Morgunblaðið - 24.05.1992, Síða 10

Morgunblaðið - 24.05.1992, Síða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 eftir Ellý Vilhjálms Magnús Blöndal Jóhannsson er mörgum að góðu kunnur, en þó einkum þeim sem láta sig tónlist varða. Hann vakti einna mesta athygli á sjötta áratugnum er hann var í röð fremstu nútím- askálda á Islandi. Þótt Magnús væri fæddur inn í allsnægtir og gatan til framtíðar virtist greið hefur hann ekki farið varhluta af hretum mann- lífsins og böli þessa heims. vareinu ftir hefðbundið tónlist- ’ amám hérlendis hélt hann út í hinn stóra ™ héim, til Bandaríkjanna nánar tiltekið og stund- aði tónlistarnám við Juilliard School of Music í New York Qg sóttist námið ve). Honurn fannst stórborgin hejll- andi og árin þar telur hann sín a|lra bestú ár. í eftirfarandi sgmtali við Morgunblaðið segir Magnús frá sjálfum sér og lífshlaupi sínu í meðbyr og mótbyr. „Líf mitt hófst norður á Langa- nesi þar sem ég fæddist árið 1925. Faðir minn byggði geysistórt og veglegt hús á Skálum og kallaði það Sólbakka. Þetta var sannkallað menningarheimili. Á Skálum var ég til fimm ára aldurs. Faðir minn Jóhann Metúsalem Kristjánsson og var fæddur í Skoruvík á Langa- nesi. Hann var afar framfarasinn- aður maður sem meðal annars sést á því, að hann byggði eitt fyrsta frystihúsið á landinu, og fékk bróð- ur sinn í lið með sér við það verk. Eftir að við fluttum til Reykjavíkur stundaði faðir minn viðskipti ýmiss konar. I móðurætt minni var fólk með góða hæfileika á tónlistarsviðinu og móðuramma mín, Guðríður Ól- afsdóttir Hjaltested, kenndi á píanó. Móðir mín var ættuð austan af Héraði og hét Þorgerður Magnús- dóttir, dóttir Magnúsar Blöndals Jónssonar prests í Vallanesi, en hann var bróðir Bjarna frá Vogi.“ Eftir þessu að dæma hefur Magnús erft tónlistargáfuna frá móðurfólki sínu. En hvenær hefst tónlistamámið? „Ég var kornungur, rúmlega þriggja ára þegar ég byijaði að spila á píanó. Sigurður Thoroddsen verkfræðingur var um tíma hjá föð- ur mínum vegna uppsetningar tækja í frystihúsinu, og í endur- minningum sínum minnist hann á píanóleik minn, og telur mig hafa verið hálfgert undrabarn. Mér er sagt að ég hafi spilað af fingrum fram allt sem ég heyrði. Móður- amma mín kallaði mig alltaf Litla Lizt, svo eitthvað hefur hún heyrt bitastætt hjá mér.“ Snemma beygist krókurinn, eins og sagt er, því Magnús var ekki nema sex ára þegar hann fór að semja lög. En hann heldur áfram. „Eg var átta ára þegar ég hóf píanónám hjá Helgu Laxness og tíu ára gamall fór ég í Tónlistarskól- ann, sá yngsti sem þangað hafði lagt leið sína. Það sama ár kom ég fyrst opinberlega fram. Ég man meira að segja hvað ég spiiaði í þessari í'rumraup rninpi, sem fór fram á einhverrí skemmtun í Gúttó í Reykjavík, en það var hlpti TWítgl- skinssónötunnar eftir Beethoyep: „Ég var einbirni, en þótt dekrað væri við mig á alla kanta hlaut ég strangt uppeldi og var undir geysi- legum aga. Ég mátti til dæmis ekki vera úti á kvöldin eins og hinir krakkarnir. Ég fór í Landakots- skóla og þaðan í undirbúningsdeild Menntaskólans í Reykjavík serp þá var til húsa í gamla Stýrimanpaskó- lanum á Öldugötu." Tónlistaráhuginn vaknar fyrir alvöru Hvað varð þess valdandi að þú ákveður að halda út í heim til