Morgunblaðið - 26.05.1992, Page 44

Morgunblaðið - 26.05.1992, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 44 O. Hannes- son fv. bankaútibús- stjóri — Minning Fæddur 31. október 1921 Dáinn 16. maí 1992 Bernskuvinur minn Hafsteinn 0. Hannesson er látinn, rétt rúm- lega sjötíu ára gamall. Foreldrar Hafsteins, Hannes Halldórsson framkvæmdastjóri og kona hans Guðrún J. Kristjánsdóttir bjuggu á Smiðjugötu 2 á ísafirði, gegnt Tangagötu 4, heimili foreldra minna. Það var náin vinátta milli fjölskyldnanna, og þótt Hafsteinn væri þremur árum yngri en ég, fékk hann oft að „vera með“ í hópi okkar eldri strákanna, einkum þeg- ar frá leið, og aldursmunurinn var ekki lengur eins tilfínnanlegur. Hafsteinn var ávallt vel liðinn leik- félagi, samviskusamur og traustur vinur vina sinna. Á æskuárum okk- ar var Gunnar Andrew íþrótta- kennari á ísafirði hvatamaður að stofnun skátafélagsins „Einherja", sem þá starfaði af miklum þrótti. Báðir gerðumst við Hafsteinn skát- ar, og nutum skátastarfsins og útivistar með góðum félögum. Árið 1937 var alþjóðaskátamót, jamboree, haldið í Hollandi, og fór- um við þrír skátar frá Isafirði á það mót, Hafsteinn, Sveinn Elías- son og ég. Frá Reykjavík fórum við með öðrum íslenskum skátum með skipi til Noregs, þaðan með norsku skátunum til Danmerkur og með járnbrautarlest gegn um Þýskaland til Hollands. Eftir skáta- mótið fóru íslensku skátamir á heimssýninguna í París, þaðan aft- ur gegnum Þýskaland til Danmerk- ur, og heim með skipi frá Kaup- mannahöfn. Við Isfírðingamir héldum oftast hópinn á þessu ferð- alagi, og þar kynntist ég Hafsteini enn betur sem traustum vini og félaga. Ekki vorum við ferðafélagarnir auðugir af vasapeningum, og þurft- um því eðlilega að fara sparlega með aurinn þótt víða væm freist- andi kaup í boði. Þar reyndist Haf- steinn oft okkur hinum fremri. Hann var áberandi hagsýnn í fjár- málum á þessu ferðalagi, og komu þannig strax fram þeir hæfileikar hans, sem hafa dugað honum vel sem traustur bankastarfsmaður í 47 ár, og þá einkanlega í ábyrgð- armiklu starfí sem útibússtjóri hjá Landsbanka íslands á Isafírði, Eskifírði og í Grindavík. Mér var kunnugt um námsferil Hafsteins í Verslunarskólanum, en eftir að ég fór til náms í Danmörku í janúar 1940 og var þar öll stríðsárin, rofnaði alit samband við ísland. Að stríði loknu barst mér sú ánægjulega frétt, að Hafsteinn og uppeldissystir mín Kristín Bárð- ardóttir hefðu gifst 25. ágúst 1944. Hafsteinn var starfsmaður útibús Landsbankans á ísafírði frá 1941 til 1972, og bjuggu þau þá í Tún- götu 1, húsi sem faðir minn hafði byggt árið 1930. Eftir að ég flutti aftur til íslands 1948 var ég oft gestur þeirra hjóna á ísafírði. Alltaf var jafn ánægju- legt að heimsækja þau, njóta gest- risni þeirra og riíja upp liðna tíð. Eitt sinn drifum við okkur öll sam- an á skíði upp á Seljalandsdal, al- veg eins og forðum daga. Sem ekkjumaður og að loknu starfí _ skipasmíðaráðunauts Fiskifélags íslands í Reykjavík, flutti faðir minn Bárður G. Tómas- son aftur til ísafjarðar, þar sem hann hafði starfað mestan hluta ævi sinnar. Hann kom til ísafjarðar árið 1959 og bjó þá hjá þeim hjón- um Hafsteini og Kristínu og naut alúðlegrar umhyggju þeirra síðustu æviárin, þar til hann lést árið 1961. Bæði störfuðu þau hjónin í skátahreyfíngunni, og Hafsteinn var skátaforingi Einheija um ára- raðir á meðan hann var á ísafírði. Hann hafði þar