Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 34

Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992 NORRÆNT GIGTARAR ÞVAGSYRUGIGT eftir Arhi Jón Geirsson Þvagsýra verður til vegna niður- brots Iqarnasýru í líkamanum og er í mismiklu magni í blóðvökvan- um. Leysanleiki þvagsýrunnar er takmarkaður þannig að ef hún fer yfir mettunarmarkið fellur hún út sem kristallar og það getur valdið svonefndri þvagsýrugigt. Hverjir fá þvagsýrugigt? Fram að kynþroskaaldri er þvagsýran langt undir mettunar- mörkum og þvagsýrugigt er því óþekkt meðal barna. Eftir kyn- þroska hækkar þvagsýran í körlum og þeir sem hafa óeðlilega hátt þvagsýrumagn í blóðinu geta feng- ið þvagsýrugigt 10-20 árum síðar. Hjá konum verður ekki sambærileg hækkun á þvagsýru og hjá körlum við kynþroska en talið er að kven- hormónið estrogen auki útskilnað á þessari sýru og haldi henni þar "með undir mettunarmörkum. Kon- ur fá því ekki þvagsýrugigt fyrr en eftir tíðahvörf. Einungis um fímmtungur þeirra sem hefur hækkun á þvagsýru í blóði fær gigt af hennar völdum. Hún er mun algengari meðal karla en kvenna en tíðnin hjá þeim nálg- ast þó það sem er hjá körlum eftir því sem lengra líður frá tíðahvörf- um. Langflestir þeirra sem fá þvagsýrugigt útskilja of lítið magn af þvagsýru í gegnum nýrun, mið- ~"Sð við framleiðslu líkamans af henni. Því meiri sem líkamsmass- inn er því meira verður niðurbrot kjamasýranna og því hærri verður þvagsýran í blóð- inu og líkumar á þvagsýrugigt auk- ast að sama skapi. Þvagræsilyf minnka útskilnað á þvagsýra og era þar með oft orsök þvagsýrugigtar. Afengi minnkar einnig útskilnað á þvag- sýra gegnum nýrun og er samband áfengisneyslu og þvagsýragigtar vel þekkt. Innmatur og annar framuríkur matur sem inniheldur mikið af kjamasýram er talinn geta valdið einhverri þvagsýra- hækkun en það er þó talið óvera- legt og yfirleitt er ekki talin ástæða til að breyta mataræði fólks með þvagsýragigt. Einkenni Þvagsýragigt er algengur sjúk- dómur og byija einkennin skyndi- lega., oft að næturlagi, með miklum verkjum og eymslum í stóratánni. Verkurinn er mjög sár og táin svo viðkvæm að sjúklingurinn þolir ekki að við hana sé komið. Nætur- svefn verður enginn og sjúklingur- inn haltrar berfættur til læknis með eldrauða og stokkbólgna stór- utá. Um 70% þvagsýrugigtarkasta bytja á þennan hátt en bólgan Svissneskur hótel- og ferðamálaskóli Si ára reyn.sla - I cöa 2ju ára námskeiö á ensku Hótelrekstrarnámskeið sem lýkur með prófskírteini - Almennur rekstur og stjórnun - Þjálfun i framkvxmdastjórn HCIM A rctiindi. Námíð fæst viðurkcnnt í bandarískum og cvrópskum háskólum. HOSTR Ferðamálafræði lýkur með prófskírteini - Ferðaskrifstofunámskeið viðurkennt af IATA/UFTAA - Þjálfun í framkvæmdastjórn Skriftð til: HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL. 1854 D Leysin, Switzerland. Sími: 9041-25-342611 - Fax: 9041-25-341821. STEINAR WAAGE kr. 2.995,- Ath.: Mjúkt Stærðir: 31/2-71/2 og gott leður Litun hvítur, beige og svartur Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsiuafsláttur. Toppskórinn, Veltusundi, sími 21212 Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212 getur líka byijað í öðram liðum og þá oftast í neðri útlimum og frekar í smáum liðum en stórum. Þó bólgna einnig stórir liðir eins og ökkli og hné af völdum þessa sjúkdóms. Einkennandi fyrir þvag- sýragigt er hversu verkurinn og bólgan er svæsin og ef liðurinn er lítill verður húðin yfír honum dumbrauð. Ef sjúklingar fá endur- tekin þvagsýragigtarköst og þvag- sýran í blóðinu er stöðugt há safn- ast hún fyrir og fellur út í stoðvef líkamans og sést þá sem hvítgular skellur á eyrum, í kringum liði og víðar. Nauðsynlegt er að hindra að þvagsýragigt nái þessu stigi því þessar útfellingar geta valdið skemmdum á liðum og líffæram. Meðferð og horfur Ástæðulaust er að meðhöndla hækkaða þvagsýru hafi viðkom- andi ekki fengið þvagsýragigt. Hana má lækna með bólgueyðandi gigtarlyíjum sem slá fljótt og vel á verkinn og bólguna. Verstu ein- kennin ganga yfír á