Morgunblaðið - 26.05.1992, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1992
ÞJOÐMAL STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Aukið sjálfstæði Seðlabankans
Lokað á lán
til ríkissjóðs
Meginhlutverk Seðlabankans
hefur verið fjórþætt: 1) að gefa
út seðla og mynt, 2) að varð-
veita gjaideyrisforða landsins,
3) að vera banki ríkissjóðs og
4) að vera banki innlánsstofnana
og veita þeim lán ef fjárhagslegt
öryggi þeirra er í hættu.
Samkvæmt óafgreiddu sljórn-
arfrumvarpi um Seðlabanka ís-
lands verður meginmarkmið
bankans að varðveita verðgildi
íslenzka gjaldmiðilsins (krón-
unnar) og stuðla að stöðugu
verðlagi. Bankinn skal að auki:
1) stuðla að virkri og öruggri
starfsemi á fjármagnsmarkaði,
2) varðveita nægjanlegan gjald-
eyrisvarasjóð til að greiða fyrir
frjálsum viðskiptum við útlönd
og treysta fjárhagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar og 3) stuðla
að greiðri og hagkvæmri
greiðslumiðlun í landinu og við
útlönd.
I. Breytingar á fjarmagns-
og gjaldeyrismarkaði
Á undanförnum árum hafa orðið
verulegar breytingar á fjármagns-
markaði og í gjaldeyrismálum. Með
setningu Seðlabankalaga 1986
voru innviðir fjármagnsmarkaðar-
ins styrktir, skýrar leikreglur sett-
ar og bankaeftirliti Seðlabankans
falið eftirlit með stofnunum á þess-
um markaði. Viðskiptabönkum og
sparisjóðum hefur og fækkað með
samruna. Eignarleigur, verðbréfa-
fyrirtæki og verðbréfasjóðir hafa
náð að festa sig í sessi. Þróast
hefur markaður fyrir verðbréf,
einkum skuldabréf til langs tíma,
en einnig víxla og önnur skamm-
tímabréf sem og hlutabréf.
Samtímis hefur smám saman
dregið úr gjaldeyrishöftum. Það
hefur styrkt tengsl milli innlends
fjármagsmarkaðar og erlendra
fjármagnsmarkaða, sem og ný
reglugerð um gjaldeyrismál frá
árinu 1990. Mikilvægasta breyt-
ingin fólst í því að Islendingum
var heimilað að fjárfesta utan land-
steina innan tiltekinna fjárhæðar-
marka. Þær takmarkanir falla nið-
ur fyrir árslok 1992. Með lögum
um fjárfestingu erlendra aðila
(1991) var erlendum aðilum heim-
ilað að eiga allt að 25% af hlutafé
í innlendum hlutafélagsbanka og
frá og með ársbyijun 1992 er er-
lendum hlutafélagabönkum heimilt
að opna útibú hér á landi.
Frá komandi áramótum verður
Vestur-Evrópa nánast að einum
fjármagnsmarkaði þar sem fjár-
magn getur streymt hindrunarlítið
frá einu ríki til annars.
Á sameiginlegum markaði
skapa gengissveiflur óvissu, óþarfa
kostnað og draga úr milliríkjavið-
skiptum. Af þeim sökum hefur
samstarf ríkja í gengismálum auk-
izt. Þjóðir utan Evrópubandalags-
ins hafa sumar hveijar kosið að
tengja gjaldmiðla sína við gjald-
miðla EB-ríkja. Þannig ákváðu
Finnland, Noregur og Svíþjóð að
fasttengja gjaldmiðla sína við
ECU. Islendingar hafa horft til
sömu áttar.
Breyttar aðstæður frá því Seðla-
bankalög vóru sett (1986) krefjast
að flestra dómi aukins sjálfstæðis
bankans og virkrar faglegrar
stjórnunar hans, m.a. til að hann
geti brugðizt skjótt við óvæntum
aðstæðum í peninga-, gengis- og
gjaldeyrismálum. Það er því tíma-
bært að breyta löggjöf um Seðla-
banka, eins og að er stefnt með
frumvarpi viðskiptaráðherra.
II. Meginefni
Seðlabankafrumvarpsins
I athugasemdum með Seðlbank-
afrumvarpi segir að tilgangurinn
sé „að skapa fjárhagslega traustan
og sjálfstæðan seðlabanka sem
hefur skýr og afmörkuð markmið
og ræður yfir stjórntækjum sem
duga til að ná þeim markmiðum".
'Þar segir og að vafasamt sé, eins
og gert er í gildandi lögum, „að
fela seðlabanka markmið um
rekstrargrundvöll útflutnings- og
samkeppnisgreina. Ábyrgð á því
sviði hlýtur fyrst og fremst að
hvíla á fyrirtækjunum sjálfum og
þeirri almennu umgjörð og þeim
sérstöku ráðstöfunum sem önnur
stjórnvöld móta eða grípa til á
hveijum tíma.“
Með hliðsjón af þessu einfaldar
stjórnarfrumvarpið markmið bank-
ans. Samkvæmt frumvarpinu er
honum falið það eitt meginmark-
mið að varðveita verðgildi íslenzka
gjaldmiðilsins og stuðla að stöðugu
verðlagi. Jafnframt er sjálfstæði
bankans til að móta og hrinda í
framkvæmd stefnu í peningamál-
um aukið verulega frá því sem nú
er. í því felst meðal annars „að
beiting á stjórntækjum bankans
er ekki háð samþykki ráðherra".