forgöngu um stofn- un hjálparsveitar skáta, sem starf- að hefur síðan í 40 ár af mikill atorku að björgunar- og slysa- vamamálum. Þá vann Hafsteinn einnig mjög mikið starf að bruna- varnamálum á ísafírði. Fyrir slökkviliðið sá hann um kaup á ýmsum búnaði, m.a. nýrri fullkom- inni slökkvibifreið. Þá kynnti hann sér persónulega almannavamir og sótti námskeið um það málefni í Danmörku. Á vegum Landsbanka íslands fór Hafsteinn í 6 mánuði til þjálfunar við erlenda banka, í Danmörku og Englandi. Landsbanki íslands mun hafa þann sið að flytja útibússtjóra sína til á milli landshluta. Hvort sem hugmyndin er sú, að óæskilegt sé að útibússtjóri starfí of lengi þar sem hann er orðinn mönnum kunn- ugur, eða að hollt sé fyrir yfírmenn útibúanna að kynnast staðháttum á mörgum stöðum. Eftir að Haf- steinn hafði verið í eitt ár útibús- stjóri Landsbankans á ísafírði var honum boðið starf útibússtjóra á Eskifírði, og þar bjuggu þau hjónin í 6 ár. Næstu 12 árin var Hafsteinn svo útibússtjóri í Grindavík. Að þeim ámm liðnum hætti Hafsteinn störfum vegna veikinda og aldurs, en þá hafði hann verið starfsmaður Landsbanka íslands í 47 ár. Eftir að Hafsteinn hætti störfum festu þau hjónin kaup á nýrri íbúð fyrir aldraða á Grandavegi 47 í Reykjavík. Öll þijú uppkomin börn þeirra hjóna eru nú búsett í Reykja- vík, og hafa þau því notið nærveru og ánægjulegra samvista við þau, tengdabömin og bamabörnin. Fyrir allmörgum ámm, meðan Hafsteinn var útibússtjóri á Eski- fírði, fékk hann áfall og var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Hann náði að því er virtist fullri heilsu aftur, en varð þó að hafa nokkra aðgát, og naut þar alúðlegrar umönnunar konu sinnar. Þau hjónin hafa ávallt verið mjög samhent og stutt hvort annað í áranna rás. Þótt heilsufar Hafsteins síðustu -árin hafi ekki verið eins og best varð á kosið, varð andlát hans 16. þ.m. óvænt. Við hjónin söknum og minnumst góðs vinar og þökkum áratuga samfylgd. Innilega samúð vottum við þér, kæra uppeldissystir, böm- um ykkar Bárði, Guðrúnu Krist- jönu, Hannesi, tengdabörnunum og bamabömunum. Við sem nutum samvista og vináttu Hafsteins vit- um hve mikið þið og við öll höfum misst, en minninguna um góðan dreng geymum við með okkur. Hjálmar R. Bárðarson. Við ótímabært andlát vinar okk- ar, Hafsteins 0. Hannessonar, rifj- ast upp gömlu góðu árin á ísafirði. Þar var hann fæddur og uppal- inn, einkabarn foreldra sinna, þeirra heiðurshjóna Guðrúnar Kristjánsdóttur og Hannesar Hall- dórssonar. Hús þeirra hjóna stóð við Smiðju- götu og var þar gott að komaf notalegt og svo innileg gestrisni. Guðrún var einstök kona, hlý og góð, enda fundu bömin mín það. Ef pabbi þeirra átti erindi á það heimili og þau fréttu af því hlupu þau öll út í bíl, eitt eða fleiri, og sátu í honum og það brást ekki að Guðrún kæmi út með eitthvert góð- gæti til þeirra, slíkt gleymist ekki. Hafsteinn ólst upp við mikið ástrfki foreldra sinna og var þeim góður sonur. Hann gekk ungur í skátafélagið Einheija undir stjórn okkar ógleymanlega Gunnars Andrews. Það voru margar ánægjustundir í kringum þann félagsskap, sumar- dagurinn fyrsti með skátamessu, skrúðgöngu, svo og ýmsu öðm, t.d. pönnukökubakstri o.fl., o.fl., sem við mömmurnar tókum að okkur. Hafsteinn var glæsilegur og an að vinna í Landsbankaútibúi á ísafírði. Hann var lánsamur, átti gott heimili, góða foreldra og þá ekki síst er hann kvæntist