Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 4

Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 4
X 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 Áburðarflug Landgræðslunnar hafíð: 20. árið sem dreift er úr Páli Sveinssyni ÁBURÐARFLUG sumarsins á vegum Landgræðslu ríkisins hófst frá Reykjavík í gær, en þá var byrjað að dreifa áburði á Reykja- nesi úr áburðarflugvél Landgræðslunnar, Páli Sveinssyni. Er þetta 20 sumarið sem áburði er dreift úr þessari tæplega 50 ára gömlu Douglas C-47 flugvél, sem kölluð hefur verið „drottning stélhjólsflugvélanna“. Alls verður dreift 56 tonnum af áburði og fræi á Raykjanesi að þessu sinni, aðallega i nágrenni Stapans og í Garðinum, en í hverri ferð er dreift fjórum tonnum. Að sögn Stefáns H. Sigfússon- ar, fulltrúa landgræðslustjóra verður líklega dreift um 1.100 tonnum af áburði og fræi með flugvélum Landgræðslunnar í sumar, en það er svipað magn og dreift var í fyrrasumar. Að loknu verkefninu á Reykjanesi fer land- græðsluflugvélin til aðalstöðva Landgræðslu rikisins í Gunnars- holti og dreifir áburði þaðan á svæði innan girðinga landgræðsl- unnar á Suðurlandi, aðallega á Haukadalssvæðinu og í nágrenni Þorlákshafnar. Upp úr miðjum júní fer vélin til Sauðárkróks og dreifir þaðan á Blöndusvæðið, en síðan fer hún til Húsavíkur og dreifir áburði innan landgræðslu- girðinga í Þyngeyjarsýslum. Að því verkefni loknu fer áburðar- flugvélin síðan aftur í Gunnars- holt og tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið. Þrír flugstjórar frá Landhelgis- gæslunni starfa á áburðarflugvél- unum Páli Sveinssyni og TF-TÚN yfir sumartímann, en auk þeirra fljúga um 30 atvinnuflugmenn Páli Sveinssyni í sjálfboðavinnu. Morgunblaðið/RAX Starfsmenn Landgræðslunnar ásamt flugstjórum við áburðarflugvélina Pál Sveinsson á Reykjavíkur- flugvelli í gær, þegar áburðarflug sumarsins hófst. Á myndinni eru talið frá vinstri: Reynir Olafsson, flugstjóri hjá Flugleiðum, Runólfur Sigurðsson, flugvélstjóri hjá Flugleiðum, Hafsteinn Heiðarsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, Stefán H. Sigfússon, fulltrúi iandgræðslustjóra, Davíð Hemstock, flugvirki hjá Landgræðslunni, og Sverrir Þórólfsson, flugstjóri hjá Flugleiðum. VEÐUR Lungnaskiptaaðgerð í London: ÍDAGkl. 12. Heimitó: Veðurstofa ísianös (Byggt á veðurspá kJ. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR í DAG, 19. MAÍ YFIRLIT: Langt suður í hafi er 983 mb kyrrstæð lægð sem grynnist en yfir Skandinavíu er 1.034 mb háþrýstisvæði. SPÁ: Víðast gola en kaldi við suðurströndina. Skýjað og dálítil súld með köflum suðaustanlands og með suðurströndinni, en léttskýjað annars staðpr. Hlýtt verður í veðri. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Suðvestlæg átt og fremur hlýtt, einkum á Norður- og Austurlandi. Þurrt norðaustanlands en dálít- il rigning í öðrum landshlutum. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. o o 0 Ö t Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað r r r r r r r r Rigning * r * * / r * r Slydda * * * * * * * * Snjókoma V V Skúrir Slydduél * V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka 4ig-> FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 igær) Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir, undantekning er þó á Norð- austurvegi (Sandvíkurheiði), þar er mikij aurbleyta og er því aðeins fær fyrir jeppa og fjórhjóla drifna bíla. Einstaka vegakaflar eru þó ófærir svo sem Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðum, Hólssandur og öxarfjarðarheiði á Norð-Austurlandi, Mjóafjarðaheiði á Austfjörðum. Lágheiði á Norður- landi er lokuð vegna aurbleytu. Vegna aurbleytu eru sums staðar sér- stakar öxulþungatakmarkanir á vegum og eru þær tilgreindar með merkj- um við viðkomandi veg. Allir hálendisvegir landsins eru lokaöir vegna aurbleytu og snjóa. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 10 léttskýjað Reykjavik Hmistur Bergen 22 heiðskírt Helsinki 18 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Narssarssuaq 2 slydda Nuuk 0 skýjað Ósló 26 iéttskýjað Stokkhólmur 17 heiðskírt Algarve 20 skýjað Amsterdam 25 þrumuveður Barcelona vantar Berlin 21 heiðskirt Chicago 9 alskýjað Feneyjar 23 heiðskirt Frankfurt 25 láttskýjað v Glasgow 19 mistur Hamborg 20 heiðskírt London 26 léttskýjað LosAngeles 19 alskýjað Lúxemborg 20 skýjað Madríd vantar Malaga 23 skýjað Mallorca 22 léttskýjað Montreal vantar NewYork 16 alskýjað Orlando 32 skýjað Perís 17 þrumuveður Madeíra vantar Róm 19 rigning Vín 19 heiðskírt Washington 12 alskýjað Winnipeg 15 skýjað Aðgerðin gekk vel - segir Margrét Sigtryggsdóttir eig- inkona íslenska sjúkrahússprestsins SKIPT var um lungu I íslenskri konu, Önnu Mary Snorradóttur, á Harefield-sjúkrah’' 'nu í London aðfaranótt laugardags. Að sögn — Margrétar Sigtryg^ Jóttur, eiginkonu Jóns Baldvinssonar sjúkrahúss- prests, gekk aðgerðin mjög vel og vonuðust læknar til að geta tekið Önnu Mary úr öndunarvél síðdegis í gær. Anna Mary hefur beðið eftir lungum á Brompton-sjúkrahúsinu í London í um það bil ár. Tvisvar sinnum hefur hún brugðist við út: kalli vegna líffæra án árangurs. í fyrra skiptið var ekki hægt að nálg- ast líffærið vegna veðurs en í seinna skiptið kom í ljós að lungað hentaði ekki Önnu Mary. Margrét Sigtryggsdóttir sagði að aðgerðin, sem gerð var á Harefield- sjúkrahúsinu í London, hefði gengið mjög vel en alltaf liði nokkur tími þangað til að í ljós kæmi hvort hún hefði tekist að fullu. Hún sagði að Anna Mary hefði verið látin sofa í sólarhring eftir aðgerðina en á sunnudagskvöldið hefði hún vaknað og verið vel með á nótunum þó hún gæti ekki talað. Að sögn Margrétar vonuðust læknar til að geta tekið Önnu Mary úr öndunarvél síðdegis í gær. Hún mun dveljast á Harefíeld-sjúkrahús- inu næstu tvo mánuði að minnsta kosti og trúlega verða á lyfjum alla ævi til að koma í veg fyrir höfnun nýju lungnanna. Að öðru leyti á hún að geta lifað eðlilegu lífi. Eiginmaður Önnu Mary hefur verið með henni þann tíma sem hún hefur beðið á Brompton-sjúkrahús- inu og von var á systur hennar tii London í gær. Önnur íslensk kona, Halldóra Ingólfsdóttir, hefur beðið eftir lungum í London frá því í nóvember. Stálu fjórum byss um úr geymslum TVEIR unglingspiltar stálu fjór- um byssum og skotfærum úr geymslum sem þeir brutust inn í í fjölbýlishúsi við Engihjalla um helgina. Lögreglan komst í málið þegar sást til þeiira grafa eina byssuna í jörðu. í framhaldi af því var tilkynnt að fjórum byssum hefði verið stolið úr geymslu í Engihjalla. Talið er að piltarnir hafi brotist inn í allt að 16 geymsl- ur. Þeir komust i lykla að geymsl- ugangi sem lágu hálfpartinn á glámbekk auk þess sem sumar geymslurnar voru illa læstar. Að sögn Svanhvítar Ingólfsdóttur, lögreglufulltrúa í Kópavogi, hafði byssunum Qórum, 22. cal. riffli með sjónauka, tvíhleyptri haglabyssu, loftriffli og loftskammbyssu, verið stolið úr sömu geymslunni. Piltarnir höfðu náð í lykla að sameign sem geymdir voru með öðrum óskilamun- um í skáp í anddyri blokkarinnar. Að sögn Svanhvítar reyndist þeim svo afar létt að komast inn í geymsl- umar enda var allur gangur á því hversu vel var gengið frá læsingum. í geymslunni þar sem byssúrnar voru var dyrum læst en spjald vant- aði yfir hurðina þannig að þar var unnt að klifra yfir. Þótt skotfæri væru ekki í þeirri geymslu fundust þau í öðrum nálægum. Einnig höfðu þeir haft hnífa á brott með sér. Svan- hvít sagði sérstaklega mikilvægt fyrir eigendur skotvopna að vanda til geymslu þeirra enda gætu eigend- ur verið kallaðir til ábyrgðar vegna kæruleysislegrar geymslu skot- vopna. ------» ♦ ♦----- Gjaldþrot Stálvíkur: Skuldir 400 millj. en eign- ir 3,6 millj. SKIPTUM er lokið í þrotabúi skipasmíðastöðvarinnaer Stálvík- ur hf., sem tekið var til gjaldþrot- askipta í ágúst 1990. Forgangskröfur námu tæplega 33,2 milljónum króna og það var upp í þær sem eignir búsins, sem reyndust 3,6 milljóna króna virði runnu. Fyrir vikið greiddist 9,09% af forgangskröfum. Upp í almennar kröfur, sem námu 370,1 milljón króna, auk vaxta og kostnaðar eftir upphafsdag skipta, greiddist ekkert. I I > I > i i > Í J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.