Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 MYNDLIST/Tfew) verbur bobib uppá? Myndlist á Listahátíð ÞAÐ ER ákveðið vormerki í höfuðborginni, þegar listahátíð er í nánd. Listahátið í Reykjavík 1992 nálgast óðum, og ber dagskrá- in með sér að mikið verður um að vera, eins og endranær. Tón- list og leiklist skipa sem fyrr stóran sess á hátíðinni, en myndlist- in mun einnig skarta fögrum rósum fyrir listunnendur. Opinberu söfnin munu setja upp sýningar á sérstakri erlendri list, og önn- ur söfn og sýningarstaðir munu einnig leggja sitt af mörkum til þess að hér verði sannkölluð myndlistarveisla í næsta mánuði. Hér er ætlunin að gera örlitla grein fyrir þeim myndlistarsýning- um, sem settar verða upp í tilefni listahátiðar, svo að listunnend- ur geti þegar farið að hlakka til. ListahátíA - unnendur myndlistar fá næg verkefni í sumar. Listasafn íslands opnar 30. maí sýningu, sem fengin er að láni frá því fjarlæga landi Jórd- aníu, þ.e. úr Þjóðminjasafni þess lands svo og úr einkasafni í höfuð- borginni Amm- an. Jórdanía er ekki gamalt þjóðríki á laga- lega visu, en liggur á svæði, sem hefur verið á krossgötum menningarheima alit frá því að fyrstu menningarþjóðfélögin fóru að rísa. Á sýningunni verða m.a. sýndar mósaíkmyndir, sem voru lagðar í gólf stórbygginga alltfrá sjöttu öld og fram á þá áttundu. Við upphaf þess tíma var ávæðið hluti af hinu austrómverska ríki, og þá menningararfleifð sem íbú- amir byggðu á má rekja til tíma Rómveija og hins hellenska menn- ingarheims. Fylgjendur kenninga Múhameðs spámanns lögðu síðan undir sig þessi lönd, og menning- in breyttist í samræmi við það. Einnig verða sýndir búningar og skartgripir sem tilheyra þeim menningarheimi araba, sem kenndur er við hirðingjalíf; þama verður því líf merkurinnar komið inn á gólf hjá íslendingum. Kjarvalsstaðir bjóða upp á stóra sýningu af verkum eftir katal- ónska listamanninn Joan Miró, sem ætti að gleðja böm á öllum aldri og aðra þá, sem hafa varð- veitt í sér bamssálina. Þessi verk koma frá Maeght-safninu í París, sem er mjög sérstök stofnun, sem verður til í kringum garð skúlp- túra og keramíkverkaj sem Miró skapaði fyrir safnið. Á Kjarvals- stöðum verða sýndar myndir frá hendi listamannsins, en einnig óvenjulegar höggmyndir, sem færri hafa séð; hér gefst lands- mönnum því tækifæri til að kynn- ast alveg nýrri hlið á þessum sér- stæða listamanni. í austursal Kjarvalsstaða verð- ur boðið upp á sýningu á verkum eftir Jóhannes Kjarval úr einka- safni Eyrúnar Guðmundsdóttur og ijölskyldu hennar. Þó að verk úr þessu safni hafi áður verið á yfirlitssýningum á verkum Kjarv- als, hefur þetta safn ekki áður verið uppistaðan í sýningu á verk- um listamannsins. Myndir Kjarv- als er að finna víða um land; það er gott að vita af þeim í góðum höndum, og listunnendur þiggja áreiðanlega með þökkum að fá tækifæri til að kynnast betur einu af þessum einkasöfnum. Á Listahátíð verður að þessu sinni haldin yfírlitssýning á verk- um Hjörleifs Sigurðssonar, list- málara, sem Félag íslenskra myndlistarmanna og Norræna húsið standa að í sameiningu, og verður sýningin tvíþætt, haldin í sölum beggja staðanna. Hjörleifur var í hópi