Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
51
ÍÞR&mR
FOLK
■ MÓTABÓK GSÍ er kominn út.
í henni eru að vanda margvíslegar
upplýsingar. Golfklúbbar í landinu
eru nú 36 talsins og eru konur for-
menn í þremur klúbbum.
M ERLA Charlesdóttirer formað-
ur í Golfklúbbi Eskifjarðar. Arn-
heiður Jónsdóttir er formaður
Leynis á Akranesi og Fríða Haf-
steinsdóttir er formaður Golf-
klúbbs Skagstrandar.
■ NELSON Piquet ökuþórinn frá
Brasilíu, sem hefur þrívegir orðið
heimsmeistari í Formulu 1 kapp-
akstri, meiddist á fæti á fimmtudag-
inn þegar hann ók útaf á æfingu.
Piquet var að æfa fyrir Indiana-
polis 500-míIna keppnina, en nú er
ljóst að hann keppir ekki á næstunni.
B GREG LeMond sem hefur þrí-
vegis sigraði í Tour de France hjól-
reiðakeppninni vann á fimmtudaginn
sinn fyrsta sigur í forkeppni fyrir
stórmót, en hann hefur keppt í hjól-
reiðum í 12 ár. Hann varð fyrstur
í forkeppninni fyrir Tour Du Pont
keppnina sem fram fer um helgina.
KNATTSPYRNA
RÚV semur
við KSÍ
Knattspyrnusamband íslands og
Ríkisútvarpið hafa komist að
samkomulagi um upptökur og út-
sendingar ríkisútvarpsins á öllum
landsleikjum á vegum KSÍ og meist-
arakeppni KSÍ á þessu ári og því
næsta.
Ríkisútvarpið annast upptöku og
útsendingu til erlendra sjónvarps-
stöðva vegna landsleikja erlendra
liða hér á tímabilinu og KSÍ mun
leitast við að tryggja sjónvarpinu
útsendingarétt frá leikjum íslenska
liðsins erlendis.
Þess má geta að leikur Grikklands
og íslands í HM í Aþenu í næstu
viku — fyrsti leikur Islands í HM
að þessu sinni — verður ekki sýndur
beint í sjónvarpinu en reiknað er
með að allir aðrir leikir íslands er-
lendis í undankeppni HM verði í
beinni útsendingu hjá RÚV.
Um helgina
KNATTSPYRNA
Tveir leikir fara fram í Reykjavikurmót-
inu. Víkingur og Leiknir leika um sjöunda
sætið, sunnudag, kl. 20. Á mánudag kl. 20
leika ÍR og Þróttur um fimmta sætið.
GOLF
Opna Panasonic mótið verður haldið hjá
Keili í Hafnarfirði í dag. Þetta er höggleik-
ur með og án forgjafar.
Fyrsta LEK-mótið veður haldið f Grinda-
vík sunnudaginn 10. maí. Leiknar verða 18
holur eftir Stableford og ræst verður út frá
kl. 9.30. Skráning fer fram i golfskálanum
i Grindavtk frá kl. 17 í dag, laugardag.
FRJÁLSAR
Víðavangsklaup Islands fer fram í dag
kl. 14 á túni nálægt Kaplakrika i Hafnar-
firði. Keppni hefst fyrst í yngri flokkum.
Verðlaunaafhending verður í Kaplakrika
kl. 16.
Hið árlega Neshlaup verður í dag, laugar-
dag, og hefst við Sundlaug Seltjamamess
kl 12 á hádegi. Hlaupnar verða þijár vega-
lengdir, 3,5 km, 7 krn og 14 km. Skráning
í Gróttuherbergi eða í síma 611133 í dag
frá ktukkan 9.
SKÍÐI
Árlegt minningarmót um Harald Pálsson
í tvíkeppni, göngu og svigi, fer fram við
gamla Breiðabliksskálann í Bláfjöllum á
sunnudaginn og hefst kl. 13.
■innanfélagsmót lR i alpagreinum fer
fram í Hamragili á laugardag. Verðlaunaaf-
iiending og kaffiveitingar eftir mótið.
