Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 Fj ölbrautaskólan- um við Armúla slitið Tíu ára afmælisári skólans lokið FJÖLBRAUTASKÓLANUM við Ármúla var slitið við hátíðlega at- höfn í Langholtskirkju á Iaugardag. Brautskráðir voru 60 stúdentar auk 28 sjúkraliða, þar af 26 í framhaldsnámi. Alls hófu 786 nemend- ur nám í skólanum á vormisseri. Á þessu starfsári var auk þess tíu ára afmæli skólans minnst. Alls luku sex nemendur námi af bókhaldsbraut, 16 af félagsfræði- braut, 20 af hagfræðibraut, fimm af náttúrufræðibraut, sex af íþrótta- braut og sjö af málabraut. í febrúar gekkst skólinn auk þess fyrir nám- skeiði fyrir læknaritara, og að því loknu fengu þeir löggiidingu til starfa., í ræðu Hafsteins Þ. Stefánssonar, skólameistara, kom meðal annars fram að nemendum mun fækka nokkuð í haust sökum þess að skól- inn missir þá leiguhúsnæði sitt að Suðurlandsbraut 6. Heilsugæslusvið skóians styrkist enn á hausti kom- anda, en þá mun aðfaranám lyfja- tækna bætast við nám fyrir sjúkr- aliða, læknaritara og aðstoðarfólk tannlækna. í lok þessa tíunda afmælisárs skól- ans er ráðgert að _planta tijám í all- stórt svæði við Ármúla. Mun það verk unnið í samstarfi skólans, Reykjavíkurborgar og nokkurra fyr- irtækja í nágrenninu. Fulltrúar nýstúdenta, fimm ára stúdenta og tíu 'ára stúdenta fluttu ávörp og færðu skólanum gjafir. Hjálmar Pétursson, nýstúdent, söng við undirleik Ronalds Turners, sem auk þess lék nokkur lög á orgel kirkj- unnar. Að venju heiðraði skólinn þá nem- endur sem best stóðu sig í einstökum greinum. Berghildur Fanney Hauks- dóttir hlaut viðurkenningu fyrir góða kunnáttu í greinum sjúkraiiða, og Þórey Sigurðardóttir fékk bókargjöf fyrir bestan árangur í framhaldsnámi sjúkraliða. Dúx skólans var Sigur- borg Pálína Hermannsdóttir, en hún lauk stúdentsprófí af tveimur braut- um, alls 186 einingum. Hún hlaut einnig bókargjöf frá danska sendi- ráðinu. Frá Máli og menningu fékk hún bókargjöf fyrir góða ísiensku- kunnáttu. Auk áðurnefndra hlutu Andrína G. Erlingsdóttir, Björk Ormarsdóttir, Einir Jónsson, Guðmunda Kristín Elíasdóttir, Guðríður Linda Karldótt- ir, Helga Einarsdóttir, Jóhann Steinn Ólafsson, Páll Björgvin Guðmunds- son, Sæunn Ólafsdóttir, Úlfar Hin- riksson og Viðar Karlsson verðlaun fyrir góðan námsárangur í ýmsum greinum og fyrir forystustörf að félagsmálum. Nýstúdentar Flensborgarskólans. Flensborg útskrifaði 41 nýstúdent FLENSBORGARSKÓLANUM var slitið á laugardag við athöfn í Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnfirðinga. Þá var brautskráð- ur 41 stúdent frá skólanum. Bestum árangri á stúdentsprófi náðu Róbert Arnar Stefánsson og Guðrún Björk Bjarnadóttir, en þau luku bæði prófi af náttúru- fræðibraut. Við skólaslitin tóku til máls, auk skólameistara, þau Gunnar Rafn Sigurbjömsson, bæjarritari og formaður skólanefndar, Stefán Júlíusson, rithöfundur, sem færði skólanum bókagjöf frá 60 ára gagnfræðingum, og Víkingur Kristjánsson, nýstúdent, sem einnig færði skólanum bókagjöf. Við skólaslitaathöfnina söng Kór Flensborgarskóla undir stjórn Margrétar Pálmadóttur, en skóla- meistari, Kristján Bersi Ólafsson, afhenti prófskírteini og viður- kenningar fyrir góðan námsár- angur. Morgunblaðið/Þorkell Nýstúdentar úr Menntaskólanum í Kópavogi setja upp hvítu kollana. Menntaskólinn í Kópavogi: 43 stúdentar og 55 leið- sögumenn útskrifaðir MENNTASKÓLANUM í Kópavogi var slitið við hátíðlega athöfn í Kópavogskirkju, föstudaginn 