Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 45 þekkja það vel vegna þess nána samstarfs sem við áttum á þessum árum. Aðaltekjustofn félagsins, sem bar uppi rekstur skátaheimilis- ins, var skátaskeytin, en það starf var eins og annað drifið áfram af Hafsteini. Allur undirbúningur vel skipulagður og verkstjórn öll undir „kommando" Hafsteins. Allt sem gera þurfti fest á blað með tilheyr- andi áminningum um vandvirkni og trúmennsku í starfi. Forystu fyrir stofnun Hjálpar- sveitar Einheija hafði Hafsteinn og gaf hann starfinu þrótt. Strax í upphafi var þess gætt að nauðsyn bæri til að gott samstarf yrði við Björgunarsveit Slysavarnafélags- ins, þannig að hver sveit hefði for- ystu við sitt afmarkaða verkefni en nytu stuðnings hverrar annarrar við störf. Hafsteinn hafði mikinn áhuga á starfi hjálparsveitarinnar og lagði fram sína góðu krafta til að sveitin mætti verða fær um að leysa verkefni sín vel af hendi. Velvild hans til sveitarinnar og vilji til að styrkja hana í starfi kom t.d. fram er hann sendi sveitinni mynd- arlega gjöf á 40 ára afmæli henn- ar. Mikinn áhuga hafði Hafsteinn á starfi slökkviliðs ísafjarðar. Gerð- ist hann þar varaslökkviliðsstjóri. Vann hann að endurskipulagningu liðsins og nýjum tækjakaupum. Vegna þessa áhuga síns sótti hann námskeið til Danmerkur. Nam hann þar fræði er lúta að bruna- vörnum og hjálparstörfum, ef elds- voða eða aðrar hættur bæru að höndum. Hafsteinn var þá kominn til fullorðinsára, en hann lét það ekki aftra sér, þó vita mætti að námið væri hart og ekki ætlað „bankamönnum“ til afreka. Haf- steinn kom fróðari til baka og miðl- aði okkur hinum af lærdómi sínum. Ég ætla ekki með þessum fáu línum mínum að víkja að lífsstarfi Haf- steins, sem bundið var Landsbanka íslands, lengstan tíma við útibúið á ísafirði, bókari, gjaldkeri, skrif- stofustjóri og útibússtjóri á Eski- firði og Grindavík. Veit ég að þar var vel unnið og af fullum trúnaði gagnvart yfirboðurum og stofnun- inni. Eftir að Hafsteinn fluttist til Grindavíkur tók hann á ný þátt í skátastarfí, það er með þátttöku sinni í starfi St. Georgsgildisins í Keflavík og eins er hann tók sér búsetu hér í Reykjavík, þá kom hann til starfa með Reykjavíkur- gildinu. Sótti þar reglulega fundi, þar komum við saman til samstarfs á ný. Ljúft er að minnast hinna mörgu ánægjustunda, sem við nokkrir Einheijar nutum á heimili Haf- steins og fjölskyldu hans í Túngötu 1. Ófáar voru kvöldstundirnar sem við vorum þar og ræddum okkar hugðarefni. Þá er kært að minnast hve Hafsteinn var ljúfur að lána jeppann sinn í-15, ef ungum mönn- um lá á. í því sambandi minnist ég sumarferðar, er við fórum sam- an 3 Einheijar með Hafsteini á 1-15 um allt Norðurland og Aust- fírði. Þessi ferð er okkur öllum kær og mjög eftirminnileg og á ríkt rúm í huga okkar. Það er margs að minnast þegar rifjuð er upp góð vinátta og margt ber þar að þakka, þá kemur ekki hvað síst upp í hug- ann eiginkona Hafsteins, frú Krist- ín Bárðardóttir, sem er einstök að allri manngerð, ljúf og blíð, en hefur sínar eigin skoðanir, en þeim er komið á framfæri með kærleiks- ríkum huga. Ég má þekkja að Kristín hefur verið Hafsteini sönn eiginkona