tón- listarnáms? „Það er nú erfitt að gera ná- kvæma grein fyrir því, en svo mik- ið er víst að einhverju sinni þegar ég var að hlusta á fallegt verk eft- ir Tjajkovskíj vaknaði þessi mikli áhugi fyrir tónlist og píanóleik. En auðvitað var ég alinn upp við tón- list og tónlistin var hluti af lífi mínu. Eftir þessa uppljómun, eða hvað sem það var, tók ég þá ákvörðun að fara til Bandaríkjanna, og fékk inngöngu í Juilliard School of Music í New York. Þar hafði ég afbragðs kennara, Carl Friedberg, en hann var einn af aðalkennurunum í Juill- iard. Jafnhliða píanóleik lagði ég stund á hljómsveitarstjórn samhlíða skyldugreinunum." í New York var ég í átta ár, og fimm af þeim var ég í Juilliard. Ég hafði engan áhuga á að koma heim aftur því mér líkaði ákaflega vel við New York. Hún var háborg tón- listarinnar á þessum tíma og er það kannski ennþá. Raunar er allt það besta í listum að finna í New York. Mannlífið þar hafði geysilega sterk og mikil áhrif á mig. Og raunar tel ég New York minn annan fæðingar- stað, því þar öðlaðist ég þroska á sviði tónlistarinnar, og mér þykir ákaflega vænt um borgina." Rætt við Magnús Blöndal Jó- hannsson um lífið og tilver- una í meðbyr og mótbyr Skin og skúrir Við víkjum nú yfir í aðra sálma: Hvernig var einkalífi Magnúsar háttað á þessum árum? „Vissulega átti ég mitt einkalíf. Ég hef átt þrjár eiginkonur um dagana. Fyrsta konan mín hét Bryndís Siguijónsdóttir. Margir ís- lendingar kannast við hana vegna þess að hún stjórnaði Óskalaga- þætti sjúklinga í Útvarpinu, en sá þáttur var geysilega vinsæll. Hon- um stjórnaði hún til dauðadags. Við Bryndís vorum trúlofuð þegar ég hélt til Bandaríkjanna en hún kom út nokkrum mánuðum á eftir mér og í Bandaríkjunum giftum við okk- ur. Bryndís stundaði nám við Col- umbia-háskólann í New York þar sem hún lagði stund á sálfræði og enskar bókmenntir samhliða frönsku. Við eignuðumst tvo syni, Jóhann Magnús og Kristján Þor- geir. Þeir eru báðir flugmenn, Jó- hann hjá þýsku flugfélagi en Þor- geir vinnur hjá Flugleiðum. Bryndís lést þegar hún var aðeins þijátíu og fjögurra ára gömul. Það var krabbamein sem lagði hana að velli. Þetta var óskaplegt áfall og erfiður tími sem á eftir kom. En sem betur fer læknar tíminn mörg sár, að minnst kosti hverfur mesti sviðinn þó grunnt geti verið á sárs- aukanum. Góður vinur minn, Jón Leifs, sagði mér að það tæki mig fimm ár að komast yfir sorgina. Hann reyndist sannspár. En fyrst ég nefni Jón Leifs langar mig að það komi hér fram, að hann studdi mig ætíð ákaflega vel og dyggi- lega. Og raunar má segja að hann hafi reynst mér best allra sem ég hef kynnst. Jón Leifs er einhver sú besta og merkilegasta manneskja sem ég hef fyrir hitt á lífsleiðinni. Hann var stórbrotið tónskáld og listamaður og í mínum huga ber hann manna hæst hvað varðar ís- lenska tónsköpun. Þar fyrir utan hafði maðurinn til að bera sérstaka persónutöfra og í bijósti hans bjuggu sannar og hreinar mannleg- ar tilfinningar, og ég mat hann ekki síður fyrir það.