Morgunblaðið - 09.05.1992, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAI 1992
49
Kvótakaup á íslandi
Frá Júlíusi Ingibergssyni:
HVERS vegna var kvótakerfið
sett á? Jú, það átti að vernda fiski-
stofnana og það var rétt en ekki
braskið með óveiddan fisk. Ég hef
verið því fylgjandi að það þarf að
vernda okkar fiskistofna en ekki
braska með kvótann. Núna er
hægt að selja óveiddan fisk fyrir
200 til 240 kr. kílóið. Hver getur
ieyft þetta — er þetta ekki þjóðar-
eign?
Hvernig horfir kvótinn við sjáv-
arplássum sem að eiga allt undir
því að fiskur komi á land. Stór
skip (togarar) hafa verið keypt á
staðinn, miklar skuldir hvíla á
útgerðinni, hún stendur ekki í
skilum við banka og allt er selt
úr plássinu og kvótinn með. Hvað
skeður? Plássið lendir á ríkinu og
fólkið missir sína vinnu. Þetta er
nú ein hliðin á þessu kvótafyrir-
komulagi. Það er hægt að hafa
kvótann fyrir verslunarvöru.
Nú skulum við koma að fjár-
festingunum i frystitogurum. Út-
gerðin ber sig vel en vinnan er
tekin af fólkinu í landi. Getur
þetta gengið. Ég held ekki nema
í smáu magni. Hvað gerist ef fólk-
ið fær ekki vinnu við fiskinn.
Hvað. gerist ef atvinnulífið stopp-
ar.
Mig langar að koma með hug-
mynd í sambandi við atvinnu í
framleiðslu sjávarafurða. Það er
að búa til neytendapakkningar, 1
pund eða 1 kg, á Evrópumarkað.
Þetta er stór markaður. Þetta
gæti verið bæði saltfiskur og nýr.
Þetta gæti skapað mikla atvinnu.
Mér dettur í hug að hér á íslandi
ætti að stofna háskóla í matvæla-
iðnaði, fiskréttum og síldarrétt-
um. Ég hef alltaf haft sterka trú
á síldinni. Þetta er með því besta
sem kemur úr okkar blessuðu
auðlind. Við þurfum ekki að kvíða
en við þurfum að hugsa meira.
Kvótalögin eru engin lög. Þetta
er brot á stjórnarskránni, að það
megi selja óveiddan fisk sem þjóð-
in á. Við skulum hafa það í huga
að löndin sem eru nálægt okkur
hafa ekki fisk til að veiða en þurfa
að fá fisk. Ég trúi.að neytenda-
pakkningar séu framtíðin.
JÚLfUS INGIBERGSSON
Glaðheimum 12, Reykjavík.
Gæði
grænmetis
mikilvæg-
ari en verð
Frá Hallgrími Þ. Magnússyni:
30. APRÍL birtist í Morgunblaðinu
svar neytendasamtakanna við fyrir-
spurn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
verslunarstjóra hjá Bónus í Reykja-
vík, en þar er verið að fjalla um
verð grænmetis og hversu fáránlegt
það sé að innlend framleiðsla skuli
njóta svo mikillar verndar eins og
raun ber vitni. Umfjöllunin hjá þess-
um tveimur aðilum er einungis um
verðið .á grænmetinu, eins og að
það sé allt sem skiptir máli, en að
mínu áliti skiptir hitt ekki síður
máli hvernig gæði vörunnar eru og
álít ég það vel þess virði að greiða
aðeins meira fyrir vöru sem inni-
heldur meiri gæði, eins og innlent
grænmeti gerir í mínum augum.
Nýlega var gerð könnun í Banda-
ríkjunum á nokkrum tegundum
grænmetis og ávaxta, um hversu
mikið af skordýraeitri það innihéldi
og leyfi ég mér að láta niðurstöður
þessarar könnunar fylgja hér með,
en ég er viss um að enginn lifandi
maður vill í raun og veru borða
þetta skordýraeitur, en með því að
borða íslenskt grænmeti er okkur
í lófa lagið að fá að vita hvað eitur-
efni hafa verið notuð við ræktunina
og einnig að gera kröfur um að
slík efni séu helst ekki notuð.
Annað sem er kannski ennþá
verra fyrir okkur mannfólkið, er að
Börn eiga helst ekki að hjóla á
akbraut.
Þau mega hins vegar hjóla á
gangstéttum, ef þau taka tillit
til þeirra, sem eru gangandi.
Mjög æskilegt er að ung börn
á reiðhjólum séu með hjálm á
höfðinu.
