Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 28

Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 Kosningar í sameinaðri Beriín: Fylgisaukning hjá öfgaflokkunum Berlín. Reuter, The Daily Telegraph. FYRRUM kommúnistar, Græningjar og hægri öfgaflokkur Repúblík- ana voru sigurvegarar kosninga í hverfisráð í Berlín á sunnudag, þeim fyrstu sem fram fara eftir að borgin var sameinuð á ný. Ur- slitin eru talin auka enn á vanda Helmuts Kohls kanslara, sem fund- ar á morgun með forystumönnum jafnaðarmanna um hugsanlega samvinnu flokkanna við lausn á efnahagsvanda og vaxandi óreiðu í Þýskalandi. Úrslitin í Berlín þykja sýna að sameining borgarinnar sé langt frá því að vera fullkomnuð þó að múr- inn sé horfinn. Kommúnistar, sem kalla sig nú Flokk iýðræðislegs sós- íalisma (PDS), fengu 11,8 prósent atkvæða, en þeim hlut var mjög misskipt. Þeir fengu innan við eitt prósent atkvæða í vesturhluta Ber- línar, en nærri 30 prósent í austur- hlutanum. Repúblíkanar, sem berj- ast meðal annars fyrir aðskilnaði Þjóðveija og útlendinga í skólum Berlínar, fengu 8,3 prósent og Græningjar og aðrir smáflokkar með líka stefnu fengu 13,3 prósent. Leiðtogar stærstu flokkanna, Kristilegra demókrata og Jafnaðar- manna, viðurkenndu að úrslitin jafngiltu vantrausti á stefnu þeirra, en þeir hafa farið með stjórn Berlín- ar í sameiningu frá 1990. Jafnaðar- menn töpuðu 5 prósentustigum, en eru þó áfram stærsti flokkurinn í borginni með tæpan þriðjung at- kvæða. Kristilegir demókratar töp- uðu tveimur prósentustigum og fengu 27,3 prósent. Aðalritari Kristilegra demókrata, Peter Hinze, sagði að flokkurinn og Kohl kanslari þyrftu að vinna með Jafnaðarmönnum, sem eru stærsti stjómarandstöðuflokkurinn, til að finna lausn á vaxandi kostn- aði við uppbyggingu austurhluta Þýskalands og auknum flóttamann- astraumi til landsins. Hann útilok- aði þó hugmyndir um að flokkarnir mynduðu saman ríkisstjórn. I sama streng tók Bjöm Engholm, formað- ur Jafnaðarmanna, sem sagðist myndu krefjast aukinna hátekju- skatta og niðurskurð á fram- kvæmdum í vesturhluta Þýskalands í viðræðum sínum við Kohl kanslara á morgun, miðvikudag. Reuter Thomas Klestil, nýr forseti í Austurríki, fagnar úrslitum kosning- anna en hann vann góðan sigur á keppinaut sínum, Rudolf Streicher. Hægrisinnaður stjórnarerindreki nýr forseti í Austurríki: Vill gæta hlutleysis og draga úr flokkadráttum Vín. Reuter. Hægrimaðurinn Thomas Klestil fór með sigur af hólmi í síðari umferð forsetakosninganna í Austurríki á sunnudag. Klestil fékk 57% atkvæða en Rudolf Streicher, frambjóðandi Jafnaðarmanna- flokksins, 43% og er þetta mesti fylgismunur í forsetakosningum í landinu frá síðari heimsstyrjöldinni. Klestil er 59 ára að aldri, hef- ur verið I 35 ár í utanríkisþjónustunni, þar af 18 ár sem stjórnarer- indreki í Bandaríkjunum. Hann kvaðst ætla að gæta hlutleysis i forsetaembættinu og freista þess að draga úr flokkadráttum í land- inu. Báðir ' frambjóðendurnir höfðu spáð því að mjótt yrði á munum í kosningunum og úrslitin komu þeim á óvart. Klestil verður tíundi forsetinn í 71 árs sögu austurríska lýðveldisins og tekur við af Kurt Waldheim, sem hafði einangrast í embættinu vegna ásakana um að hann hefði gerst sekur um stríðs- glæpi sem herforingi í þýska hern- um í síðari heimsstytjöldinni. Klestil sagði að kosningabarátta sín hefði verið heiðarleg og mál- efnaleg og flokkstengsl hans hefðu ekki ráðið úrslitum, en hann naut stuðnings Þjóðarflokksins, sem er hægriflokkur. Klestil lofaði að sameina Austurríkismenn og hvatti til breyttra samskipta í stjórnmálaumræðunni, þar sem heiðarleiki og samvinna yrðu höfð að leiðarljósi. Borgararnir ættu að hafa meira vægi en flokkarnir