Morgunblaðið - 26.05.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
Sala á endurunnum
vörum tvöfaldaðist
HAGNAÐUR af rekstn Gúmmívinnslunnar var nokkru minni á síðasta
ári en verið hefur á undanförnum árum, eða tæplega 5 milljónir króna
eftir skatta. Frá því fyrirtækið hóf starfsemi árið 1984 hefur alltaf
verið hagnaður af rekstrinum. Velta Gúmmívinnslunnar á síðasta ári
var um 80 milljónir króna. Meðalstarfsmannafjöldi fyrirtækisins var
12 manns á síðasta ári.
Sala endurvinnsluvara ríflega tvö-
faldaðist á síðastliðnu ári, en sölu-
aukningin er árangur markaðsátaks
sem fyrirtækið hóf á árinu. Einnig
má þakka mikla söluaukningu því
að almenningur er orðinn meðvitaðri
um mikilvægi endurvinnslu og segir
í frétt frá Gúmmívinnslunni, að
endurvinnsla stuðli ekki aðeins að
minni sorpmengun heldur einnig að
bættri nýtingu auðlinda jarðar. Á
liðnu ári endurvann Gúmmívinnsian
um 100 tonn af gúmmíi og endur-
nýtti um 150 tonn með hjólbarðasóln-
ingu.
Búist er við áframhaldandi sölu-
aukningu endurvinnsluvara og eru
mestar vonir bundnar við GV-reitinn,
sem notaður er við sundlaugar, á
leikvelli og á sólpalla og GV-milli-
bobbinga, sen notaðir eru á veiðar-
færi. Þá er einnig búist við að sala
nýrra hjólbarða eigi eftir að aukast.
Undanfarin ár hefur verið unnið
að stækkun húsnæðis og eridurskip-
ulagningu fyrirtækisins. Á síðasta
ári lauk endurskipulagninu sólning-
ardeildar og ný skrifstofuaðstaða var
tekin í notkun.
Krabbameinsfélagið;
Okeypis blettaskoðun
á Heilsugæslustöðinni
FELAG íslenskra húðlækna, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrenn-
is og Heilsugæslustöðin á Akureyri sameinast um þjónustu við almenn-
ing næstkomandi föstudag, 29. maí.
Fólk sem hefur áhyggjur af blett-
um á húð getur komið á Heilsugæslu-
stöðina á Akureyri, þar sem húðsjúk-
dómalæknar skoða biettina og meta
hvort ástæða er til að nánari rann-
sókna. Skoðunin er ókeypis, en nauð-
synlegt er að panta tíma á Heilsu-
gæslustöðinni, þriðjudaginn 26. maí
eða miðvikudaginn 27. maí.
Eins og kunnugt er hefur tíðni
húðkrabbameins aukist síðustu ára-
tugi og eru skráð meira en þijátíu
ný tilfelli af húðkrabbameini hér á
landi á ári. Mikilvægt er að fara til
læknis, ef fram koma breytingar á
húð, eins og blettir sem stækka, eru
óreglulega litir eða breytast, eða sár
sem ekki gróa. Hægt er að nálgast
fræðslurit um húðkrabbamein á
flestum heilsugæsiustöðvum, mörg-
um apótekum og hjá Krabbameins-
félagi Akureyrar og nágrennis að
Glerárgötu 36, en það var gefíð út
nýlega.
#*tfa#
RÍK/SÚTVARP/Ð
Ný símanúmer!
Ríkisútvarpið á Akureyri auglýsir ný símanúmer
12300
Fréttastofa 12305 Auglýsingar 12310
Sjónvarp 12308 Fax 11646
Geymið auglýsinguna.
-•súíSíðA
ÓÍLVÍ^
s.
fisiviiisiikuh
utk
Sjávarútvegsdeildin
á Dalvík - VMA
veturinn 1992-1993
Skipstjórnarnám:
Kennt er til skipstjórnarprófs, 1. og 2. stigs.
Fiskiðnaðarnám:
Kennt er til fiskiðnaðarmannsprófs.
Almennt framhaldsnám:
1. bekkur framhaldsskóla.
Heimavist á staðnum.
Umsóknarfrestur til 15. júní.
Upplýsingar í símum (96) 61380, 61162, 61218
og 61160.
Skólastjóri.
Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson
Gæðaátak tslenskra sjávarafurða
Gæðaátak 1992 stendur nú yfir hjá íslenskum sjávarafurðum, en fulltrúar þess eru nú á ferð um landið
og munu heimsækja 27 framleiðendur er hafa falið ÍS sölu á afurðum sínum. Heimsóknirnar hófust 7. maí
sl. og standa til 5. júní. Tilgangur átaksins er að opna umræðu á meðal starfsfólks og stjórnenda um
mikilvægi gæða og staðlaðra vinnubragða og einnig að kynna starfsemi íslenskra sjávarafurða hf. Haldin
eru námskeið fyrir starfsfólk frystihúsanna, enda búast menn við aukinni samkeppni og hertum kröfum
á markaðnum og neytendavernd verður til þess að sífellt verður að gera betur í málum er varða vöruvöndun
og þjónustu. Með í för er Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari sem miðlar af reynslu sinni af meðferð fisks
og matreiðir hann nokkra rétti ef fólki gefst kostur á að smakka. Fulltrúar ÍS heimsóttu Fiskvinnslustöð KEA
í Hrísey fyrir skömmu þar sem þessi mynd var tekin.
Islenskur skinnaiðnaöur:
Samið við Great Green-
«*
land um sútun selskinna
íslenskur skinnaiðnaður hefur gert samning við grænlenska fyrir-
tækið Great Greenland um framleiðslu leðurs úr selskinni. Gert
er ráð fyrir að unnin verði á bilinu 20 til 40 þúsund selskimyá ári
hjá Islenskum skinnaiðnaði, sem hefur í för með sér betri nýtingu
vélakosts og mannskaps og ef vel gengur má búast við að fjölga
þurfi starfsfólki hjá fyrirtækinu í kjölfarið.
Bjarni Jónasson framkvæmda-
stjóri sagði að grænlenska fyrir-
tækið ætti mikið magn selskinna,
en það byggi hvorki yfir þekkingu
né vélakosti til að súta skinnin.
Langur aðdragandi hefði verið að
því að þessi samningur var gerð-
ur, en fyrirtækin hefðu vitað hvort
af öðru í töluverðan tíma, eða allt
frá árinu 1986.
Great Greenland, sem er í
Julianahaab á Grænlandi á mikið
magn selskinna, eða hátt á annað
hundrað þúsund skinn. Þá fellur
árlega til umtalsvert magn sel-
skinna. Gera má ráð fyrir að hjá
verksmiðjunni á Akureyri verði
unnin á bilinu 20 til 40 þúsund
skinn á ári fyrir um 10 til 20
milljónir króna.
Ur skinnunum verða saumaðar
flíkur, en Grænlendingarnir hafa
hug á að láta sauma þær fyrir sig
einhvers staðar í Evrópu, líklega
í Póllandi. Fullt samkomulag er
um þessa vinnslu á milli heima-
manna og umhverfisverndarsam-
taka, sem gefið hafa út að þau
muni ekki trufla þessa starfsemi,
enda sé um að ræða hluta af
menningararfleifð Grænlendinga.
Fram til þessa hefur ekki verið
unnt að fullnýta selskinnin, _en
með tilkomu samningsins við ís-
lenskan skinnaiðnað verður þar
breyting á.
Sumarhús
Þetta fallega 50 m2 sumarhús, sem smíðað er af nemend-
um trésmíðadeildar Verkmenntaskólans á Akureyri, er til
sýnis og sölu. Húsið erfullgert.
Upplýsingar í /júúz\ Verkmenntaskólinn
síma 96-11710. á Akureyrl
Bjarni sagði að þessi vinnsla
kæmi sem hrein viðbót við aðra
starfsemi fyrirtækisins og hefði í
för með sér betri nýtingu véla-
kosts verksmiðjunnar sem og
mannskaps og ef vel gengi þyrfti
að bæta við starfsfólki. Samning-
urinn gæti þýtt að bæta þyrfti við
starfsfólki í 8 stöður hjá fyrirtæk-
inu. Framhaldið ræðst einkum af
því hvernig Grænlendingum geng-
ur að markaðssetja þær flíkur sem
saumaðar verða úr selskinnunum.
Fyrirlestur
á sviði sér-
kennslu
TOVE KROGH flytur fyrir-
lestur í Síðuskóla á Akureyri
í dag þriðjudag, en hún flutti
einnig fyrirlestur í gær á
vegum sérkennara um lestr-
ar- og skriftarörðugleika.
Tove Krogh er kennari og
uppeldisfræðingur og hefur
starfað við Kennaraháskólann
í Kaupmannahöfn og Dan-
marks pædagogiske institut
ásamt því að vera kennsluráð-
gjafi við ráðgjafar- og sáifræði-
deijd skóla.
I fyrirlestrinum í dag mun
Tove fjalla um teikniathugun,
sem er athugunarform til nota
með hópum 6 ára barna. Hun
gerir einnig grein fyrir rann-
sóknum sem gerðar hafa verið
í Danmörku á forspárgildi
prófsins.
Fyrirlesturinn hefst kl. 16
og er öllum opin. Það er félag
íslenskra sérkennara, deild á
Norðurlandi eystra, sem stend-
ur fyrir fyrirlestrunum.