brautryðjenda modern- ismans á íslandi í upphafi sjötta áratugarins, og hefur tekið mik- inn þátt í félagsstarfi myndlistar- manna, auk þess að rita um mynd- list og starfa að myndlistar- fræðslu. Þetta verður án efa hin áhugaverðasta sýning. Aðrir sýningarstaðir í Reykja- vík taka einnig þátt í Listahátíð af fullum krafti: Listasafn Siguijóns Olafssonar mun setja upp sýningu á æsku- teikningum listamannsins, en einnig mun verða í gangi ákveðin fjölskyldudagskrá í Laugarnesi meðan Listahátíð stendur yfír. í listasalnum Nýhöfn verður hinn síungi Kristján Davíðsson með málverkasýningu, og er nú nokkuð um liðið síðan landsmenn fengu síðast að njóta listar hans. Gallerí Borg við Pósthússtræti mun sýna verk gömlu meistanna, bæði málverk og höggmyndir. Fleiri erlendir myndlistarmenn munu koma við sögu: Franski list- amaðurinn Daniel Buren verður sérstakur gestur Gallerís 11 og Listasafns Islands í tilefni Lista- hátíðar, og mun vinna útilistaverk í miðborg Reykjavíkur á þessum tíma. Buren hefur aflað sér heims- frægðar á sviði hugmyndalistar síðustu áratugina, og hefur skap- að stórskemmtileg umhverfislista- verk á ýmsum stöðum, t.d. við endurvígslu Ateneum- safnsins í Helsinki fyrir nokkrum árum. Verður spennandi að sjá hvað hann tekur sér fyrir hendur hér. í Nýlistasafninum munu ungir franskir myndlistarmenn, Michel Vetjux og Francois Perradon, ráða ríkjum, og verður án efa sett þar upp skemmtileg sýning í anda safnsins og þeirrar stöðugu leitunar í listinni, sem þar hefur löngum verið helsta keppikeflið. Hollenska listakonan Nini Tang mun leggja undir sig Gallerí Sæv- ars Karls og vinna í það skemmti- lega rými sem þar býðst, en hún er íslendingum að góðu kunn af fyrri sýningum og störfum hér á landi. Loks má nefna að í Hafnarborg, lista- og menningarstofnun Hafn- arfjarðar, verður haldin yfírlitssýn- ing á verkum hjónanna Gests-og Rúnu, sem lengi hafa sett sitt mark á íslenskt myndlistarlíf. Fleiri sýningar verða í gangi víðs vegar um borgina, en hér skal staðar numið í bili. Það má vera ljóst, að sumarið hefur alla burði til að verða gott myndlistar- sumar; framboðið af góðri mynd- list verður mikið, a.m.k. framan af, og þá er bara að skipuleggja tímann vel og fjölmenna á sýning- arstaðina. Gleðilega listahátíð! eftir Eirík Þorlóksson Frá Heilsugæslustöðinni, Grafarvogi, Hverafold 1 -3 Skráning þeirra íbúa Grafarvogs, sem ætla að fá heilsugæsluþjónustu á stöðinni er þegar hafin. Hægt er að panta tíma til skráningar milli kl. 08.00-17.00 alla virka daga. Sími heilsugæslustöðvarinnar er 681060. Heilsugæslustöðin tekur til starfa 3. júní nk. Stjórn heilsugæsluumdæmis Austurbæjar nyrðra. TILBOÐ ÓSKAST í Ford Explorer XLT 4x4, árg. '91 (ekinn 7 þús. mílur) og aðrar bifreiðar er verða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 26. maí kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA veit hvab átt hefur fyrr en misst hefur A Imenningsbókasöfn í hættu Bókasöfn Þau gegndu enn mikilvægara hlutverki fyrr á tímum þegar mennt- un var ekki eins almenn. ENGINN VEIT hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Við gleymum oft hve mikið átak þurfti til að byggja upp þá þjónustu