sinni yndislegu konu, Kristínu Bárðar- dóttur, einnig frá ísafirði. Þau stofnuðu heimili sitt, eignuð- ust þijú efnileg böm: Bárð, Guð- rúnu Kristjönu og Hannes, öll vel menntuð og hafa stofnað eigin heimili hér syðra. Ekki hef ég vitað sannari Isfírð- inga en þeirra fjölskyldu. Samt atvikaðist svo að Hafsteinn og þau, fluttu austur á fírði þar sem hann varð útibússtjóri sama banka, síðan tii Grindavíkur en fluttu fyrir skömmu á Grandaveg 47, Reykja- vík. Það er ekki hægt annað en að minnast á hvað öll fjölskyldan reyndist á aðdáunarverðan hátt foreldmm Hafsteins. Þau tóku móður hans á heimilið. Var það fagurt fordæmi hvernig þau öll og ekki síst Kristín reynd- ust henni þar til yfír lauk. Já, það er margs að minnast og sakna þegar komið er að kveðju- stund. Hugur minn dvelur hjá þér, Kristín mín, sem mest hefur misst. Sendi þér og bömunum einlægar samúðarkveðjur með hjartans þakklæti fyrir liðnu árin. J.B.L Tíminn skilar okkur öllum til án- ingastaða og að síðustu til leiðar- loka. Enginn ræður sólsetri, né held- ur hvenær hann hverfur úr þessum heimi yfir á lendur óendanleikans. Við trúum því og treystum, að sá, sem öllu ræður, kunni alltaf beztu skil allra hluta, þó svo að okkur kunni á stundum að dyljast rétt rök í svip og eigum erfítt með að átta okkur á staðreyndunum. Þegar góð- ir félagar og samferðamenn falla frá, verður manni gjaman litið til baka, yfir farinn veg, og minning- amar hrannast upp. Þannig varð mér í huga, þegar ég frétti andlát vinar míns, Hafsteins O. Hann- essonar, fyrrverandi bankaútibús- stjóra Landsbankans, enda þótt ég vissi, að heilsu hans hefði hrakað mjög að undanförnu. Hafsteinn 0. Hannesson var fæddur á ísafírði 31. október 1921 og lézt í Borgarspítalanum í Reykja- vík 16. maí 1992. Hann var einka- sonur hjónanna Hannesar Halldórs- sonar og Guðrúnar J. Kristjánsdótt- ur, sem bæði voru þekktir borgarar á ísafírði í áratugi. Hann var af vestfirzku bergi brotinn í báðar ættir. Hannes var Strandamaður, sonur Halldórs bónda Jónssonar á Melum í Árneshreppi í Strandasýslu og síðari konu hans Guðbjargar Óladóttur, en fluttist til ísafjarðar 10 ára gamall árið 1902 og átti heima hér til æviloka. Guðrún var aftur á móti ísfirðingur, dóttir Krist- jáns Kristjánssonar, Ámgrímsson- ar, og konu hans Jónínu Jónsdótt- ur. Hafsteinn ólst upp í skjóli ástríkra foreldra, og stóð æskuheim- ili hans í Smiðjugötu 2. Það hús byggði langafí hans, Jens Kristján Arngrímsson, klénsmiður, árið 1853, og er nafn götunnar dregið af smiðju Kristjáns. Hafsteinn lauk prófí frá Verzlunarskóla íslands vorið 1941 og gerðist starfsmaður Landsbanka Islands og vann þeirri stofnun meðan starfskraftar entust. Hann hóf starfsferil sinn í útibúi bankans á Isafirði og starfaði þar óslitið, þar til hann var ráðinn úti- bússtjóri bankans á Eskifirði í árs- byijun 1972. Sex árum síðar fluttist hann til Grindavíkur og tók við for- stöðu útibús bankans þar. Á Eski- fjarðarárum sínum kenndi Haf- steinn sjúkdóms þess, er loks batt enda á æviskeið hans. Árið 1988 hafði sjúkleiki hans ágerzt svo, að hann treysti sér ekki til að halda áfram starfi sínu í bankanum í Grindavík. Hann lét þá af starfí eftir nær hálfrar aldar starfsferil í bankanum. Árið eftir flutti hann til Reykjavíkur, þar sem hann átti heima upp frá því. Meðan Hafsteinn starfaði í útibúinu á ísafirði stund- aði hann lengst af kennslustörf með starfí sínu í