Auk meginmarkmiðsins er
bankanum sett þijú hliðarmarkm-
ið: a) að stuðla að virkri og ör-
uggri starfsemi á fjármagnsmark-
aði, 2) að varðveita nægjanlegan
gjaldeyrisvarasjóð til þess að
greiða fyrir fijálsum viðskipum við
önnur lönd og 3) að stuðla að
greiðri og hagkvæmri greiðslum-
iðlun í landinu og við umheiminn.
„Hér er um mikilvæg verkefni að
ræða“, segir í rökstuðningi með
frumvarpinu, „sem eðlilegt er að
fela Seðlabankanum í ljósi einka-
réttar hans til að gefa út seðla og
mynt“.
í frumvarpinu er lögð til sú
mikilvæga breyting „að bankanum
verði óheimilt að lána ríkissjóði,
sveitarfélögum og ríkisstofnunum
öðrum en lánastofnunum. í ákvæði
til bráðabrigða er lagður til þriggja
ára aðlögunarfestur að þessu
ákvæði, þannig, að hámarksskuld
ríkissjóðs í bankanum fari stig-
minnkandi."
Auk framansagðs felast fjöl-
margar aðrar breytingar í frum-
varpinu: 1) lög um gjaldmiðil á að
fella inn í Seðlabankalög, 2) fella
á niður heimild um möguleika
bankans til að hlutast til um vaxta-
ákvarðanir innlánsstofnana, 3)
bankinn fær heimild til að kaupa
og selja verðbréf á verðbréfamark-
aði og gefa út eigin verðbréf til
að selja lánastofnunum á milli-
bankamarkaði, 4) bankinn fær
heimild til að skipuleggja gjaldeyr-
ismarkað og kaupa og selja erlend-
an gjaldeyri, 5) ákvæði um laust
fé lánastofnana verður þrengt frá
því sem nú er, 6) heimildir banka-
eftirlitsins til að grípa inn í starf-
semi fjármálastofnana eru auknar,
7) bankinn fær heimild til að veita
lánastofnunum önnur lán en hefð-
bundin vegna hugsanlegra lausafj-
árerfiðleika, 8) verulegar breyting-
ar eru gerðar á stjórn bankans,
9) lagt er til að eigið fé bankans
verði byggt upp með þeim hætti
að þar til það hefur náð 6% af
vergi landsframleiðslu renni fjórð-
ungur af meðalhagnaði næstlið-
inna þriggja ára í ríkissjóð en þeg-
ar þessu eiginfjármarki er náð
renni allur hagnaður í ríkissjóð.
Samkvæmt núgildandi fyrirkomu-
lagi rennur ávalt helmingur af
meðalhagnaði næstliðinna þriggja
ári í ríkissjóð óháð eiginfjárstöðu
bankans. Áuk seðla og myntar í
umferð stendur eigið fé Seðlabank-
ans og bundið fé lánastofnana á
móti gjaldeyrisvarasjóðnum.
Edda Þórarinsdóttir
Félag íslenskra leikara
Edda Þórarins-
dóttir kjör-
inn formaður
AÐALFUNDUR Félags islenskra
leikara var haldinn 27. apríl sl.
Félagatala félagsins er nú nær 300,
en meðlimir í því eru frá hinum
ýmsu listgreinum leikhúslista-
manna, þ.e. leikarar, óperusöngv-
arar, listdansarar, leikmynda- og
búningahönnuðir o.fl. Rösklega
100 félagar voru mættir á fund-
inn. Mörg mál voru á dagskrá
fundarins og rætt um ýmis kjara-
og hagsmunamál félagsmanna.
Guðrún Alfreðsdóttir leikkona,
hefur verið formaður FÍL undan-
farin þijú ár en hún gaf ekki kost
á sér til endurkjörs. Tveir leikarar
voru í framboði í formannsstöðuna
en það voru leikararnir Sigurður
Karlsson og Edda Þórarinsdóttir.
Edda var kjörin formaður með
naumum meirihluta.
I september á liðnu ári varð
félagið 50 ára og var þess minnst
á veglegan hátt. Þá var ákveðið að
gefa út rit sem rekur sögu félags-
ins í megin atriðum í hálfa öld.
Ritið verður í alla staði hið vegleg-
asta, prýtt mörgum myndum og
mun koma út mjög bráðlega.
Á fundinum voru kjörnir fjórir
heiðursfélagar en það voru leikar-
arnir Bessi Bjarnason, Gísli Al-
freðsson, Guðbjörg Þorbjarnadóttir
og Klemenz Jónsson. Allir þessir
leikarar hafa gengt margþættum
stjórnar- og trúnaðarstörfum fyrir
félagið í fjölda mörg ár og unnið
vel og dyggilega að hagsmunamál-
um stéttarinnar. Þeim var þakkað
með góðri ræðu formanns.
(Fréttatilkynning)
I
4
4
4
4
4
4
4
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
1» Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
II • Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrúnsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjöröur: Torgið hf., Aðalgötu 32.
• Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
Neskaupstaður: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
Reyðarfjörður: Rafnet, Búðareyri 31.
Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
Höfn í Hornafirði: Kristall, Hafnarbraut 43.
Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
Os
c </>
=j
8’a
0*0«
3 (Q
0:8
D O*
3 Q
I
oS
-r
Q Q'
§8-
3 7T
qS
=50
Q<°
3
Q.
4
4
4
4
4
4