Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAI 1992
35
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva;
Höldum í voniua uni að
verða meðal tíu efstu
- segir Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona Heart 2 Hear*t
„OKKUR hefur verið tekið með
kostum og kynjum hér í Málmey.
Svíar standa sig frábærlega og
allt skipulag er miklu betra en það
var í Júgóslavíu fyrir tveimur
árum. Það er afar misjafnt eftir
fjölmiðlum hvaða gengi okkur er
spáð, sumir telja okkur ná 4. sæti,
en aðrir tala um að við verðum í
allra neðstu sætum. Við höldum
sjálf í vonina um að verða meðal
tíu efstu,“ sagði Sigríður Bein-
teinsdóttir, söngkona, í samtali við
Morgunblaðið. Sigríður og Sigrún
Eva Ármannsdóttir flylja í kvöld
lagið Nei eða já í Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva í Evrópu, ásamt
öðrum meðlimum Heart 2 Heart.
Sigríður sagði að við komuna til
Máleyjar á mánudag hefði verið tek-
ið á móti hópnum með glæsibrag. Á
þriðjudag bauð borgarstjórn _Málm-
eyjar keppendum til veislu. Á mið-
vikudag var æfing og á fimmtudag
hélt íslenski hópurinn blaðamanna-
fund, sem um leið var íslandskynn-
ing, þar sem íslenskur matur, drykk-
ur og náttúrufegurð var í sviðsljós-
inu.
„Við höfum fengið ágæta athygli
hérna og margir blaðamenn' hafa
spurt okkur Sissu hvort við séum'
systur, enda gerum við okkur far um
að klæðast eins,“ sagði Sigríður.
„Blaðamennirnir eru flestir þeir
sömu og voru í Júgóslavíu um árið,
svo þeir kannast þegar við okkur
Grétar Örvarsson. Þá þekkja blaða-
menn frá Norðurlöndunum og Þýska-
landi til Friðriks Karlssonar og Jó-
hanns Ásmundssonar, þar sem
Mezzoforte er þekkt hljómsveit í
þessum löndum. Við höfum verið
kölluð glaðlegasti og skemmtilegasti
hópurinn, enda erum við Sissa alltaf
með Colgate-bros,“ sagði Sigríður
og hló við.
Æfingar Heart 2 Heart hafa geng-
ið vel. „Hljómsveit Svíanna er góð
og fyrsta æfíngin jafnaðist á við all-
ar æfingar, sem við fengum í Júgó-
slavíu. Búningarnir komu vel út á
sviðinu. Við Sissa verðum í gulum
og rauðum kjólum, með sama sniði
og svörtu kjólamir, sem við notuðum
í keppninni heima. Búningana okkar
hannaði María Ólafsdóttir og hún sá
líka um að klæða strákana, sem
verða einnig í gulu og rauðu.“
Sigríður sagði að hún ætti von á
að austurríski söngvarinn Tony Weg-
as yrði í fyrsta sæti með lagið Zus-
ammen gehn. Þá benti allt til að
söngkonan Mai-y Spiteri frá Möltu
yrði ofarlega með Little Child og
Spáni væri spáð góðu sæti með lagið
°&>XS'
,9lt% ll*>ð
Mta990.-
Lambasteik
m/lauk. sveppum, bernaeassósu
Glóðarsteíkt lambalæri
m/sósu að eigin vali
Lambapiparsteik .
Kryddhjúpað lambafille
Lambaspjót
Lambalundir
G
POTIUI
Laugavegi B4 slml 1 30 88
-kemur spánskt fýrir íj?niÞ
Todo esto es la musica, flutt af Seraf-
in. „Hvernig sem þetta fer þá hefur
verið mjög gaman að taka þátt í
þessu. Við viljum ekki að fólk heima
búist við of miklu, því okkur þykir
mjög leiðinlegt ef okkur tekst ekki
að standa undir þeim væntingum.
Það eina sem við getum gert er að
gera okkar besta og ég lofa því að
það gerum við.“
Þátttaka Heart 2 Heart í keppn-
inni nú hefur orðið til þess, að um-
boðsmaður Carolu, sænsku söngkon-
unnar sem sigraði í fyrra, hefur boð-
ið Stjórninni að fara í hljómieikaferð
til Kína á næsta ári. „Við höfum
fengið símbréf frá honum, en Grétar
á eftir að ræða nánar við hann. Ca-
rola er að leggja upp í Kínaferð á
hans vegum og næst vill hans sem
sagt fá Stjómina. Það er óneitanlega
freistandi."
Heart 2 Heart á lokaæfingu áður en hópurinn hélt til Málmeyjar.
Frá vinstri: Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Orvarsson, Helena Jóns-
dóttir, danshöfundur, Sigrún Eva Ármannsdóttir, Jóhann Ásmunds-
son, og Friðrik Karlsson. Á myndina vantar trommuleikarann Hall-
dór Hauksson.
s' -
••'
,!r>. -«3^ ,
wr
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, stmi 689080
í eigu Búnaðarbanka tslands ogsparisjóðanna
Kaupþing hf-Framtíðaröryggi í fjármálum