minna. Klestil fæddist árið 1932, var yngstur fimm barna strætisvagna- bílstjóra í Vín. Hann starfaði í 18 ár í Bandaríkjunum, þar af í tíu ár sem sendiherra, og hefur sagt að vinir sínir þar hafi litið á hann sem öfgavinstrimann. Hann kveðst dást að bandaríska þjóðfélaginu vegna þeirra tækifæra sem það bjóði einstaklingum og athafna- mönnum, en hefur hins vegar gagnrýnt heilbrigðis- og mennta- kerfíð í Bandaríkjunum. Forseti Austurríkis er valdalítill þjóðhöfðingi. Klestil sver emb- ættiseiðinn 8. júlí. Morðið á Falconi, dómara á Sikiley: Ohugurinn sner- ist upp í ofsareiði ítalskir stj órnmálamenn heita að skera upp herör gegn mafíunni Róm. Frá Hilmari P. Þormóðssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. ITALSKA þjóðin var fyrst í stað lömuð af skelfingu, síðan ofsa- reið þegar ljóst varð af fréttum útvarps og sjónvarps á laugar- dagskvöld, að Giovanni Falconi, dómari á Sikiley og óvinur mafí- unnar númer eitt, hafði látið lífið ásamt eiginkonu sinni og þrem- ur lífvörðum í geysiöflugri sprengingu á hraðbrautinni fyrir utan Palermo. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum hafa lýst yfir hryggð sinni og heitið að láta hart mæta hörðu. Það var klukkan tæplega sex, að flugvél frá ítölsku leyniþjón- ustunni lenti á flugvellinum í Punta Raisi með Falconi og konu hans, Francescu, innanborðs. A flugvellinum biðu hans sjö lífverð- ir með þijár nýjar bifreiðar, sér- staklega brynvarðar til að þola kúlnaregn og sprengjukast. Lagt var af stað eftir hrað- brautinni, sem liggur til Palermo, og eftir örfáar mínútur átti bíla- lestin, sem þaut áfram á 130 km hraða, aðeins rúma fimm km ófarna til borgarinnar. Skyndilega kvað við ógnarhávaði eins og him- inn og jörð væru að rifna í sund- ur. Hraðbrautin undir bílalestinni umturnaðist öll og þeyttist í loft upp á fimmtíu metra kafla. Það eina, sem sást, var eldslogar, sót- svartur reykur og fljúgandi mal- biksflykki. Gígurinn, sem mynd- aðist við sprenginguna var átta metra djúpur þar sem hann var dýpstur enda hafði mafían komið fyrir í ræsi undir veginum 1.000 kg af plastsprengiefni. Það, sem ekki hafði tekist 1989, lánaðist nú. Mafían hafði lagt óvin sinn númer eitt að velli, manninn, sem gerði ljóst, að hægt er að upp- ræta skipulagða glæpastarfsemi. Mafían væri kerfí en ekki samtök, sem þyrfti að rífa niður stykki fyrir stykki. Þrír lífvarðanna lágu einnig í valnum og eiginkona Falc- onis, 38 ára gömul og lögfræðing- ur og dómari eins og hann, dó á sjúkrahúsi í Palermo tveimur klukkustundum seinna þrátt fyrir ákafar tilraunir til að bjarga lífi hennar. Rannsókn málsins hófst að sjálfsögðu strax á laugardag. Enginn átti að vita um ferðir dóm- arans en getgátur eru uppi um, að „moldvarpa“ í Róm hafi látið vini sína í Palermo vita þegar Falconi fór i loftið. Fólk bjóst við engu góðu af mafíunni en hér þótti hún hafa slegið óvenju níðangurslega undir beltið þegar illa stóð á hjá ítölsku þjóðinni. í landinu ríkir stjórnar- kreppa og forsetakreppa í skugga V Reuter Leifarnar af brynvörðum bílnum, sem Falconi og kona hans fóru með í hinstu ferðina. Talið er, að einu tonni af öflugu sprengi- efni hafi verið komið fyrir í ræsi undir hraðbrautinni. erfiðra hneykslismála í Mílanó og því er haldið fram, að það hafi ekki verið nein tilviljun, að hún lét til skarar skríða einmitt núna. Nú viti menn hver sé hinn raun- verulegi húsbóndi á Sikiley. Voða- verkið hefur örugglega orðið til að flýta úrslitum í vali á forseta- efni, sem kunngert var í gær- kvöldi. Almenningur var sleginn mikl- um óhug fyrst í stað en síðan breyttist andrúmsloftið og fólk varð reitt. Reitt út í stjómmála- mennina fyrir ódugnað og rolu- skap og fyrir að hafa ekki veitt dómaranum næga vemd. Sikiley- ingar hafa verið manna reiðastir út af þessu. Stjórnmálamennirnir eru slegnir ekki síður en almenn- ingur. Spadolini, sem gegnir emb- ætti forseta um stundarsakir, sagði, að þetta væri árás á ríkið sjálft og þeirri árás yrði að hrinda. Vincenzo Scotti innanríkisráð- herra sagði: „Það er skylda okkar að halda áfram á þeirri braut, sem Falconi markaði.