Morgunblaðið - 09.05.1992, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
KORFUKNATTLEIKUR / NORÐURLANDAMOTIÐ
Loksins sigur á Svíum
ÍSLENDINGAR sigruðu Svía sjö stiga mun á Opna Norðurlanda-
mótinu í körfuknattleik sem fram fer í Osló, lokatölur leiksins
urðu 83:76. Þetta var ífyrsts sinn sem íslendingar leggja Svía
í körf uknattleik en þetta var tuttugasti landsleikur þjóðanna.
þó
Erlingur
Jáhannsson
skrifarfrá
Noregi
Frá Bob
Hennessy
íEnglandi
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en islendingarnir voru
alltaf nokkrum stigum yfir,
nema hvað Svíar
gerðu fyrstu þijú
stigin og komust
síðan aftur yfir
30:31 skömmu fyrir
leikhlé.
Leikur Svía bar þess merki að
frammistaða íslendinga kom þeim
verulega á óvart og oft og tíðum
létu þeir skapið hlaupa með sig í
gönur. Staðan í hálfleik var 37:36
fyrir ísland og í seinni hálfleik byij-
uðu islenksu strákarnir af miklum
hám
FOLK
■ JOHN Barnes verður ekki með
Liverpool í úrslitaleik ensku bikar-
keppninnar gegn Sunderland á
Wembley í dag. Hann er meiddur
á læri.
■ STEVE
McManaman, kem-
ur inn í lið Liverpo-
ol í stað Barnes.
McManaman, sem er tvítugur, hef-
ur aðeins tekið þátt í einum leik
með varaliðinu síðan hann meiddist
í byijun apríl.
■ BARNES hefur mikinn áhuga
á að leika erlendis næsta vetur, og
hafði hugsað sér leikinn í dag til
að sýna sig. Vitað er að útsendarar
ítalska félagsins Sampdoria ætl-
uðu að fylgjast með honum í dag.
■ GRAEME Souness, stjóri Liv-
erpool, sem fór í þrefalda hjarta-
þræðingu fyrir skömmu, verður að
öllum líkindum á áhorfendapöllun-
um í dag, en Ronnie Moran, sem
tók við meðan Souness er í veik-
indafríi, stjórnar liðinu.
■ BRUCE Grobbelaar kemur í
mark Liverpool á ný í dag, en
Mike Hooper lék þijá síðustu leik-
ina í deildinni vegna meiðsla Grob-
belars.
■ SIGUR í dag er eina von Liv-
erpool til að komast í Evrópu-
keppni næsta vetur.
I TAPI Liverpool verður þetta
í fyrsta skipti í 20 ár sem félagið
sigrar ekki í neinni keppni tvö ár í
röð.
■ IAN Rush hjá Liverpool hefur
gert 37 mörk í bikarkeppninni.
Dehis Law á metið, gerði alls 41
á sínum tíma, en hann lék með
Man. Utd. og Man. City.
■ RUSH stefnir að því að bæta
met á Wembley í dag. Hann hefur
gert 4 mörk í bikarúrslitaleikjum,
eins og tveir aðrir, en það er met.
I MALCOLM Crosby, stjóri
Sunderland, stóð á áhorfendapöll-
unum og fylgdist með liðinu síðast
er það lék til úrslita í bikarkeppn-
inni á Wembley. Sunderland sigr-
aði þá Leeds 1:0 í frægum leik
1973 er Ian Porterfield gerði eina
markið.
■ OSVALDO Ardiles, sem var
rekinn frá Newcastle fyrr í vetur,
var í gær ráðinn framkvæmdastjóri
WBA í gær til þriggja ára. Bobby
Gould var rekinn frá WBA á dög-
unum og gerist líklega aðstoðar-
maður Dons Howe hjá Coventry.
H TREVOR Francis, stjóri
Sheffield Wednesday, hefur gert
eins árs samning við gömlu kemp-
una Viv Anderson, sem verður 36
ára í ágúst. Wednesday tryggði sér
sæti í Evrópukeppninni næsta vet-
ur.
krafti og gerðu 10 fyrstu stigin.
Það má segja að á þessum leikk-
afla hafi íslenska liðið gert út um
leikinn. Svíarnir náðu aðeins að
minnka muninn undir lokin en þá
breytti íslenska liðið yfir í svæðis-
vörn og við það réðu Svíamir ekki.
íslensku leikmennirnir sýndu
hreint frábæran varnleik og náðu
að halda hinum havöxnu leikmönn-
um Svía niðri. Samhliða þessu vom
þeir mjög yfirvegðir í sóknaraðgerð-
um sínum sem gerði það að verkum
að Svíar urðu óþolinmóðir og gerðu
afdrifarík mistök.
