Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAI 1992
29
Þjóðleikhúsið:
Borgarfjörður:
Tvö leikrit sýnd í
50. sinn á sunnudag
50. SÝNING á barnaleikritinu
Emil í Kattholti eftir Astrid Lind-
gren verður sunnudaginn 10. maí
kl. 17.00. Leikritið hefur hlotið
Tónleikar
Kirkjukórs
Akraness
KIRKJUKÓR Akraness efnir til
tónleika í Safnaðarheimilinu
Vinaminni sunnudaginn 10. maí
nk. kl. 17.00. Á efnisskrá kórsins
er Requiem Op. 48 og Cantique
de Jean Racine Op. 11 eftir
Gabriel Fauré.
Einsöngvarar á tónleikunum verða
Margrét Bóasdóttir sópran og Hall-
dór Villhelmsson bassi. Undirleikari
fádæma góðar undirtektir jafnt
meðai yngri sem eldri leikhús-
gesta og hefur verið sýnd fyrir
fullu húsi síðan á frumsýning-
unni í febrúar. Yfir 20 þúsund
manns hafa séð sýninguna sem
er alla jafna á laugardögum kl.
14.00 og sunnudögum kl. 14.00
og 17.00 og miðvikudögum kl.
17.00. Síðasta sýning á Emil
verður 31. maí.
Þennan sama sunnudag 10. maí
verður einnig 50. sýning á leikritinu
Ég heiti ísbjörg ég er ljón eftir
Vigdísi Grímsdóttur í leikgerð Há-
vars Sigurjónssonar. Leikritið hefur
verið sýnt á Smíðaverkstæðinu,
leikrými sem tekið var í notkun í
vetur þar sem ekki var rúm fyrir
það á Litla sviðinu vegna velgengni
Kæru Jelenu. Sýningum á ísbjörgu
fer nú fækkandi og verða síðustu
sýningar 6. júní. Leikritið verður
Bænadagamót
í Reykholti
SAMTÖKIN Ungt fólk með
hlutverk voru með bænadaga-
mót í Reykholti í Borgarfirði.
og tóku um 60 manns þátt í
því. Kennari á mótinu var Ken
McGreavy frá Englandi. Fræddi
hann mótsgesti um ýmsar hliðar
heilags anda og þjónustu í krafti
hans. Starfar hann í þjónustu-
hópi í kirkju sinni í Englandi
og ferðast um til uppfræðslu
utan heimalands.
í sumar kemur skoskur hópur
á vegum Ungs fólks með hlutverk.
Verður hópurinn með boðunar-
samkomur víðs vegar um landið
og endar um verslunarmannahelg-
ina á Biblíuskólanum á Eyjólfs-
stöðum á Héraði, þar sem hlut-
verkið rekur Biblíuskóla. Sam-
komur Ungs fólks með hlutverk
eru í húsi KFUM/K á Lyngheiði
í Kópavogi á sunnudögum kl.
Myndin var tekin á 100. sýningu
á Kæru Jelenu. F.v.: Stefán
Baldursson þjóðleikhússljóri,
Halldóra Björnsdóttir, Hilmar
Jónsson, Anna Kristín Arn-
grímsdóttir, leikarar, Þórhallur
Sigurðsson leikstjóri og leikar-
arnir Baltasar Kormákur og
Ingvar E. Sigurðsson.
Á innfelldu myndinni eru Sturla
Sighvatsson og Aníta Briem í
hlutverkum Emils og ídu í Emil
í Kattholti.
ekki tekið til sýninga í haust.
Miðvikudaginn 6. maí var svo
100. sýning á Kæru Jelenu. Þetta
er í fyrsta skipti í sögu Þjóðleikhúss-
ins að sama leikritið er sýnt svo
oft á einu leikári. Af þessu tilefni
var starfsfólki hússins boðið að sjá
sýninguna og var leikurum og leik-
stjóra vel fagnað að henni lokinni.
Uppselt er á allar sýningar sem
auglýstar hafa verið en ráðgert er
að fara með Kæru Jelenu i stutta
leikferð norður og austur um land
í vor.
verður Marteinn Hunger Friðriks-
son dómorganisti. Einnig syngur
Margrét Bóasdóttir aríu og sönglög
eftir J.S. Bach við undirleik Mar-
teins H. Friðrikssonar. Söngstjóri
Kirkjukórs Akraness er Jón Olafur
Sigurðsson og formaður er Ingimar
Magnússon.
Kirkjukór Akraness var stofnað-
ur í desember árið 1942 og verður
því 50 ára á þessu ári. Kórinn hef-
ur víða haldið tónleika og sungið
við hin ýmsu tækifæri bæði innan-
lands og utan, þá hefur kórinn kom-
ið fram í sjónvarpi nokkrum sinnum
svo og í útvarpi.