“ Magnúsi verður mikið niðri fyrir þegar hann minnist þessa vinar síns, sem hann gprir með söknuði. „En svo ég haldi nú áfram þar sem frá var horfið þá fann ég mér annan lífsförunaut, Kristínu Svein- bjömsdóttur. Það var nú svo undar- legt með það, að hún vildi endilega taka að sér stjórn Oskalagaþáttar sjúklinga. Ég var því ákaflega mót- fallinn og var hálf leiður út í hana fyrir þessa ákvörðun. En henni varð ekki haggað og fór sínu fram. Við- skildum eftir nokkurra ára hjóna- band. Saman eigum við tvítugan son, Marinó Má. Eg ætla að geyma þar til síðar að segja frá þriðju eig- inkonu minni.“ Haldið á heimaslóðir „Ég kom heim frá Bandaríkjun- um árið 1954 og ætlaði að stansa stutt, en það fór nú á annan veg. Ég fékk starf hjá Ríkisútvarpinu og nokkru seinna tók ég til við að leika undir hjá ballettflokknum í Þjóðleikhúsinu. Þar voru meðal ann- arra nemenda Bryndís Schram og Helgi Tómasson. I framhaldi af því tók ég svo að mér hljómsveitar- stjóm bæði í ópemm og söngleikj- um, stjómaði uppfærslu á Stöðvið heiminn og síðan komu fleiri verk, svo sem O, þetta indæla stríð, Ma- rasat, Járnhausinn, Fiðlarinn á þak- inu og að endingu varð ég að taka við hljómsveitarstjórn í Brúðkaupi Figaros, því sá sem hafði það verk með höndum, útlendingur, stökk burtu af landinu. Þó svo að hljómsveitarstjóm ætti vel við mig var ég alveg pikkandi nervus fyrir hveija einustu sýningu. Ég man til dæmis, að þegar ég vann við Fiðlarann á þakinu, sem var sýndur nítíu og sex sinnum, fór ég upp á svið fyrir hveija einustu sýningu og gekk nokkra hringi. Á þessum gönguferðum bað ég guð í einlægni um áð sýningin yrði öllum til sóma og að allt gengi vel. Raún- ar gerði Róbert Arnfinnsson, sem lék aðalhlutverkið, nákvæmlega það sema, gekk hring eftir hring þótt ekki viti ég hvort hann var í sömu erindagjörðum og ég. En um leið og ég kom niður í;hljómsveitar- gryfjuna og komst í samband vjð fólkið hvarf öll þessi taugaveiklun. Þá komst ekkert annað að en tón- listin og verkið og þar með varð andinn laus og lék sér. Nú, ég hafði unnið í Þjóðleikhús- inu með ágætum árangri, og rætt var um áframhaldandi vinnu þar. Guðlaugur Rósinkrans þjóðleikhús- stjóri hringdi í mig og spurði hvort ég vildi ekki taka að mér upp- færslu á söngleiknum Kabarett, sem ég vildi auðvitað gera. Síðan beið ég bara rólegur eftir kallinu. ÖIl okkar viðskipti voru ævinlega munnleg og ég hafði enga ástæðu til að tortryggja hann á neinn hátt. Þegar svona verk eru í undirbún- ingi er alltaf haldinn fundur með leikstjóra og hljómsveitarstjóra til að skipuleggja æfingar og skipa í hlutverk. En aldrei kom fundarboð- ið. Síðan las ég í blöðunum að leik- stjórinn væri kominn, svo ég hringdi í þjóðleikhússtjóra. „Nei, heyrðu, Magnús. Ég er búinn að fá ann- ann!“, segir hann, stutt og laggott. Þá hafði hann fengið Garðar Cort- es, komungan mann nýkominn frá námi í Englandi. Og ekki sagt orð við mig. Þetta féll mér afar illa. Þetta var sárt. Þar með lauk starfi mínu í Þjóðleikhúsinu. Ég fór til Vínar eftir þetta áfall og var í hálf- gerðu taugasjokki, sem var ef til vill kveikjan að áfengisneyslu. Ég féll gjörsamlega saman. Mér fannst þetta svo ranglát framkoma við mig.“ Elektrónískar tónsmíðar Magnúss stofnaði á sínum tíma, ásamt fleiri tónlistarmönnum, tón- listarfélagið Musica Nova, sem hafði þann tilgang að kynna nýja tónlist og nýja tónlistarmenn fyrir íslendingum: „Þetta framtak átti ekki alls staðar upp á pallborðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.