Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
41
Lúðrasveit verkalýðs-
ins hlaut Stefánsstyrk
Torfi Karl Antonsson, formaður Lúðrasveitar verkalýðsins, þakkar
stuðninginn.
Félag spænskumæl-
andi manna stofnað
STOFNFUNDUR félags spænskumælandi á íslandi verður haldinn í
Safnaðarheimili Kaþólsku kirkjunnar Hávallagötu 12, laugardaginn
9. maí kl. 16.00.
SJÖ umsóknir bárust um styrk
úr Stefánssjóði, sem kenndur
er við Stefán heitinn Ögmunds-
son fyrrverandi formann Hins
íslenska prentarafélags, sem
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu og Félag bókagerðar-
manna veita fé úr. Styrkupp-
hæðin er 215.000 kr. Úhlutunar-
nefnd ákvað að veita Lúðra-
sveit verkalýðsins styrkinn að
Fuglaskoðun á
Seltjarnamesi
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ á
Seltjarnarnesi gengst í dag
kl. 13.30 fyrir fuglaskoðun
við Bakkatjörn, Bakkvík og
Daltjörn.
Mikið fuglalíf er á þessu
svæði og allar aðstæður til
fuglaskoðunar sérlega góðar.
Um þessar mundir eru flestall-
ar fuglategundir komnar og
auk þess umferðarfuglar sem
dvelja þar í styttri tíma. Þátt-
taka er öllum heimil.
þessu sinni. Stefán Ögmundsson
var einn aðalhvatamaður að
stofnun Lúðrasveitar verka-
lýðsins.
Stefánsstyrkur er nú veittur í
þriðja sinn. Styrkurinn er til minn-
ingar um Stefán Ögmundsson
prentara og fyrsta formann MFA.
Stefánsstyrkur er veittur árlega
1. maí í þeim tilgangi að styðja
einstakling, einstaklinga, félag
eða samtök vegna viðfangsefnis
sem lýtur að fræðslustarfi launa-
fólks, menntun og menningar-
starfí verkaiýðshreyfíngarinnar.
Lúðrasveitin var stofnuð 1953
og er eina lúðrasveitin sem fram
hefur komið undir nafni verkalýðs-
samtaka á Islandi og hefur alla
tíð verið nátengd verkalýðshreyf-
ingunni. Starf sveitarinnar hefur
vaxið og dafnað á hverju ári og
eru nú 47 hljóðfæraleikarar starf-
andi. Lúðrasveit verkalýðsins á 40
ára afmæli á næsta ári og er styrk-
urinn veittur til undirbúnings þeim
verkefnum sem sveitin hyggst
vinna að í tilefni þessara tíma-
móta. Torfí Karl Antonsson for-
maður tók við styrknum.
Fjöldi spænskumælandi manna
býr á íslandi í dag er ætlunin að
mynda félagsskap. Markmið félags-
ins verður að kynna hina litríku og
fjölbreyttu menningu spænskumæl-
andi þjóða og spænska tungu með
því að standa fyrir menningarlegum
uppákomum og skemmtunum fyrir
bæði börn og fullorðna. Einnig ætl-
ar félagið að aðstoða spænskumæ-
landi fólk sem hingað kemur að
aðlagast íslenskri þjóðfélagi.
Vortónleik-
ar Samkórs
Kópavogs
HINIR árlegu vortónleikar
Samkórs Kópavogs verða
haldnir í Kópavogskirkju
þriðjudagskvöldið 12. maí
kl. 20.30.
Efnisskráin verður fjöl-
breytt að vanda. Sungin verða
lög eftir Jón Ásgeirsson, Sig-
valda Kaldalóns og Gunnar
Reyni Sveinsson. Einnig verða
fiutt norsk lög, rússneskt og
lettneskt og gamalkunnugt
finnskt þjóðlag. Þess má geta
að nokkrir textanna eru eftir
Halldór Laxness og er það vel
við hæfi á þessu afmælisári
skáldsins. Nemendur úr Tón-
listarskóla Kópavogs munu
spila nokkur lög á trompet og
flautur. Stjórnandi kórsins er
Stefán Guðmundsson.
