Morgunblaðið - 09.05.1992, Qupperneq 52
110RGUNBLAD1D, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVlK
SÍMl 691100. SlMBRÉF 691181, PÓSTllÓLF 15S5 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Einn tilboðsmark-
aður með hlutabréf
opnar eftir helgi
RÁÐGERT er að samræmdur tilboðsmarkaður með hlutabréf hefji
starfsemi eftir helgina. Oll verðbréfafyrirtækin sem stundað hafa
viðskipti með hlutabréf eiga aðild að markaðnum og hætta þau að
skrá verð hlutabréfa hvert um sig. Ein skráning á kaup- og sölu-
verði hlutabréfa tekur við, auk upplýsinga um magn viðskipta með
hlutabréf í einstökum félögum.
Markaðurinn á að heita Opni til-
boðsmarkaðurinn (OTM) og eiga
sex fyrirtæki sem haft hafa með
höndum viðskipti með hlutabréf
aðild að honum, Verðbréfamarkað-
ur íslandsbanka, Kaupþing, Lands-
bréf, Handsal, Verðbréfaviðskipti
Samvinnubankans og Verðbréfa-
markaður Fjárfestingarfélagsins. í
samkomulagi sem fyrirtækin gera
með sér skuldbinda þau sig til að
tilkynna þinginu um öll viðskipti
með hlutabréf, sem eiga sér stað
utan þess. Birt er hæsta kauptilboð
og lægsta sölutilboð f hlutabréf og
hve mikið hlutafé skiptir um eig-
endur. Miðað er við tilboð að lág-
marki 200 þúsund krónur, en
reiknað með að verðbréfafyrirtæk-
in sjái um viðskipti fyrir smærri
fjárhæðir.
Gengið verður birt f dagblöðum
auk þess sem mögulegt er að þetta
fari inn í textavarp sjónvarps og á
gagnanet þannig að hægt verður
að fylgjast með markaðnum í
gegnum tölvur.
Skilyrði til þess að fyrirtæki
geti skráð hlutafé á Opna tilboðs-
markaðnum eru ekki önnur en þau
að engar hömlur séu lagðar á við-
skipti með viðkomandi hlutabréf
og að ársreikningur fyrirtækisins
sé öllum aðgengilegur og undirrit-
aður af löggiltum endurskoðanda.
BORGIN FÆR SUMARSVIP
Morgunblaöið/Júlfus
Olíufélögin hækka
bensínverö um 4-5%
Mestu munar 20 aurum á lítrann
OLÍUFÉLÖGIN þrjú, Olíufélagið Skeljungur hf., Olíuverslun íslands
hf. og Olíuféiagið hf., hækka öll bensínverð sín í dag og nemur hækk-
unin á bilinu frá tæpum 4% upp í 5%. Mesta hækkunin verður á 92
oktana blýlausu bensíni eða um 5% en minnst verður hækkunin á
95 oktana súper-bensíni eða tæp 4%. Útsöluverð er áfram svipað hjá
öllum félögunum, munar mest 20 aurum á lítra. Að sögn forráða-
manna olíufélaganna er um að ræða hækkanir vegna hækkana á
heimsmarkaðsverði á olíuvörum og að hækkunarþörfin nú sé ívið
meiri en nemur þessum prósentutölum. Þeir neita samráði.
Skeljungur hækkar verð sitt sem
hér segir 92 oktana bensfn fer úr
55,10 krónum lítrinn í 57,90 krón-
ur sem er hækkun um 5,1%. 95
oktana bensín hækkar úr 58,80
krónum í 61 krónu eða um 3,7%
og 98 oktana bensín hækkar úr
62 krónum í 64,80 eða um 4,5%.
Hjá Olís hækkar 92 oktana bensín
úr 55,10 krónum f 57,80. 95 okt-
ana bensín hækkar úr 57,70 krón-
um f 61,20 krónur og 98 oktana
bensfn hækkar úr 62 krónum og í
64,80 krónur. Hjá Olíufélaginu
hækkar 92 oktana bensfn úr 55,10
krónum í 57,70 krónur. 95 oktana
bensín hækkar úr 58,70 krónum
og í 61,20 krónur og 98 oktana
— bensín hækkar úr 62,10 krónum
92 oktana bensíni. Hvað varðar það
atriði að öll félogin hækka sín verð
á mjög svipuðum nótum bendir
Kristján á að Olfs og Olíufélagið
kaupa bæði sínar olíuvörur af Stat-
oil f Noregi á sama verði. Hann
nefnir einnig að um árstíðabundna
verðsveiflu sé að ræða á heims-
markaði og það gerist ávallt á vor-
in að bensínverð hækki á heims-
markaði.
Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða hf.:
Undirbúningur hafinn að áætl-
og í 64,60 krónur.
Kristinn Björnsson forstjóri
Skeljungs segir að þessar hækkan-
ir séu fyrst og fremst tilkomnar
vegna hækkana á heimsmarkaðs-
verði að undanfömu en verðið þar
hafi stigið mjög mikið á síðustu
tveimur vikum. „Með nýfengnu
frelsi í innkaupum á olfuvörum
hefur það gerst að við fáum farma
örar inn í landið en áður og því
má búast við örari verðbreyting-
um,“ segir Kristinn. Hann neitar
því að samráð hafí verið haft um
verðhækkanir nú og bendir á að
þrátt fyrir þessar hækkanir sé
bensínverð enn mun lægra hérlend-
is en það var f lok desember á sfð-
asta ári. Sem dæmi má nefna að
þá kostaði 92 oktana bensín 59,40
krónur lítrinn.
Kristján B. ólafsson fjármála-
stjóri hjá Olís segir að hækkunar-
þörfín hafí f raun verið meiri en
nemur þessum hækkunum eða um
30 aurum meiri á hvern lítra af
anaflugi milli borga í Evrópu
Þurfum að gjörbreyta kj arasamningum okkar til að ná árangri
FLUGLEIÐIR hafa nú í undirbúningi að hefja áætlanaflug milli borga
í Evrópu á næsta ári og hafa ráðið erlenda ráðgjafa til að vinna að
stefnumótum varðandi framtíðarskipan Evrópuflugmála hjá félaginu.
Er stefnt að því að niðurstöður liggi fyrir ekki síðar en 1. september
nk. um hvort og að hve miklu leyti farið verði í samvinnu við önnur
flugfélög og til hvaða staða eigi að fljúga innan Evrópu. Þá þarf
félagið að taka ákvörðun um það í sumar hvort þriðja Boeing 757-vél-
in sem losnar úr leigu á næsta ári verði tekin í notkun eða leitað
verði að leigu fyrir hana áfram. Að sögn Sigurðar Helgasonar, for-
stjóra Flugleiða, eru núverandi kjarasamningar við áhafnir einn
stærsti þröskuldurinn í vegi fyrir því að bæta inn véluin og fara inn
á nýja markaði en verið er að vinna að þeim máluin.
„Við fögnum mjög samkomulagi
um Evrópska efnahagssvæðið og
vonumst til þess að það taki gildi
strax á næsta ári. Þá ættum við
að eiga möguleika á að fljúga
meira innan Evrópu, sérstaklega
að vetri til,“ segir Sigurður. Hann
segir að áhugi sé fyrir þvf að halda
uppi tíðni til Þýskalands allt árið
en það verði ekki gert með beinu
flugi milli íslands og Þýskalands
heldur með því að stoppa á leiðinni
og taka upp farþega. Komið gæti
til greina að fljúga t.d. á milli
Glasgow og Frankfurt, Newcastle
og Brussel, Manchester og Lúxem-
borgar, Kaupmannahafnar og Ber-
lfnar eða Gautaborgar og Salzburg.
Varðandi samvinnu við önnur flug-
félög komi til greina félög eins og
Lufthansa, KLM, SAS og British
Airways. Þegar hafa átt sér stað
viðræður milli Svissair og Flug-
leiða um flug milli Glasgow og
Ziirich og hefur komið fram áhugi
af hálfu Svissair um samvinnu.
Sigurður segir hins vegar að til
að unnt sé að ná árangri í flugi
innan Evrópu þurfi að gjörbreyta
kjarasamningum við áhafnir. „Það
er ákveðinn starfsaldurslisti í gildi
milli flugmanna og Flugleiða og
ýmis önnur ákvæði í samningum
við áhafnir sem við þurfum að
breyta til að geta aðlagast þessum
nýju markaðstækifærum sem eru
að opnast í Evrópu. Það er mjög
erfitt fyrir lítið flugfélag að vera
með þijár tegundir flugvéla og
þurfa sffellt að vera þjálfa flug-
menn milli tegunda ef verið er að
bæta inn einni og einni vél. Ef
þriðja Boeing 757 vélin verður tek-
in í notkun þarf að þjálfa miklu
fleiri flugmenn en þarf á hana. Ef
við myndum ráða 15 nýja flugmenn
þyrftum við að þjálfa 50-60 flug-
menn milli tegunda. Kostnaðurinn
af þeirri þjálfun yrði 1-1,5 milljón
króna á hvem flugmann." Núver-
andi kjarasamningar væru einn
stærsti þröskuldurinn f vegi fyrir
því að fara inn á nýja markaði.
Sjá viðtal við Sigurð á bls 20.