nokkrum dög- um og meðferðin tekur 2-3 vikur. Að henni lokinni þarf að ákveða hvort ástæða er til að lækka þvag- sýrana í blóðinu með lyfjum sem þá þarf oft að gefa í fyrirbyggj- andi skyni til æviloka. Oft er hægt að lækka þvagsýruna með öðrum aðferðum og er það jafnan reynt fyrst. Megrun, breytingar á blóð- þrýstilyfjum eða minni neysla áfengis sparar mörgum ævilanga iyfjatöku. Árni Jón Geirsson „Þvagsýrugigt er al- gengur sjúkdómur og byrja einkennin skyndi- lega, oft að næturlagi, með miklum verkjum og eymslum í stórutánni. Verkurinn er mjög sár og táin svo viðkvæm að sjúklingurinn þolir ekki að við hana sé komið.“ Horfur sjúklinga með þvagsýru- gigt eru mjög góðar því þetta er gigt sem hægt er að lækna. Mikil- vægt er þó að lækniseftirlit sé við- haft. Höfundur er sérfræðingur í lyflækningum og gigtarsjúkdómum á lyfjadeild Landspítalans. Farið úr veriá loka- daginn Á LOKADAGSKVÖLD mánudaginn 11. maí stendur Reykjavíkurhöfn fyrir upp- rifjun á vetrarvertíðarlokum á síðustu öld. Boðið verður í skoðunarferð frá Austurvör i Skildinganesi og síðan eftir gömlu leiðinni (Bessastaða- leiðinni) norður Melana og áfram austur við Landakots- hæðina eftir Aðalstræti (Hovedgaden) niður í Gróf- ina. Þaðan „gegnum“ Bryggjuhúsið og „niður“ eft- ir Duushúsbryggju. Ef sjó- veður verður gott gefst kost- ur á kvöldsiglingu út á Kolla- fjörð með farþegaskipinu Árnesi. Farið verður kl. 20.15 frá Shellstöðinni og gengið með ströndinni að Austurvör en þar hefst skoðunarferðin. Á leiðinni verður komið við í Þjóðminjasafninu og fullbúinn áttæringur með Engeyjarlag- inu skoðaður. Skreið og salt- fískur verða til sýnis á bólvirk- inu við Bryggjuhúsið, elsta hafnarmannvirki Reykjavíkur. Þeim sem vilja nýta sér Strætisvagna Reykjavíkur er bent á leið 5, Skeijafjörð, sem fer kl. 19.45 frá Lækjartorgi. Vagninn stansar við Shellstöð- ina. Ferðafélag íslands: Raðganga umhverfis Hvalfjörð RAÐGÖNGUR Ferðafélagsins hafa notið vinsælda siðustu árin. Raðgangan 1992 verður farin í 10 áföngum frá Kjalarnesi umhverfis Hvalfjörðinn og upp í Borgarnes. Sú nýjung er tekin upp að fólk getur valið um tvo kosti, fjallahring Hvalíjarðar eða strönd og láglendi Hvalfíarðar. Þeir sem misstu af fyrsta áfanganum 26. apríl sl. geta komið með laugardaginn 16. maí, en þá verður hann endurtekinn. Núna á sunnudaginn 10. maí verður farinn annar áfangi raðgöngunnar. Kl. 10.30 er gengið á Tindstaðafjall og um norðurbrúnir Esjunnar. Kl. 13.00 er strandagangan farin frá Saurbæ á Hvalfjarðareyri. Það er tilvalin fjöl- skylduganga. Gengið í um þijár klst. Brottför í ferðirnar er frá Umferð- armiðstöðinni, austanmegin, kl. 14 og höfð verður viðkoma í Mörkinni 6. (Fréttatilkynning frá Ferðafélagi íslands.) --------♦ ♦ »--------- Raðganga Ferðafélags íslands 1992: Kjalarnes - Hvalfjörður - Borgarnes 7. ferð,B: 9. ágúst, kl. 10:30 Botnsdalur-Saurtiær 6.ferð, B: 26. júlí.kl. 10:30 Brynjudalur-Botnsdalur Keppni í akstri strætisvagna UNDANKEPPNI Mótorklúbbs starfsmannafélags Strætis- vagna Reykjavíkur fyrir Norð- urlandamót í akstri Strætis- vagna, sem haldin verður í Kaupmannaliöfn í sumar fer fram laugardag 9. maí á Reykja- víkurflugvelli kl. 9-16. Skrábir þátttakendur í keppnina eru 24 og aka þeir tvær umferðir hver. Sex efstu menn öðlast rétt til þátttöku í Norðurlandamótinu. Úrsiit verða tilkynnt í hófí í að- setri SVR, Borgartúni 35. 5. ferð, A: 28. júní, kl. 10:30 5.ferð, B: 28. júni, kl. 13:00 Hrammsvik-Brynjudalsvogur 4.ferð, B: 14. júní, kl. 13:00 Búðasandur-Hvammsvík 1. ferð, A: 26.apríl, kl. 13:00 3.ferð, B: 24. maí, kl. 13:00 Hvalfjarðareyri-Búðasandur Meðfylgjandi mynd sýnir ferðir og það svæði sem farið er um. S Stúdentasamband VI Aðalfundur Stúdentasambands VI verður haldinn á kennarastofu Verzlunarskólans við Ofanleiti, miðvikudaginn 13. maí kl. 17.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Stúdentafagnaður VI sem haldinn verður föstud. 29. maí í Átthagasal Hótels Sögu. Stjórnin. eru sétslaklega hrattlr lil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.