Samkór Kópavogs var
stofnaður 1966 og var fyrsti
stjórnandi kórsins Jan
Moravec. Kórfélagar eru í dag
45.
(Fréttatilkynning)
Jóhann J. Kristins-
son - Minning
Fæddur 5. júní 1904
Dáinn 29. apríl 1992
Þann 29. apríl 1992 lést tengda-
faðir minn Jóhann Jakob Kristins-
son frá Syðra Ósi á Höfðaströnd á
dvalarheimili aldraðra á Sauðár-
króki.
Jóhann var fæddur á Syðra Ósi
5. júní 1904 og bjó hann þar við
sjóvinnu og búskap til ársins 1950
en þá flutti hann ásamt konu sinni
Guðleifu Jóhannsdóttur sem lést
fyrir nokkrum árum ásamt börnum
þeirra hjóna Jóhanni, Kristínu og
Kristni Birni til Hofsóss en þar
hafði hann reist sér hús við Kára-
stíg 14.
Hluta af bústofninum flutti Jó-
hann með sér til Hofsóss sér og
sínum til búdrýginda en aðalstarf
Jóhanns eftir að hann flutti var
almenn verkamannavinna, og vann
hann mörg ár í síld á Siglufirði
lengst af, hjá sama aðila Ólafi
Ragnars og síðar þegar síldin gekk
austur með landi fór hann í síld til
Raufarhafnar. Alls staðar þar sem
Jóhann vann var hann eftirsóttur
vinnukraftur sakir dugnaðar og
samviskusemi.
Árið 1956 kynnist ég undirritað-
ur dóttur þeirra hjóna Jóhanns og
Guðleifar, Kristínu Rut, og hófust
þá kynni mín af þeim hjónum sem
aldrei bar skugga á og alltaf var
maður jafn velkominn á Kárastíg
14 fyrst í stað við tvö og síðar
bættust börnin í hópinn og höfðu
þau son okkar Jóhann Kristirin hjá
sér á sumrin frá því að hann var 4
ára og fram að fermingu og mun
hann búa að því alla sína ævi.
Fyrir tæpum 10 árum veiktist
Jóhann af hrörnunarsjúkdómi jafn-
framt því að missa sjónina og var
hann þá vistaður á Dvalarheimili
aldraðra á Sauðárkróki og hlaut
hann þar þá bestu umönnun sem
hægt var að fá, þökk sé starfsfólki
Dvalarheimilisins fyrir frábæra
umönnun. Einnig eru núverandi og
fyrrverandi nábúum þeirra hjóna á
Hofsósi sendar þakkir fyrir aðstoð
þeim veitta. Við ættingjar og vinir
í Keflavík þökkum þeim hjónum
Jóhanni og Guðleifu samveruna og
biðjum þeim guðs blessunar.
Hvíli þau í friði.
Lárus Kristinsson.
Minning:
>' >
Oskar Oskarsson
30. apríl sl. lést Óskar Óskarsson
•eftir stutt veikindi, rétt tæplega 68
ára að aldri.
Árið 1980 flutti Óskar í nýtt fjöl-
býlishús við Engihjalla í Kópavogi.
Á sama tíma fluttu þangað margar
fjölskyldur, stórar og smáar. Sam-
hjálp var mikil og menn bundust
þar vináttuböndum. Fljótlega kom
í ljós að Óskar hafði mikinn áhuga
á öllu því sem horfði til framfara í
húsinu og sýndi þann áhuga sinn
svo sannarlega í verki. Hann var
valinn til þess að veita húsfélaginu
forstöðu og gegndi því starfi um
margra ára skeið. Til þess var tek-
ið hve samviskusamur og hjálpsam-
ur Óskar var. Ekki síst var eftirtekt-
arvert hversu þolinmóður og sann-
gjarn hann var í garð þeirra fjöl-
mörgu barna sem fóru um ganga
hússins, oft með miklum fyrir-
gangi. En Óskar hélt ró sinni, hló
og hastaði góðlátlega á börnin.