FELAGSLIF
Uppskeruhátíð Hauka
Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar
_ Hauka verður í dag í Félagsheimili félags-
ins við Flatahraun og hefst kl. 15.
Aðalfundur og upp-
| skeruhátíð UBK
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks heldur
aðalfund og uppskeruhátíð á morgun,
sunnudag, i félagsheimili Kópavogs, 2. hæð
kl. 20.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Meistaramir jöfnuðu metinr
Meistarar Chicago jöfnuðu, 1:1,
í baráttuna við New York í
2. umferð úrslitakeppni austurdeild-
ar í NBA-deildinni
Gunnar með 86:78 sigri í
Valgeirsson fyrrinótt. Lið New
skrifar frá York vann fyrsta ieik
Bandarikjunum liðanna í Chicago
fyrr í vikunni, 94:89, og var það í
fyrsta skipta í rúmlega fimm ár, eða
síðan í mars 1987, sem það gerðist.
Patrick Ewing átti stórleik fyrir
New York í fyrri leiknum og gerði
28 af 30 stigum sínum í síðari hálf-
leik. Auk þess sem hann átti 16 frá-
köst. New York var yfir í hálfleik
46:38. Michael Jordan gerði aðeins
4 stig í fyrri hálfleik, en náði sér á
strik í þeim síðari og gerði þá 27
stig en það dugði ekki til.
Heimamenn höfðu svo ávallt for-
ystu í öðrum leiknum, en New York
náði reyndar að minnka muninn í
eitt stig, 79:78, þegar tvær mín.
voru eftir en Chicago gerði sjö síð-
ustu stigin. Jordan var stigahæstur
með 27 stig en þar af gerði hann 17
í fyrsta leikhluta, þar af 15 í röð.
Portland er komið í 2:0 gegn
Phoenix. Báðir leikirnir voru æsi-
spennandi, sérstaklega sá fyrri en
honum lauk 113:111. Bakvörðurinn
Terry Porter var stigahæstur í iiði
Portland með 31 stig, þar af sigur-
stigin í lokin. Kevin Johnsson var
stigahæstur í liði Phoenix með 24
stig. Seinni leikurinn, en báðir fóru
þeir fram í Portland, fór 126:119.
Heimaliðið náði 19 stiga forystu í
fyrri hálfleik, en Phoenix minnkaði
muninn í 4 stig er 2 mín. voru eft-
ir. Clyde Drexler var stigahæstur
með 27 stig hjá Portland.
Sá elsti í stuði
Elsti leikmaður NBA-deildarinn-
ar, Robert Parish hjá Boston var í
miklu stuði þegar Boston sigraði
Cleveland á útivelli á þriðjudag og
jafnaði þar með 1:1 í viðureign lið-
anna í átta liða úrslitum. Parish
skoraði 27 stig í leiknum og sýndi
að þó menn séu 38 ára gamlir geta
þeir staðið fyrir sínu í NBA-deild-
inni. Boston á næstu tvo leiki heima.
„Magic“ Johnson er svekktur
þessa dagana vegna ummæla um
að hann verði ekki með á Ólympíu-
leikunum. NBC sjónvarsstöðin, sem
hann vinnur fyrir, sagði á dögunum
að hann yrði ekki með og um helg-
ina sagði forseti Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, Juan Antonio Samar-. '
anch, að hann teldi mjög ólíklegt
að „Magic“ yrði með. „Eg er orðinn
þreyttur á þessu tali og ég skil ekki
hvað Samaranch er að tjá sig um
svona hluti.
Allir sem Tópasi geta valdiö ættu að taka þátt f
Tópas hjólaleiknum. Nældu þér í þátttökublað á
næsta sölustað Tópas og þú átt möguleika á að
IBil » '
hljóta glæsilegt DBS reiðhjól í sumarglaðning.
Gangi þér vel og gleðilegt hjólasumar.
Glæsilegir vinningar:
12 DBS reiðhjól.
50 Britax hjólreiðahjálmar.
i
100 Tópasbolir.
Skilafrestur er til 23. maí 1992.