Hjálmurinn hlífir höfðinu
verði óhapp.
leyfð hefur verið geislun á græn-
meti í mörgum löndum, en geislun
er ætlað það hiutverk að auka
geymsluþol grænmetisins. Þeir sem
reka hvað mestan áróður fyrir þess-
ari aðferð eru eigendur kjarnorku-
vera því að þá geta þeir farið með
kjamorkuúrganginn sem er jú
geislavirkur á sérstaka geislunar-
staði þar sem matvælin eru geisluð
og geta þannig seit okkur geisla-
virka úrganginn með því að láta
okkur borða hann. Þeir þurfa þá
ekki að hafa áhyggjur af mótmæl-
um yfir því hvar þeir koma honum
fyrir í geymslu í umhverfmu.
En þetta er jú sama aðferð og
áiframleiðendur nota með flúor sem
til fellur hjá þeim, en þeir selja
okkur það í tannkreminu sem við
notum.
Við vitum ekkert um hvaða
grænmeti hefur verið geislað sem
kemur hingað til lands og mjög lít-
il vitneskja liggur fyrir um skað-
semina, annars vegar fyrir græn-
metið og hins vegar fyrir mannfólk-
ið sem borðar geislavirkt græn-
meti. En í dag eru þegar nokkrar
þjóðir búnar að banna svona með-
höndlun. Mætti ég frekar biðja um
innlent grænmeti á hærra verði.
Við þurfum að auka grænmetis-
neyslu eins og manneldisráð hefur
margítrekað bent á, en grænmeti
það sem við borðum þarf að full-
nægja þeim skilyrðum sem við
mennirnir eigum að gera kröfu til
varðandi þann mat sem við borðum.
Hann þarf að vera lifandi og ómeng-
aður af áburði og skordýraeitri, því
hvet ég alla íslenska grænmetis
framleiðendur til að taka sér til
fyrirmyndar ræktunaraðferðir þær
sem viðhafðar eru á Sólheimum í
Grímsnesi, en þá verður enginn
vandi að fá gott verð fyrir grænmet-
ið vegna þess að gæðin eru mikil,
því fólk vill borða lifandi og ómeng-
aðan mat.
HALLGRÍMUR Þ. MAGNÚSSON
læknir
Hrólfsskálavör 9, Reykjavík.
Pennavinir
Nítján ára nígerískur piltur
með áhuga á knattspyrnu, borð-
tennis, ferðalögum o.fl.:
Damiam Diala,
42 Bale Street,
Olodi Apapa,
Lagos,
Nigeria.
LEIÐRÉTTINGAR
Bæklingur Skóg-
ræktarfélags Is-
lands
í Morgunblaðinu í gær á bls. 20 er
skýrt frá átaki Búnaðarbanka ís-
lands og Skógræktarfélags íslands.
Þar misritaðist, að aðili að þessu
átaki væri Skógrækt ríkisins. Þar
átti að sjálfsögðu að standa Skóg-
ræktarfélag íslands og eru hlutað-
eigendur beðnir velvirðingar á þess-
um mistökum.
ARKITEKT RAÐLEGGUR
UM LITVAL I MALARANUM
Valgerður Matthíasdóttir arkitekt veitir
viðskiptavinum Málarans ókeypis ráðgjöf um
litaval í málningu og viðarvörn
fimmtudag og föstudag klukkan 13-18 og
laugardag klukkan 10-13.
Verið velkomin í Málarann og þiggið ókeypis
ráðgjöf Valgerðar.
Grensásvegi 11 Sími 81 35 00
SOLSKALAR
Sýning rnn helgina!
Opidfrákl.13-17
Sólstofur Svalahýsi Rennihurðir
Rennigluggar Fellihurðir Útihurðir o. m. fl.
Ekkert viðhald
íslensk framleiðsla
Gluggar og Garöhús *
Dalvegi 2A, Kópavogi, Sími 44300
Víðivellir fremri
í frétt af Stóðhestastöð, sem birtist
í Morgunblaðinu 5. maí, var stóð-
hesturinn Seimur sagður vera frá
Sveinatungu. Þetta er ekki rétt,
heldur er Seimur frá Víðivöllum
fremri í Fljótsdalshreppi á Héraði.
ATHUGASEMD
Frumkvæði SAS
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi athugasemd frá Jó-
hannesi Georgssyni, __ fram-
kvæmdastjóra SAS á íslandi:
Vegna fréttar i viðskiptablaði
Morgunblaðsins þann 7. maí sl. um
vilja SAS til að taka þátt í markaðs-
kynningu fyrir ísland skal það tekið
fram að það var að frumkvæði SAS
að fundur var haldinn milli SAS og
aðila innan Ferðamálaráðs.
SEGÐU BARA JA OG LATTU
SENDA ÞÉR PIZZU HEIM
Þú þarft ekki að velta fyrir þér hvort þú eigir
að segja nei eða já. Láttu bara senda þér pizzu
heim frá Pizza Hut og þú missir ekki mínútu úr
söngvakeppninni. Við sendum ilmandi og
ljúffenga pizzuna frítt heim.
ÁFRAM ÍSLAND !
4Iut ,
Hótel Esju ^Suðurlandsbraut 2 • Sími 680809.
GOTT FÓLK/SlA.