sem stendur okkur öllum jafnt til boða og hve mikils virði hún hefur verið fyrir allan almenning. Nú, þegar við lítum á heilbrigðisþjón- ustu, almennt skólakerfi og al- menningssamgöngur sem sjálf- sagða þjónustu velferðarríkisins, er hætta á því að við gætum þess ekki hve mikilvægt er að standa vörð um hana. Og við tökum jafn- vel ekki við okkur fyrr en um seinan. Einmitt það hefur gerst í Bret- landi. Gott dæmi er ástand almenningsbókasafna í landinu. Þegar útlánabókasöfn voru sett á stofn var þeim ætlað að tryggja að . allir íbúar landsins, óháð efnahagi þeirra og þjóðfé- lagsstöðu, hefðu jafnan aðgang að bókum. Bækur voru þá — og eru að miklu leyti enn — einn mikilvæg- asti lykillinn að menntun og gefa fóki bæði tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn og dýpka skilning sinn á veruleika sín- um. Og bækur leyfa okkur líka hverfa á vit ímyndunaraflsins og gleyma þannig um stund angri hversdagsleikans. Bókasöfn í Bretlandi hafa á und- anförnum áratugum sinnt þessu hlutverki afskaplega vel. Þau hafa verið eins og vin í eyðimörkinni fyr- ir þá sem annars hefðu ekki átt kost á neinni menntun eða haft tök á því að lesa bækur. Fólk gat þann- ig lesið eins og það lysti án þess að hafa áhyggjur af pyngju sinni. Á síðustu árum hefur harkalega verið þrengt að bókasöfnum í land- inu. Þau hafa ekki fengið nægilegt fjármagn frá ríkinu, hvorki til bóka- kaupa né til að halda húsnæði sínu við, svo að nú er svo komið að þau geta ekki sómasamlega gegnt því hlutverki sem þeim er ætlað. Afleið- ingamar af þessum niðurskuðarað- gerðum ríkisins hafa einfaldlega verið þær að sum bókasöfn hafa annaðhvort drabbast niður eða lagt upp laupana. Forráðamenn þeirra bókasafna sem enn eru í gangi hafa oft á tíðum neyðst til að skera niður þann tíma sem söfnin eru opin vegna skorts á rekstrarfé. Það má til sanns vegar færa að bókasöfn gegndu enn mikilvægara hlutverki fyrr á tímum þegar mennt- un var ekki eins almenn, og fjölmiðl- ar gegndu ekki eins mikilvægu upp- lýsingarhlutverki og þeir gera nú á dögum. En samt er ljóst að dagblöð, sjónvarp og útvarp geta ekki komið í staðinn fyrir bækur. Og þá sérstak- lega skáldverk. Lestur skáldverka er hægt að líkja við (eins og rithöf- undurinn A.S. Byatt gerði í grein til verndar bókasöfnum) einkafund lesandans og höfundarins og felur því í sér náið samband milli þeirra. Við köfum ofan í huga höfundarins á allt annan hátt en við skoðum hugarheim fjölskyldna okkar eða vina. Enda staðhæfði Byatt í grein- inni að hún teldi sig „þekkja George Eliot betur en eiginmann sinn þar sem hún hefði átt hlutdeild í innra lífi hennar. Og það breytti lífí mínu.“ Það væri mikil hneisa ef allir — jafnt þeir sem hafa efni á því að kaupa bækur og hinir sem hafa það ekki — hefðu ekki tækifæri til að þroska sig og mennta og auðga þannig líf sitt. Almenningsbókasöfn eru auðvitað ekki eina forsenda þess að almenningur geti menntað sig, en þau eru nauðsynleg af því að þau gefa okkur öllum sama tækifærið til að kynnast öllum hliðum og rang- ölum mannlegrar reynslu. Þess vegna getum við ekki án þeirra verið. eftir Guðrúnu Nordal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.