Morgunblaðið - 26.05.1992, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
0
Iþróttamót Harðar:
Berglind beint
á toppinn í full-
orðinsflokki
___________Hestar______________
Valdimar Kristinsson
OFT HEFUR verið um það talað
að erfitt sé fyrir unga keppnis-
fólkið að byrja keppni í fullorðins-
flokki á hestaíþróttamótum. Ekki
vafðist það þó fyrir henni Berg-
lindi Ámadóttur þegar hún keppti
í fyrsta skipti á þeim vettvangi á
íþróttamóti Harðar um helgina.
Gerði hún sér lítið fyrir og sigr-
aði bæði í tölti og fjórgangi en í
fjórgangsúrslitunum vann hún sig
upp úr fimmta sætinu. Þurfti
reyndar að heyja bráðabana um
sæti í úrslitum við Brynhildi Þor-
kelsdóttur á Krumma.
Berglind var reyndar ekki eina
ungmennið sem stóð sig vel á mótinu
því önnur stúlka, Kristín Birna Ósk-
arsdóttir, sem keppti á Bijáni frá
Úlfljótsvatni var einnig í úrslitum í
tölti og fjórgangi. Báðar ætluðu
stúlkumar að keppa í ungmenna-
flokki en vegna dræmrar þátttöku
féll hann niður.
Sigurður Sigurðarson á Létti frá
Skammbeinsstöðum stal sigrinum í
fimmgangi af læriföður sínum
Trausta Þór Guðmundssyni sem
keppti á þeim kunna hesti Garpi frá
Hala en þeir voru í fyrsta sæti eftir
forkeppnina en Sigurður í öðru sæti.
Trausti varð reyndar í öðru sæti í
öllum hringvallagreinunum og
gæðingaskeiði en sigraði í hlýðni-
keppninni með nokkrum yfirburðum.
Hann sigraði hinsvegar í tvíkeppnun-
um og varð stigahæstur keppenda.
Miðað við frammistöðu unglinga
og bama hjá Herði í keppnum út á
við mætti ætla að þar sé mikil gróska
í innanfélagskeppnum í þessum
aldursflokkum. Svo er þó ekki því
erfiðlega hefur gengið að manna
þessa aldursflokka hjá Herði en þeir
fáu sem keppa eru hinsvegar yfir-
leitt mjög sterkir. í barnaflokki var
Guðmar Þór Pétursson öruggur með
sigur bæði í tölti og fjórgangi á
Limbó og Mekki og Gunnar Þor-
steinsson sigraði auðveldlega í ungl-
ingaflokki en þar voru keppendur
aðeins tveir. Harðarfélagar luku
mótinu sínu á laugardag en það
færist í vöxt að félög byrji mót sín
á föstudags- og jafnvel fimmtudags-
kvöld o*g ljúki þeim á laugardegi sem
virðist góð ráðstöfun.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
Fullorðnir:
Tölt
1. Berglind Ámadóttir á Snjalli frá
Gunnarsholti, 84.
2. Trausti Þór Guðmundsson á Kappa
frá Syðra-Skörðugili, 83,47.
3. Eysteinn Leifsson á Hugi frá
Stykkishólmi, 75,47.
4. Kristín Bima Óskarsdóttir á Bijáni
frá Úlfljótsvatni, 79,47.
5. Snorri Dal Sveinsson á Össuri frá
Hjarðartungu, 76,53.
Fjórgangur
1. Berglind Árnadóttir á Snjalli frá
Gunnarsholti, 45,56.
2. Trausti Þór Guðmundsson á Kappa
frá Syðra-Skörðugili, 53,21.
3. Kristín Bima Óskarsdóttir á Bijáni
frá Úlfljótsvatni, 47,77.
4. Sigurður Sigurðarson á Goða frá
Ey, 46,92.
5. Þórunn Þórarinsdóttir á Sóma frá
Holti, 45,90.
Fimmgangur
1. Sigurður Sigurðarson á Létti frá
Trausti Þór á Garpi varð að gefa eftir fyrsta sætið í úrslitum fimmgangs i hendur lærisveini sínum
Sigurði Sigurðarsyni sem keppti á Létti. Aðrir í verðlaunasætum eru Brynjar Gunnlaugsson á Örp,
Haraldur Sigvaldason á Hrafntinnu og Eysteinn Leifsson á Degi.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Berglind Árnadóttir sem nú keþpti í fyrsta sinn i fullorðinsflokki gerði
sér lítið fyrir og sigraði í tölti og fjórgangi á Snjalli frá Gunnars-
holti. Vann hún það ágæta afrek í úrslitum í fjórgangi að vinna sig
úr fimmta sæti í það fyrsta.
Skammbeinsstöðum, 52,2.
2. Trausti Þór Guðmundsson á Garpi
frá Hala, 54.
3. Brynjar Gunnlaugsson á Örp frá
Mosfellsbæ, 50,2.
4. Haraldur Sigvaldason á Hrafn-
tinnu frá Brúarhóli, 47,2.
5. Eysteinn Leifsson á Degi frá Mos-
fellsbæ, 50.
