Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 30

Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAI 1992 Lánasjóður íslenskra námsmanna: F rumvarpi um LÍN vís- að til þriðju umræðu ANNARRI umræðu um frumvarp til Iaga um Lánasjóð íslenskra náms- manna, LIN lauk stundarfjórðungi eftir miðnætti í nótt. „Peningar eru ekki annað en ávísun á verðmæti," sagði Eyjólfur Konráð Jóns- son. „Hvað er verðmætara en menntun?" spurði þingmaðurinn. í gær voru greidd atkvæði um frumvarpið tillögur stjórnarliða voru sam- þykktar en tillögur stjórnarandstöðu voru felldar og málinu vísað til þriðju umræðu. Annarri umræðu var frestað á níunda tímanum síðastliðinn mið- vikudag og hafði þá staðið með nokkrum hléum í 14 stundir og tæp- lega þijá stundarfjórðunga. Það var þá auðheyranlegt að stjórnarand- stæðingar áttu margt vantalað við aðstandendur frumvarpsins; mennt- amálaráðherra og stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar. En það var einnig ljóst að þessari umræðu skyldi ljúkja á 136 þingfundi. „Eftirágreiðslur" — svart á hvítu Málið var tekið til umræðu á 136 þingfundi kl. 18.30 en kl. 19 varð Valgerður Sverrisdóttir (F-Ne) að Mistök við atkvæða- greiðslu 'ENDURTAKA varð atkvæða- greiðslu á Alþingi í gær vegna þess að Tómas Ingi Olrich þing- maður Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með rafbúnaði flokksbróður síns og sessunautar Matthíasar Bjarnasonar. Þessi at- burður varð vegna mistaka. í gær voru greidd atkvæði um frumvarp til laga um Lánasjóð ís- lenskra námsmanna, LÍN. Þegar greidd voru atkvæði um breytingart- illögu á 18. grein frumvarpsins með rafbúnaði, kvaðst Tómas Ingi Olrich, fimmti þingmaður Norðurlands eystra, hafa í óðagoti ýtt á vitlausan hnapp. Þingforseti benti á að at- kvæðagreiðsla stæði enn yfír og þingmaðurinn gæti leiðrétt sín mis- tök með því að styðja á réttan hnapp. Tómas Ingi sagði málið ekki þannig vaxið. Hann hefði ýtt á hnapp í borði síns sessunautar Matthíasar Bjarn- asonar fyrsta þingmanns Vestfirð- inga sem væri fjarverandi. Þing- mönnum voru þessi mistök ekki leið og hlaust nokkur hlátur af. Salome Þorkelsdóttir þingforseti varð að slá í bjöllu, þótti henni það miður, þegar svo vel lægi á þingheimi. Atkvæða- greiðslan var síðan endurtekin og breytingartillagan samþykkt með 33 samhljóða atkvæðum. gera hlé á sinni ræðu í einn og hálf- an tíma. Hún hélt síðan áfram sinni átölu gegn frumvarpinu hvatti hún ráðherra mjög til að reyna að ná einhveiju samkomulagi um þetta þetta mál og hverfa frá verstu ákvæðunum, hún nefndi sérstaklega hinar svonefndu „eftirágreiðslur", þ.e. að námsmenn fengu ekki náms- lán fyrr en þeir hefðu skilað vottorði um námsárangur og yrðu að brúa bilið með bankalánum. Finnur Ing- ólfsson (F-Rv) tók mjög undir orð fyrra ræðumanns; að menn settust niður reyndu að ná samkomulagi. Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra veitti andsvar við margvís- legri gagnrýni og spumingum sem fram höfðu komið. Ráðherra lét þess getið að það væri alveg sjálfsagt að milli 2. og 3. um- ræðu, færi fram athugun á því hvaða áhrif að hefði að falla frá eftirágreiðslum. Og Finni Ingólfs- syni sýnt svart á hvítu hvað slík breyting þýddi. Svavar Gestsson (Ab-Rv) þakkaði ráðherra fyrir þessa yfirlýsingu, jafnvel þótt hann hefði ekki lofað neinni efnislegri breytingu. Fleiri ræðumenn urðu til að fagna orðum menntamálaráðherra og þótti boða gott Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra ítrekaði þann skilning Svavars Gestssonar að hann hefði ekki gefíð nein fyrirheit heldur að- eins sagt það sjálfsagt að skoða þetta atriði milli 2. og 3. umræðu. Hann væri reiðubúinn til að láta athuga það sérstaklega _ í mennta- málanefnd. Anna Ólafsdóttir Björnsson (SK-Rn) vonaði samt að þetta yrði skoðað með góðum hug og boðaði það að einhveiju væri hægt að breyta. Verðmætamat Ingibjörg Sólrún Gisladóttir (SK-Rv) sagði orð menntamálaráð- herra enn alltof óljós. Til þess að menntamálanefnd gæti athugað mál- ið milli 2. og 3. umræðu yrði að ræða málið nánar, til þess að