Kórinn stefnir að því að halda.
veglega upp á afmælisárið með fjöl-
breytu verkefnavali.
Læknafélag Reykjavíkur:
Fræðslufundur um næringu og heilsu
Á SÍÐASTA ári gekkst Læknafélag Reykjavíkur fyrir tveimur al-
mennum fræðslufundum um heilbrigðismál. Sérstök áhersla var lögð
á varnir gegn sjúkdómum og á möguleika hvers og eins til að gæta
að og styrkja eigið heilbrigði. Þriðji fundurinn í þessum flokki verð-
ur haldinn nk. Iaugardag. Efni fundarins að þessi sinni er næring
og heilsa, og hafa verið fengnir nokkrir af helstu sérfræðingum
landsins í þessum málaflokki til að segja frá því, sem hæst ber í
rannsóknum á tengslum heilsu og næringar.
í upphafí mun Laufey Stein-
grímsdóttir, skrifstofustjóri Mann-
eldisráðs, kynna niðurstöður úr
Brúðkaupsleikur í
Borgarkringlunni
SJÖ verslanir í Borgarkringlunni
bregða á brúðkaupsleik með FM
frá 9. maí til 1. ágúst.
Þegar keypt er hjá neðangreind-
um verslunum til brúðkaupsins fer
brúðarparið sjálfkrafa inn á lista
sem Valdís Gunnarsdóttir á FM
dregur úr vinningshafana einu sinni
í mánuði. Það brúðarpar vinnur
glæsilega brúðkaupsferð til grísku
eyjarinnar Korfu með Samvinnu-
ferðum-Landsýn. Ef keypt er hjá
fleirum en einu af neðangreindum
fyrirtækjum aukast líkur brúðhjón-
anna á því að vinna ferðina. Leikur-
inn verður opnaður í Borgarkringl-
unni með skreyttum brúðarbíl og
tískusýningu á brúðarkjólum og
kjólfötum frá Brúðarkjólaleigu
Katrínar Óskarsdóttur í dag, laug-
ardag, kl. 14.00.
Eftirtaldar sjö verslanir eru sér-
staklega merktar sem þátttakendur
í þessum brúðkaupsleik: Blóm og
listmunir, Demantahúsið, Nýja
kökuhúsið, Snyrtistofan NN, Hjört-
ur Nielsen, Stepp og Blái fuglinn.
(Úr fréttatilkynningu)
Eitt atriði úr myndinni Lostæti.
Regnboginn sýnir
myndina Lostæti
REGNBOGINN hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Lostæti.
Margir hafa reynt að lýsa því
um hvað myndin fjaliar. Þær til-
könnun á mataræði íslendinga.
Sagt verður frá mismunandi matar-
æði fólks eftir aldri, búsetu og að-
stæðum, og greint verður frá breyt-
ingum á matarvenjum, sem hafa
orðið síðastliðna tvo áratugi.
Því næst mun Guðmundur Þor-
geirsson yfirlæknir og formaður
Manneldisráðs kynna rannsóknir
um samband mataræðis og krans-
æðasjúkdóma. Hann mun fjalla um
um meinþróun æðakölkunar og
helstu kenningar um hvernig kól-
esteról veldur þrengslum í
kransæðum. Einnig mun verða
fjallað um hugsanleg verndandi
hlutverk andoxunarefna gegn æða-
kölkun, en slík efni eru m.a. í C-
og E-vítamíni og karóteni, sem öll
finnast í ríkum mæli í grænmeti
og ávöxtum.
Inga Þórsdóttir, lektor í næring-
arfræði, setur fram spurningu um
hvort breyta þurfi matseðlum veit-
ingahúsa, mötuneyta og sjúkra-
stofnana og þá um leið hvort mat-
ur skipti máli fyrir heilsuna og
pyngjuna. í erindi sínu mun Inga
fjalla um aðgerðir samfélagsins og
einstaklinga í þessu sambandi og
misræmið milli þekkingar og að-
gerða.
Ari Jóhannesson yfirlæknir mun
segja frá merkri tilraun, sem gerð
var í mötuneyti Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga. Með
samræmdri fræðslu fyrir starfsfólk
verksmiðjunnar og meira framboði
á hollum mat í mötuneyti var hægt
að lækka kólesteról í blóði starfs-
manna verulega, með það markmið
í huga að draga úr skemmandi
áhrifum kólesteróls á æðaveggi.
Kristín Sigfúsdóttir næringar-
fræðingur og menntaskólakennari
á Akureyri mun fjalla um hvernig
neysluvenjur barna mótast og
hvernig breyta megi mötuneytisað-
stöðu á dagheimilum og skólum til
að tryggja, að öll börn fái hollt
viðurværi.