Þessi fyrsti sigur íslendinga á
Svíum var sigur góðrar liðsheildar,
allir leikmennirnir stóðu sig mjög
vel. Frammistaða Guðmundar
Bragasonar var athyglisverð, en
hann ‘ gerði hvað eftir annað
stórglæsilegar körfur. Valur Ingi-
mundarson og Magnús Matthíasson
áttu einnig stórleik.
Með þessum sigri er íslenska lið-
ið ömggt með að leika um fimmta
sætið. Ef liðið sigrar Letta á morg-
un og Svíar vinna Finna leikur liðið
um þriðja sæti, en líklegast verður
að teljast að þeir leiki um fímmta
sætið.
Hef beðiðí
nær tuttugu ár
- sagðiTorfi Magnússon landsliðsþjálfari
Eg hef beðið eftir þessu í nær
tuttuen ár. bæði sem leikmað-
tuttugu ár, bæði sem leikmað
ur og þjálfari. Við höfum svo oft
verið nálgæt því að vinna þá, en
það hefur ekki tekist fyrr en núna,“
sagði Torfi Magnússon þjálfari ís-
lenska liðsins í sjöunda himni eftir
sigurinn á Svíum.
„Ég er himinnlifandi. Að vinna
Svía í fyrsta sinn er ólýsanleg til-
fínning. Strákamir léku mjög sterk-
an vamarleik allan tímann og við
gáfum þeim aldrei frið. Sóknarleik-
urinn var einnig góður. Sérstaklega
tókst okkur vel að láta boltann
ganga og nota tímann vel. Þetta'
gerði Svíana órólega og þeir gerðu
mistök."
- Hvað með leikinn gegn Lett-
um á morgun?
„Eftir þennan leik getur allt gerst
og ég er bjartsýnn á skemmtilegan
leik á morgun," sagði Torfí.
Stórkostleg stund
„Þetta er stórkostleg stund, eins
sú stórsta á mínum ferli, en það
er ekki á hveijum degi sem við sigr-
um Svía,“ sagði Jón Kr. Gíslaosn,
fyrirliði íslenska liðsins.
„Þessi hörmulegi leikur gegn
Finnum í gær [á fimmtudaginn]
gerði okkur reiða og allir vom stað-
ráðnir í að gera betur í dag. Það
var ótrúlega góð stemmnig fyrir
leikinn og allir unnu vel saman.
Þessi sigur sýnir að íslenskur körfu-
bolti hefur tekið miklum framförum
Island - Svíþjóð83:76
Opna Norðurlandamótið í körfu-
knattleik, Nadderudhallen, fBstudag-
inn 8. maí 199?.
Gangur leiksins: 0:3, 14:11, 22:19,
27:26 37:36, 47:36, 59:51, 6$:51,
73:65, 80:70, 83:76.
Stig Islands: Valur IngimundaniSon
20, Guðmundur Bragason 18,‘Magn-
ús Matthíasson 17, Jón Kr. Gíslason
8, Teitur Örlygsson 7, Axel Nikulás-
son 7, Tómas Holton 4, Guðni Guðna-
son 2.
Svíar: Stigahæstur Svía var Matthl-
as
Sahllström með 18 stig.
Áhorfendur: Um 200.
Aðrir leikir:
B-riðill:
Island - Svíþjóð...'.......83:76
Finnland - Lettland......106:115
■ Eftir framlengdan leik. Staðan var
100:100 eftir venjulegan leiktíma.
STAÐAN:
Lettland.........2 2 0 189:188 4
Finnland.........2 1 1 207:185 2
ÍSLAND...........2 1 1 153:177 2
Svíþjóð..........2 0 2 158:167 0
A-riðill:
Litháen - Noregur........142:92
Leik Dana og Eista var ekki lokið
þegar blaðið fór f prentun.
og að við erum óðfluga að nálgast
þá bestu,“ sagði fyrirliðinn.
hém
FOLX
■ GUÐMUNDUR Bragason sá
til þess að leikurinn gat ekki hafist
á réttum tíma. Þegar leikmenn voru
að hita upp tróð hann knettinum
með slíkum tilþrifum að spjaldið
brotnaði. Leikurinn tafðist um eina
og hálfa klukkustund fyrir bragðið.
H ÞAÐ var geysilega létt yfir ís-
lenska liðinu fyrir leikinn, og ekki
síður eftir hann. Þegar spjaldið
brotnaði sýndi Axel Nikulásson
„troðaranum“ Guðmundi rauða
spjaldið og sagði að hann fengi
ekki að leika með.
H TORFI Magnússon landslið-
þjálfari var svo upp með sér eftir
leikinn að hann mátti vart mæla.