mennta- málaráðherra og formaður mennta- ingibjörg Sóirún málanefndar Sigríður A. Þórðardótt- ir (S- Rn) skyldu betur athugasemd- ir stjórnarandstæðinga. Flutti hún nokkrar þessara athugasemda og máttu stjórnarliðar sæta hörðu ámæli, m.a. fyrir skammsýni, peningahyggju í verðmætamati, tor- velda mönnum menntaveginn, ekki síst konum, sérstaklega einstæðum mæðrum. Bölmóður hér á landi væri slíkur að við tryðum því að við hefð- um ekki efni á nokkrum sköpuðum hlut. Að allt hjálpræði kæmi að utan, við gætum ekkert og kynnum ekk- ert. Þetta væri að verða markviss stefna í Evrópuríkjum utan Efna- hagsbandalagsins. Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) sagði Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hafa flutt „þrum- ræðu“. Hann vakti athygli á því að konur hefðu mikið látið til sín heyra í þessari kvöldum- ræðu sem hann taldi vera þá merk- ustu sem haldin hefði verið á þessu Eri61fur Konráð leiðilega þingi“. Menntun væri ekki bara til gamans heldur íjárhagslega hagstæð og það skyldu „við karlarn- ir“. Karlar skildu líka að það væri hagstætt að fjárfesta í konum. Ekki bara eiginkonum, heldur einnig tölvufræðingum og skáldum. Eyjólf- ur Konráð sagði menn vilja græða. Eyjólfi Konráð þótti menntaðar kon- ur vænleg fjárfesting. Ræðumaður sagði peninga ekki vera annað en ávísun á verðmæti. Hvað væri verð- mætara en að mennta börnin okkar? Eyjólfur Konráð átaldi bölmóð og svartnættistal sem hefði hér tíðkast árum eða áratugum saman. Þessi barlómur og aumingjadómur gengi ekki lengur. Við ættum að mennta börnin okkar og græða á því. Það skildu menn. Guðrúnu Helgadóttur (Ab-Rv) var verðmætamat fyrra ræðumanns ekki með öllu óskapfellt. Hún vakti athygli á nýlegum fréttum af arð- vænlegum afrekum manna við tölv- ur, þar hefði menntun reynst arð- vænleg. Kl. 0.17 sleit Salome Þorkelsdótt- ir forseti Alþingis fundi, ekki voru fleiri á mælendaskrá. Þá hafði þessi önnur umræða um frumvarp til laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna tekið 23 klukkustundir og stundar- fjórðung en fyrri umræða um frum- varpið tók 10 klukkustundir og rúm- lega 3 stundarfjórðunga. Atkvæðagreiðslan í gær var gengið til atkvæða um frumvarpið; breytingartillögur og einstakar greinar. Aðaltilllaga minnihluta menntamálanefndar um að vísa málinu frá var felld með 30 atkvæðum gegn 21. Stjórnarandstaðan fór fram á að greidd væru atkvæði sér um hvern staflið í breytingartillögu minnihluta við 6. gr. frumvarpsins en sú grein ljallar m.a. um að námslán skuli aldrei veitt fyrr en námsmaður hafi skilað vottorði um tilskilda skóla- sókn; „eftirágreiðsluákvæðið" og um lántökugjöld og ábyrgðir. Beðið var um nafnakall um þann lið tillögunnar sem gerir ráð fyrir að einungis skyldi skila vottorði um námsárangur á fyrsta misseri. Þetta er það ákvæði sem stjórnarandstæð- ingar deildu hvað harðast á í ann- arri umræðu. Breytingartillaga minnihluta var felld með 29 atkvæð- um gegn 21. 12 voru ljarstaddir en einn þingmaður greiddi ekki at- kvæði. Það var Össur Skarphéðins- son (A-Rv) formaður _ þingflokks Alþýðuflokks. Halldór Ásgrímsson (F-Al) og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir (SK-Rv) vöktu athygli á þess- ari sérstöðu Ossurar og vonuðu að þetta boðaði það að þingmenn í stjórnarliði athuguðu sinn gang milli 2. og 3. umræðu og samþykktu breytingar við 3. umræðu. Átkvæðagreiðslur héldu áfram og ekki báru niðurstöðurnar vitni um mikil sinnaskipti þingmanna hvort heldur í liði stjórnar eður stjórnar- andstæðinga. Stuðningsmenn ríkis- stjórnar studdu frumvarpið og breyt- ingartillögur meirihluta mennta- málanefndar, stjórnarandstæðingar lögðust gegn eða sátu hjá. Stjórnar- liðar lögðust gegn tillögum minni- hluta menntamálanefndar en þó má þess geta að Össur Skarphéðinsson var ekki andvígur breytingartillögu stjórnarandstæðinga við 16. gr. um að stjórn Lánasjóðsins væri heimilt, ef hagsmunasamtök námsmanna óskuðu eftir, að draga félagsgjald frá láni, nema fram komi í lánsum- sókn ósk um að það væri ekki gert. Þingmaðurinn kaus að greiða ekki atkvæði. Að