Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 annarri stöðu en hin EFTA-ríkin. Þau eru að velja sér EB-leiðina og vita hvað er framundan. Þau eru í þann veginn að hefja aðildarsamn- inga. Við erum á leiðinni inn í EES-tímabil sem vara mun innan við áratug, og vitum ekkert hvað tekur við að því loknu. Óljósar hug- myndir um tvíhliða samning við Evrópubandalagið sem taki við af EES-tímabilinu eru ófullnægjandi. Við verðum að vita meira um fram- haldið, markmiðið og áframhald samninga við EB, áður en hægt er að leggja endanlegt mat á fyrir- liggjandi EES-samning. Það dugir ekki að hætta við hálfnað vek. í upphafi var EES lýst sem tveggja stoða markaðssvæði í Evr- ópu, með varanlegum innri hring EB-ríkja og ytri hring EFTA-ríkja. Evrópska efnahagssvæðið átti að byggja á viðskiptasamningi sem ekki myndi þrengja að ákvörðunar- valdi Alþingis, ríkisstjórna eða ís- lenskra dómstóla, né heldur ógna óskoruðu forræði íslendinga yfir auðlindum og lykilfyrirtækjum. Nú göngumst við undir 28 milljarða króna bákn embættismanna á EES- svæðinu sem í flestum greinum verður að haga sér í samræmi við ákvarðanir EB og réttarfarsþróun innan þess. Með eða án EES? Endanlegt mat á EES-samningn- um helgast af því hvað ætla má að við taki af honum og hver ætla megi að framtíðarsamskipti íslend- inga við EB verði. Ef við útilokum aðild að EB vaknar sú spurning hvort samningsstaða okkar gagn- vart bandalaginu sé betri með eða án EES-samnings. Erum við betur sett með EES-báknið á herðunum en lausbeisluð, þegar viðræður um framtíðarsamskipti hefjast? Um þetta atriði hlýtur umræðan að snú- ast á næstu mánuðum. Morgunblaðið og ríkisstjórnin hafa svarað fyrir sig. Má vera að vel sé svarað, en það er óneitanlega sérkennilegt og til þess fallið að vekja efasemdir að allar ríkisstjórn- ir EFTA-ríkjanna, nema sú ís- lenska, og allir ritstjórar helstu dagblaða í EFTA-ríkjunum, nema ritstjórar Morgunblaðsins, skuli hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að vera í EES án þess að ætla sér í EB. Og þegar maður virðir fyrir sér stofnanabákn EES annarsvegar og smæð íslenska stjórnkerfisins hinsvegar vakna óneitanlega efasemdir í bijósti manns um ágæti þess að íslending- ar uni einir þjóða glaðir við EES. Greinarhöfundur er framkvæmdasijóri Alþýðubandalagsins. Þú getur valið um þrjár mismunandi tegundir af Merrild-kaffi. 103 - Millibrennt 304 - Dökkbrennt 104 - Mjög dökkbrennt Merrild setur brag á sérhvem dag. Ég tel við hæfi að við höfnum ekki boði um auka-aðild eða áheyrn að VES, með þeim þjóðum eigum við um margt samleið. Þó skulum við gæta þess að ekki verði rekinn fleygur í náið varnarsamstarf okkar við Bandaríkin, sem hefur reynst okkur vel. Varnarstarfsemi á íslandi Umsvif varnarliðsins á íslandi fara minnkandi, bæði starfsemi og framkvæmdir. Sterkar raddir eru vestra um að minnka hlut Banda- ríkjamanna í vörnum V-Evrópu og víðar um heim, þeir vilja draga úr ríkisútgjöldum og beiná kröftum stjórnvalda að verkefnum heima fyrir og öðrum þáttum alþjóðamála. Eftirlitshlutverk varnarstöðvar- innar í Keflavík verður þó enn mik- ilvægt vegna legu landsins milli meginlandanna, við einstæða sigl- ingaleið inn á Atlantshafið og við flugleiðir um það norðanvert. Við- búnaður mun minnka og það hlut- verk taka breytingum við endurmat á stefnu bandalagsins um viðbúnað eða flutninga. Islenskir starfsmenn varnarliðsins I skýrslunni kemur fram, að ís- lenskum starfsmönnum vamarliðs- ins hefur fækkað vegna ráðningar- banns. Utanríkisráðherra greinir þó ekki frá þvi að það tók við af öðru, og í upphafi þess voru þeir talsvert fleiri en í skýrslunni segir, svo skipt- - hefur kennt íslendingum að meta gott kaffi. Merrild ir tugum. Framkvæmdinni sýnist beint að íslenskum starfsmönnum og verður ekki séð að varnarliðið umgangist launþega á Suðurnesjum af sömu virðingu og það hefur þar notið um 4 áratugi. Starfsmenn þess sæta strangari trúnaðarkröfum en almennt gerist, vegna eðlis starfseminnar. Þeir hafa sérhæft sig, sem kemur þeim þó hvergi að notum annars staðar á vinnumarkaði, og njóta þess nú í engu við starfslok vegna fækkunar og samdráttar. Um áratugi hefur varnarliðið, og umsvif þess í heild, tekið til sín allt vinnuafl sem það hefur þarfnast, í krafti yfirburða yfir áhættusama og sveiflukennda atvinnuvegi heimamanna á Suður- nesjum. Nú þegar þessi risi á litlum og fábrotnum vinnumarkaði Suður- nesja dregur að sér höndina reynist ekkert í farinu eftir fjóra áratugi. Risinn hefur ekki lagt til þróunar atvinnutækifæra sem tekið gætu við þegar takmarkið næðist — sam- dráttur í varnarstarfsemi, hann hefur ekki lagt til endurhæfingar starfsmanna sinna, ekki til atvinnu- leitar eða annarra sambærilegra verkefna. Starfsmenn hans fá ekki upplýsingar um hvað framundan kann að vera — fyrr en yfir þá ganga uppsagnir. Horfur um starfsemi varnarliðs- ins krefjast nýrrar athugunar á stöðu starfsmanna þess — einkum þeirra sem eru mest sérhæfðir og stjórnendur. Þeir mundu í sambæri- legum stöðum hér teljast opinberir starfsmenn og hafa sérstök réttindi við atvinnumissi. Verður að mælast til þess, að við samdrátt á umsvif- um, sem eru svo gríðarlega stór hluti vinnumarkaðar sem umsvif varnarliðsins öll eru á Suðurnesjum, þá teljist það sjálfsögð vinnubrögð að upplýsa tímanlega starfsmenn og þá aðila sem ábyrgir teljast fyr- ir atvinnuástandi og úrlausn við- fangsefna í kjölfar þess — eða til að mæta því. Of seint er þá gerst hefur. Samstarfi um öryggis- og varnarmál er aldrei lokið Varnarsamstarf okkar og Banda- ríkjamanna hefur tekist vel og náð því sem að var stefnt, að tryggja öryggi beggja. Varnarstarfi er þó aldrei lokið í síbreytilegum heimi. Undirstöðuatriði friðsamlegrar sambúðar þjóða, samskipti, samráð og samstarf mega ekki falla niður — það mundi leiða til vaxandi spennu þjóða í milli. Samvinna okk- ar og Bandaríkjanna á þessu sviði hefur leitt til mikilla samskipta á fleiri sviðum og til vináttu og skiln- ings okkar í milli — sem að var stefnt með samstarfinu. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjaneskjördæmi. ^SBMHWIUEO ALMENN VERKFÆRI Gbbusa -heimur gæöa! LÁGMÚLA 5 - REYKJAVÍK - SÍMI 91 - 681SSS Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.