Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAI 1992
25
Launahækkanir opinberra starfsmanna í Þýskalandi:
Búist er við að vinnudeilur
breiðist út í einkageiranum
Bonn. Reuter.
ÞÝSKA stjórnin varaði við því í gær að kjarasamningurinn við
opinbera starfsmenn, sem gengið var frá á fimmtudag, myndi
hafa slæm áhrif á efnahag Þýskalands. Litið er á samninginn sem
áfall fyrir Helmut Kohl kanslara. Talið er líklegt að verkalýðsfé-
lög í einkageiranum efni til verkfalla á næstu vikum, þar á með-
al samtök málmiðnaðarmanna, IG Metall, stærstu verkalýðssam-
tök landsins.
Rudolf Seiters, innanríkisráð-
herra Þýskalands, sem stjórnaði
samningaviðræðunum fyrir hönd
þýsku stjórnarinnar ásamt fulltrú-
um þýsku fylkjanna og sveitar-
félaga, sagði að samningurinn
myndi auka enn fjárlagahalla
Þýskalands, sem er mikill fyrir
vegna kostnaðarins'af sameiningu
þýsku ríkjanna. „Ég stend við þá
skoðun mína að samningur um
svo miklar launahækkanir feli í
sér mikla áhættu hvað efnahags-
þróunina várðar," sagði Seiters
innanríkisráðherra.
Samið var um 5,4% launahækk-
un, auk eingreiðslu og orlofsupp-
bóta. Hið opinbera bauð í upphafi
samningaviðræðnanna 4,8%
launahækkanir en samtök opin-
berra starfsmanna kröfðust 9,5%.
Monika Wulf-Mathies, leiðtogi
helstu samtakanna, DeTV, sagði
að samningurinn fæli í sér um
5,7% launahækkanir að meðaltali.
Þetta væri því mikill sigur fyrir
opinbera starfsmenn. Stjórnin tel-
ur hins vegar að launakostnaður
ríkisins aukist aðeins um 5,1%.
Aætlað er að samningurinn kosti
stjórnina í Bonn, fylkin og sveitar-
félögin um 16,11 milljarða marka,
tæpa 580 milljarða ISK.
Áfall fyrir Kohl
Margir fréttaskýrendur túlkuðu
samninginn sem áfall fyrir Helm-
ut Kohl kanslara og samsteypu-
stjórn hans, sem hefur sýnt ýmis
veikleikamerki að undanförnu eft-
ir óvænta afsögn Hans-Dietrichs
Genschers utanríkisráðherra.
Kohl hafði ítrekað hafnað kröfum
um meira en 4,8% launahækkanir
og hvatt launþega til að stilla
kröfum sínum í hóf. .
Hamburger Abendblatt sagði
að Kohl hefði vanmetið ólguna í
samfélaginu því almenningur
hefði haft samúð með verkfalls-
mönnunum vegna ónægju með að
stjórnmálamönnunum skyldi ekki
hafa tekist að leysa vandamál
landsins. „Það þarf meira en
nokkurra daga óþef af sorpi og
umferðaröngþveiti til að menn
sýni samstöðu með stjórnmála-
mönnum, sem þeir hafa misst trú
á,“ sagði blaðið.
Vextir hafa aldrei verið jafn
háir í Þýskalandi og nú og verð-
bólgan hefur ekki verið meiri í
áratug. Theo Waigel fjármálaráð-
herra stefnir að því að minnka
fjárlagahallann, sem í ár verður
um 45 milljarðar marka, 1.600
milljarða ÍSK, í 25 milljarða
Kohl
marka á næstu fjórum árum.
Hann og Kohl hafa ávallt sagt
að þetta sé hægt án þess að
hækka skatta. Þeir hyggjast ná
þessu markmiði með því að tak-
marka aukningu ríkisútgjalda við
2,5% - sem er minna en verðbólg-
an - og banna ný útgjöld nema
þeim verði mætt með sparnaði
annars staðar.
Viðskiptadagblaðið Handels-
blatt segir að útgjöld vinnumála-
ráðuneytisins eins - útgjalda-
mesta ráðuneytisins - hækki um
8% í 98 milljarða marka á næsta
ári og ef halda eigi stefnu Waig-
els til streitu verði önnur ráðu-
neyti að draga úr útgjöldum sín-
um sem þessu nemur. „Hvernig
þetta er hægt, í ljósi 5-6% launa-
hækkana, er hulin ráðgáta, öllum
nema Waigel," segir dagblaðið.
