ,ef þær fást
nokkurn tíma. Og málsháttur þess-
ara frammámanna sjómanna, —
nær er skinnið en skyrtan — mun
svo sannarlega koma í ljós í þessu
máli sem öðrum sem þeir koma
nærri fyrir hönd sinna félags-
manna. Það er fullkomlega kominn
tími til fyrir sjómenn að huga að
því hvort ekki sé orðið vænlegast
að losna við þessa menn úr samtök-
um sínum, menn sem hafa tungur
tvær og tala sitt með hvorri. Þá
geta þessir þykjasthagsmunamenn
sjómanna snúið sér óskiptir að eig-
in hagsmunagæslu og pólitísku poti.
Það er hreinn óþarfi fyrir sjómanna-
samtök að verðlauna fals þeirra og
fleðulæti með launagreiðslum.
Bótaskerðingum úr Lífeyrissjóði
sjómanna geta sjóðsfélagar ekki
varist. Lífeyrissjóðurjnn er fyrir
löngu orðinn hluti ríkissjóðs með
10% skatttekjur sem takmark.
Stéttarfélagssvikara ættu sjómenn
að geta losað sig við.
Höfundur er loftskeytamaður.
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Guðný Jónsdóttir lék á þver-
flautu við opnunina.
Þrír nemendur Tónlistaskóla
Grindavíkur léku síðan fyrir gesti
ásamt kennara sínum Siguróla
Geirssyni.
FÓ
[^ Lambakjötsveisla 1.-10. maí
lOdaga
tilboð
veitinga-
húsanna á
lambakjots-
réttum
Dagana 1.- 10. maí bjóða
valin veitinjjahús þér Ijúffenjja
lambakjötsrétti á sérstöku
tilboðsverði. Hver staður býður
uppá fjóra rétti, af ólíkum toga og
á verði sem fólk hefur
ekki vanist áður. Uppskriftin
fylpfir hverjum rétti.
Verið velkomin og njótið vel!
SAMBAND VEITINGA- OG GISTIHUSA
SAMSTARFSHÓPUR UM SÖLU Á LAMBAKJÖTI
Myndlist á M-hátíð