22. maí. Auk 43 stúdenta voru sama dag brautskráðir 55 nýjir leiðsögumenn frá Ferðamálaskóla Islands, sem starfræktur er í menntaskólanum. Meðal hinna nýútskrifuðu stúd- enta eru 25 stúlkur og 18 piltar, en auk þeirra útskrifuðust fyrstu nem- endurnir af skrifstofubraut, 8 stúlk- ur. Brautin er tveggja ára starfs- menntabraut sem býður upp á hag- nýtt nám til starfa á skrifstofu. Hluti af náminu fer fram úti í atvinnulíf- inu, og hafa stofnanir og fyrirtæki í Kópavogi sýnt skólanum mikinn velvilja og tekið þátt í fræðslunni. Margrét Friðriksdóttir, settur skólameistari, flutti skólaslitaræð- una og afhenti prófskírteini auk verð- launa fyrir ágætan árangur í einstök- um greinum. Flest verðlaun hlaut Þórarinn Sv. Arnarsson, stúdent af eðlisfræðibraut. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, stúdent af náttúru- fræðibraut, lauk flestum námsein- ingum, eða 181, en 140 þarf til að Ijúka stúdentsprófi. Skólameistari skýrði frá því að fyrsti áfangi nýbyggingar fyrir Menntaskólann í Kópavogi og Hótel- og veitingaskóla íslands væri nú að rísa á lóð skólans, og yrði stjórnunar- álma tekin í notkun haustið 1993, á tuttugu ára afmæli MK. Einnig greindi skólameistari frá því að MK væri móðurskóli í ferðafræðum. Ferðabraut er starfrækt innan skól- ans, og auk þess öflugt kvöldnám fyrir þá sem starfa í ferðaþjónustu eða hafa hug á því. Stofnaður var sérstakur skóli á vegum MK, Ferða- málaskóli íslands, til að annast þessa starfsemi. Ferðamálaráð íslands fól Menntaskólanum í Kópávogi að ann- ast menntun leiðsögumanna, og voru 55 leiðsögumenn útskrifaðir á vegum skólans á laugardaginn. Menntaskólinn hefur tekið upp samstarf við bandaríska háskólann Johnson & Wales University á Rhode Island, sem veitir einum nýstúdent úr MK styrk til námsdvalar. Þessi styrkur var nú veittur ífyrsta sinn, og hann hlaut Hildur Yr Þorgeirs- dóttir, stúdent af ferðabraut. Skólakórinn söng undir stjóm Jóns Ólafssonar. Ingólfur A. Þorkelsson, skólameistari, flutti ávarp. Úr hópi nýstúdenta talaði Katrín Sigurðar- dóttir, og árnaði hún skólanum og samstúdentum allra heilla. Tíu ára stúdentar færðu skólanum gjöf sem Andrés Pétursson afhenti. Þá flutti Heimir Pálsson, formaður skóla- nefndar, ávarp. Lauk athöfninni með ávarpi skólameistara. Frá skólaslitum í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Frá útskrift Menntaskólans við Sund í Háskólabíói á laugardag. Morgunblaðið/Ingvar Menntaskólinn við Sund brautskráði 163 stúdenta MENNTASKÓLANUM við Sund var slitið í Háskólabíói Iaugar- daginn 23. maí, og lauk þar með 23. starfsári skólans. Að þessu sinni voru brautskráðir 163 stúdentar, en alls stunduðu 856 nem- endur nám við skólann. Sigurður Ragnarsson, rektor, flutti ávarp og yfirlit um starfsemi skólans á árinu. í máli hans kom fram að heildarfjöldi nemenda skiptist þannig, að á fyrsta ári voru 253 nemendur, 236 á öðru ári, 197 á því þriðja og 170 á fjórða ári. Stúdentar skiptust þannig á námsbrautir, að 29 voru í mála- deild, 35 í félagsfræðideild, 28 í hagfræðideild og 20 í eðlisfræði- deild. Hæstar einkunnir á stúd- entsprófi hlutu þær Brynja Braga- dóttir 9,2 og Elísabet Sigríður Urbancic 9,0. Þær voru báðar í náttúrufræðideild. Fjölmargir nemendur hlutu við- urkenningu fyrir góðan námsár- angur, og að lokinni afhendingu prófskírteina ávarpaði rektor ný- stúdenta og óskaði þeim allra heilla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.