Handelsblatt spáir miklum átök-
um á milli flokkanna þriggja, sem
aðild eiga að samsteypustjórn
Kohls, þar sem ráðherrarnir
myndu betjast til að vernda ráðu-
neyti sín. „Þegar upp verður stað-
ið fara þeir í vasa borgaranna,"
heldur blaðið áfram.
Alda verkfalla yfirvofandi?
Talið er að launahækkanir op-
inberra starfsmanna leiði til er-
fiðra vinnudeilna í einkageiranum.
1G Metall, stærstu verkalýðssam-
tök Vesturlanda, með um Ijórar
milljónir félaga, fyrirhugar at-
kvæðagreiðslu í næstu viku um
hvort efna skuli til verkfalls. Sam-
tökin kreljast 9,5% launahækkana
en atvinnurekendur hafa aðeins
boðið 3,3%. Forystumenn samtak-
anna segja að atvinnurekendur fái
ekki meira en viku til að hækka
tilboð sitt.
Efni IG Mettall til verkfalls
myndi það hafa mun alvarlegri
afleiðingar fyrir efnahaginn en
vinnustöðvun opinberra starfs-
manna. Síðasta verkfall samtak-
anna var árið 1984, stóð í tvo
mánuði og minnkaði verga þjóðar-
framleiðslu Þýskalands um hálft
prósentustig það árið.
Efni málmiðnaðarmenn til
verkfalls gætu vinnudeilur breiðst
ört út til annarra greina. Sam-
ingaviðræður við verkalýðssam-
tök í byggingar- og prentiðnaði
hafa einnig gengið illa.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími ív
671800 2
VW Golf „Camp“ 1800 ’89, blár, 5 g., ek,
44 þ., álfelgur, o.fl. V. 950 þús.
Renault 21 Nevada GTX 4x4 station ’90,
Ijósblár, 5 g., ek. 72 þús., rafm. í öllu, o.fl.
V. 1.120 þús. Sk. á ód.
Toyota Corolla Sedan STD '88, ek. 45 þ.
V. 530 þús., stgr,
Daihatsu Applause 16X '91, dökkgrár,
sjálfsk., ek. 7 þ., vökvast., rafm. í rúðum,
o.fl. V. 1070 þús., stgr., sk. á ód.
MMC Colt GLX ’90, blásans, 5 g., ek. 30
þ., rafm. í rúðum, o.fl. V. 850 þús., sk. á ód
MMC Lancer GLX ’89, sjálfsk., ek. 32 þ.
V. 790 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLXi hlaðbakur ’91, 5 g., ek.
16 þ. V. 1050 þús., sk. á ód.
Peugeot 309 XE '88, 3ja dyra, ek. 26 þ.
V. 480 þús., stgr. sk. á ód.
Toyota Tercel 4x4 station '88, 5 g., ek.
72 þ. V. 650 þús., stgr.
Honda Civic GLi '91, 5 g., ek. 12 þ. V. 980
þús.
OPIÐ SUNNUD. KL. 14-16.
VW Polo „Fancy“ '90, ek. 18 þ., litað gler,
o.fl. V. 590 þús.
Chrysler New Yorker ’85, einn m/öllu, ek.
76 þ. V. 850 þús., skipti.
Subaru 1800 GL station '89, ek. 62 þ.
Dekurbíll. V. 890 þús., stgr.
Toyota Corolla XL station '91, 5 g. ek. 12
þús. V. 940 þús.
Toyota Hilux Douple Cap m/húsi '91, dies-
el, ek. 23 þ., ýmsir aukahl. V. 1670 þús. stgr.
Toyota Landcrusier diesel (langur) '85,
gott eintak, ýmsir aukahl. V. 1600 þús., sk.
á ód.
HÖFUM KAUPENDUR AÐ: TOYOTA
COROLLA, MMC COLT, HONDA
CIVIC, 0.FL. ÁRG. 'M-'Sk
Pampers Phases
Bleiur, sem breytast með
barninu þínu.
Junior bleian er ný. Þetta er stærri bleia
en áður hefur verið til frá Pampers og
mjög rakadræg.
Hún er mjó milli fótanna, það
auðveldar smáfólkinu allar hreyfingar.
alit aö 3,5 kg 3 - 6 kg 4-9 kg 8 - 18 kg 10 - 20 kg 12-25 kg
mij
Islensk IIIII
AmerísKa
TUNGUHÁLS 11 SlMI 682700
JUNIOR