bankanum, kenndi bók- færslu og vélritun við Gagnfræða- skóla ísafjarðar. í einkalífí sínu var Hafsteinn mikill gæfumaður. Hann kvæntist 25 ágúst 1944 Kristínu Bárðardótt- ur, Guðmundssonar, bókbindara á ísafírði, en hún var fósturdóttir Bárðar G. Tómassonar, skipaverk- fræðings, og konu hans Ágústu Þorsteinsdóttur. Hún hefír verið hans trausti lífsförunautur og vinur alla tíð, og stoð hans og stytta í erfiðum veikindum seinustu árin, en áður hafði hún veitt fósturföður sínum og tengdamóður frábæra umhyggju í langvarandi veikindum þeirra. Þjóðfélag okkar stendur ekki í lítilli þakkarskuld við þær konur, sem slíka umönnun veita og verður þeim það sennilega seint fullþakkað. Börn þeirra Hafsteins og Kristínar eru: Bárður, skipaverkfræðingur, f. ll.júlí 1945, Guðrún Krisyana, iðju- þjálfi, f. 29. apríl 1950 og dr. Hann- es, matvælaverkfræðingur, f. 17. sept. 1951. Þau hafa öll stofnað sín eigin heimili og eru öll búsett í Reykjavík. Hafsteinn var ósérhlífinn og vinn- usamur meðan þrek hans og kraftar leyfðu, en hann var einnig ákaflega vandfýsinn á eigin verk og vildi hafa alla hluti í röð og reglu. Það var eitt af mörgu, sem af honum mátti læra. Hentum við félagar hans stundum gaman að þessu, en öllu slíku tók hann með jafnaðargeði. Heiðarleiki hans og drenglyndi í samskiptum við annað fólk aflaði honum vinsælda, enda var hann alla tíð mjög félagslyndur og hafði mik- inn áhuga á félagsmálum. Það var á þeim vettvangi, sem leiðir okkar lágu saman fyrir réttum 50 árum. í ársbyijun 1942 var hann kosinn félagsforingi Skátafélagsins Ein- heija á ísafírði, en starf þess hafði þá verið í nokkurri lægð um skeið. Hann hafði óbilandi trú á hlutverki skátastarfsins og möguleikum þess og var sannfærður um að Baden Powell fór rétt að, þegar hann lagði grundvöllinn að skátastarfínu með innsæi sínu. Honum var ljóst, hvers skátafélagsskapurinn var megnug- ur í uppeldislegu starfi drengja og stúlkna og hvaða þýðingu gott skát- astarf hefði fyrir lítið bæjarfélag eins og ísafjörð. Sjálfur hafði hann átt þess kost að taka þátt í alheims- móti skáta í Hollandi 1937 og vildi legga sitt af mörkum, svo að aðrir unglingar fengju slík tækifæri og nytu uppeldisáhrifa skátahreyfíng- arinnar. Á skömmum tíma tókst honum, ásamt ýmsum eldri Einheij- um, að drífa félagið upp úr öldudaln- um og gera það að þróttmiklu og öflugu æskulýðsfélagi, sem lengst af síðan hefír haft mótandi áhrif á ísfírzka æsku. Hafsteinn var ákafamaður til allra verka. Það kom fram bæði í starfi og leik. Á löngu árabili helg- aði hann skátastarfinu nær allar sínar frístundir. Með eldlegum áhuga sínum hreif hann aðra með sér í starfinu. En það var ekki að- eins að hann byggði upp og mótaði sjálfur félagsstarfíð. Honum var Ijóst, að heilbrigt æskulýðsstarf verður að byggjast á traustum fjár- hagsgrunni. Hann gat ekki hugsað sér, að starfsemi félagsins væri háð fjárveitingum opinberra aðila. Þar af leiddi, að hann lagði grunn að traustri fjáröflun fyrir félagið, sem það hefír byggt á allar götur síðan. Hann tryggði starfsemi þess einnig húsRæéi4il-framtíðar,--þegar-félagið keypti Skátaheimilið við Mjallargötu af bæjarsjóði Ísaíjarðar árið 1947, þegar íþróttakennslan var flutt í íþróttahúsið við Austurveg. Það var ekki auðvelt verk fyrir fjárvana félagsskap og fæstir félagarnir orðnir fjárráða. Hannes, faðir Hafsteins, hafði alla tíð mikinn áhuga á stjónimálum og fylgdi