Við sem kynntumst Óskari náið
fundum í honum frábæran félaga,
mann sem alltaf vildi rétta hjálpar-
hönd þeim sem á þurftu að halda
og ekki síst virðulegan ljölskyldu-
föður, sem lét sér afar annt um
velferð barna sinna og barnabarna.
Minnisstæðar eru einnig þær
stundir þegar tími gafst til að
drekka kaffi og ræða málin með
þeim Óskari og Margréti eiginkonu
hans. Þau hjón voru einkar samrýnd
og samhent um alla hluti.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við vin okkar, Oskar Ósk-
arsson, um leið og við færum eigin-
konu hans Margréti Ásgeirsdóttur,
börnum og barnabörnum okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Guð
blessi minningu Óskars Óskarsson-
ar.
F.h. íbúa í Engihjalla 17,
Sveinn M. Árnason,
María G. Guðjónsdóttir.
Mig langar að minnast afa míns,
Jóhanns Kristinssonar, sem lést á
Sjúkrahúsi Sauðárkróks þann 29.
apríl eftir löng veikindi.
Margar góðar minningar á ég frá
sumrum mínum á Hofsósi hjá ömmu
og afa. Til þeirra kom ég 2 ára og
var hjá þeim á sumrin til 12 ára
aldurs. Alltaf var gaman að koma
til Hofsóss og þar var margt við
að vera og átti afi sinn þátt í því.
Afi var með kindur og fór ég með
honurr, í fjárhúsin og fylgdist með
honum þar. Allt sem gera þurfti
gerði hann sjálfur og var hann mjög
laginn við allt sem hann tók sér
fyrir hendur. Eitt vorið þegar ég
kom norður þá var afi búinn að
smíða kofa handa mér og kallaði
hann Garðshorn. Okkur strákunum
fannst þetta frekar vera höll en
kofi. Þar lékum við okkur á sumrin
og skemmtum okkur konunglega í
kofanum hans afa.
Með þessum orðum vil ég heiðra
minningu hans og þakka allar
ánægjulegar stundir. Guð blessi
hann og varðveiti.
Jóhann.
Birting afmælis-
og minningavgreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
gi'einai' aðra dqga.
t
INGÓLFUR HÁVARÐSSON
frá Eskifirði,
HátúnilOa,
Reykjavík,
lést föstudaginn 24. apríl.
Jarðarförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna.
Jenný Birna Ingólfsdóttir, Ólafur Valdimarsson,
Ingi Stefán Ólafsson, Birna Ágústsdóttir,
Ólafur Ágúst Ingason,
Guðrún Vala Ólafsdóttir, Mikael Jóhann Traustason.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma,
ERNA SIGMUNDSDÓTTIR,
Hlíðarlundi 2,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 11. maí
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Rut Ófeigsdóttir,
Sigmundur E. Ófeigsson,
Soffía Ófeigsdóttir,
).ðf
Ófeigur Ö. Öfeigsson,
Guðmundur Sigmundsson
og barnabörn.
Hólmsteinn T. Hólmsteinsson,
Anna Lilja Stefánsdóttir,
Lárus L. Blöndal,
Guðrún Helga fvarsdóttir,
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langaafi,
BJÖRGVIN THEODÓR JÓNSSON
frá Skagaströnd,
Víðilundi 24,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 12. maí kl. 13.30.
Þorgerður Guðmundsdóttir,
synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð,
vináttu og hlýjan hug við andlát og útför föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
ÞÓRÐAR MARÍASSONAR
frá Suðureyri,
Súgandafirði.
Einnig góðar þakkir til starfsfólks á E-gangi, Hrafnistu, fyrir þeirra
hjálp og hlýju.
Páll Janus Þórðarson, Marías Þórðarson,
Elísabet Þórðardóttir, Björgvin Þórðarson,
Guðrún Þórðardóttir og fjölskyldur.