Að lokum mun Jón Gíslason,
deildarsérfræðingur við Hollustu-
vernd ríkisins, skýra frá niðurstöð-
um könnunar á mataræði íþrótta-
fólks á landsliðsmælikvarða og
verða niðustöður bornar saman við
mataræði almennings.
Fundarstjóri: Katrín Fjeldsted,
læknir. Fundurinn verður haldinn
í Háskólabíói, sal 3, laugardaginn
9. maí kl. 13-16. Öllum er heimill
aðgangur. Lýsi hf. styrkir þennan
fund.
Guðsþjónusta og kaffi-
sala Kvenfélags Breiðholts
Á MÆÐRADAGINN, sunnudaginn 10. maí, verður guðsþjónusta
og kaffisala í Breiðholtskirkju í Mjódd í umsjá Kvenfélags Breið-
holts. I guðsþjónustunni mun Vigdís Einarsdóttir, formaður kven-
félagsins, prédika, Anna Birgitta Bóasdóttir og Árný Albertsdóttir
syngja tvísöng og kvenfélagskonur munu aðstoða með ritningar-
lestri o.fl.
Að guðþjónustu lokinni verða
síðan kaffisala og hlutavelta á veg-
um kvenfélagsins í hinum nýja sal
safnaðarheimilisins og mun Dúfa
Einarsdóttir þá syngja við undir-
leik Daníels Jónassonar. Kven-
félagið, sem alla tíð hefur af frá-
bærum dugnaði stutt safnaðar-
starfið og kirkjubygginguna, hefur
á liðnum vetri gefið allar innrétt-
ingar og tæki í eldhús safnaðar-
heimilisins og er það nú því sem
næst fullbúið. Eru kaffisalan og
hlutaveltan haldnar til fjáröflunar
vegna þessa verkefnis.
Mikið hefur verið unnið við safn-
aðarheimilið í vetur og þótt nokkuð
vanti enn á það sé fullbúið langar
okkur að gefa fólki tækifæri til
að skoða það sem unnið hefur ver-
ið og kynna sér þær framkvæmdir
sem framundan eru. Er það því
von okkar að sem flestir hafi tæki-
færi til að kynna sér þá fjölbreyttu
aðstöðu til safnaðarstarfs sem
skapast hefur með tilkomu safn-
aðarheimilisins um leið og menn
styrkja áframhaldandi fram-
kvæmdir með því að kaupa sér
góðar veitingar eða taka þátt í
hlutaveltunni.
Sr. Gísli Jónasson.
Fjallasyrpa Útvistar 1992
FJALLGÖNGUR verða á sunnudögum í sumar. í fyrstu eru þær á
tveggja vikna fresti en vikulega frá 21. júní. Fyrsta fjallgangan er
10. maí á Búrfell í Grímsnesi og sú síðasta 23. ágúst á Ármanns-
fell. Auk þess eru láglendisgöngur í nágrenni fjallanna í tengslum
við fjallgöngurnar.
raunir hafa tekist vægast sagt mis-
jafnlega. Það eina sem hægt er að
segja með góðri samvisku um
myndina er að hún kemur á óvart.
Þessar ferðir eru á eftirtöldum
dögum:
10. mai kl. 10.30 Búrfell í Gríms-
nesi (536 m).
24. maí kl. 10.30 Ingólfsfjall (551 m).
7. maí kl. 10.30 Akrafjall (586 m).
21. júní kl. 9.00 Þn'hyrningur (678 m).
28. júní kl. 10.30 Esja: Þverfells-
horn — Kerhólak. (839 m).
5. júlí kl. 10.30 Botnsúlur (1.095 m).
12. júlí kl. 9.00 Högnahöfði (1.030 m).
19. júlí kl. 8.00 Þórisjökull (1.350 m).
26. júlí kl. 10.30 Hengill (803 m).
2. ág. kl. 9.00 Skatesheiði (1.055 m).
9. ágúst kl. 9.00 Skjaldbreiður
(1.060 m).
16. ágúst kl. 9.00 Móskarðshnúkar
— Hátindur (909 m).
23. ágúst kl. 10.30 Ármannsfeil
(766 m).
Auk ofangreindra fjalla verða
famar þijár ferðir á Heklu í sum-
ar. Þær eru ekki hluti af fjallasyrp-
unni en ein Hekluferð er ágætur
bónus á hana. Hekluferðirnar vei-ða
á laugardögum sem hér segir:
27. júní kl. 8.00 Hekla (1.491 m).
18. júlí kl. 8.00 Hekla (1.491 m).
15. ágúst 8.00 Hekla (1.491 m).
Þeir sem taka þátt í þessum íjall-
göngum fá litla fjallabók og í hana
verður stimplað með sérstökum
stimpli til staðfestingar þátttöku
fyrir hverja einstaka ferð. Að lok-
inni fjallasyrpunni í haust fær sá
sem í flestar fjallgöngur fór sérstök
verðlaun.