og kærleiksrík móðir barna þeirra, sem eru Bárður, skipaverkfræðingur, Guðrún Krist- jana, iðjuþjálfi og dr. Hannes. Allt vel metið fólk, sem á sín heimili í Reykjavík. Kæra Kristín og börn, við Mál- fríður færum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og þökkum einlæga vináttu og hlýhug. Hafsteini biðjum við góðs til meiri starfa Guðs um geim og hafi hann þökk fyrir allt það sem hann lét skátastarfinu í té. Marías Þ. Guðmundsson. Mannlífið er margvíslegt, veitir mörgum unað og hamingju, en þó skal haft í huga að „ein nótt er ei til enda trygg“ í lífi manns. Kallið kom til Hafsteins, æskufélaga míns og skátabróður, aðfaranótt laugar- dagsins 16. þ.m. Þá var vor í lofti og hinn fagri Tungudalur æskuminninga okkar bjóst til að skipta litum með sumar- komu. Þar stendur Valhöll á bjargi traustu. Hafsteinn var borinn og barn- fæddur ísfírðingur, einkabarn frú Guðrúnar Kristjánsdóttur og Hann- esar Halldórssonar framkvæmda- stjóra Vélbátaábyrgðarfélags ís- firðinga. Þau sæmdarhjón voru vel metnir borgarar á ísafírði. Æsku- heimili Hafsteins stóð í Smiðjugötu 2. Þar var gott að koma, því hús- ráðendur veittu öllum hlýtt viðmót og góðan beina er þar bar að garði. Bernsku- og æskuárin liðu fljótt og fyrr en varði tók alvara lífsins við. Því var það ávinningur fyrir Hafstein að hafa gott veganesi úr foreldrahúsum til þess að takast á við lífið og tilveruna. Hafsteinn fékk orð fyrir að vera góður nemandi, iðinn, námfús og áberandi samviskusamur. Vinátta okkar spannar rúm 60 ár og aldrei bar skugga á þá vináttu. Hafsteinn lauk burtfararprófi frá Verslunarskóla íslands vorið 1941 og hóf þá störf í Landsbanka ís- lands á Isafirði. Þá hafði ég starfað þar í tæp 2 ár og þótti mér gott að fá hann sem vinnufélaga. Laun bankaritara voru þá 150 krónur á mánuði. Ekkert var greitt aukalega fyrir yfirvinnu, sem oft var mikil, einkum seinni hluta árs, vegna vaxtareiknings og ársuppgjörs. Að nokkrum tíma liðnum var banka- stjórninni í Reykjavík skrifað, að frumkvæði Hafsteins, og farið fram á kauphækkun. Þeirri beiðni var vel tekið og laun okkar hækkuð í 200 krónur á mánuði. Sú prósentu- hækkun þætti áreiðanlega góð í dag. Við félagarnir undum hag okkar vel í bankanum með frábær- um_ vinnufélögum. Á unga aldri gengum við Haf- steinn í Skátafélagið Einheija á ísafirði, fyrst sem ylfingar en síðar sem skátar, er við höfðum aldur til. Spennandi útilegur, skemmtileg félagsstörf ásamt ferðalögum um fjöll og firnindi að ógleymdum skát- amótum, þar sem hæst bar jam- boree, þ.e. alheimsskátamót, í Hol- landi árið 1937, og þótti hápunktur skátalífsins. í þessu einstæða ferð- alagi okkar fórum við einnig til Danmerkur, Noregs, Þýskalands og Frakklands. Þetta var stórkost- leg ferð. Þá var oft sungið við raust: „Þegar sólin og vorið á veginum hlær og vindar um ótilíf hvísla, eru fjöllin og vötnin og vináttan kær, og vina hver skógarins hrisla. Þá biðjum við ekki um bíl eða hest en með bakpoka gönpm við vegleysur mest og í fallegum dal, þegar komið er kvöld, þá kyndum við elda og reisum tjöld." Hinir góðu eðlisþættir Hafsteins sýndu, að hann var vel til forystu fallinn, enda var leitað til hans þegar