svo búnu var greinin samþykkt óbreytt og þar er áskilið að ósk námsmanns á lánsumsókn- inni þurfi til að unnt sé að draga félagsgjaldið frá láninu. Páll Pét- ursson (F-Nv) formaður þingflokks Framsóknarmanna greiddi ekki at- kvæði um breytingartillögu frá minnihlutanum varðandi 8. gr. sem flallar um endurgreiðslu lána. Þegar greidd voru atkvæði um breytingartillögu á 18. grein kvaðst Tómas Ingi Olrich (S-Ne) hafa í óðagoti ýtt á vitlausan hnapp en greidd voru atkvæði með rafbúnaði. Þingforseti benti honum á að at- kvæðagreiðsla stæði enn yfir og hann gæti leiðrétt sín mistök með því að styðja á réttan hnapp. Tómas Ingi sagði málið ekki þannig vaxið. Hann hefði ýtt á hnapp í borði síns sessunautar Matthíasar Bjarnasonar (S-Vf) sem væri fjarverandi. Þing- mönnum voru þessi mistök ekki leið og hlaust nokkur hlátur af. Salome Þorkelsdóttir þingforseti varð að slá í bjöllu, þótti henni það miður, þegar svo vel lægi á þingheimi. Atkvæða- greiðslan var síðan endurtekin og breytingartillagan samþykkt með 33 samhljóða atkvæðum. Þingmenn gerðu iðulega grein fyrir atkvæði sínu. Voru það oftast stjórnarandstæðingar sem átöldu ríkisstjórnina, stjórnarflokkanna ýmist sér eða sameiginlega. Páll Pétursson gerði grein fyrir sínu atkvæði þegar greidd voru atkvæði um „eftirágreiðslur“. Hér væri gerð tilraun til að nema á brottu alversta ákvæðið. Hann rakti meintan sam- starfsvilja framsóknarmanna and- spænis meintri einsýni stjórnarliða. „En það hefur fram að þessu engu tauti verið komandi við stjórnarand- stöðuna." En Páll breytti orðavali sínu snarlega í „stjórnarliðið" er hann heyrði viðbrögð og furðu þing- manna. Við lok atkvæðagreiðslunnar bar það til tíðinda að stjórnarandstæð- ingar greiddu atkvæði gegn því að frumvarpinu skyldi vísað til 3. um- ræðu. Páll Pétursson sagði það mjög óvanalegt að leggjast gegn því að frumvarp færi til 3. umræðu en þetta frumvarp væri svo miklu verra en gildandi lög. Eiður Guðnason umhverfisráðherra sagði verið að leggjast gegn því að málið fengi eðlilega þinglega meðferð. Það var síðan samþykkt með 29 atkvæðum gegn 21 að vísa málinu til 3. um- ræðu. Ólafur G. ■ SIÐMENNT, félag um borg- aralegar athafnir gengst fyrir fundi um borgaralegar athafnir miðvikudaginn 13. maí klukkan 20.30 í húsi Félags bókagerðar manna að Hverfisgötu 21. Á fundinum verður kynntur nýút- kominn bæklingur félagsins um borgaralega útför, en um er að ræða kynningar- og umræðufund. 0CAFLBAR Stórhöfða 17, við GuUinbrú, sími 67 48 44 margnwfrfaMfr Metsölublad á hverjum degi! * Isafjörður: Ný kirkja mun rísa á gömlu lóðinni Isafirði. NIÐURSTÖÐUR liggja nú fyrir í lokaðri samkeppni um teikningar af kirkju á lóð gömlu kirkjunnar sem brann 1987. Fjórum aðilum var boðið að taka þátt í samkeppninni og varð hópur undir stjórn Hróbjarts Hróbjartssonar arkitekts hlutskarpastur. Kirkjan var mjög nútímaleg í formi, en fellur mjög vel að afar þröngum og hornskökk- um byggingarreit á horni Hafnarstrætis og Sólgötu. Fjögurra manna dómnefnd undir formennsku Gunnlaugs Jónassonar bókasala á Isafírði mat tillögurnar en ákvörðun nefndarinnar er endan- leg og má því ætlað að hægt verið að hefjast handa um byggingu kirkjunnar í sumar. Miklar deilur hafa staðið um kirkjubygginguna nánast alveg frá bruna þeirrar gömlu, en nú virðist að þær hafi að mestu verið settar niður og flest- ir ánægðir með teikningu Hróbjarts og félaga hans sem var samþykkt með öllum atkvæðum í dómnefnd- inni. í niðurstöðu dómnefndar segir að kirkja og safnaðarheimili myndu skapa byggingu sem bæði er vel heppnuð hvað ytra útlit varðar og haganlega gerð hið innra. Endur- gert Kristslíkneski úr gömlu kirkj- unni minnir á öldur úthafsins. Þar sem hver báran rís af annarri og hæfí Isafjarðarkirkju þar sem lífs- björgin er sótt í sjóinn. Úlfar. Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Ný kirkja á Isafirði sem áætlað er að rísi úr grunni þeirrar gömlu og grunni safnaðarheimilisins við Sólgötu. Áætlað er að hefja byggingarframkvæmdir í sumar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.