Gæðingaskeið
1. Páll Viktorsson á Pela frá Hvoli,
68,5.
2. Trausti Þór Guðmundsson á Garpi
frá Hala, 65.
3. Björgvin Jónsson á Pæper frá
Varmadal, 63.
Hlýðni B
1. Trausti Þór Guðmundsson á Kappa
frá Syðra-Skörðugili, 32,3.
2. Haraldur Sigvaldason á Darra frá
Rangá, 16,7.
3. Snorri Dal Sveinsson, 16,5.
íslensk tvíkeppni, skeiðtvíkeppni
og stigahæsti keppandinn í full-
orðinsflokki
Trausti Þór Guðmundsson 136,68,
119 og 287,98.
Spennandi keppni á hesta-
móti Gusts í B-flokki
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
GUSTUR f Kópavogi var með sitt
árlega hestamót í Glaðheimum
með gæðingakeppni og kappreið-
um. Keppni var geysispennandi
en í B-flokki gæðinga munaði að-
eins 0,02 stigum á fyrsta og þriðja
hesti. Það var Stígandi frá Uxa-
hrygg sem stóð þar efstur í lokin
en sigurinn var nokkuð öruggari
ly'á Mekki frá Þóreyjarnúpi í A-
flokki.
Mótið hófst á laugardag og lauk
í góðu veðri á sunnudag. Að lokinni
gæðingakeppni voru haldnar kapp-
reiðar sem voru sannkallaðar áhuga-
mannakappreiðar þar sem fijálsræð-
ið og keppnisgleðin réð ríkjum. Ekki
var verið að gera veður út af því
þótt einn keppandinn riði á mótin
einum riðlinum út að rásmarki.
Tímar voru ekki merkilegir í brokki
og stökki en alveg þokkalegir í 150
metra skeiði. Ekki er hægt að skilja
svo við hestamót Gusts að minnast
ekki á nafn eins hestsins í skránni,
en sá heitir Takkaskór. Virðast eng-
in takmörk fyrir því hvað menn geta
gengið langt í vitleysunni. Getum við
þá kannski átt von á því að fá næst
Háhælaða skó — eða hvemig væri
til dæmis Klofstígvél?
En úrslit urðu annars sem hér
segir:
A-flokkur:
1. Mökkur frá Þóreyjamúpi, F.: Hjör-
var, Reykjavík. M.: Stóra-Brúnka,
Eigandi og knapi Jón Gísli Þorkels-
son, 8,36.
2. Funi frá Þóreyjamúpi, F.: Blossi,
M.: Blesa. Eigandi Guðrún Bjama-
dóttir, knapi Halldór Gísli Guðnason,
8,22.
3. Gnýfari frá Hálsi í Kjós, F.: Sörli
653, M.: Gletta frá Hálsi. Eigandi
Karl Kristjánsson og knapi Georg
Kristjánsson, 8,11.
4. Feykir frá Kópavogi, F.: Ófeigur
882, M.: Dimmalimm. Eigandi og
knapi Bjarni Sigurðsson, 8,23.
5. Straumur frá Sumarliðabæ, F.:
Freyr, Flugumýri. Eigandi og knapi
Halldór Viktorsson, 8,13.
5. Gnýfari frá Hálsi, Kjós. F.: Sörli
653, M.: Gletta, Hálsi. Eigandi Karl
Kristjánsson, knapi Georg Kristjáns-
son, 8,11.
B-flokkur:
1. Stígandi frá Uxahrygg, F.:
Krummi 880, M.: Brúnka. Eigandi
Örn Þorvaldsson, knapi Friðfínnur
Hilmarsson, 8,53.
2. Hörður frá Bjarnastöðum, F.:
Hrafnkell, Ólafsvöllum, M.: Nótt frá
Bjarnastöðum. Eigandi og knapi
Halldór Viktorsson, 8,52.
3. Toppur frá Skíðbakka, F.: Háfeti,
M.: Skeifa frá Kirkjubæ. Eigandi
Hilmar Jónsson, knapi Sigurbjörn
Bárðarson, 8,51 og valinn glæsileg-
asti hestur mótsins.
4. Gleði frá Þórukoti, F.: Eldur 950,
M.: Dúkka frá Þórukoti. Eigandi íris
Björk og Hallgrímur, knapi Iris Björk
Hafsteinsdóttir, 8,43.
5. Adam frá Götu, F.: Gáski 920,
M.: Spóla frá Götu. Eigandi Krist-
mann Óskarsson, knapi Sigutjón
Gylfason, 8,37.
Unglingar:
1. Victor Victorsson á Snúði frá
Stóru-Mástungu, 8,26.
2. Oddrún Sigurðardóttir á Jarpi frá
Búðarhóli, 7,69.
3. Björg María Þórsdóttir á Dropa
frá Fjalli, 7,57.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Eftir spennandi keppni bæði í forkeppni og úrslitum sigraði Stíg-
andi frá Uxahryggi i B-flokki gæðinga hjá Gusti, knapi var Friðfinn-
ur Hilmarsson.