“ Bettino Craxi, leiðtogi Sósíalistaflokksins, sagði, að með Falconi væri fallinn í val- inn óhræddur dómari og óbugandi óvinur skipulagðrar glæpastarf- semi, við morðunum yrði að bregðast áður en vantraustið næði að vinna óbætanlega skaða meðal almennings. Jóhannes Páll páfi sagði, að ekki væm til orð, sem lýst gætu þeim sársauka, sem altæki hugann frammi fyrir slík- um hryllingi. Giovanni Falconi sagði í síðasta viðtali sínu við dagblaðið La Repubblica: „Mafían er ekki kol- krabbi, hún er grimmt pardusdýr með minni fílsins, gleymir engu og fyrirgefur ekkert." Utför þeirra, sem fórust í sprengingunni, var gerð frá dóm- kirkjunni í Palermo á Sikiley í gær. Fjölmiðlar gagnrýna Mitterrand FJÖLMIÐLAR í Frakklandi gagnrýna Francois Mitterrand forseta harðlega fyrir að hafa skipað milljónamæringinn Bem- ard Tapie ráðherra en hann hef- ur nú neyðst til að segja af sér eftir sjö vikna ráðherradóm vegna ásakana um fjármálamis- ferli. Eru Mitterrand og sósíalist- ar sakaðir um að hafa fengið Tapie, sem á Adidas-fyrirtækið og það kunna knattspyrnulið Olympique de Marseille, til liðs við sig til að hressa upp á ímynd- ina án þess að kanna hvernig mál hans stæðu og verið síðan fljótir til að losa sig við hann. Tapie og þingmaðurinn George Tranchant voru áður saman með Toshiba-umboðið í Frakklandi en seldu það 1985. Segir Tranc- hant, að Tapie hafi sagt sölu- verðið vera 1,8 milljónir franka en í raun hafi það verið 13 millj- ónum franka hærra og mismun- inum hafí Tapie stungið á sig. Fundur um Evrópuher Vamarmálaráðherrar NATO- ríkjanna í Evrópu komu saman til fundar í Bmssel í gær til að ræða valda- og kostnaðarskipt- ingu innan bandalagsins á tímum þegar útgjöld til varnarmála fara lækkandi. Leggur Bandaríkja- stjórn áherslu á, að bandalags- ríkin taki meiri þátt í kostnaðin- um við bandaríska vopnabúnað- inn í Evrópu auk þess sem hún geldur varhug við stofnun hins nýja Evrópuhers. Bretar og Hol- lendingar em sama sinnis en vonast var til, að á fundinum í gær yrði unnt að sætta sjónar- miðin nokkuð. Mótmæla- svelti hætt MIRIAM Santiago, forsetafram- bjóðandi á Filippseyjum, hefur hætt mótmælasvelti, sem hún fór í til að vekja athygli á því, sem hún kallar víðtækt svindl í for- setakosningunum í landinu. Fátt virðist geta komið í veg fyrir, að Fidel Ramos, fyrrum varnar- málaráðherra, verði næsti for- seti. Þegar talin hafa verið 68% af um 25 milljónum atkvæða hefur hann meira en milljón at- kvæða umfram Santiago, sem kemur næst honum. Landsbergis vonsvikinn TILLAGA um að stórauka vald forsetaembættisins í Li^háen féll í þjóðaratkvæðagreiðslu sl. laug- ardag vegna ónógrar kosninga- þátttöku. Voru raunar nærri 70% þeirra, sem kusu, tillögunni fylgjandi en vegna þess, að þátt- takan var ekki nema 57,5%, fékk tillagan ekki fylgi 50% atkvæðis- bærra manna eins og til þurfti. Fjallgöngu- konu saknað WÖNDU Rutkiewicz, einnar kunnustu fjallgöngukonu í heimi, hefur verið saknað í fjöllum Nep- als í tvær vikur og þykja litlar líkur á, að hún sé enn á lífí. Wanda, sem er tæplega fimm- tug, ljósmyndari, rithöfundur og kennari, sást síðast í búðum hátt í Kangchenjunga-fjalli 12. maí en hún ætlaði á tindinn daginn eftir. Wanda var þriðja konan og sú fyrsta frá Evrópu til að sigra Everest.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.