Einheijar voru í miklum öldudal og til stóð að leggja félag- ið niður. Þá var hann kosinn félags- foringi skátanna árið 1942 og hélt hann um stjórnartauminn í mörg ár og markaði djúp spor í sögu Einheija. Hann lét ekki deigan síga í félagsstörfum. Til marks um það má nefna, að fyrir hans frumkvæði var gamla þinghúsið í eigu bæjar- félagsins keypt með góðum kjörum og gert að skátaheimili, sem ennþá er starfað í. Ennfremur stóð Haf- steinn fyrir stofnun Hjálparsveitar skáta á ísafirði, sem nýlega hélt upp á 40 ára afmæli sitt. Þannig mætti lengi telja. En merkasti og hamingjuríkasti þáttur í lífi Hafsteins var áreiðan- lega er hann gekk að eiga Kristínu Bárðardóttur 25. ágúst 1944. Betri konu gat hann ekki valið, því hún er einstaklega hlý og göfug kona, sem hefur staðið við hlið manns síns alla tíð eins og klettur, veitt honum ómetanlega hjálp og um- hyggju í lífinu. Þau voru mjög sam- rýnd hjón og eignuðust þijú mann- vænleg börn: Bárð, skipaverkfræð- ing, Guðrúnu Kristjönu, iðjuþjálfa og Hannes, doktor í matvælafræð- um, sem öll starfa hér. Hafsteinn starfaði í Landsbank- Kveðjuorð: EinarA. Einarsson anum í 47 ár á meðan heilsan leyfði og þótti hann mjög fær og góður starfsmaður er naut trausts yfír- manna sinna. Honum voru því falin margvísleg ábyrgðarstörf innan Landsbankans og hann var útibús- stjóri til margra ára. Síðast sátum við Hafsteinn saman á skátafundi 1. apríl sl. í St. Georgs-gildi, en skömmu seinna tók heilsu hans að hraka verulega, þar til yfír lauk. Þó nú syrti að, er minningin um mætan eiginmann, föður og afa mikil huggun harmi gegn. Við Denna sendum Stínu, börn- um og barnabörnum einlægar sam- úðarkveðjur. Að leiðarlokum þakka ég góðum vini samfylgdina og óska honum velfarnaðar í öðrum heimi, þar sem kærleikurinn og réttlætið ræður ríkjum. Sveinn Eliasson. Fæddur 17. október 1965 Dáinn 26. mars 1992 Sunnudaginn 26. apríl síðastlið- inn barst okkur skólafélögunum sú sorglega frétt að Einar Auðunn væri látinn. Það var aðeins sólar- hringur liðinn frá því að við kom- um saman sem Réttó ’65 og áttum yndislegt laugardagskvöld. Þar var Einar Auðunn mættur bros- andi og kátur eins og ávallt. Hann sagði okkur frá litlu dóttur sinni sem hann var mjög stoltur af. Ekki datt okkur í hug að þetta væri kveðjustund Einars Auðuns. Hann sem átti allt lífíð framund- an. En vegir Guðs eru órannsakan- legir, honum voru ætluð önnur og meiri verk. Við skólafélagar Einars Auðuns sendum Erlu, Silfá og öðrum ást- vinum, okkar dýpstu samúðar- kveðjur. rfJesús, bróðir vor og frelsari. Þú þekkir dánarheiminn. fylgdu vini vorum, þegar vér getum ekki fylgst með honum lengur. Mis- kunnsami faðir, tak á móti honum. Heilagi andi, huggarinn, vertu með oss. Arnen." Skólafélagamir úr Réttar- holtsskóla. "var einhver að tala um á útimálningu og viðarvörn?" OKKAR VERÐ ERU VERÐDÆMI SADOLIN [ sterk múrmálning 9 L verd frá HORPU SILKI 10 L verdfrá l HÖRPU þAKVARI 20 L verdfrá 8.903,- Komdu og kynntu þér málin og gerðu M METRÓ mögnuð verslun f mjódd Álfabakka 16 @670050 G.Á. Böðvarsson hf. SELFOSSl % Ílnlngar ,, ijonOstan hf akranesl malningai poia

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.