Heimastjómarflokknum og síðar Sjálfstæðisflokknum að málum. Fyrir flokk sinn vann hann af frábærum dugnaði og sparaði hvorki tíma né fyrirhöfn. Hafsteinn hafði aftur á móti lítinn áhuga á stjómmálum og helgaði krafta sína öðrum málum. Hann var ávallt reiðubúinn að leggja hverju góðu máli lið, sem hann taldi til heilla horfa. íþróttir veit ég ekki til að hann stundaði um dagana, nema fimleika í skóla. Hann vildi hins vegar leggja íþróttahreyfíngunni lið og tók sæti í fyrstu stjórn íþrótta- bandalags ísfirðinga, þegar það var stofnað árið 1944, og starfaði þar í nokkur ár. Áhugi hans beindist snemma að hverskonar hjálpar- starfí. Hann beitti sér því fyrir stofn- un hjálparsveitar skáta á ísafirði árið 1951 og í framhaldi af því tók hann að kynna sér almannavamir. í því skyni fór hann til Danmerkur árið 1967 og tók þar þátt í mánað- ar námskeiði á vegum Civilforsvar- ets tekniske skole í Tinglev á Jót- landi. Var hann einn af fyrstu ís- lendingunum, sem aflaði sér þekk- ingar á sviði almannavama við þann skóla. Þeirri þekkingu miðlaði hann svo til félaga sinna í hjálparsveitinni og slökkviliðinu, en hann var vara- slökkviliðsstjóri á ísafírði í mörg ár. Einnig kenndi hann skyndihjálp í skólum bæjarins og hjá ýmsum fé- lagasamtökum. Þess er enginn kostur að geta allra þeirra félagsstarfa, sem Haf- steinn tók að sér hér á Isafirði. Svo víða kom hann við í þeim efnum og setti svip á bæjarlífíð meðan hann starfaði hér. Hann gleymdi aldrei uppruna sínum og var alla tíð mik- ill ísfirðingur. Þó að hann dveldi langdvölum í öðmm landshlutum fylgdist hann af áhuga með öllu, sem hér var að gerast, allt til hinztu stundar. Að leiðarlokum þakka ég Haf- steini samfylgdina og trausta vin- áttu, sem aldrei hefir borið skugga á. Við Hulda flytjum eiginkonu hans, bömum og öllum aðstandend- um einlægar samúðarkveðjur. Megi hipn hæsti styrkja þau og blessa í sorginni. Jón Páll Halldórsson. Burtkvaðning Hafsteins O. Hannessonar, fyrrv. bankaútibús- stjóra, kom óvænt þó merkja mætti að heilsa hans væri ekki jafn traust og verið hefír í langan tíma. Komið er á fímmta áratug síðan kunningsskapur varð á milli mín og Hafsteins. Það var fyrir áeggjan hans að ég fór að taka þátt í starfí Einheija á ísafirði. Hafsteinn hafði þá verið félagsforingi um nokkurn tíma. Félagið hafði slitið barns- skónum og komist til þroska, er hann tók þar við forystu. Eftir að Gunnar Andrew driffjöður félags- ins og aðalstofnandi hvarf frá félagsforingjastarfi og fluttist burt úr bænum varð nokkur vandi á höndum. Yngri foringja fýsti ekki að fylla skarð það sem varð við brottför Gunnars, sem rækt hafði starfíð á meðal Einheija með mik- illi reisn. Féll þá starfið í nokkra lægð. Einheijum var ekki horfín hamingja. Hafsteinn kom til starfa þó ungur væri og reisti félagið við og gerði það að leiðandi afli skáta- starfs í landinu á ný. Mesta breyt- ingin í starfi félagsins varð þegar félagið, undir forystu Hafsteins, réðst í að kaupa gamla þinghús bæjarins sem notað hafði verið til fimleikakennslu skólanna um nokkurt skeið og gerði það að skátaheimili. Með þessum kaupum breyttist og batnaði öll aðstaða félagsins til skátastarfs og nýtur félagið þess enn í dag. Forysta og driffjöðrin fyrir þessum kaupum var öll hjá Hafsteini, enda helgaði hann skátaheimilinu _ ómældan hluta af frítíma sínum. Ég tel mig

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.