H LEIKMENN liðsins voru ekki
SÍður ánægðir. Þeir voru lengi að
koma sér í bað erida um nóg að
tala og ekkert lá á. Svíar höfðu
verið lagðir af velli!
H SVIAR eru með mjög hávaxið
lið. Þar á bæ eru sjö leikmenn yfir
tvo metra!
H VALUR Ingimundarson lék
vel í gær. Hann fékk fjórðu villu
sína, tæknivíti fyrir munnbrúk, þeg-
ar sjö mínútur voru eftir af fyrri
hálfleik!
H VALUR lét það þó ekki aftra
sér frá því að leika allari síðari
hálfleikinn — allt þar til 5 sekúndur
voru eftir — þá fékk hann sína
fimmtu villu.
H MAGNÚS Matthíasson varð
einnig að fara af leikvelli með 5
villur og þá voru fimm mínútur eft-
ir. Hann og Valur voru þeir einu
sem fengu 5 villur.
H TEITUR Örlygsson fékk
þriðju villu Sína þegar aðeins tvær
mínútur voru liðnar af leiknum og
má af því sjá að það var ekkert
Sefið eftir í vörninni.
I ÍSLENSKU leikmennimir hit-
uðu upp án bolta fyrir leikinn gegn
Finnum á fimmtudaginn. Norsku
mótshaldararnir höfðu gleymt að
útvega bolta og komu ekki með þá
fyrr en tíu mín. fyrir leik.
H LEIKURINNgegn Finnum fór
fram í hálfgerðri skemmu því móts-
haldarar voru í vandræðum með að
fá leikstað. Körfurnar voru á tré-
spjöldum eins og tíðkaðist hér í eina
tíð, og voru íslensku leikmennirnir
frekar óhressir með það.
Guðmundur Bragason lék mjög vel í gær. Hér treður hann knettinum án
þess þó að brjóta spjaldið.
JUDO / EVROPUMEISTARAMOTIÐ
Sigurður úr leik
SIGURÐUR Bergmann tapaði í
gær tveimur viðureignum í
opnum flokki á Evrópumeist-
aramótinu sem fram fer í Par-
ís. Báðar glímurnar voru
spennandi og jafnar, en Sig-
urðurerúr leik.
Sigurður mætti fyrst Frakkan-
um Mathonnet og gekk Sig-
urði vel allt þar til undir lokin að
Mathonnet náði fastataki á Sigurði
sem hann slapp ekki úr og Frakkinn
sigraði á ippon og komst áfram í
átta manna úrslitin.
í uppreisnarglímu átti Sigurður
við Pepic frá Tékkóslóvakíu og eins
og gegn Mathonnet var jafnræði í
glímunni lengst af. Þegar um ein
mínúta var eftir af viðureigninni
ætlaði Sigurður að láta til skara
skríða og reyndi mjaðmarbragð.
Pepic var sneggri, náði mótbragði
og sigraði á ippon.
Nítján júdókappar tóku þátt í
opna flokknum og hafnaði Sigurður
í 13. sæti.
KNATTSPYRNA
KR mætir Fram
KR mun leika til úrslita í Reykja-
víkurmótinu gegn Fram, en
liðið vann Fylki 4:3 eftir framleng-
ingu í gærkvöldi. Indriði Einarsson
gerði fyrsta mark Fylkis en Ragnar
Margeirsson jafnaði fyrir KR. Mi-
roslav Nicolic kom Fylki aftur yfir
en Rúnar Kristinsson jafnaði úr
vítaspyrnu fyrir KR.
Staðan var því 2:2 eftir venjuleg-
an leiktíma og framlengja varð. í
fyrri hálfleik hennar gerði Steinar
Ingimundarson tvö mörk fyrir KR-
inga en Indriði Einarsson gerði
minnkaði muninn fyrir Fylki.
í Litlu bikarkeppninni áttust
Breiðablik og ÍA við á Sandgrasvell-
inum í Kópavogi. Þeirri viðureign
lauk með jafntefli 1:1 og Skaga-
menn eru þar með komnir í úrslit.
Haraldur Ingólfsson gerði mark
Skagamanna en Sigurjón Kristjáns-
son gerði mark Blika.
HANDKNATTLEIKUR
Samið á Selfossi
Gengið var frá því í gær að Ein-
ar Þoi’varðarson þjálfi 1.
deildarlið Selfyssinga í handknatt-
leik áfram næsta vetur.
Þá hefur handknattleiksdeildin á
Selfossi einnig samið við Sigurð
Sveinsson og Einar Gunnar Sig-
urðsson til eins árs, þannig að ljóst
er að þeir verða báðir með liðinu
næsta vetur, en orðrómur var á
kreiki um að önnur félög hefðu
áhuga á þeim.